Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 54

Morgunblaðið - 25.02.1997, Síða 54
J 54 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Ferdinand Smáfólk IM TIRED OF PON't\ ALL THI5 KINPER6ARTÉN 5TUFF.. IP WE 60T ON A PLANE AT MIDNI6HT, WE COULD BE IN PARI5 TOMORROU).. DO VOU 0 HAVE ANY MONEY? Ég er orðin leið á öllu þessu leik- skóladóti. Af hverju hlaupumst við ekki á brott til Parísar? Ef við færum í flugvél á mið- nætti, þá gætum við verið i Par- ís á morgun. Áttu einhveija peninga? Ég á 35 krónur, kannski við fáum okkur flutt upp á Sagaklass. BREF ITL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang:lauga@mbl.is „Þá skiptir mestu máli að maður græði á þvíu Frá Arna Helgasyni: Aðeins nokkur orð vegna frelsishugmynda prangaranna UM LANGT skeið hafa talsmenn Kaupmannasamtakanna og Versl- unarráðsins krafíst þess að sala á eina vímuefninu, sem leyfilegt er að selja á íslandi, verði fengin í hendur kaupmönnum. Nú hefur svokölluð stjórn ÁTVR boðað nýja stefnumörkun og er hún algerlega í anda þessara hagsmunasamtaka verslunarinnar. Það stingur í augu þegar maður sér hverjir eru í þess- ari stjórn að vafamál er hvort það samrýmist góðum stjórnsýsluhátt- um að stjórnandi fyrirtækis, sem sjálfsagt á aðild að þessum samtök- um, skuli vera formaður stjórnar- innar. Er aðili að þeim samtökum, sem árum saman hafa krafist þess að ÁTVR yrði jafnað við jörðu, skuli fenginn til þess af stjómvöldum að gera tillögnr um framtíðarskipulag áfengisverslunar í landinu? Og hvað með endurskoðandann í stjóminni? Er hann kannski endurskoðandi einhverra fyrirtækja sem aðild eiga að Verslunarráðinu eða Kaup- mannasamtökunum? Mér er spurn: Voru engir menn hæfir til að vinna að þessari stefnu- mörkun, þeirra sem vit hafa á vímu- efnamálum og em á engan hátt tengdir þeim gróðapungum er líta á áfengissölu með gímga hagnaðar- von í melrakkaauganu? Hvað með þekkta vísindamenn á borð við dr. Tómas Helgason? Er hann kannski templari eða afturhaldssamur stjórnmálamaður? Víkverji segir nefnilega að það séu allir þeir sem andvígir em auknu „fijálsræði í smásölu áfengis". Það væri gaman að fá upplýst í hvorn flokkinn ber að skipa dr. Tómasi og þeim fjöl- mörgu vísindamönnum á þessu sviði sem stóðu að riti Heilbrigðisstofn- unar Sameinuðu þjóðanna um þessi mál? Hvort er ritstjóri þeirrar bók- ar, Griffith Edwards, templari eða afturhaldssamur stjómmálamaður? Hitt er svo annað mál að hæf- ustu löggjafar okkar á 20. öld, frá Birni Jónssyni til Bjarna Benedikts- sonar, stóðu að þeirri áfengislöggjöf sem svo vel hefur reynst að hvergi í Evrópu hefur verið minna dmkkið en á Islandi alla öldina og hvergi hefur tjónið af völdum áfengis ver- ið minna. Enda sýnir það sig að a.m.k. sjö af hveijum tíu íslending- um em ánægðir með þjónustu ÁTVR. Hvað á þá þessi gauragang- ur að þýða? Og hvers vegna em menn að gaspra um hluti sem þeir hafa enga þekkingu á? Nefndur Víkveiji telur að aukið aðgengi að áfengi breyti engu um neysluvenjur ofdrykkjumanna. Það er nú öðm nær. Allar rannsóknir sýna að þeir hópar, sem næmastir eru fyrir því ef aðgengi að áfengi er aukið með fleiri sölustöðum eða lengri sölu- tíma,_ em ofneytendur og ungling- ar. Á sama hátt dregur fyrst úr neyslu þessara hópa ef aðgengi er takmarkað. Það er þess vegna ógeðsleg hræsni ef menn í öðm orðinu þykjast vilja stuðla að minni drykkju unglinga og barna en heimta í hinu orðinu frelsi sem allra flestra til að græða á sölu þessa vímuefnis. Þingskörungurinn Pétur Ottesen, sem lengst allra hefur setið á Al- þingi, hefði sjálfsagt seint trúað því að upp mundi vaxa í landinu hópur fólks sem teldi áfengi matvæli en ekki vímuefni. En hann sat nú bara á fimmta áratug á Alþingi og hafði líklega ekki jafnmikið vit á þessum málum og það fólk sem telur að „þótt borgir standi i báli og beitt sé eitri og stáli þá skipti mestu máli að maður græði á þvi.“ ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Jaðarskattar? Frá Tryggva Hjörvar: ÉG VÍSA máli mínu til starfsmanna Orðabókar Háskólans og vonast eftir svari hér á þessum stað. Að undanfömu hefur orðið jaðar- skattar dunið á þjóðinni í öllum fjöl- miðlum. En hvað þýðir það? Það eru fleiri en ég sem ekki vita. Ég er ekki hissa þótt alþingis- menn noti orðið án þess að skil- greina það. Það er svo margt sem þeir þurfa að skrifa undir án þess að skilja, þetta er víst mest orðið á „belgisku". Var ekki einhver ráð- herrann að kvarta yfir því að ný- búið væri að samþykkja lög sem virkuðu öfugt við það sem ætlast var til? En þegar samningamenn verka- lýðsins, baráttuhópur aldraðra og fleiri og fleiri nota þetta orð í um- ræðunni vil ég fá að vita hvað það stendur fyrir. Ég hef spurt en enginn getað svarað mér viðunandi. Stundum þegar menn nota þetta orð eru þeir allt í einu farnir að tala um barna- bætur, húsaleigubætur, vaxtabætur og fleira í þeim dúr, t.d. heimilisupp- bót sem mun vera hluti þess sem ríkinu hefur ekki tekist iað hirða af ellilífeyrinum. Sé það þetta sem menn eiga við með jaðarsköttum er einhver að vaða reyk. Ég sé ekki hvernig uppbót getur verið skattur, ekki einu sinni endur- greiddur skattur því margir sem njóta uppbóta hafa ekki greitt neinn skatt. TRYGGVIHJÖRVAR (eldri), Austurbrún 35, 104 Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.