Morgunblaðið - 16.03.1997, Page 30

Morgunblaðið - 16.03.1997, Page 30
30 B SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ ATVINNULEY SI, VIRKJANIR OG NÁTTÚRUVERND mundu losa marga skuldafjötra er hrjá heimili verkafólks. Ég legg áherslu á það að í þess- ari afstöðu minni felst ekki að ég styðji hugmyndir um 20 álver í land- inu - eða telji þetta hina einu lausn í atvinnulífi Islendinga. Heldur upp- haf fjölbreyttara og öflugra atvinnu- lífs. Stóriðja á íslandi þarf að vera fjölbreytt en ekki aðeins ein tegund. Ég held að það verði að vera fjöl- breytt vinnsla, ég held að það þurfi að vera fleiri en einn aðili þvi ég tel að það yrði alltof sterkur aðili og mundi þá fá of sterka stöðu í land- inu. Og ég held að ríkið ætti ekki að vera eignaraðili, best væri að það ætti bara einn slökkvara. Telguskattur einstaklinga Verulegar hluti af lélegum launa- kjörum á íslandi er hið háa tekju- skattsstig á launafólki. Með því að afnema atvinnuleysið og auka vinnu í iandinu er hægt að lækka skattpró- sentuna og ríkið fengi meiri skatta- tekjur, þó skattaprósentan_ væri lækkuð. Skattaprósentan á íslandi er alltof há og óviðunandi. Ferðaþjónusta Mikið hefur borið á því að menn telja ferðaþjónustuna langstærsta möguleikann í íslensku atvinnulífi. Vonandi-.eflist ferðaþjónustan sem mest og ber að fagna aukningu hennar, hún er mjög gjaldeyrisskap- andi en ekki að sama skapi atvinnu- skapandi. Ég var á ferðalagi frir u.þ.b. 2 árum úti á landi og talaði m.a. við 2 verkalýðsformenn á stöð- um þar sem ferðamannastraumur er mjög mikill og ég spurði: „Hefur ekki aukinn ferðamannastraumur dregið verulega úr atvinnuleysinu hjá ykkur?“ Þeir svöruðu báðir eins: „Barn ertu, maður! á hótelunum, þama var líka Edduhótel er tekur sumarfólk í vinnu, mest skólafólk, og það er vel sennilega hefði það ekki fengið neina aðra vinnu. Það er meiri velta í verslunum og nokkr- ir bændur hafa gert það þokkalega gott með bændagistingu sem aukabúgrein. Þeir fáu úr verkalýðsfé- lögunum sem vinna við þetta í 2-3 mánuði, eru svo 7-9 mánuði á at- vinnuleysisbótum! Fararstjórar og bílstjórar með þessum hópum útlend- inga eru yfirleitt kennarar af höfuð- borgarsvæðinu, heimamenn í héraði fá þar ekkert að koma nærri, enda ekki „menntaðir" úr svokölluðum Leiðsögumannaskóla í Kópavogi. Nemendur úr honum hafa „löggiltan" einkarétt í fararstjórn og það dular- fuila er að þau samtök sem þau hafa með sér eru í ASÍ. Þeir virðast vera í BHM á vetuma og ASÍ á summm! Vitanlega er mér ljóst að miklar tekj- ur koma í gegnum ferðaþjónustuna, en hún krefst ekki mikils mannafla nema rétt yfír sumarið. Flugið er sennilea sá aðili sem hvað bestu tekjur hefur í þessari grein og er það vel. Ég sé ekki á næstu árum að ferðaþjónustan muni efla verulega atvinnu hjá hinum al- menna manni. Hitt er kapituli sem ekki verður rakinn hér, það er verðlagið á þess- um gisti- og matsölustöðum víða um land. Það gerir a.m.k. öllu almennu fólki ókleift að ferðast um landið ef það er háð því verðlagi sem er á þessum stöðum. Náttúruvernd í skrifum sínum um þessar virkj- anir og stóriðju eru „náttúruvernd- armenn" og ferðaþjónustufulitrúar með hvílík gífuryrði og fullyrðingar að það hálfa væri meira en nóg. Fremstur fer stórvinur minn Guð- mundur Ólafsson rithöfundur og líf- fræðingur, grein hans minnir mig á galdrasögur úr Arnarfirði. Hann sér leiðsla _ þýðir atvinnu- leysi. Ég tek sem dæmi að hjá Eimskip við höfn- ina í Reykjavík fyrir svona 15 árum unnu að jafnaði 300-400 manns nú eru þeir rösklega 100 þó hafa flutningar allt að því tvöfaldast! Ég gæti nefnt ijölmörg önn- ur dæmi þar sem fram- leiðsla fyrirtækja hefur stóraukist en starfsliði stórfækkað og í mörgum tilfellum um allt að helm- ing. Leiðin til úrbóta er ekki að stöðva tæknina heldur ný og aukin at- vinnutækifæri, öflugri og fjölbreyttari