Morgunblaðið - 25.02.1997, Page 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP - SJÓNVARP
Draumkona í ástardrama
BRAGI Þór Hinriksson kvik-
myndagerðarmaður hélt til San
Francisco, Los Angeles og San
José í Bandaríkjunum síðastliðið
sumar þar sem hann var upptöku-
stjóri að „Dark“, sinni fyrstu kvik-
mynd í fullri lengd. Myndin verður
tilbúin í mars eða apríl næstkom-
andi.
Handritið að „Dark“ skrifaði
hann i samvinnu við leikstjórann
Justin Dossetti en myndin er ást-
ardrama og fjallar um mann sem
hættir að geta lifað eðlilegu lífi
þar sem hann verður ástfanginn
af konu sem birtist honum sífellt
í draumi. „Við Justin skrifuðum
nokkrar útgáfur af handritinu, en
vorum aldrei fullkomlega ánægð-
ir. Þá kynntumst við Jack Rubio
og Kirk Harris sem skrifuðu loka-
útgáfu handritsins og síðan var
ákveðið að framleiða myndina."
Bragi sagði að Justin hafi þekkt
þrjá fjársterka aðila sem sam-
þykktu að leggja áhættufé í mynd-
ina sem þýðir það að ef hagnaður
verður af myndinni fá þeir endur-
greitt, annars ekki. Heildarkostn-
aður verður um 70 milljónir
króna. Myndin er því svokölluð
„independent" mynd, sem þýðir
að hún er fjármögnuð af einkaað-
ilum.
Au pair í USA
Frá tólf ára aldri hefur
Braga dreymt um að fást við
kvikmyndagerð og eftir
stúdentsprófið hóf hann að
gera tónlistarmyndbönd,
meðal annars fyrir Japis og
Smekkleysu. „1994 fór ég til
San Francisco sem au-pair. Hjá
þeim samtökum sem ég fór
með var boðið upp
á að fjölskyldan
borgaði nám fyrir
mann og ég fór í
kvikmyndagerð-
ardeild State
University of San
José. I heiltár
gætti ég barna, og
sá um heimili auk
námsins. I
gegnum skólann
kynntist ég fullt
af fólki sem leiddi
til þess að ég fór
að gera myndbönd
í Los Angeles, auk
fleiri verkefna.
Yfirkennari
deildarinnar við
háskólann var t.d.
að gera stuttmynd
og þar sem hún
hafði séð mynd
eftir mig réð hún
mig sem
upptökustjóra, en
hún varð reyndar
líka að ráða nýja
barnapíu til að
leysa mig af í þessar þrjár
vikur sem tökur stóðu.“
Hittu Samuel L. Jackson
„Það var gaman að vinna við
„Dark“. Við vorum hópur af
nyög hressu ungu fólki sem
myndaði góðan hóp sem hefur
áhuga á þvi að vinna saman í
framtíðinni. Með okkur Justin
eru mjög góðir leikarar sem
eru ekki nyög þekktir ennþá
en eru vel menntaður. Þeir
hafa þó leikið í nokkrum
BRAGI Þór Hinriksson við upp-
tökur á „Dark“.
stórmyndum. Art Chudabala
var í „Strange Days“ og
„Indecent ProposaT. Clifton
Gonsalez Gonsalez er annar
félagi okkar, og hann hefur
leikið í „Dead Presidents" og
„Menace H Society“. Núna
leikur hann aðalhlutverkið á
móti Samuel L. Jackson í mynd
sem kemur út í apríl og heitir
„187“, og er lögregludulmál
fyrir morð.“
Bragi segir að mikil orka sé
í kringum þessa ungu leikara
TVEIR leikarar í myndinni, þeir Art Chudabala og Clifton Con-
salez Gonsalez, bregða á leik.
og alltaf eitthvað nýtt að gerast
hjá þeim. „Við hittum Samuel
L. Jackson í gegnum
kunningsskapinn við þá, þar
sem hann var að vinna í
risastóru Warner Bros
myndveri. Svo vorum við
boðnir í garðveislu til leikstjóra
„Forrest Gump“,“ sagði Bragi.
Hollywood er dauð
Hann segir að menn í
kvikmyndageiranum í Ameríku
séu orðnir leiðir á þessari
dæmigerðu Hollywood formúlu
og því séu framleiðslu- og
dreifingarfyrirtæki á höttunum
eftir nýju hæfíleikafólki. „Ég
fór á fyrirlestur sem leikarinn
Harvey Keitel hélt á San
Francisco kvikmyndahátíðinni
þar sem hann sagði hreinlega
að Hollywood væri dauð,
„independe, sagði hann. Enda
sést það á myndunum sem
hann er að leika í núna eins
og „Smoke“ og „Blue in the
Face“ sem er verið að sýna í
Regnboganum. Ég held að
hann hafi komist á þessa
skoðun eftir að hann
uppgötvaði „Reservoir Dogs“
sem Quentin Tarantino var að
fara að taka, með algjörlega
óþekktum leikurum, á svart
hvíta 16mm filmu. Sú mynd er
mjög gott dæmi um vel
heppnaða „independent"
mynd.
Rétt að byija
„Það er svolítill byijendabragur
á myndinni okkar, en ég held að
hún hafi alveg þokkalega mögu-
leika á því að seljast. Hún fær
vonandi dreifingu í kvikmynda-
húsum í Bandarikjunum og
kannski alþjóðlega myndbanda-
dreifingu. Við erum reyndar þeg-
ar búnir að gera samning við þijú
kvikmyndahús í L.A. um að taka
hana til sýningar. Einnig erum við
búnir að sækja um þátttöku á L.A.
