Morgunblaðið - 02.04.1997, Side 11

Morgunblaðið - 02.04.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 11 FRÉTTIR F.V. Jón Kristinn Jónsson, Júlíus Bjarnason, Jón Marteinsson og Sigmar Rafn Jóhannesson með tvo væna úr Hörgsá. <það yrði veisla þegar ísa leysti bet- ur. „Það var mikill fiskur í ánni í fyrrahaust og hann er ekki genginn út. Það eru meiri háttar veiðistaðir hem enn er ekki hægt að renna í,“ 'Sagði Jón í gærdag. Kokkteill í Varmá „Það var heldur betur líf í Varm- ánni, við vorum með alls um 25 fiska 'Sem við hirtum og það var á þrjár stangir sem veiddu í efri hluta árinn- ar framan af degi. Við hittum ekki þá sem voru fyrir neðan okkur, en Jökulhverir á Skeiðarársandi þeir eru miklar aflaklær og ég trúi ekki öðru en að þeir hafi einnig ver- ið í fiski,“ sagði Gunnlaugur Rósars- son sem var í hópi þeirra sem opn- uðu Varmá við Hveragerði. Þeir Gunnlaugur og félagar veiddu annað eins sem þeir slepptu og var aflinn að mestu dreginn á flugu. Þetta voru allt að 4,5-5 punda fiskar. „Þetta var fiskur í öllum regnbogans litum, sjóbirtingar, bleikjur, stað- bundnir urriðar og meira að segja nokkrir regnbogasilungar," sagði Gunnlaugur. Hélt í hönd dóttur sinn- ar sem sökk í sandinn FJÖGURRA ára gömul stúlka frá Reykjavík var hætt komin á föstu- daginn langa, þegar hún sökk upp að höndum í jökulhver á Skeiðarár- sandi. Henni varð þó ekki meint af, utan þess að vera brugðið sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Höfn í Hornafirði. Stúlkan var á göngu um sandinn ásamt foreldrum sínum þegar at- burðurinn gerðist. Mæðgurnar gengu milli tveggja jaka sem stóðu nærri hvor öðrum og skipti þá eng- um togum að stúlkan sökk. Móðir hennar hélt í hönd hennar þegar hún sökk. „Við gengum þarna milli tveggja ísjaka. Það var eins og það væri snjór milli jakanna. Það höfðu aðrir gengið barna um en maður einn varaði okkur við því að það væri pollur þarna. Eg leit eftir þessum polli og leiddi stelpuna mína. Skyndilega sökk hún bara upp að höndum og ég hélt í hönd hennar. Ég ætlaði að taka undir hendurnar á henni og ná henni upp úr en þá sökk ég,“ sagði Ragnheiður Laufey Jónsdóttir, móðir stúlkunnar. Þær mæðgur voru í hópi ferða- manna á sandinum þegar þetta gerð- ist. Ragnheiður Laufey sagði að ein- hver úr hópnum hefði dregið stúlk- una upp úr hvernum. „Ég vissi ekki hvað ég sykki langt. Það fór aðeins annar fóturinn á mér niður og ég sökk upp að klofi. Ég gat því bjargað mér sjálf. Stúlkan fór að skæla en mér var mest í mun að gera sem minnst úr þessu til þess að hræða hana ekki og hvekkja hana ekki fyrir lífstíð," sagði Ragn- heiður Laufey. Jarðvinna við álver Norðuráls er hafin JARÐVINNA vegna byggingar ál- vers á Grundartanga hófst sl. laug- ardag eftir að byggingarnefndir Hvalijarðarstrandarhrepps og Skil- mannahrepps höfðu samþykkt bygg- ingarleyfí til Norðuráls hf. Stefnt er að því að steypuvinna heijist um miðjan maí, en þá er gert ráð fyrir að samningar um fjármögnun ál- versins verði undirritaðir. Það er Háfell hf. í Reykjavík sem sér um jarðvinnuna. Hún felst í því að fjarlægja um 285 þúsund rúm- metra af moldaijarðvegi og klöpp og setja um 230 þúsund rúmmetra af burðarbæru fyllingarefni í stað- inn. Auk þess verða lagðar vatns- og fráveitur og lóðin girt af. Allt að 40 manns munu vinna að fram- kvæmdum á vegum Háfells. Forráðamenn Háfells