Morgunblaðið - 06.04.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 27
Þróun í
dreifingu
og smásölu
matvæla
VERSLUNARRÁÐ íslands gengst
fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn
8. apríl nk. með prófessor John Daw-
son í Sunnusal Hótel Sögu kl. 8-9.30.
„Þróun á sviði dreifingar og smá-
sölu matvæla hefur verið hröð á und-
anfömum áratug og óhætt er að full-
yrða að enn sér ekki fyrir endann á
henni. Hvað einkennir þessa öru þró-
un og hvert stefnir hún? Hverjir verða
undir og hveijir ofan á í hinni óvægnu
samkeppni? Hvemig em íslenskir inn-
og útflutningsaðilar eða matvæla-
framleiðendur í stakk búnir til að
takast á við þessa þróun í nútíð og
framtíð?
Framsögumenn eru dr. John Daw-
son, prófessor við Háskólann í Edin-
borg, Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
ÍS og Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtaka
íslands. Umræður og fyrirspumir að
framsögum loknum.
Dr. John Dawson hefur getið sér
gott orð fyrir hagnýtar rannsóknir
og ráðgjöf á sviði dreifingar og smá-
sölu matvæla bæði á Bretlandseyjum
og meginlandi Evrópu auk þess að
sinna kennslu og fræðistörfum við
áskólann í Edinborg og á Spáni.
Framsögur verða á ensku undir yfír-
skriftinni „Present and Future Deve-
lopments in European Food Retail-
ing,“ segir í fréttatilkynningu frá
Verslunarráði íslands.
------» ♦ ♦------
Fyrirlestur
um endur-
vinnslu og
förgun
VÉLADEILD Tækniskóla íslands
stendur fyrir fyrirlestraröð um um-
hverfismál á þessari önn. Fyrirlestr-
arnir em hluti af umhverfisfræðiá-
fanga sem kenndur er í véladeild skól-
ans.
Næstkomandi þriðjudag, 8. apríl,
mun Magnús Stephensen, bygging-
artæknifræðingur og deildarstjóri hjá
Sorpu, fjalla um stöðuna í sorphirðu,
endurvinnslu og förgun á Islandi.
Einnig mun hann horfa með spá-
mannsaugum til framtíðar hvað þessi
málefni varðar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fyrirlestur Magnúsar hefst kl. 17
og er haldinn í stofu 325 á 2. hæð í
húsnæði Tækniskólans á Höfðabakka
9. Fyrirlesturinn er ölium opinn, en
að honum loknum verða umræður.
-----------» ♦.■♦-----
Lýst eftir
ökumanni
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
ökumanni ljósblárrar fólksbifreiðar
af tegundinni Dodge Aries, sem átti
aðild að umferðarslysi í Feilsmúla
skammt vestan Grensásvegar, við
innkeyrsluna að bifreiðastöð Hreyfils
fímmtudaginn 27. mars sl. um kl.
13.50.
Sextán ára gömul stúlka á reið-
hjóli var á leið austur eftir gangstétt-
inni sunnan götunnar þegar hún varð
fyrir Dodge-bifreiðinni, sem einnig
var ekið austur Fellsmúla og beygt
til hægri í veg fyrir stúlkuna. Við
áreksturinn féll stúlkan í götuna en
ökumaður bifreiðarinnar, sem var
karlmaður á sextugsaldri með der-
húfu á höfði, ók á brott án þess að
huga að stúlkunni sem handleggs-
brotnaði.
Ökumaður Dodge-bifreiðarinnar er
beðinn um að gefa sig fram við rann-
sóknardeild lögreglunnar í Reykjavík
hið fyrsta.
Moreomblaðið/Jón Svavarsson
V ann marg-
miðlunartölvu
Á FRAMADÖGUM, atvinnulífsdögum Há-
skóla íslands þann 7. mars sl., efndu Lands-
banki Islands og Landsbréf til verðlaunaget-
raunar. Getraunin fólst í því að sýningar-
gestir svöruðu nokkrum spurningum um
þjónustu fyrirtækjanna. I verðlaun var AST
margmiðlunartölva frá EJS.
Dregið hefur verið úr réttum lausnum og
er vinningshafi Soffía Haraldsdóttir, nem-
andi áfjórða ári í viðskiptafræði við Há-
skóla Islands. Verðlaunin voru afhent þann
18. mars sl. í Háskólabíói, í frimínútum hjá
háskólanemum sem sækja tíma þar. Á mynd-
inni er vinningshafinn ásamt syni sínum og
fuiltrúum Landsbankans og Landsbréfa
þeim Tómasi Hallgrímssyni, útibússtjóra í
Vesturbæjarútibúi og Sigurbjörgu Bene-
diktsdóttur, ráðgjafa hjá Landsbréfum.
HmPIMÍSÍIiIiIííSEBÍI
Þab er fátt sem kemur í
stabinn fydr langdrœgni
og öryggi NMT farsímans