Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 52

Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÓLAFUR ÓLAFSSON + Ólafur Ólafsson fæddist á Svarfhóli í Stafholtstungum 8. júní 1944. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 16. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 24. mars. Elsku stóri bróðir, nú ert þú bú- inn að kveðja okkur eftir alltof stutta samveru. Alltaf stóðum við saman hvað sem á gekk. Ég gleymi aldrei deginum sem þú fæddist. Ég átti að vera þæga stelpan, eins og alltaf, og vera sest við matarborðið en sat í stiganum og beið. Svo heyrðist grátur og hann hressileg- ur, ég var búin að eignast bróður, þvílíkur léttir, nú hafði ég eitthvað annað en dúkkur til að vera með, þetta var 12 á hádegi en 52 árum og níu mánuðum síðar kvaddi ég þig. Bernskan okkar var yndisleg, við vorum svo þæg og róleg. Þó sér í lagi þú, aldrei gleymi ég páskunum er þú varst tveggja ára og þú tókst páskaeggið mitt og borðaðir það. En geymdir þitt, ekki mátti atyrða þig því þá varð ég viðskotaill. Og aldrei gleymi ég því er ég átti að gæta þín, því mamma var í vinnu- mennsku og ég bara sex ára kríli. Er þú týndist en fannst steinsof- andi eins og Móses forðum í bátnum niðri á Norðurá. Þú varst svo al- sæll þyí báturinn ruggaði þér í svefn. Ég man alltaf hvað þú gerð- ist snemma snyrtimenni, þú gast verið í hvítum matrósafötum er mamma saumaði í 3-4 daga og ekki sá á þeim. Snemma gerðist þú dýravinur því einu sinni sem oftar leitaði mamma að smjörinu en þú hafðir gefið kettinum það, hann þurfti að fá það í „mavan“ sinn, það var svo gott. Og snemma beygðist krókurinn í þá átt er þú gerðir að ævistarfi þínu. Sjö ára byggðir þú höll úti á melnum. En þá vorum við flutt frá Svarfhóli og Fróðhúsum út í Lambhaga í Skil- mannahreppi. Alltaf þurftir þú að hafa kaupa með þér, en það var aðal bíllinn, alltaf heyrðist á lang- leið er þú varst að koma, því bíllinn gaf frá sér svo mörg sérkennileg hljóð. Svo líða árin og ég fer að heiman, þú ferð að læra en aldrei slitnaði á milli okkar og aftur kem ég heim og þá ert þú orðinn lang- ferðabílstjóri, og ósjaldan var gömlu systur boðið með. Arið 1969 færðuð þið Ásta mér stóra og kæra afmæl- isgjöf er ykkur fæddist stóri, mynd- arlegi sonurinn Elías. Árið 1974 tældir þú mig til að fara að læra á bíl hjá þér, ég bar nú öllu við, en þú lést þig ekki sem betur fer. Og 1979 skilja leiðir aftur er ég fer í sveit, ekki slitnaði sambandið fyrir það, þú komst eins oft og tími þinn leyfði. En fyrir átta árum fór að halla undan fæti. Vágesturinn mikli bankaði á dyr, og neitaði að fara aftur. Ekki fæ ég skilið þann styrk er ykkur Ástu var gefínn öll þessi ár. Mikið þakka ég fýrir allar stund- imar er við fengum að vera saman er þú varst á_E 11 á Landspítalan- um 1 fyrra. Áttum við þar margar gleðistundimar þótt þú værir mikið veikur. Aðallega var nú rætt um hesta. Hver ætti gæðing og hver þá lakari. Eins var yndislegt þegar þú hringdir eldsnemma á morgnana að mínu mati. Og baðst um svið, saltkjöt, silung eða kjötsúpu, þá varst þú það hress að þig langaði í gamla matinn sem þér fannst svo góður. Og oft ræddum við um hvað við ætluðum að gera mikið af sviða- sultu og hinu og þessu er okkur datt í hug. Svo komu áramótin og við Ámi fómm að fara i hesthúsin fýrir þig. Og alltaf urðum við að færa þér fréttir þaðan. Við reyndum að halda þessu í sama horfí og þú gerðir alltaf sjálfur, svo allt yrði nú í ffnu standi er þú kæmir og tækir við hestunum. Brúnn er bestur hesta, ber hann reistan makka, eldsnör aup vaka, ef að rekk skal bera. Vöðvar harðir hnykklast, hratt er skeiðið þrífur. Ekki er á allra færi ólmum jó að hleypa. Jæja, elsku bróðir, ég kveð þig með hjartans