Independent kvikmyndahátíðinni
sem haldin verður í apríl. Það sem
skiptir þó mestu máli er að núna
erum við komnir í gang, búnir að
gera okkar fyrstu mynd, og ætlum
ekki að láta þar við sitja," sagði
Bragi þór Hinriksson.
DANIEL Day Lewis í hlutverki bóndans strangtrúaða, Johns
Proctors, á leið í fangelsi.
Day Lewis flutti á eyðieyju
við undirbúning Múgsefjunar
Sólbakaður
með hníf í hendi
það, meðal annars, að undirbúa sig
svo vel undir þau hiutverk sem hann
tekur að sér að óhug slær á menn.
Strangtrúaður bóndi
Þegar leikaralið myndarinnar kom
siglandi á bátum að tökustað mynd-
arinnar, lítilli eyðiey útaf strönd
norðanverðs Massachusetts fylkis,
Hog-ey í Ipswich flóa, var það fyrsta
sem blasti við þeim, maður líkastur
frumbyggja sem æddi um eyjuna
með hníf í hendi. Hendur hans voru
siggrónar, hárið sítt og húðin sólbök-
uð.
Þessi maður var Day Lewis en
tveimur mánuðum áður, í júlí 1995,
hafði hann farið til eyjarinnar með
mönnum sem voru að byggja sviðs-
myndina á staðnum og vann með
þeim og dvaldi á eyjunni í þeim til-
gangi að komast í enn meira tilfinn-
ingalegt návígi við John Proctor,
hinn strangtrúaða bónda, sem er
miðpunktur í hinni dramatísku sögu
Arthurs Millers af nornaveiðum í
Massachusetts. „Mér fannst mjög
mikilvægt að vinna eitthvað í hönd-
unum til að kynnast Proctor betur,“
segir Day Lewis, „þannig að ég
ákvað að eyða tíma á eyjunni því
stór hluti af sögu þessa fólks er í
raun um tengsl þess við landið og
náttúruna."
Þegar kvikmyndavélarnar fóru
loks að suða á eynni hafði leikarinn
náð að tengjast landinu eða landið
var öllu heldur búið að ná yfirráðum
yfír honum. Á tímanum sem hann
dvaldi á eyjunni hafði hann unnið
með smiðum að sviðsmyndinni og í
raun byggt sjálfur bæinn sem per-
sóna hans í myndinni bjó í. Hann
var í raun hættur að tala við nokk-
urn mann og fór allra sinna ferða á
hestbaki. „Það var mjög spaugilegt
að horfa á hann,“ sagði leikkonan
Charlayne Woodard, sem leikur
ÓSKARSVERÐLAUNALEIKAR-
INN Daniel Day Lewis, sem fer með
aðalhlutverk í myndinni „The
Crucible" , eða Múgsefjun, sem gerð
er eftir sögu Arthurs Millers og sýnd
er í Regnboganum, er frægur fyrir
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. mars 1997 er 23. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 2. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 23 verður frá og með 10. mars n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.693,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. september 1996 til 10. mars 1997 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. mars 1997.
Reykjavík, 25. febrúar 1997.
SEÐLABANKIÍSLANDS
WINONA Ryder og Charlayne
Woodard í hlutverkum sínum
í myndinni en Woodard fannst
Day Lewis oft spaugilegur.
Tituba, þræl frá Barbados. „Þegar
leikstjórinn öskraði, „klippa" , fór
Day Lewis afsíðis og fór að tálga
til einhveija tréstubba."
Mikill óþefur
Þessi vinnubrögð leikarans eru
reyndar hætt að koma fólki mikið á
óvart en han lagði einnig mikla vinnu
í undirbúning mynda eins og „My
Left Foot“ og „In the Name of the
Father". „Mér fannst þetta óhugn-
anlegt á tímabili," sagði meðleikari
hans Bruce Davison, sem leikur
prestinn Parris, og sagði að keyrt
hefði um þverbak þegar hann fann
mikinn óþef inni í einu húsanna á
tökustað. „Þegar ég kom inn sá ég
að þar eitthvað sem sauð í potti og
lyktaði eins og hundaskítur. Þegar
ég grennslaðist fyrir um hvað þarna
sauð komst ég að því að það var
býflugnavax en fólk úr leikmuna-
deildinni hafði smurt kofann að inn-
an með þessu fyrir Day Lewis.
„The Crucible" er eins og áður
sagði gerð eftir sögu ieikritaskáldsins
og Pulitzer-verðlaunahafans Arthurs
Millers. Hún gerist árið 1692 í Salem,
strangtrúuðu samfélagi, í Massachu-
setts í Bandaríkjunum þar sem sann-
leikurinn er fyrir rétti og nornaveiðar
heija á samfélagið. Þegar sannleikn-
um er ýtt til hliðar nær fáfræðin
yfirtökum og þorpið sem er að liðast
í sundur verður fórnarlamb ásakana
um tilbeiðslu djöfulsins.
Með önnur aðalhlutverk fara Win-
ona Ryder, sem leikur Abigal Will-
iams sem þráir Proctor og vill ná
huga hans og hjarta, og Joan Allen,
en hún er tilnefnd til óskarsverð-
launa fyrir frammistöðu sína.