Morgunblaðið - 16.03.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 B 7
XX
S J Ú KRAH Ú S
REYKJAVÍ KU R
Sérfræðingur
í lyflækningum og blóðsjúkdómum
Staða sérfræðings í almennum lyflækningum
og blóðsjúkdómum við Sjúkrahús Reykjavíkur
er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf,
sem skiptist á milli Blóðsjúkdóma- og krabba-
meinslækningadeildar innan Lyflækninga- og
endurhæfingasviðs (75%) og Rannsóknadeild-
ar innan Myndgreininga- og rannsóknasviðs
(25%).
Starfið felur í sér klíniska vinnu, kennslu og
vísindastörf á sviði lyflækninga- og blóðsjúk-
dómafræði og þátttöku í vöktum ásamt ráð-
gjafaþjónustu á öðrum deildum sjúkrrahúss-
ins. Þá felur starfið í sér sérfræðistörf á rann-
sóknastofu í blóðmeinafræði m.a. umsjón með
segasvönum.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil,
fyrri störf og vísindavinnu sendisttil Sigurðar
Björnssonar, yfirlæknis á Blóðsjúkdóma-
og krabbameinsdeild eða ísleifs Ólafsson-
ar, yfirlæknis á Rannsóknadeild, sem einn-
ig gefa nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1997.
Röntgenlæknir
Staða sérfræðings í geislagreiningu við rönt-
gendeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er laus til um-
sóknar. Staðan veitist samkvæmt samkomu-
lagi. Umsækjendur geri grein fyrir náms- og
starfsferli, rannsókna- og vísindastörfum. Við-
komandi skal hafa góða samstarfshæfileika.
Geta skal sérstaklega um þekkingar- og áhuga-
svið sérgreinarinnar.
Umsóknarfrestur ertil 14. apríl 1997.
Umsóknir sendist til Arnar S. Arnaldssonar,
forstöðulæknis Myndgreininga- og rann-
sóknasviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur, sem jafn-
framt veitir upplýsingár. Sími 525 1440. Bréf-
sími 525 1442.
Umsóknareyðublöð fást Hjá starfsmannaþjónustu Sjúkrahúss
Reykjavíkur á Landakoti og við upplýsingaborð í Fossvogi.
Öllum umsóknum verður svarað.
Kennarstöður
í Reykjanesbæ
Grunnskólakennarar
í Reykjanesbæ eru nú þrír skólar og hefjast framkvæmdir við þann
fjórða i haust. í Reykjanesbæ er skólaþjónusta í örri uppbyggingu
og er boðið upp á sérfræðiþjónustu, fræðslufundi og kennaranám-
skeið á skólaskrifstofu okkar. Vinnuaðstaða í skólanum er almennt
góð og I Reykjanesbæ er öflugt iþrótta- og tómstundastarf. Við óskum
eftir áhugasömu og kröftugu fólki sem ertilbúið að hjálpa okkur
við að stuðla áfram að stöðugum framförum í skólastarfi.
Njarðvíkurskóli 1.-10. bekkur
Almenn kennsla, tónmennt og hannyrðir.
Sími 421 4399.
Holtaskóli 7.-10. bekkur
Almenn kennsla.
Sími 421 1135.
Myllubakkaskóli 1 .-6. bekkur
Almenn kennsla, myndmennt og tónmennt.
Sími 421 1450.
Umsóknarfrestur ertil 13. apríl. Upplýsingar
um stöðurnarveita skólastjórar viðkomandi
skóla.
Umsóknir berist Skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57.
Leikskólakennarar
Leikskólakennara vantar í leikskóla bæjar-
ins.Upplýsingar veitir leikskólafulltrúi í síma
421 6700. Umsóknarfresturertil 13. apríl. Um-
sóknir berist Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar,
Hafnargötu 57.
Skólamálastjóri Reykjanesbæjar.
AKU RE YRARBÆR
Sviðstjóri fræðslu og
frístundasviðs
Laust er til umsóknar starf sviðstjóra fræðslu-
og frístundasviðs hjá Akureyrarbæ.
Sviðssjóri erframkvæmdastjóri fræðslu- og
frístundasviðs, samræmir og ber ábyrgð á allri
starfsemi er undir það svið heyrir, sem eru leik-
skólamál, skólamál, menningarmál, íþrótta-
og tómstundamál.
Sviðsstjóri skal hafa góða yfirsýn yfir starfsemi
á fræðslu- og frístundasviði. Hann ber ábyrgð
á að stýra og viðhalda formlegu samskiptakerfi
allra deildarstjóra á sviðinu. Einnig skal hann
fylgjast með þróun og nýjungum í þeim mála-
flokkum sem tilheyra sviðinu og hafa frum-
kvæði að þeim nýjungum í starfsháttum sem
til framfara mega vera. Hann ber ábyrgð á eðli-
legri framþróun þeirrar þjónustu sem sviðið
veitir bæjarbúum.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf á ein-
hverju því sviði sem tengjast verkefnum sviðs-
ins og/eða langa starfsreynslu, sem nýtist í
starfinu. Hann þarf a.m.k. að hafa eitt Norður-
landamál á valdi sínu. Æskilegt er að hann hafi
þekkingu á og reynslu af stjórnun og sveitar-
stjórnarmálum.
Honum þarf að láta vel að vinna með öðrum,
hafa með hendi forystu, skipuleggja verkefni
og setja fram mál í ræðu og riti.