þökk fýrir allt. Elsku Ásta, Elli, Diddi og mamma, ég veit hvað söknuðurinn er sár, guð geymi ykkur og styrki. Jenný og Árni. + Sigríður Þórunn Jónsdóttir fædd- ist 7. ágúst 1918 í Reykjavík. Hún lést 20. mars síðastliðinn á elli- og hjúkrun- arheimilinu Grund. Foreldrar hennar voru Jón Magnússon og Hólmfríður Páls- dóttir. Hún átti átta systkini. Eiginmaður hennar var Guð- mundur Böðvars- son, fæddur 28. október 1905, dáinn 12. ágúst 1980. Börn hennar eru: 1) Hólmfrið- ur Jóna Kramer, fædd 26. apríl 1940. Gift Raymond Kramer og eiga þau tvö börn og fjögur barnabörn. 2) Jónína Guðmundsdóttir, fædd 1. október 1942. Gift Sigurgeiri Axelssyni, áttu þau fjögur böm en þijú eru á lífi, barnabörn eru fjögur. Einnig ól Sigríður upp syst- urson sinn, Pál Helgason, f. 17. febrúar 1934. Hann er giftur Jóninu Sig- urbjörgu Runólfs- dóttur og eiga þau tvö börn og þijú barnabörn. Páll átti eina dóttur áður og á hún tvö börn. Útför Sigríðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Með þessum orðum viljum við kveðja elskulega ömmu okkar sem var okkur svo kær. Endar nú dapr, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Verkin mín öll og vinnulag velþóknan hjá þér finni, en vonzkan sú, sem vann ég í dag, veri gleymd miskunn þinni. Þó aupn sofni aftur hér í þér min sálin vaki. Guðs son, Jesús, haf gát á mér, geym mín svo ekkert saki. Vertu yfír og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (S. Jónsson frá Presthólum) Hafðu þökk fyrir allt, elsku amma. Guðmundur, Sigríður Mar- grét, Katrín, Gus og Heidi. SIGRÍÐUR ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR ARNGRÍMUR GÍSLASON + Arngrímur Gíslason var fæddur á Höfn í Hornafirði 10. ágúst 1919. Hann lést 18. mars síðastliðinn á Landspítal- anum í Reykjavík og fór útför hans fram frá Hafnarkirkju í Hornafirði 24. mars. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Elsku Aggi, ég mun aldrei gleyma hve góður þú varst. Hvað þú tókst vel á móti mér þegar ég kom fyrst á Höfn til að vinna og þekkti enga nema ykkur Höddu, því aldrei var svo keyrt um Höfn þegar ég var barn og átti heima í Breiðdalsvík að ekki væri komið við til að þiggja eitthvað gott í svanginn hjá ykkur. Við áttum mjög auðvelt með að tala saman, ég unglingurinn og þú, fullorðinn maðurinn, þar var ekkert kyn- slóðabil. Eftir að Rafn sonur minn fæddist og við komum í heimsókn mátti hann helst ekki af þér sjá meðan við stoppuðum, og ég hugsa að hann eigi erfítt með að skilja að þú verðir ekki til staðar næst þegar við komum í heimsókn. Elsku Hadda frænka, Stebbi, Boggi og fjölskyldur, guð veri með ykkur. Ragnheiður Rafnsdóttir. Hann afi á Sólhól er dáinn. Við systkinin viljum í örfáum orðum minnast afa og þakka hon- um fyrir allt sem hann hefur veitt okkur. Afí var yfirvélstjóri í frystihúsi KASK í áratugi og sinnti því starfi af mikilli óeigingimi. Það var iðu- lega svarið þegar við spurðum um afa að hann væri „úti á húsi“ eða hefði þurft að „skreppa út á hús“ og þá skipti engu hvaða dagur var eða hvaða tími dagsins, Það má segja að vinnan hafi verið áhuga- mál afa og eftir að hann fór að starfa í kirkjunni fækkaði þeim stundum sem hann var heima því kirkjan og allt sem snéri að henni var honum mikið áhugamál. Afi var vinur okkar systkinanna og hluti af daglegu lífí okkar. Við ólumst upp við það að afí kom reglulega heim í Hlíðartún með snúða og vínarbrauð eða upprúll- aðar pönnukökur sem amma hafði bakað. Við komum líka oft á Hól- inn til ömmu og afa, en þar áttum við vísan samastað þegar mamma og pabbi voru að vinna. Ef afi var ekki úti á húsi að vinna eða uppi í kirkju gaf hann sér alltaf tíma til að spjalla við okkur. Hann hafði mikinn áhuga á því sem við vorum