hafa það fyrir reglu að hefja allar sínar fram- kvæmdir á laugardegi. Þeir lögðu því áherslu á að byija sl. laugardag þegar byggingarleyfið hefði verið samþykkt í byggingarnefndunum. I gær unnu starfsmenn Háfells við að mæla fyrir grunninum og komu sér fyrir á svæðinu. Eins og kom fram í Morgunblað- inu fyrir páska hefur umhverfisráð- herra gefið út starfsleyfi fyrir álver Norðuráls hf. Þrátt fyrir að starfs- leyfi og byggingarleyfi liggi fyrir hefur endanleg ákvörðun um bygg- ingu álversins ekki verið tekin. Al- þingi hefur enn ekki samþykkt frum- varp sem heimilar byggingu álvers á Grundartanga og fjármögnun framkvæmda er ekki lokið. Engu að síður hafa stjórnendur Columbia Ventures, eiganda Norðuráls, ákveð- ið að leggja í verulegan kostnað við undirbúning framkvæmda. Þessi kostnaður er á ábyrgð Columbia og fellur á fyrirtækið komi eitthvað upp á sem verður til þess að hætta verð- ur við framkvæmdir. Fleiri ákvarðanir um fjárskuldbindingar Þijár íslenskar verkfræðistofur vinna að hönnun álversins, Hönnun hf., Rafhönnun hf. og VST. Auk þess hannar Magnús Olafsson arki- tekt á Akranesi útlit álversins. Sig- urður Arnalds, framkvæmdastjóri Hönnunar hf., sagði að Kenneth Peterson, eigandi Columbia Ventur- es, hefði tekið ákvörðun um síðustu áramót um að hefja verkfræðilegan undirbúning framkvæmda af fullum krafti. Á næstunni yrðu teknar ákvarðanir sem fælu í sér frekari fjárskuldbindingar af hálfu Columb- ia. Eftir tvær vikur yrði tekin ákvörðun um kaup á búnaði í að- veitustöð álversins. Panta þyrfti þennan búnað með mjög löngum fyrirvara og þess vegna væri þessi ákvörðun tekin svo snemma. í síðari hluta apríl yrðu síðan tilboð í steypu- vinnu opnuð. Stefnt er að því að framleiðsla á áli hefjist sumarið 1998. Af hálfu Columbia var lögð mikil áhersla á að starfsleyfi fyrir álver á Grundartanga yrði gefið út strax því það væri forsenda fyrir því að fyrir- tækinu tækist að fjármagna verkið. Vinna við fjármögnun er í fullum gangi og stjórnendur Columbia eiga mikilvæga fundi með lánastofnunum í London í þessari viku. Ekki er þó gert ráð fyrir að samningar um fjár- mögnun verði undirritaðir fyrr en um miðjan maí. Um svipað leyti er gert ráð fyrir að steypuvinna hefjist á Grundartanga. Skiptar skoðanir uni starfsleyfið Samtökin „Álver, já takk“ hafa sent frá sér ályktun þar sem lýst er fullum stuðningi við umhverfis- ráðherra og fagnað ákvörðun hans um að gefa út starfsleyfi vegna byggingar álvers. „Fjölmargir sér- fræðingar hafa unnið að gerð starfs- leyfisins í samræmi við gildandi lög og reglur og með það að leiðarljósi að tryggja sem bestar mengunar- varnir. Þannig er tryggt að álver verði okkur til sem mestra hagsbóta og í sem bestri sátt við umhverfið," segir í ályktun samtakanna. Andstæðingar álvers á Grundar- tanga hafa einnig ítrekað fyrri yfir- lýsingar þar sem varað er við afleið- ingum þess að reisa álver á Grund- artanga. Hjörleifur Guttormsson al- þingismaður hefur óskað eftir utan- dagskrárumræðu á Alþingi á morg- un um útgáfu starfsieyfis fyrir álver. Varðsljóri dæmd- ur fyrir að slá handtekinn mann Veislugestir veittust að lögreglu ÞRÍR ungir menn voru hand- teknir á Lækjartorgi á skírdag eftir að hafa veist þar að út- lendingum. Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af tveimur for- eldralausum samkvænmm að- faranótt laugardags. í fyrra tilvikinu olli hávaði frá sam- kvæminu nálægum íbúum óþægindum, en í því síðara þurftu lögreglumenn að vísa nokkrum út. Tilkynnt var um innbrot í skúr við Tryggvagötu. Þegar lögreglan mætti á vettvang, kom glöggt í ljós að hagnaðar- vonin var ekki ástæða inn- brotsins, heldur voru söku- dólgarnir par sem leitað hafði þar skjóls til ástarleikja. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt varðstjóra í fangageymslu lögreglunnar í Reykjavík í 30 daga skilorðsbundið varðhald. Varðstjór- inn var sakfelldur fyrir að greiða manni í fangageymslu eitt högg. Málavextir voru þeir, að aðfara- nótt 22. september í fyrra handtóku lögreglumenn rnann fyrir utan krá á Hverfisgötu og var hann í áflog- um. Við handtökuna sló maðurinn til lögregluþjóns og barðist mjög á móti handtöku. Hann var settur í handjárn og fluttur á lögreglustöð. Þar neitaði hann að segja til nafns, hótaði lögreglumönnum og íjöl- skyldum þeirra lífláti og hrækti ffaman í varðstjórann. Skipaði varðstjóranum að hætta í málinu greindi menn ekki á um atburði fyrr en maðurinn var kom- inn í fangageymslu. Þá voru hand- járn losuð af honum og var varð- stjórinn síðastur lögreglumannanna út úr klefanum. Lögreglumenn báru, að þeir hefðu heyrt fanga- vörð, sem stóð í dyruin klefans, kalla til varðstjórans og skipa hon- um að hætta að beija manninn. Bar lögreglumaður fyrir réttinum að fangavörðurinn hafi virst miður sín á eftir og talað um að einhver handalögmál hefðu átt sér stað. Fangavörðurinn bar fyrir rann- sóknarlögreglu að hann hefði séð varðstjórann kýla manninn mörgum sinnum með hægri hnefanum og hafi honum fundist höggin lenda í síðu og bijósti mannsins. Hann hafi strax kallað á hann að hætta þessu og koma sér út og hafi hann þá séð þegar varðstjórinn var að standa upp að hann setti hnéð í síðu mannsins og þrýsti á. Fyrir dómi kvaðst hann ekki geta fuilyrt hvort höggin hefðu verið eitt eða fleiri. Hann sagði hugsanlegt, að fanginn hefði stokkið upp af gólfinu og á varðstjórann. Varðstjórinn hélt því fram að fanginn- hefði sprottið upp og veist að sér. Hann hefði þá snúið manninn niður og kvaðst ekki muna til að hafa slegið hann. Ef svo hefði verið, hefði það ekki verið ásetningur. Ákvörðun um starfið að vænta Dómarinn, Hjördís Hákonardótt- ir, sagði að maðurinn hefði greini- lega verið handtekinn að gefnu til- efni. Sjálfur muni hann atburði óljóst vegna ölvunar og hann hafi ekki kvartað sjálfur að fyrra bragði yfir að hafa verið barinn af lögregl- unni, en í dóminum kom fram að lögreglumenn létu sjálfír yfirboðara sína vita af atvikinu. Dómarinn seg- ir ekki útilokað að atburðarásin hafi verið með þeim hætti sem varð- stjórinn lýsti. Sannað sé með framburði lög- reglumanna og fangavarðar að varð- stjórinn liafi slegið manninn eitt högg og fái þetta stuðning i fram- burði mannsins, þótt varhugavert sé að leggja hann beint til grundvall- ar vegna ölvunar hans í umrætt sinn. Böðvar Bragason lögreglustjóri í Reykjavík segir að varðstjórinn hafi verið í leyfi á hálfum launum meðan mál hans var rannsakað og ekki komið aftur til starfa. Farið verði með mál hans samkvæmt Iög- um um opinbera starfsmenn og muni embætti lögreglustjóra senda dómsmálaráðuneytinu erindi í dag eða á morgun til að það taki ákvörð- un um framhald málsins á grund- velli dómsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.