Morgunblaðið - 25.02.1997, Side 68

Morgunblaðið - 25.02.1997, Side 68
MORGVNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Útsendingnm Stöðvar 3 hætt í kjölfar kaupa Islenska útvarpsfélagsins Mikil fjárþörf Stöðvar 3 réð úrslitum um sölu ÚTSENDINGUM hefur verið hætt á Stöð 3 í kjölfar þess að samning- ar tókust á laugardag um kaup íslenska útvarpsfélagsins hf. á öll- um hlutabréfum íslenskrar marg- miðlunar hf. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Islenskrar margmiðlunar í gær var ákveðið að stjórnarfor- maður og framkvæmdastjóri hitti starfsmenn Stöðvar 3 á fundi í dag til að ræða framtíð þeirra. Kaupréttur að hlut Chase Manhattan Samningurinn sem nú liggur fyrir gerir ráð fyrir að hluthafar íslenskrar margmiðlunar fái liðlega 9% hlut í útvarpsfélaginu í skiptum fyrir sín bréf. Jafnframt er í samn- ingnum kveðið á um kauprétt síðar að 20% hiut Chase Manhattan Bank í félaginu, en þessi hlutur er nú í formi láns sem bankinn getur breytt í hlutafé og selt. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins réðu nýjar rekstrar- áætlanir Stöðvar 3 úrslitum hjá sumum stærstu hluthafanna um þá ákvörðun að ganga til samn- inga við íslenska útvarpsfélagið. Þessar áætlanir gerðu ráð fyrir að fjárþörf félagsins væri meiri en áður var talið eða allt að 800 milljónir í lánum og hlutafé á næsta ári. Var gert ráð fyrir að á seinni hluta næsta árs yrði fyrir- tækið byijað að skila hagnaði. Eftir endurskoðun þessara áætlana og einhvern niðurskurð lá engu að síður ljóst fyrir að þörf væri fyrir 200-300 milljóna hlutafé í fyrirtækið umfram það sem áður hafði verið reiknað með. „Sigur fyrir íslenskt sjónvarp“ Jón Olafsson, stjórnarformaður íslenska útvarpsfélagsins, segir ljóst að samkeppnin hefði orðið kostnaðarsöm fyrir báða aðila, en misjafnlega mikið þó. „Eg held að menn verði að líta jákvæðum augum á samninginn. Það er sigur fyrir íslenskt sjón- varp þegar eigendur beggja stöðva hafa áttað sig á því að það er miklu meiri hagnaður fólginn í því fyrir áskrifendur að snúa bökum saman og takast á við framtíðina. Það þýðir meiri inn- lenda dagskrárgerð og betra sjón- varp, þannig að við verðum betur í stakk búnir til að keppa við það sem koma^ skal í framtíðinni," segir Jón Ólafsson. Áskrifendur leituðu til Neytendasamtakanna Talsmaður Samkeppnisstofnun- ar segir ekki ólíklegt að stofnunin leiti sér upplýsinga um sameiningu Stöðvar 2 og Stöðvar 3 með það fyrir augum að kanna hvort hún standist samkeppnislög. Þá leituðu nokkrir áskrifendur Stöðvar 3 til Neytendasamtak- anna í gær til að spyijast fyrir um hvort þeir væru bundnir af áskriftarsamningi sem gerir ráð fyrir að þeir séu bundnir af áskrift í heilt ár, ef breytingar verða á þeirri dagskrá sem kynnt hefur verið. ■ Sverðin slíðruð/10-12 ■ Sviptingar/34 Stækkun Járnblendifélagsins Fundur í Osló um breytta eignaraðild FULLTRÚAR íslenska ríkisins og norska fyrirtækisins Elkem ætla að hittast í Ósló nk. föstudag og ræða breytta eignaraðild að ís- lenska járnblendifélaginu hf. á Grundartanga. Jón Sveinsson, for- maður stjórnar, segist gera sér vonir um að á fundinum skýrist hvort samkomulag næst um eigna- raðildina og þar með stækkun verksmiðjunnar. Endanleg ákvörð- un um stækkun yrði tekin í næstu viku. Aukin bjartsýni á stækkun Fulltrúar Elkem og íslenska rík- isins ræddu saman í síma í gær og skiptust á hugmyndum um breytta eignaraðild. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru menn heldur bjartsýnni núna á að samkomulag takist, en nokkurrar svartsýni hefur gætt um það síð- ustu daga. í gær héldu stjórnendur Járn- blendifélagsins fund með starfs- fólki þar sem það var upplýst um þær viðræður sem nú eru í gangi og þá langtímastefnu ríkisstjórn- arinnar að draga sig út úr rekstrin- um, en forsætisráðherra kynnti hana á ráðstefnu um einkavæð- ingu í síðustu viku. Tunnur sendar að Everest ÞREMENNINGARNIR, sem ætla að ganga á Everest í vor, eru að ljúka undirbúningi fyrir ferðina. I gær voru þeir að pakka niður stærstum hluta af búnaðinum sem þeir munu nota í fjall- göngunni