Morgunblaðið - 11.03.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1997 29
ERLENT
Stasi-
menn
dæmdir
Berlín. Reuter.
TVEGGJA ára skilorðsbundnir
fangelsisdómar voru á föstudag
kveðnir upp yfir þremur fyrrver-
andi yfirmönnum austur-þýzku
leyniþjónustunnar, STASI, fyrir
að hafa komið tíu eftirlýstum
hryðjuverkamönnum „Rauðu
herdeitdarinnar" (RAF) undan
armi laganna og fengið þeim ör-
uggt skjól í Austur-Þýzkalandi.
Mennirnir þrír, Harry Dahl,
yfirmaður þeirrar deildar STASI,
öryggismálaráðuneytis austur-
þýzka Alþýðulýðveldisins, sem
hafði umsjón með aðgerðum
gegn hryðjuverkum, og tveir
lægra settir yfirmenn, Giinter
Jáckel og Gerd Peter Zaumseil,
voru fundnir sekir um að hafa
Reuter
STASI-yfirmennirnir þrír, sem fundnir voru sekir um að hafa
brotið lög með því að hjálpa vestur-þýzkum hryðjuverkamönn-
um að komast undan armi laganna. Frá vinstri: Harry Dahl,
Giinter Jackel og Gerd Peter Zaumseil.
hindrað framgang réttvísinnar. Á
tíu ára tímabili, 1980-1990, sáu
Stasi-mennirnir um að hryðju-
verkamennirnir, sem eftiríýstir
voru fyrir morð og hryðjuverk í
Vestur-Þýzkalandi, komust til
Austur-Þýzkalands, þar sem
þeim voru gefin ný skilríki undir
fölskum nöfnum, íbúðir og venju-
leg atvinna, svo þeir hyrfu í fjöld-
ann. Þannig voru þeir hólpnir
undan tilraunum vestur-þýzkra
yfirvalda til að hafa hendur í
hári þeirra. Það var fyrst eftir
sameiningu þýzku ríkjanna
tveggja árið 1990 að hryðju-
verkamennirnir fundust.
Kjarkur í
auglýsingum
Hvað þarf til að ná í gegn?
Hádegisveröarfundur Félags viðskipta- og hagfræöinga.
Fimmtudaginn 13. mars n.k. boðar Félag viðskipta- og hagfræðinga til fundar
frá kl. 12:00-13:30 aö Hótel Sögu, Ársal 2. hæð.
Framsögumenn á fundinum veröa þeir:
Ástþór Jóhannsson hjá auglýsingastofunni Góðu fólki, en Gott fólk
hlaut einmitt flest verðlaun nýverið fyrir „Athyglisverðustu auglýsingar
ársins".
Ásmundur Helgason markaðsstjóri Húsasmiðjunnar, en Húsasmiðjan
er einnig marg verðlaunuð fyrir athyglisveröar auglýsingar.
Framsögumenn munu m.a. fjalla um:
* Hvað þarf til að ná athygli neytandans í síflóknara markaösumhverfi
* Hversu langt má ganga við auglýsingagerð
* Dæmi tekin um athyglisverðar auglýsingar, innanlands og erlendis
* Samskipti auglýsenda og auglýsingastofa
Verð er 1.500 kr. fyrir félagsmenn en 1.900 kr. fyrir aðra.
Hádegisverðurinn innifalinn.
Opinn fundur - gestir velkomnir.
FELAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Fundurinn hefst kl. 12:00, stendur til kl. 13:30 og er öllum opinn.
Nýr örgjörvi
Heyrnar-
skertir fá
nánast fulla
heyrn
Malaga. Morgunblaðið.
VÍSINDAMENN við Háskólann í
Malaga á Suður-Spáni hafa þróað
nýja tegund örgjörva, sem vonast
er til að geti valdið byltingu í smíði
heyrnartækja. Ukur eru taldar á að
ný stafræn heyrnartæki búin ör-
gjörvanum góða geti tryggt heyrnar-
skertum nánast fulla heyrn.
Alfonso Gago, yfirmaður þeirrar
deildar Háskólans sem unnið hefur
að þróun örvgjörvans, segir í viðtali
við Andlúsíu-blaðið Sur að líta megi
á það framfaraskref sem stigið hafi
verið sem meiriháttar árangur.
