Morgunblaðið - 16.03.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 16.03.1997, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 16. MAKS 1997 MORGUNBLAÐIÐ DÆGURTÓNLIST BLEIK- NEFJA- VEISLA ÞAÐ VAR mörgum harmsefni þegar rappsveitin góðkunna Cypress Hill lýsti því yfir að hún væri í þá mund að hætta. Öll sút er þó óþörf, því enn er nokkuð i að sveitin leggi upp laupana; liðs- menn hyggjast gefa út breiðskífu og fara heimsreisu áður en þeir slíta samstarfinu, en einnig hyggast þeir starfa hver í sínu lagi. Fyrsta merki um slíkt er breiðskífa D J Muggs. Cypress Hill er skip- uð þremur félögum, blökkumanni, bleik- nefja og Puertoríkana. Bleiknefjinn DJ Muggs sér um tónlistina og hinir rappið. Þegar DJ Muggs hugðist síðan setja saman sólóskífu, meðal annars í ljósi þess að leiðir þeirra félaga eru í þá mund að skilja, var borðleggj- andi að fá aðra rappara til að hlaupa í skarðið, ekki síst með það fyrir augum að semja lög sem hæfðu stíl viðkom- andi. Niðurstaðan er safn ýmissa helstu rappara Bandaríkjanna um þessar mundir. Góðir gestir Vel þykir hafa tekist til á breiðskífunni nýju, sem kallast Soul Assassins, að fella lög að stíl gestanna, en gestir á plötunni eru Dr. Dre, B Real, Goodie Mob, sem átti eina bestu rappskífu síðasta árs, þeir Wu-Tang fé- lagar GZA og RZA, LA the Darkman, sem er skjólstæðingur Wu- Tang manna, MC Eiht, KRS-ONE, Mobb Deep, Infamous Mobb, Call 0 Da Wild og Wy- clef úr milljónasveitinni Fugees. Cypress-félag- ar sameinast síðan í einu lagi, sem verður að telja einskonar upphit- un fyrir breiðskífuna sem kemur út síðsum- ars. Live kemur á óvart BANDARÍSKA rokksveitin Live tók sér góðan tíma til að komast á topp- inn, kannski með það í huga að þeir sem fara hraðast upp eru yfirleitt skemmst á toppnum. Þannig eyddi sveitin fimm árum í að undirbúa fyrstu breiðskífuna, þá þremur í aðra skífuna, sem seldist í milljónaupplagi, og fyrir skemmstu kom út svo þriðja skífan eftir þriggja ára bið og kallast Secret Samadhi. Live var stofnuð um miðjan níunda áratuginn og tók sér góðan tíma í tónleikahald og lagasmíðar áður en fyrsta breiðskífan kom út 1991. Hún náði gullsölu vestur í Bandaríkjunum, þó fáir utan þeirra hafi orðið þess var- ir. Skífa númer tvö, Throwing Copper, varð aftur á móti vinsæl út um allan heim og hélt lengi velli á metsölulist- um, ekki síst fyrir atorku sveitar- manna sem héldu í 252 tónleika ferð þegar platan kom út. Liðsmenn Live segjast ekki hafa tekið sér langt frí eftir maraþonferðina; þeir hafi viljað halda áfram að þróa hugmyndir sem kviknuðu á ferðinni. Til að það mætti lukkast sem best leit- uðu þeir til nýs upptökustjóra, aukin- heldur sem þeir eyddu drjúgum tíma á Jamaíka við æfingar og lagasmíðar. „Fyrir vikið tókst okkur að setja sam- an plötu sem speglar sveitina á tón- leikum,“ segir Ed Kowalczyk söngvari og bætir við að aðal góðrar plötu sé að koma þægilega á óvart sem platan nýja geri vissulega. Atorka Liðsmenn Live. Upptökustjórinn snjalli DJ Muggs. Pottþétt safn POTTÞÉTT safnplöturöðin heldur áfram af fullum krafti, enda eru plötur í röðinni jafnan með sölu- hæstu skífum ársins. Fyrir skemmstu kom út sjöundi skammtur. Pottþétt-plötunum er jafnan sitthvað um inn- lenda tónlist í bland við er- lend lög, en að þessu sinni er aðeins eitt lag íslenskra flytjenda á boðstólum, enda lítið að gerast á þeim slóð- um um þessar mundir. Haukur Guðmundsson syngur Ljósin í bænum með kór Verslunarskóla ís- lands, en lagið var tekið upp í tilefni af uppfærslu skól- ans á Laugardagsfári. Er- lendu lögin eru ólíkrar gerðar úr ýmsum áttum, en eins og jafnan eru diskarnir tveir og þeim skipt annars vegar upp í popp- og rokktónlist, en hinsvegar í danstóna. A Rokk/poppplöt- unni eiga lög U2, Jamiroqu- ai, White Town, Blur, Skunk Anansie, Suede, Babybird, K’s Choice, Pres- idents of the United States of America, Reef, Space, Depeche Mode, Mansun, Cardigans, Leah Andreone, Superdrag, Garbage og Nick Cave. Á