Meirihluti þeirra sem sinna stjórnun og öðrum
áhrifastöðum hjá Akureyrarbæ eru karlmenn.
í samræmi við landslög og jafnréttisáætlun
bæjarins vill Akureyrarbær stefna að því að
hlutur kynjanna á áhrifastöðum verði sem jafn-
astur og hvetur konur jafnt sem karla að sækja
um starfið.
Upplýsingar um starfið, kaup og kjör veita bæj-
arstjóri og starfsmannastjóri í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild
Akureyrarbæjar í Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur ertil 4. apríl nk.
Bæjarstjóri.
Spennandi störf
í tónlistargeiranum
Spor hf. óskar að ráða fjóra starfsmenn. Fyrir-
tækið starfar við innflutning, útgáfu og útflutn-
ing á tónlist, og selur bæði í heildsölu og smá-
sölu. Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir
að ráða starfsmenn í neðangreind störf.
Markaðsstjóri
Verksvið viðkomandi starfsmanns er umsjón
með Bónusklúbbi Músikog mynda, samræm-
ing á smásölu fyrirtækisins, umsjón með int-
erneti og útflutningi. Leitað er að starfsmanni
með frumkvæði, góða framkomu og mikinn
metnað. Menntun og/eða reynsla á þessu sviði
er æskileg en ekki skilyrði.
Símsvörun
Óskað er eftir starfsmanni á síma. Auk lipurðar
í mannlegum samskiptum þarf viðkomandi
að hafa tölvuþekkingu í Word og Excel, auk
góðrar málakunnáttu.
Aðstoðarmaður í útgáfudeild
Leitað er að starfsmanni í innlenda útgáfu. Við-
komandi þarf að hafa góða þekkingu á íslenskri
tónlist og tónlistarmarkaðnum á íslandi. Leitað
er að starfsmanni með frumkvæði, góða fram-
komu og mikinn metnað. Menntun og/eða
reynsla á þessu sviði er æskileg en ekki skil-
yrði.
Verslunarstjóri
Verslunarstjóri óskastfyrireina af verslunum
okkar Músik og myndir. Auk sölu á tónlistarefni
er starfrækt í versluninni myndbandaleiga og
sælgætisverslun. Leitað er að einstaklingi á
aldrinum 20-30 ára, sem þarf að hafa kunnáttu
og áhuga á þessu sviði auk þess að hafa stjórn-
unar- og skipulagshæfileika.
Umsóknum með helstu upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf skal skila til af-
greiðslu Mbl. merktar:,, SP2000" fyrir 22. mars
1997. Upplýsingar um starfið eru ekki veittar
í síma.
SKAGSTRENDtNGUR HF.
FlARNlAUSTIÖRI
Skagstnendingur hf. óskar eftir að ráða fjármálastjóra á
skrifstofu fyrirtækisins á Skagaströnd.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Fjármálastjórn og áætlanagerð.
• Eftirlit með áætlunum og kostnaðarliðum.
• Milliuppgjör, ársuppgjör og frágangur til
endurskoðenda.
• Hagkvæmnisúttektir og arðsemisgreining.
• Ráðgjöf vegna fjárfestinga fyrir stjórn og
framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði viðskipta- eða
rekstrar.
• Metnaður f starfi og kunnátta til að nýta
bókhald og reiknishald sem stjórntæki f rekstri.
í boði er gott starf með áhugaverðum
framtíðarmöguleikum hjá öflugu fyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússon hjá
Ráðgarði frá kl. 9-12 f sfma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: ”Skagstrendingur -
Fjármáiastjóri” fyrir 22. mars n.k.
RÁÐGARÐUR hf
SIJÓElNUNAROGREKSIRARRÁÐGfÖF
FurugorölS 108 Roykjavík Sim! 533 1800
Paxs 833 1808 Natfangs rgmldlunötreknot.l*
Halmaa(8at httpi//wafw.trekn«t.l*/rad8ar«lur
Penninn hf er 64 ára gamalt rótgróið
verslunarfyrirtœki. Starfsmenn eru 125, en Penninn
rekur jafnframt verslanir Eymundsson. Verslanir
fyrirtœkisins eru í Hallarmúla, Kringlunni,
Austurstrœti og Hafnarfirði.
Ertu góður sölumaður ?
Óskum eftir að ráða sölufulltrúa fyrir Pennann
Skrifstofubúnað.
Söiufulltrúi mun annast ráðgjöf til viðskipta-
vina um val ljósritunarvéla, skrifstofutækja og
húsgagna. Jafnframt sjá um tilboðsgerð og
frágang sölusamninga.
Við leitum að röskum og drífandi aðila með
marktæka reynslu af sölustörfum. Áhersla
er lögð á örugga og þægilega framkomu,
skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
auk metnaðar til að ná góðum árangri í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 21. mars n.k.
Ráðning verður sem allra fyrst.
Fyrirspurnum svarar Guðrún Hjörleifsdóttir
hjá STRÁ. Umsóknareyðublöð eru fyrir-liggjandi
á skrifstofunni, sem opin er
frá kl.10-16, en viðtalstímar eru kl.10-13.
STRA| GALLUP
STARFSRÁÐNINGAR
Mörkiiini 3,108 Reykjavík Súni: 588 3031, bréfsíini: 588 3044
■WSÍSÍI [! . . Guðný Harðardóttir