Sniðið að þörfum
hvers og eins
Tveir góðir í
SUZUKIVITARA JLX, 5-dyra: aóeins
1.940.000 KR.
BALENO WAGON 4WD fyrir aðeins
14 manns hafa unnið að þróun
þessa nýja búnaðar við Háskólann í
Malaga undanfarin fimm ár. Búnað-
inum hefur verið komið fyrir í nokkr-
um heyrnarskertum sjúklingum í til-
raunaskyni og segir Alfonso Gago
að árangurinn hafi reynst meiri en
menn þorðu að vona fyrirfram.
Örgjörvinn nýi verður enn um
hríð aðeins fáanlegur á sjúkrahúsi
háskólans en að sögn Gago hefur
franskt fyrirtæki lýst yfir áhuga á
að taka þátt í þessu verkefni.
Ódýr búnaður
Prófessor Gago segir að heppileg-
ast væri ef önnur fyrirtæki tækju
að sér að framleiða örgjörvann og
segir hann að hvert slíkt tæki ætti
ekki að kosta meira en sem svarar
til 12.000 króna. ígræðslan sjálf
mun hins vegar reynast dýrari. Há-
skólinn vonast til þess að unnt reyn-
ist að setja þessa nýjung á markað
sem víðast þannig að hún geti létt
sem flestum heyrnarskertum lífið.
ÍYITARA
Tækið nýja skiptir utanaðkomandi
hljóði upp í 64 bylgjulengdir og er
þannig unnt að stilla búnaðinn eftir
þörfum hvers og eins. Sökum þess
hve bylgjulengdirnar eru margar
telja vísindamennirnir að unnt verði
að tryggja fólki sem glatað hefur
allt að 60% af heyrn sinni nánast
fulla heyrn.
Stærð örgjöivans þykir einnig
heyra til tíðinda. Hann er aðeins um
fjórðungur úr sentimetra að lengd
og verður því unnt að koma honum
þannig fyrir að viðkomandi geti
sjálfur fjarlægt búnaðinn auk þess
sem ekki mun sjást að sá hinn sami
noti heyrnartæki.
Árangur framar vonum
S veitarslj órnarkosningar í Austurríki
Hægrimenn vinna á
FLOKKUR austurrískra jafnaðar-
manna, SPÖ, beið á sunnudaginn
allnokkurn fylgishnekki í sveitar-
stjórnarkosningum í Kárnten, einu
sambandslanda Sambandslýð-
veldisins Austurríkis. Flokkur
fijálslyndra, FPÖ, sem er frekar
langt til hægri, vann aftur á móti
á og er nú annar stærsti flokkur í
héraðinu.
Kosningarnar voru fyrsti próf-
steinninn á vinsældir austurrísku
ríkisstjórnarflokkanna eftir upp-
stokkun í stjóm SPÖ og hins íhalds-
sinnaða Þjóðarflokks, ÖVP, sem
fylgdi í kjölfar óvæntrar afsagnar
Franz Vranitzkys kanzlara, sem í
janúar sl. vék úr embætti fyrir
flokksbróður sínum Viktor Klima.
Jafnaðarmenn hlutu 40,5% at-
kvæða og héldu stöðu sinni sem
stærsti flokkur í héraðinu, en töp-
uðu meira en 5% frá síðustu
sveitarstjórnarkosningum fyrir sex
árum.
FPÖ jók fylgi sitt um nær 5%;
hlaut 26,07% greiddra atkvæða.
ÖVP hrapaði niður í 22,3% og tap-
aði þar með meiru en 2% frá fyrri
kosningum.
A undan timanum
i 100 ár.
fyrir
steinsteypu.
Léttir
meöfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávalit fyrirliggjandi.
1 varahlutaþjónusta.
Þ. Þ0RGRÍMSSQN & C0 Armúla 29, simi 38640
FYRIRLI6GJANDI: 6ÖLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - DÆLUR
- STEYPUSA6IR - HRJERIVÉLAR - SAGARBLÖ8 - Vönduð framleiðsla.
! BALENO WAGON 4WD
Prufukeyrðu Suzuki í dag.
Taktu nokkrar beygjur, finndu þœgilegan gír.
Mjúkur og léttur - eins og akstur á ao vera.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf.
Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavík: BG bíiakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.