Morgunblaðið - 15.03.1997, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 15. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
UMHELGINA
Handknattleikur
Laugardagur:
Undankeppni HM kvenna:
Seltjarnarn.: ísland - Sviss..kl. 16.30
2. deild karla:
Seltjamarn.: KR-HM............kl. 18.30
Sunnudagur:
8-Iiða úrslitakeppni karla:
Varmá: UMFA-FH....................kl. 16
Vestm.: ÍBV - Fram................kl. 20
Mánudagur:
Strandgata: Haukar-Valur..........kl. 20
KA-heimilið: KA - Stjarnan........kl. 20
Aukakeppni um fall í 2. deild:
Seljaskóli: ÍR-Selfoss............kl. 20
Körfuknattleikur
Laugardagur:
Undanúrslit kvenna:
Hagaskóli: KR - IS............kl. 18.00
Keflavík: Keflavík - UMFG.....kl. 20.00
Sunnudagur:
Undanúrslit karla:
Grindavík: UMFG-UMFN..........kl. 16.00
Keflavík: Keflavík - KR.......kl. 20.00
Undaúrslit i 1. deiid karla:
Garðabær: Stjarnan - Snæfell..kl. 15.00
Austurberg: Leiknir-Valur.........kl. 20
Knattspyrna
Deildarkeppni KSÍ
Laugardagur:
Leiknisv.: Þróttur R. - UMFA......kl. 11
Kópavogsv.: UMFN-KR...............kl. 11
Ásveilir: Fram-KA.................kl. 13
Lfiiknisvöllur: Stjarnan - Fylkir.kl. 13
Ásvellir: Leiftur - Reynir S....."kl. 15
Kópavogsv.: ÍBV - KS..............kl. 15
Leiknisvöllur: Valur-ÞórA.........kl. 15
Kópavogsv.: Fjölnir - Dalvík......kl. 17
Sunnudagur:
Ásvellir: Léttir-ÞórA.............kl. 11
Kópavogsv.: VikingurÓ. - HK.......kl. 11
Ásvellir: Selfoss - KA............kl. 13
Kópavogsv.: KS - Breiðablik.......kl. 13
Leiknisv.: VíkingurR.-Ægir........kl. 13
Ásvellir: Dalvík - Skallagrímur...kl. 15
Leiknisv.: ÍR-LeiknirR............kl. 15
Sund
Meistaramóti íslands í sundi innanhúss
verður framhaldið í Vestmannaeyjum um
helgina. Mótið hófst í gær og lýkur á morg-
un.
Borðtennis
íslandsmótið í borðtennis fer fram í TBR-
húsinu um helgina. Úrslitaleikimir í karla-
og kvennaflokki verða kl. 15.30 á sunnudag.
Fimleikar
Bikarmót íslands í fimleikastiganum fer
fram í Laugardalshöll í dag. Á morgun
verður meistaramót í fimleikastiganum.
Íshokkí
Fyrsti leikurinn um íslandsmeistaratitilinn
í fshokkí milli Skautafélags Akureyrar og
Bjamarins verður á skautasvellinu á Akur-
eyri í dag. Leikurinn hefst kl. 19.00. Annar
leikur liðanna verður á sama stað kl. 14 á
sunnudag. Þijá sigra þarf til að hreppa ís-
landsmeistaratitilinn.
Listhlaup á skautum
íslandsmótið í listhlaupi á skautum fer fram
á skautasvellinu á Akureyri í dag, laugar-
daginn 15. mars, og hefst með mótssetn-
ingu kl. 11.30. Keppt verður í fjórum aldurs-
flokkum, 11 áraogyngri, 12-13ára, 14-15
ára og kvennaflokki. Mótinu lýkur með
verðlaunaafhendingu kl. 16.30. Mótið átti
upphaflega að fara fram um síðustu helgi
en því varð að fresta vegna veðurs og ófærð-
ar.