dansskífunni eru lög með Prodigy, Lisu Stansfi- eld, DJ Supreme, Robert Miles, MC Lyte, Blueboy, Souviaki, Chicane, Armand van Helden, Yello, Gold- mine, X-zibit, OutKast, Sash, Future Breeze, E- Sensual, Blossom, Mark Morrison og Jean Michael Jarre. Tónlistartímarit á geisladiskum BRESKA útgáfan Volume hefur unnið sér orð fyrir vandaðar og sérstæðar út- gáfur, því fyrirtækið hefur gefið út einskonar ténlistar- tímarit; með disk eða disk- um með safni ýmissa laga hefur fylgt ítarlegur bæk- lingur með myndum og upp- lýsingum um flytjendur. Áðal útgáfúnnar hefur verið að skipa saman þekktum sveitum og óþekktum, og þá gjarnan hafa þær þekktu látið útgáfunni í té eitthvað sem ekki hefur heyrst áður, en með þessu móti hafa ýmsar sveitir látið fyrst á sér kræla áður en þær hafa svo slegið í gegn um heim allan. Forsvarsmaður Volume, Rob Deacon, segir hug- myndina rífiega tíu ára gamla, því 1985 gaf hann út tímaritir Abstract, sem var tíu laga plata og tímarit í sama pakka og alls fjögur tölublöð. „Abstract byrjaði sem venjulegt tfmarit sem Qallaði um nýjar og oft óþekktar hljómsveitir. Fólk var alltaf að leita eftir því að fá að heyra í sveitunum og því varð þessi hugmynd til, því á þessum tíma var dreifíng á óháðum útgáfum í lamasessi. Upp úr þessu spratt síðan Volume, sem er samsvarandi útgáfa en á geisladisk sem gefur kost á að koma meira fyrir af tón- list og kallar á þykkari bók.“ Deacon segir að framan af hafí þekktar hljómsveitir gert útgáfunni mikinn greiða með því að leggja henni til lög og auka þannig söluvænleika diskanna, en eftir því sem fram hefur lið- ið og vegur útgáfunnar vax- ið hafí þær séð sér hag í því að vera með og í dag er mikið ásókn í að vera með. „Við höfum það fýrir reglu að taka ekki til útgáfu nema þau lög sem okkur finnst skemmtileg, og vissulega hefur það kallað á tog- streitu við útgáfur og Iista- menn, en það er nú bara svo að ég get ekki séð hvers vegna maður ætti að standa í öðru eins nema hafa gam- an af því. Við höfum alltaf leitast við að hafa á diskunum safn nýrra sveita og ráðsettra, framan af til að tryggja sölu, en síðan til að gefa diskunum jafnvægi og til að halda þræðinum," Deacon bætir við að eina reglan sem útgáfan hefur alltaf haldið er að velja aðeins þá tónlist sem aðstandendum finnst skemmtileg. „Við sáum ekki fyrir þá velgengni sem Volume hefur notuð, töldum reyndar aldrei að við mynd- um ná nema þremur útgáf- um, satt best að segja.“ Eftir því sem fram hefur liðið hefur Volume útgáfun- um Qölgað og ýmsar sérút- gáfur komið til, þar helstar safnplötur með ýmiskonar danstónlist. Deacon segir að framan af hafi danstónlistin verið með annarri tónlist, en í Ijósi þess hve danstón- list sótti í sig veðrið var ákveðið að gefa út eina safnplötu, Trans Europe Express. Sú seldist gríðar- lega vel og í kjölfarið fylgdu fleiri bindi af henni, sérstök útgáfa með bandarískri danstónlist, Trans Atlantic Express, og væntanleg er útgáfa með Kyrrahafsdans- tónlist. Einnig hefur Volume gefið út safnplötur með jungle-tónlist, Break- beat Sciénce, og kemur annar diskurinn í þeirri út- gáfu á næstu vikum, og fyr- irhugað er að gefa út loka- diskinn í Trans-röðinni, því síðar á árinu kemur út safn austurlenskrar danstónlist- ar, þá helst japanskrar. Einnig hefur Volume gefið út þungarokkssafn, Metall- urgy, safn með bandarískri nýsveitatónlist, safn með trance-tónlist og safn með ýmislegri sérkennilegri tón- list. „Yfírleitt koma hug- myndir til innanhúss, þannig starfar hér þung- arokkáhugamaður, sem skýrir Metallurgy, annar hefur mikinn áhuga og þekkingu í nýrri sveitatón- list, sem skýrir American Songbook, og þannig mætti teya. Við stefnum þó á að fækka eitthvað útgáfum, meðal annars til þess að skerpa á útgáfustefnunni. Aðal útgáfunnar verður þó áfram sem hingað til að skemmta okkur og ef hing- að berst skemmtileg hug- mynd erum við alltaf tilbún- ir til að skoða hana nánar.“ Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.