framleiðsla fyrir það fólk sem missir atvinnu af þeim sök- um. Menn virðast ekki hafa gert sér grein fyrir að ein höfuðorsök at- vinnuleysisins er tækniþróun. Sam- dráttur í atvinnu og lág laun eru merki hnignandi þjóðfélags, land- Standi atvinnulíf í nú- tímaþjóðfélagi í stað, arvarnir að vera það góðar að þeim verði hægt að treysta. Lík- lega er rétt að sú stofnun sé enn óháð- ari ráðuneytum en nú er og það þarf að efla hana og styrkja. Nú dettur mér ekki í hug að halda því fram að álver séu lausn allra hluta í atvinnulífi ís- lands. Verð á áli er ótraust og háð mikl- um sveiflum. Vinnan í þeim er einhæf og ekki sérstaklega eftir- sóknarverð - það er engin paradís að vinna í þeim. En í því álveri, Isal, sem hér hefur verið starfrækt um 25 ára skeið, er kaup 40-50% hærra en á almennum markaði, kemur það af verulegum hluta vegna vaktavinnu, vinna á helgum og á öðrum frídögum. En hins vegar eru frí töluvert fleiri en almennt tíðkast. Við álverið á Grundartanga, verði það reist, munu vinna um 150 manns og í tengslum við það um 100 manns. Guðmundur J. Guðmundsson MIG hefur undrað mikið í þeirri miklu umræðu sem fram hefur farið að undanförnu um stóriðju á Grund- artanga og síðar meir væntanlega víðar á landinu - að aldrei er minnst , á þá brennandi þörf að útrýma að fullu atvinnuleysinu í landinu, sem birtist ekki aðeins í samfelldu at- vinnuleysi og stopulli vinnu og þar sem hægt væri að nýta afl þessa fólks til mikillar framleiðslu verð- mæta. Helst hafa þá raddir þessa efnis komið frá Akranesi. Undanfarin 4 ár hefur atvinnu- leysi verið viðvarandi í landinu þó hefur dregið verulega úr á sl. ári, en gagnráðstafanir hafa verið býsna fáar. Til að ísland geti staðið efna- hagslega verður hver vinnufær mað- ur að eiga kost á atvinnu. í þessari grein ætla ég ekki að lýsa böli at- vinnuleysis ýtarlega, en það brýtur niður fólk andlega og líkamlega, fjöldi fjölskyldna missir íbúðarhús- ' næði sitt, og allar eigur ef einhveij- ar eru - nagandi öryggisleysi og ótti. Hamingjan sneiðir hjá lifi þessa fólks. í landi möguleikanna eins og á íslandi er slíkt ástand ólíðandi og þjóðinni og ríkisvaldinu til svívirðu og skammar. Þegar umræður voru að hefjast um álver á Grundartanga heyrðist meira talað af ýmsum stjórnmála- mönnum um hættuna á „spennu" en oftast hefur heyrst frá þeim um atvinnuleysið. Hvílíkur stórhugur og ■f hvílík innsýn í þjóðfélagið! Mönnum sem svona tala ætti ekki að fela stjórnarstörf. Tæknin ogatvinnuleys ið Atvinnuleysi í nútímaþjóðféiagi er ef atvinnulíf stendur í stað þá kemur atvinnuleysi. Tæknin, vél- væðingin og sérhæfingin verða það mikil að það þarf mun minna vinnu- afl við flestar atvinnugreinar af þeim sökum, þannig að óbreytt fram- segir Guðmundur J. Guðmundsson, kemur atvinnuleysi. flótti og annar slíkur ömurleiki er því fylgir. Ég styð álver Ég fer ekki dult með þá skoðun mína að ég er fylgjandi álveri á Grundartanga - en þar treysti ég á að skilyrði Holiustuverndar ríkisins séu nógu ströng og mat þeirra á öllum aðstæðum rétt. Ef menn eiga að samþykkja álverið verða mengun- Virkjanir Virkjanir þær sem fyrirhugað er að ráðast i yrðu Hágöngumiðlun, Sultartangi og gufuafl á Nesjavöll- um. Þetta samtals yrðu um 1.200 ársverk. Og með byggingunum yrðu þetta samtals a.m.k. 1.500 ársverk á næstu 2 til 3 árum. Þetta yrði veruleg lyftistöng íslensku atvinnu- lífi og þær tekjur sem þarna sköpð- uðust af vinnu ættu að flæða um þjóðfélagið og leggja grundvöll að öðrum framleiðslufyrirtækjum. Vinna við virkjanir er eftirsótt og vel launuð og Landsvirkjun þykir góður atvinnurekandi. Vinna við slíkar framkvæmdir Civic 1.5 LSi VTEC 115 hestöfl eyðir abeins 4.81 ó 100 km. Hefur þu reynsluekiö bíl frá Honda nýlega? Lattu sannfœrast Honda er öörum bílum fremri. CIUIC Vel utbuinn Civic kostar fra 1.349.000,- Vcrið