Skíði
Bikarmót SKÍ í alpagreinum fullorðinna,
Hermannsmótið, verður í Hlíðarfjalli við
Akureyri um heígina. Keppt verður tvívegis
f stórsvigi f dag og ! svigi á morgun, sunnu-
dag. Á Siglufirði verður bikarmót í göngu
og á ísafirði verður bikarmót í alpagreinum
13-14 ára.
Frjálsíþróttir
Meistaramót ísland 15-22 ára í fijálsíþrótt-
um innanhúss fer fram um helgina. Keppt
verður i Baldurshaga og Laugardalshöll.
Tennis
fslandsmót unglinga í einliðaleik í tennis
fer fram í Tennishöllinni ! Kópavogi um
helgina. Mótinu lýkur á sunnudag.
Badminton
fslandsmót unglinga í badminton verður
haldið í Keflavík um helgina. Mótið hófst
f gærkvöldi og lýkur á sunnudag. Keppend-
ur eru 210 talsins frá 15 félögum.
Glíma
Landsflokkagliman fer fram í íþróttahúsi
Fjölnis í Grafarvogi á morgun, sunnudag,
og hefst keppni kl. 10. Keppnin fór fyrst
fram 1947 og á þessum tímamótum er
metþátttaka í 15 flokkum karla og kvenna.
• Grunnskólamót fslands í glímu, 4. til 10.
bekkur drengja og stúikna, fer fram í
íþróttahúsi Fjölnis f dag og hefst kl. 10.
Blak
Bikarúrslit kvenna
Seltjn.: ÞrótturN. - ÍS.........12.30
FELAGSLIF
Herrakvöld
Stjörnunnar
Hið árlega herrakvöls Stjörnunnar verður
haldið í samkomuhúsinu Garðaholti föstu-
dagskvöldið 21. mars. Miðar eru seldir í
Stjömuheimilinu alla virka daga kl. 13 til
19 en ekki við innganginn.
ÍÞROTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftureldingar, hreykin
Gotft að eiga
svona menn
Afturelding braut blað í sögu félagsins þeg-
ar liðið varð deildarmeistari í 1. deild karla
í handknattleik í fyrrakvöld. Þetta er stærsti
sigur félagsins í Mosfellsbæ og af því tilefni
ræddi Steinþór Guðbjartsson við Einar
Þorvarðarson, þjálfara liðsins síðustu tvö ár.
Sigur Aftureldingar í deildar-
keppninni sýnir að markviss
vinnubrögð og þrotlaus vinna skila
árangri. Þrátt fyrir tröppugang og
mótlæti í nær tvo áratugi misstu
sporgöngumennirnir aldrei móðinn,
ákvörðun var tekin um að snúa
vörn í sókn, búa til meistaralið og
það tókst.
„Raunverulegt uppbyggingar-
starf með því markmiði að búa til
meistaralið hófst 1991 þegar Jó-
hann Guðjónsson tók við for-
mennsku í deildinni,“ sagði Einar.
„Stjórnin gerði sér grein fyrir að
erfítt væri að búa til meistaralið
eingöngu skipað strákum í Mos-
fellsbæ og ákvað að fara þá leið
að fá menn annars staðar frá.
Vissulega sætti þetta gagnrýni og
enn heyrast óánægjuraddir en fyrr-
nefnd ákvörðun var tekin vegna
aðstæðna. Enginn framhaldsskóli
er í Mosfellsbæ og staðreyndin er
að strákar á framhaldsskólaaldri í
Mosfellsbæ hafa farið í Reykjavík-
urfélögin. Kjarninn hefur tvístrast
á marga staði.“
Uppgangur
Ungmennafélagið Afturelding
sendi lið til keppni í handknattleik
á árum áður og varð m.a. meistari
i 2. deild 1952, 1955 og 1959. Á
tímabili voru hávaxnir og þungir
menn í liðinu, menn eins og Jón á
Reykjum, Ásbjöm á Álafossi, Skúli
Skarp, Halldór Lárusson og Einar
Kristjánsson, „dvergarnir sjö“ eins
og það var kallað. En handknatt-
leiksdeild félagsins var ekki stofnuð
fyrr en 1973 að frumkvæði Davíðs
B. Sigurðssonar og Ingólfs Árna-
sonar. Liðið byrjaði í 3. deild, vann
sér sæti í 2. deild 1979, féll í 3.
