Morgunblaðið - 15.04.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 19
ÚRVERINU
Oróleiki vegna undirboða
við sölu á loðnuhrognum
MIKILL óróleiki hefur verið á Jap-
ansmarkaði vegna sölu loðnu-
hrogna síðustu daga Að sögn Hall-
dór G. Eyjólfssonar, sölustjóra
loðnuafurða hjá SH, var samið um
130 króna skilaverð á hvert kíló
til framleiðenda, en hann segir að
nú hafi töluverðra undirboða orðið
vart geti það leitt til verðlækkunar.
„Við höfum gert ráð fyrir því
að geta skilað framleiðendum hér
heima 130 króna verði á hvert kíló.
Nú höfum við heyrt frá sumum
kaupenda okkar í Japan að þeir
vilji ekki borga svo hátt verð, þar
sem aðrir útflytjendur bjóði hrogn
á 70 til 100 krónum lægra verð
en SH hefur þegar samið um. Fyr-
ir vikið er markaðurinn í uppnámi
og slæmt að íslenzkir útflytjendur
skuli ekki standa betur saman,“
segir Halldór.
Hærra verð tvö síðustu ár
Halldór segir að framleiðendur
innan SH hafi framleitt upp í pant-
anir, sem þeir hafi fengið fyrir
vertíðina, een það sé ljóst að þeir,
sem hafi framleitt umfram samn-
inga, eigi erfitt með að selja hrogn-
in og bjóði þau því á lægra verði.
Verð á loðnuhrognum í Japan í
fyrra var töluvert hærra en þá var
framleiðsla mjög lítil og eftirspurn
mikil. Árið 1995 var framleiðslan
aftur meiri og þá var verrðið 140
krónur á kíló, fyrst og fremst
vegna hærra gengis jensins.
Alls um 5.300 tonn
af hrognum fryst
Heildarframleiðsla hrogna nú
varð um 5.300 tonn. Halldór segir
að kaupendur í Japan hafi talað
um að 4.000 tonn væri hæfilegt
magn fyrir markaðinn í ár. Þar
af hefði SH verið með sölu upp á
2.800 tonn fyrir vertíðina. íslend-
ingar eru um þessar mundir einir
um vinnslu og sölu loðnuhrogna í
heiminum.
Selur flottóg’ til Japan
HAMPIÐJAN hf. gerði í síðasta
mánuði samning um sölu á flottógi
við dreifingaraðila útgerðarvara í
Japan. Um er að ræða samtals 265
rúllur af fléttuðu tógi mismunandi
sveru með heilum flotkjarna að
verðmæti liðlega þtjár milljónir
króna.
Töluverð áhersla hefur verið
lögð á kynningu á flottóginu á
Japansmarkaði og hefur sam-
starfsaðili Hampiðjunnar í Japan
auglýst það víða, þó einkum í norð-
urhluta landsins, á eyjunni Hokka-
ido, þar sem netaveiðar eru aðal-
lega stundaðar. Japanir standa
fremstir allra þjóða í veiðarfæra-
framleiðslu og eru afar kröfuharð-
ir í þeim efnum og er þessi sala
því mikil viðurkenning á fram-
leiðslu Hampiðjunnar að því er
segir í fréttatilkynningu.
Japanir fella netin á annan hátt
en íslendingar, þ.e. þeir sauma
netið á teininn, en Hampiðjan hef-
ur kynnt þeim íslensku aðferðina
á myndbandi sem hefur vakið
nokkra athygli í Japan. Hún þykir
fljótlegri og einfaldari og búast
má við að einhveijir aðilar reyni
hana með teinum Hampiðjunnar.
Söludeild Hampiðjunnar bindur
vonir við að varanlegur markaður
sé fundinn fyrir þessar afurðir í
Japan, því íslenski flotteinninn
hefur einnig verið settur á net sem
notuð eru við ræktun þangs en
þang er ein uppistaðan í fæðu Jap-
ana. Þar hafa íslensku flotkaðlarn-
ir reynst vel og létt ræktendum
störfin.
Áður voru notuð plastflot á net-
in en þau vildu festast við garnið
og mynda hnúta sem þyngdu netin
en með flotteinunum liggja netin
alltaf eins og jöfn og auðveldar
það losun þangsins úr þeim.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Á kolmunnaveiðar
í lögsögu Færeyja
BEITIR NK hélt til kolmunna-
veiða í færeyskri lögsögu um
helgina, en skipið mun reyna
flottroll við veiðarnar. Á síðasta
ári reyndu þeir á Beiti einnig við
kolmunnann við Færeyjar, en
fengu lítið vegna þess að veiðarn-
ar við eyjarnar voru nánast bún-
ar, þegar þeir komu á miðin. í
vor virðist kolmunninn vera
seinna á ferðinni inn í færeysku
lögsöguna, en það er mál manna
að hann verði kominn á svæðið
í þessari viku, enda eins gott því
óðum styttist í veiðar á norsk-
íslenzku síldinni, en þær mega
hefjast í byrjun maí. Á vorin
gengur kolmunninn norðan úr
hafi inn í færeysku lögsöguna
og suður úr henni inn í þá brezku.
Þar mega íslenzk skip ekki
stunda veiðar. Hér er áhöfnin á
Beiti að taka flottrollið um borð
við upphaf veiðiferðarinnar.
ÍillilSli
í sjálfskiptan - á ferð!
Chrysler Stratus 2.5 LE
er í senn sjálfskiptur og
beinskiptur - þú getur
valið á milli skiptinga eftir aðstæðum og stemningu hverju sinni. Stratusinn er aflmikill,
fjörmikill og viljugur, ríkulega búinn, fallegur, munúðarfullur, öruggur og staðfastur. Þörfum
þínum er fullnægt í Chrysler Stratus, amerískum draumabíl.
Láttu sjá þig með honum!
Chrysler Stratus • 160 hestöfl • 2.420.000 kr.
CHRYSLER STRATUS 2.5 LE. AUKABÚNAÐUR A MYND: ÁLFELGUR.
Nýbýlavegi 2, Kópavogi, sími 554 2600
GSP/Hii Opiaberal