og fer hann af stað í dag áleiðis til Katmandu í Nepal. Búnaðurinn var settur í sjö síld- artunnur, en þær voru taldar heppilegar til að geyma skó, ísax- ir, galla, reipi og annað sem þeir þurfa að nota. Þyngd alls þessa var yfir 400 kíló. Þeir sem ganga á Everest eru Hallgrímur Magnússon, Einar Stefánsson og Björn Ólafsson, en þeim til aðstoðar verður Hörður Magnússon (lengst til hægri). Morgunblaðið/Ásdís Kjaraviðræður halda áfram þótt lítið hafi miðað á seinustu dögum Atkvæðagreiðslur um fyrstu aðgerðir sem hæfust 9. mars VIÐRÆÐUR landssambanda ASÍ og vinnuveitenda hafa skilað litlum árangri á undanförnum dögum. Fyr- ir hádegi í dag koma formenn lands- sambanda saman til fundar þar sem farið verður yfir stöðuna og ákvarð- anir teknar um undirbúning verk- fallsaðgerða. Viðræðum hefur þó hvergi verið slitið enn sem komið er og deiluaðilar voru sammála um það í gær að sáttafundir hjá ríkis- sáttasemjara færu fram í vinsam- ' legu andrúmslofti. Þeim yrði haldið áfram næstu daga, þrátt fyrir undir- búning verkalýðsfélaga að verkföll- um. Dagsbrún ætlar að standa fyrir atkvæðagreiðslu meðal starfs- manna Mjólkursamsölunnar í Reykjavík í dag eða á fimmtudag um boðun verkfalls, sem hæfist á S*m miðnætti 9. mars, að sögn Halldórs Björnssonar, formanns félagsins. Verkfalls- og kjörnefndir Dags- brúnar og Framsóknar komu saman í gær en í áætlunum félaganna um aðgerðir er gert ráð fyrir að verk- föll hefjist í einstökum starfsgrein- um og fyrirækjum, breiðist svo út og endi með allsheijarverkfalli 23. mars ef samningaviðræður skila ekki árangri. Viðræður félaganna við viðsemj- endur halda áfram í dag en þær hafa gengið með hraða snigilsins, að sögn Halldórs. Einnig er reiknað með að Rafiðnaðarsambandið taki ákvarðanir í dag um dagsetningu atkvæðagreiðslna um verkföll. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSI, sagði að lítið hafi miðað í viðræðum við Verka- mannasambandið yfir helgina, sér- staklega að því er varðaði tilfærslur á bónusgreiðslum inn í kauptaxtana en þar væri aðallega tekist á um aðferðir. Hins vegar hefði miðað sæmilega í viðræðum við Landssam- band verslunarfólks og Iðju. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir afskaplega lítið hafa gerst efn- islega á samningafundum yfir helg- ina og í gær. Segist hann telja mjög líklegt að á formannafundinum í dag verði teknar ákvarðanir um að setja í gang vinnu við undirbúning að boðun verkfalla. Átök um bónus og taxta tappinn sem allt veltur á Litið hefur verið svo á að ef árang- ur næst í viðræðum vinnuveitenda og VMSÍ, vegna launa fiskvinnslu- fólks, um að færa kaupaukagreiðslur að hluta inn í dagvinnutaxta og um hækkun lágmarkstaxta, verði losað- ur sá tappi sem gæti dugað til að koma kjaraviðræðum á vinnumark- aðinum í fullan gang. Tilboð vinnuveitenda sem tekist var á um yfir helgina gerir ráð fyrir blöndu krónutölu- og prósentuhækk- ana. Að mati VMSÍ felur tilboð vinnuveitenda í sér upphafshækkun við undirritun samninga upp á 2.980 krónur og í framhaldi af því komi til prósentuhækkana á samningstím- anum. Landssambönd ASÍ kreíjast hins vegar almennrar 5.000 kr. hækkun- ar í upphafi og viðbótar hækkunar lágmarkstaxta. VMSÍ hefur lagt til að 60 kr. af bónusgreiðslum verði færðar inn í taxta en vinnuveitendur hafa lagt til lækkun á svokallaðri reiknitölu bónuss og ber mikið í milli. Þá er tekist á um hvort yfir- vinna og álag verði hækkað við hækkun kauptaxta en VMSÍ hafnar tillögu vinnuveitenda um að lækka hlutfall yfirvinnu af dagvinnu úr 1,0385% í 1%. Bjarni til Real Madrid BJARNI Guðjónsson, knatt- spyrnumaðurinn efnilegi frá Akranesi, heldur til Spánar í dag þar sem hann mun verða við æfingar hjá Real Madrid í fjóra daga. „Þetta er í einu orði sagt frá- bært. Svona tækifæri fær maður ekki nema einu sinni á ævinni, ef maður er heppinn,“ sagði Bjarni í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Ensku liðin Liverpool og Neweastle hafa einnig sýnt áhuga á að fá Skagamanninn unga. ■ Bjarni/Bl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.