deild 1983, meistari þar tveimur
árum síðar, sigraði í 2. deild 1993
og hefur verið í 1. deild síðan.
Einar sagði að uppbyggingin
hefði tekið mörg ár og reyndar
væri ekki séð fyrir endann á henni.
„Guðmundur Guðmundsson tók
við liðinu í 2. deild 1992 og byggði
upp kjarna þess. Hann fékk unga
og efnilega leikmenn sem áttu eft-
ir að sanna sig, menn eins og Ingi-
mund Helgason, Þorkel Guð-
brandsson og Róbert Sighvatsson
sem var reyndar áður í Aftureld-
ingu. Næsta ár bættust Jason Ól-
afsson, Gunnar Andrésson og Páll
Þórólfsson í hópinn ásamt reynslu-
manninum Alex Trúfan en síðan
Bergsveinn Bergsveinsson. Bjarki
Sigurðsson kom með mér en þá fór
reyndar Jason til Italíu. í fyrra fór
Róbert í atvinnumennsku og Jó-
hann Samúelsson til Danmerkur
og þá vantaði okkur línumann. Enn
kom upp spuming um hvað ætti
að gera og úr varð að við fengum
Selfyssingana Siguijón Bjarnason
og Einar Gunnar Sigurðsson, sem
ég þekkti vel en vom á ákveðnum
tímamótum, auk þess sem Sigurður
Sveinsson og Jón Andri Finnsson
komu aftur. Þetta sýnir að liðið
hefur verið byggt upp skref fyrir
skref og kjarninn hefur fengið tíma
til að þroskast."
Utanaðkomandi álag
Aftureldingu var spáð góðu
gengi í fyrra en Einar sagði að
spáin hefði verið óraunhæf og
ótímabær.
„Okkur var stillt upp í toppsæti
ásamt Val en það var óraunhæft
því hópurinn var óslípaður. Við
enduðum í sjötta sæti í deildinni
og féllum síðan úr keppni í und-
anúrslitum. Þetta var tímamótaár;
nýr þjálfari, við vorum í Evrópu-
keppni í fyrsta sinn, Bjarki var nýr
í liðinu og þurfti tíma til að aðlag-
ast og þótt ég hefði viljað enda
ofar var liðið ekki útsprungið."
Margir Mosfellingar voru ekki
ánægðir með árangurinn en Einar
sagði að stjórnin hefði staðið þétt
við bakið á hópnum. Forráðamenn
félaganna spáðu Aftureldingu
fyrsta sæti fyrir keppnina sl. haust
og lengi vel stóð liðið undir vænt-
ingum en þegar tók að halla undan
fæti heyrðust óánægjuraddir. Einar
sagði að sem fyrr hefðu úrtölurnar
og kröfurnar fyrst og fremst komið
frá þeim sem væru á móti samsetn-
ingu liðsins og fjölmiðlum en hópur-
inn og stjórnin hefðu haldið settu
marki.
„Hjá mörgum í Mosfellsbæ hefur
samsetning liðsins, að það skuli
vera skipað mönnum víðs vegar að,
ekki þótt vinsæl og þetta fólk hefur
verið andstæðingar okkar. Tilfinn-
ing mín er sú að þar sem við vorum
settir í fyrsta sæti ættum við að
vera í því að mati þessa fólks en
tilfellið er að flestir leikirnir hafa
verið sveiflukenndir. Við höfum náð
góðri stöðu en misst hana niður.