velkoitim Vatnagaroar 24 - s.568 9900 alls konar drauga og forynjur á veg- um Landsvirkjunar sem hefur þá hugsun eina að sökkva meginhluta landsins í uppistöðulón. Allar nátt- úruperlur landsins ætlar Landsvirkj- un að færa í kaf og aðeins Þingvell- ir og Skálholt eru undanskilin og reyndar Hólar. í mjög vandaðri og málefnalegri grein Jakobs Björnssonar fv. orku- málastjóra (skrifuð í Morgunblaðið 18. janúar 1997) sýnir hann fram á að þó unnið verði á fullu við virkj- anir, þá verði árið 2030 innan við 4% hálendisins sem fari undir lón, rafmagnslínur og vegi. Hann hvetur til þess að friðunarsinnar hætti þess- um upphrópunum og fullyrðingum og hann fullyrðir að ef aðilar ræðist efnislega við þurfi ekki að koma til harkalegra árekstra. Greinar Guð- mundar Óiafssonar eru gott kennslu- efni í íslensku í skólum, en þær eru ekki málefnalegt innlegg í umræður í að nýta ævintýraleg auðæfi lands- ins. Þar verða að fara saman nátt- úruvernd, verndun náttúruperlna og skilningur á því að íslendingar hafa engin efni á að nýta ekki þann gífur- lega auð sem býr í fallvötnum lands- ins og aðrar þjóðir öfunda okkur af. Ég tek undir með Jakobi Björns- syni, ég held að það sé hægt að ná samkomulagi um þessa hluti. Það er ósatt að ekkert tillit hafi verið tekið til náttúruverndarmanna, hvað með Þjóðsárver sem átti að fara í kaf og allar áætlanir um virkj- un Búrfells sem gjörbreytt var til verndar Þjórsárverum? Hvað með Laxárvirkjun? Hætt var við hækkun stíflunnar við Laxá svo því var af- stýrt að æskustöðvar Guðmundar færu í kaf. Hik er í bili við virkjun Sultar- tanga en skammt er í það að hann verði virkjaður. Þar verður lítið lón svo ekki verða landspjöllin þar. Há- göngumiðlun, land sem þar færi í kaf eru svartir sandar og gróðurlaus- ir melar, hvílíkt skemmdarverk! Há- göngumiðlun er til að tryggja rennsli og vatnsmagn Þjórsár m.a. í frosta- vetrum. Það eiga fjölmargar raf- magnsvirkjanir eftir að rísa á Þjórs- ársvæðinu. Og það á eftir að vera íslenskri hagsæld til framdráttar. En menn mega ekki einblína ein- göngu á álver, það verður að vera íjölþætt iðnaðarframleiðsla. Smávís- ir af þvi er vinnsla úr tijáviði frá Kanada á Húsavík. Slík framleiðsla víða á landinu, þótt í smáum stíl sé, yrði ómetanlegt atvinnulífi vítt og breitt um landið, en það þarf orku, mikla orku. Ég óttast atvinnuleysið Ég held að íslendingar verði að vera vakandi gegn atvinnuleysi næstu áratugina. Tæknin gerir það að alltaf þarf færra og færra fólk í þau verkefni sem fyrir eru, bændum á t.d. eftir að fækka, alls konar at- vinnurekstur þarf minna vinnuafl vegna tækninnar, við verðum að mæta framtíðinni með nýjum at- vinnutækifærum, við þolum ekki lengur að fiskaflinn sé fyrst og fremst hráefnisöflun og seldur sem slíkur. Við þurfum að vinna úr hrá- efninu dýrmæta matvælafram- leiðslu. í 30 ár hef ég heyrt sönginn í frystihúsaeigendum að þeir geti ekki greitt hærra kaup af því að þeir séu að hagræða en stórstígar framkvæmdir í hágæða matvæla- framleiðslu láta á sér standa. Vitan- lega verður sjávarútvegurinn undir- stöðu atvinnugrein, en við verðum að fara að breyta honum i fullkom- inn matvælaiðnað. Iðnaður á eftir að taka stórstígum framförum, og við þurfum að geta unnið sjálfir ýmislegt úr framleiðslu stóriðjunnar. íslensk hugbúnaðarfyrirtæki eru nú komin í fremstu röð á heimsmark- aðinum o.s.frv. Möguleikarnir eru óendanlegir. Við skulum ekki afskrifa náttúru- vernd og við skulum taka mikið til- lit til þeirra sjónarmiða en við verð- um að nýta orkuna sem býr í fall- vötnum landsins. Ef ekki er gengið rösklega til verks verður atvinnu- leysi hlutskipti margra íslendinga, það ömurlega hlutskipti verðum við að forðast. Höfundur er fyrrverundi formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og VMSÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.