Morgunblaðið - 11.03.1997, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Samkomulag náðist milli stjórnar og stjórnarandstöðunnar í Albaníu
Stj órnarhermenn flúnir
frá suðurhluta landsins
Tirana. Reuter.
MESTÖLL Suður-Albanía er á
valdi uppreisnarmanna í landinu
og stjórnarherinn er flúinn burt
úr landshlutanum. Talsmenn upp-
reisnarmanna kváðust hlynntir
samkomulagi Salis Berisha, for-
seta landsins, og stjórnarandstöð-
unnar um þjóðstjórn og kosningar
innan skamms en almennt kváðust
þeir ekki mundu leggja niður vopn
fyrr en hann hefði sagt af sér.
Bærinn Berat féll í gær í hend-
ur uppreisnarmönnum eftir að
stjórnarherinn hafði yfírgefíð hann
og einnig nágrannabærinn Kucove
þar sem fólk lét greipar sópa um
yfirgefna bækistöð albanska flug-
hersins. Barist var hins vegar um
bæinn Permet og féllu þar fímm
menn og sex særðust. Sagt er, að
stjómarhermenn hafí hafíð skot-
hríð á aðaltorgi bæjarins þegar
þeir forðuðu sér burt.
Viya Berisha frá
Uppreisnarmenn, sem eiga sér
engan einn talsmann, segjast
ánægðir með samkomulagið um
þjóðstjóm í landinu og kosningar í
júní en flestir þeirra ætla samt ekki
að láta vopnin af hendi fyrr en
Berisha forseti hefur sagt af sér.
Segja þeir hann bera ábyrgð á pir-
amítafyrirtækjunum, sem rændu
kannski flesta Albani sparifé sínu.
Talsmaður ítalska utanríkis-
Reuter
ALBANSKIR stjórnarhermenn flýðu úr bækistöðvum sínum í borginni Gjirokaster um helgina og
skildu eftir mikið af vopnum. Hér eru nokkrir drengir komnir með alvæpni.
ráðuneytisins sagði í gær, að ít- við uppreisnarmenn í borginni samningi Berisha forseta og
alski sendiherrann í Tirana, Paolo Vlore, þar sem uppreisnin hófst, stjórnarandstöðunnar hefði verið
Foresti, hefði náð samkomulagi um að leggja niður vopn strax og hrint í framkvæmd.
Ásakanir á FBI
Farið á
bak við
Clinton?
Washington. Reuter.
FBI, bandaríska alríkislögreglan,
skýrði tveimur mönnum í banda-
ríska þjóðaröryggisráðinu frá því í
júní á síðasta ári, að grunur léki
á, að Kínveijar væru að reyna að
kaupa sér áhrif með kosningafram-
lögum. Var þeim sagt að láta það
ekki fara lengra þannig að þessar
upplýsingar komust aldrei til Bills
Clintons, forseta Bandaríkjanna.
Stórblaðið The Washington Post
skýrði frá þessu á sunnudag og
hefur fréttin vakið mikla athygli.
Mike McCun-y, talsmaður Hvíta
hússins, sagði í gær, að hann kynni
enga skýrðingu á því hvers vegna
þessu hefði verið haldið leyndu fyr-
ir forsetanum og öðrum ráðamönn-
um.
Beðnir að þegja
„Fundurinn með öryggisráðgjöf-
unum var haldinn í júní á síðasta
ári og þar var íjallað um tilraunir
Kínveija til að styðja suma fram-
bjóðendur með fjárframlögum,"
sagði McCurry og þegar einn
fréttamannanna á fundinum í gær
sagði, að það væri „fáheyrt", að
FBI hefði falið þessar upplýsingar
fyrir Clinton, svaraði hann eftir
langa þögn: „Það hefur ekki farið
framhjá okkur.“ Sagði hann einnig,
að hefði ríkisstjórnin vitað um þes-
ar tilraunir Kínveija, hefði verið
brugðist við þeim.
Viðræður Atlantshafsbandalagsins og Rússa
Nálgast sam-
komulag um
stækkun NATO
Brussel, Moskvu, London. Reuter.
Alltað 100.000 flótta-
menn í hættu í Zaire
Reuter
BÖRN biðja um mat í flóttamannabúðum í Tingi Tingi í Zaire.
Börnin voru skilin eftir í búðunum ásamt öldruðu fólki og sjúkling-
um þegar um 170.000 manns flúðu frá Tingi Tingi fyrir tíu dögum.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ
og Rússar hafa lagt drög að sam-
komulagi um stækkun bandalags-
ins í austur en ýmis deilumál eru
þó enn óleyst, að sögn stjómarer-
indreka í Brussel í gær.
Heimildarmennimir sögðu að
Rússar vildu ekki falla frá þeirri
kröfu sinni að bandalagið reisti
ekki hernaðarmannvirki í ríkjunum
sem fengju aðild að bandalaginu.
„Þetta er nú eitt af helstu vanda-
málunum, Rússamir skilja einfald-
lega ekki hvernig NATO starfar,"
sagði einn stjómarerindrekanna.
Hann sagði að ríkin sem væru
líklegust til að fá aðild að NATO,
Pólland, Tékkland og Ungveija-
land, myndu endumýja hemaðar-
mannvirki sín og vopn, hvort sem
þau yrðu í Atlantshafsbandalaginu
eða ekki.
NATO segist ekki geta orðið við
kröfum, sem þýddu í raun að nýju
aðildarríkin yrðu „annars flokks“
NATO-ríki, en kveðst ekki ætla
að koma fyrir kjarnavopnum eða
senda hersveitir til ríkjanna.