Þótt heildarútkoman hafi verið góð
hefur meira verið talað um slæmu
hlutina hjá okkur en þá góðu í fjöl-
miðlum og til lengdar er erfitt að
vinna við slíkar aðstæður. Mín
EINAR Þorvarðarson fékk ma
Guðmundi Ingvarssyni, forma
reynsla í íþróttum er að menn eiga
að fagna og vera ánægðir í kjölfar
sigurs en okkur hefur verið gert
erfitt fyrir - höfum mest fengið
að heyra skammir."
Stóðumst álagið
Það hefur sýnt sig að bestu lið
geta átt erfitt uppdráttar þegar þau
verða fyrir áföllum eins og að missa
lykilmenn um lengri eða skemmri
tíma vegna meiðsla. Afturelding
fékk að finna fyrir þessu í vetur
en þrátt fyrir mótlæti stóð það á
hæsta tindi þegar yfir lauk.
„Ég er sérstaklega ánægður með
að við skyldum standast álagið.
Þegar íjórar umferðir voru eftir var
útlitið ekki bjart og það var erfitt
að mæta á Seltjarnarnesið í 19.
umferð. Liðið var vængbrotið og
staðan var svo slæm að homamenn
urðu að taka að sér skyttuhlutverk
og reynsluminni menn urðu að taka
af skarið. Þarna kom styrkur hóps-
ins greinilega í ljós. Menn fóru ein-
huga í verkefnið, leystu það með
prýði og léku geysilega vel á móti
Gróttu. Síðan hefur púsluspilið ver-
ið í gangi og reyndar brenndum
við okkur á móti FH en sýndum
góðan „karakter“ þegar mest á
reyndi."
Stórt skref
Mörg skref, sum létt, önnur
þung, hafa verið stigin hjá Aftur-
eldingu en Einar sagði að erfiðleik-
arnir væru til að sigrast á þeim
og stórt skref væri að baki.
„Félagið hefur náð settu mark-
miði og það er stór stund. Reyndar
er alltaf stór stund þegar titill er í
höfn, fyrir viðkomandi bæjarfélag,
íbúana, stuðningsmennina, stjóm-
armennina og leikmennina. Fyrir
mig sem þjálfara er þessi sigur
geysilega mikilvægur. Þetta er
fimmta árið sem ég þjálfa í 1. deild
DAVÍÐ B. Sigurðsson stóö að stofnun handknattleiksdeildar
Aftureldlngar 1973, hefur verló með llðinu síðan og fagnaði
langþráðu takmarkl, þegar deildarmelstaratitilllnn var í höfn.
1. DEILD KARLA-LOKASTAÐAN
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Lelkir U J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
UMFA 22 8 0 3 277:255 9 0 2 287:257 564:512 34
HAUKAR 22 7 1 4 301:292 8 1 1 257:231 558:523 32
KA 22 8 1 2 282:269 5 0 6 293:293 575:562 27
\BV 22 7 1 3 275:239 5 1 5 261:252 536:491 26
FRAM 22 8 2 1 278:228 2 2 7 244:264 522:492 24
STJARNAN 22 6 1 4 297:282 4 2 5 275:270 572:552 23
VALUR 22 5 2 4 239:235 3 1 7 251:266 490:501 19
FH 22 7 1 2 273:252 2 0 10 276:333 549:585 19
HK 22 5 1 5 247:258 2 1 8 246:272 493:530 16
IR 22 5 0 6 278:263 2 1 8 250:272 528:535 15
SELFOSS 22 5 1 5 276:289 1 2 8 262:303 538:592 15
GROTTA 22 3 1 7 262:292 3 1 7 252:272 514:564 14
eLokastaðan í 1. deild karla var röng í blaðinu í gær. Úrslit í leik FH
og Hauka höfðu snúist við. Staðan er rétt hér að ofan.