að gera og studdi okkur í því. Já, það var gott að koma á Hólinn til ömmu og afa; fá eitthvað í gogginn hjá ömmu, spjalla við þau og taka jafnvel í spil. Þegar við fórum burtu í skóla fækkaði heimsóknum okkar á Hól- inn. Það var þó alltaf okkar fyrsta verk þegar við komum heim í frí að fara á Hólinn og heilsa upp á ömmu og afa. Eftir að námi lauk fluttumst við eldri systkinin aftur til Hafnar. Þá var afi hættur í frystihúsinu, en var í hlutastarfi hjá Kaupfélaginu. Nú hafði hann enn meiri tíma til að sinna áhugamálinu sínu, kirkj- unni, og var meira heima. Við komum alltaf reglulega á Hólinn, jafnvel á hveijum degi til að hitta þau og spjalla yfir kaffibolla. Þeg- ar langafastrákamir voru með í för gaf afi þeim ávallt góðan tíma, en annars voru þeir alltaf það fyrsta sem afí spurði frétta af. Nú er afi farinn og við munum sakna samverustundanna með honum. Elsku amma, megi Guð vera með þér. Arnbjörg, Hermann og Katla. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokailaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasima 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skirnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum. ATVINNU AUGLÝSINGAR Heilsugæslustöðin Hólmavík Laus er staða hjúkrunarforstjóra við heilsu- gæslustöðina á Hólmavík frá og með 1. júlí 1997. Upplýsingar veitir Sigurósk, hjúkrunarforstjóri, í síma 451 3188, heimasíma 451 3435, og Jó- hann Björn, framkvæmdastjóri, í síma 451 3395. Umsóknir, með upplýsingum um fyrri störf og menntun, sendisttil Jóhanns Björns Arn- grímssonar, framkvæmdastjóra, Borgarbraut 8, 510 Hólmavík. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Heilsugæslan á Hólmavik er H1 stöð, með heilsugæsluseljum á Drangsnesi og i Norðurfirði. Stöðin þjónar Strandasýslu (nema Bæjar- hreppi) og innsta hluta Djúps. Fólksfjöldi er um 900 manns. Á stöðinni er góður starfsandi, þar starfa læknir, hjúkrunarforstjóri í 75% starfi auk meinatæknis og tveggja sjúkraliða í hlutastarfi. Við leitum að sjálfstæðum hjúkrunarfræðingi til að taka við fjölbreyttu starfi. Ef þú hefur einnig gaman af útivist, kannt að meta gönguskiði og vélsleða ferðir á vetrum og að komast í aðalbláber við bæjardyrnar á haustin, ættirðu að hafa samband. Aðstoðarfólk á bókasafn Opinber stofnun óskar eftir að ráða starfsfólk á bókasafn stofnunarinnar í eftirtalin störf: 1. Starf adstodarmanns við útlán, afgreiðslu og þjónustu við gesti. Stúdents- próf æskilegt. 2. Starf aðstodarmanns við frágang, röðun og umhirðu tímarita, frágang bóka o.fl. Um er að ræða f jölbreytt framtíðarstörf í áhugaverðu og spennandi umhverfi. Leitað er að samviskusömum og þjónustulunduðum einstaklingum, sem eiga auðvelt með mannleg samskipti. Reyklaus vinnustaður. Vinnutími kl. 8-16. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14. Fólk og þekking Lidsauki ehf. W Skrifstofustörf 1. Skrifstofustarf hjá útgáfufyrirtæki í Reykjavík. Um er að ræða starf innan áskriftar- deildar og felst í ýmsum verkefnum, s.s. inn- heimtu, skráningu, viðhaldi skráa o.fl. Framtíð- arstarf í spennandi og lifandi starfsumhverfi. Vinnutími kl. 9-17. 2. Símavarsla hjá útgáfufyrirtæki í Reykjavík. Starfiðfelst í símavörslu og móttöku viðskipta- vina. Leitað er að hressum og þjónustulunduð- um aðila í gottframtíðarstarf. Vinnutími kl. 9-17. 3. Bókhaldsstarf hjá heildverslun í Reykjavík. Starfiðfelst í umsjón með bókhaldi, gerðtolla- pappíra, verðútreikningum o.fl. Um er að ræða framtíðarstarf hjá góðu fyrirtæki. Vinnutími kl. 13-17. Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl nk. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9—14. Fólk og þekking Lidsauki ehf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.