Bandalagið þurfí að hins vegar að
geta endurbætt fjarskiptastöðvar
og flugvelli í löndunum til að
mannvirkin fullnægi kröfum
bandalagsins.
Rússar sögðu í gær að viðræður
Javiers Solana, framkvæmdastjóra
NATO, og Jevgenís Prímakovs,
utanríkisráðherra Rússlands, í
Moskvu á sunnudag hefðu verið
,jákvæðar“ en ýmjs deilumál væru
enn óleyst. Stjórnarerindrekar í
Moskvu sögðu að svo virtist sem
Rússar hefðu fallið frá þeirri kröfu
sinni að bandalagið gerði lagalega
bindandi samning við Rússa um
stækkunina og tengslin við Rúss-
land.
Solana hélt í gær í ferð til Mið-
Asíuríkja en aðstoðarmaður hans,
Gebhardt von Moltke, varð eftir í
Moskvu til að ræða málið frekar
við Níkolí Afanasíevskí, aðstoð-
aratanríkisráðherra Rússlands.
Varað við nýju
„Járntjaldi“
Malcolm Rifkind, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði í gær að
ef Rússum tækist að koma í veg
fyrir stækkun NATO í austur gæti
það skapað mikinn titring og tog-
streitu í Evrópu.
Rifkind sagði í ræðu í Washing-
ton að nýtt „Járntjald" myndi ein-
angra fyrrverandi Varsjárbanda-
lagsríki frá Vestur-Evrópu ef
NATO félli frá þeim áformum sín-
um að veita nokkram ríkjanna
aðild að bandalaginu. „Ríkin
myndu þurfa að gera eigin ráðstaf-
anir í öryggismálum, óháð ríkjun-
um í vestri sem hafa sömu hags-
muni... Svæðisbundin bandalög
myndu koma fram á sjónarsviðið
og minna ískyggilega á Evrópu
fyrir síðari heimsstytjöld," sagði
Rifkind og bætti við að þetta gæti
valdið „nýjum skjálftum eftir þjóð-
ernislegum misgengislínum“.
Hervernd sögð
nauðsynleg til að
bjarga fólkinu
Goma, París. Reuter.
ALLT AÐ 100.000 rúandískir
flóttamenn streymdu til bæjarins
Ubundu í Zaire um helgina vegna
sóknar uppreisnarmanna í austur-
hluta landsins, að sögn Matvæla-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
(WFP) í gær. Franski ráðherrann
Xavier Emmanuelli, sem var á
svæðinu um helgina, sagði að
nauðsynlegt væri að senda þangað
hersveitir til að koma hjálpargögn-
um til flóttamannanna og afstýra
því að uppreisnarmennirnir myrði
þá.
„Flóttamennirnir eru mjög illa á
sig komnir, þeir þarfnast matvæla
og lyfja þannig að við erum að
reyna að hraða aðstoðinni eins og
kostur er,“ sagði talsmaður Mat-
vælastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, Michele Quintaglic.
Stofnunin var aðeins með fjóra
starfsmenn í bænum og þeir voru
alltof fáir til að geta ráðið við vand-
ann. 65 tonn af matvælum vora
flutt til bæjarins í vikunni sem leið
og reynt var í gær að senda þang-
að fleiri starfsmenn og birgðir með
flugvélum og lestum.
„Flóttamennirnir flúðu úr búð-
unum í Tingi Tingi áður en upp-
reisnarmenn náðu bænum á sitt
vald og fregnir herma að fólkið sé
skelfíngu lostið, tali um að fara frá
Ubundu og óttist sókn uppreisnar-
manna,“ sagði Quintaglie.
Um 170.000 flóttamenn frá
Rúanda og Búrúndí fóru frá Tingi
Tingi fyrir tíu dögum, nokkra áður
en bærinn féll. Flestir þeirra eru
Hútúar og flúðu frá Rúanda fyrir
þremur áram og óttast að upp-
reisnarher Tútsa hefni sín á þeim
vegna drápa á allt að 800.000
Tútsum og hófsömum Hútúum í
Rúanda árið 1994. Á meðal flótta-
mannanna í Tingi Tingi voru fyrr-
verandi hermenn og öfgamenn sem
tóku þátt í fjöldamorðunum í Rú-
anda og hafa barist með stjórnar-
her Zaire.
Varað við fjöldamorðum
Emmanuelli sagði að flóttafólkið
í Ubundi og Kisangani, þriðju
stærstu borg Zaire, hefði aðeins
matvæli til tveggja daga. „Verði
hjálparaðgerðir ekki skipulagðar
og öryggi flóttamannanna tryggt
er ljóst að allt þetta fólk, karlar,
konur og börn, mun deyja fyrr eða
síðar af völdum hungurs, þreytu
og sjúkdóma eða að uppreisnar-
mennirnir, sem hafa elt flótta-
mennina í rúma þijá mánuði, myrði
þá.“
Uppreisnarmennirnir vilja
steypa Mobutu Sese Seko, forseta
Zaire, af stóli og hafa náð stóru
svæði í austurhlutanum á sitt vald.
Þeir sögðust í gær sækja að Kis-
angani, sem er helsta vígi stjórnar-
hersins.
Didier Ratsiraka, forseti Madag-
ascar, ræddi við Jacques Chirac,
forseta Frakklands, í gær og sagði
að þjóðir heims þyrftu þegar í stað
að gera ráðstafanir til að afstýra
upplausn Zaire. Ef það yrði ekki
gert væri líklegt að fleiri Afríku-
ríki, svo sem Nígería, leystust upp.