Morgunblaðið - 15.04.1997, Síða 27

Morgunblaðið - 15.04.1997, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 1997 27 LISTIR A nótum Háskólakórs HÁSKÓLAKÓRINN TONLIST Scltjarnarncskirkju / KÓRTÓNLEIKAR Verk eftir Egil Gunnarsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Lcif Þórarinsson, Paul Hindemith og Arna Harðarson. Stjórnandi Hákon Leifsson. Sunnu- dagur 13. apríl. HÁSKÓLAKÓRINN hélt sína árlegu vortónleika í sínum venju- bundna stað, Seltjarnameskirkju, og verð ég að segja að fróðlegt væri að heyra kórinn einu sinni í öðru húsi, við annan hljómburð en þann hinn mikla í kirkjunni á Sel- tjarnarnesi. Við slíkar aðstæður, þegar kirkjan syngur nær því fyrir kórinn, sýnir kór tæplega sitt ágæti.. Við slíkar aðstæður ættu aðeins lélegir kórar að syngja og Háskólakórinn á síður en svo heima í þeim hópi, þótt kannske megi eitt- hvað finna að og þá helst það, að hljómurinn er mattur og sérstak- lega þó herrarnir tenór og bassi. Á þessu ber mest í veikum söng, enda erfiðast fyrir bæði leika og lærða að láta röddina hljóma í veikum og miiliveikum söng. Á þessu bar minna í sterkum söng, en virðuleg- ur kór sem Háskólakórinn þarf að ráða við hvorutveggja og því væri hollt fyrir kórinn að syngja við að- stæður sem vinna á móti honum. Kórinn byrjaði á Ave Maríu eft- ir Hjálmai' H. Ragnarsson, við kaþólskan helgitexta. Hjálmar hef- ur góða tilfinningu fyrir kór- hljómnum og söng kórinn fallega þessa ágætu Ave Maríu hans. Næst komu fjögur lög eftir Egil Gunnarsson við ljóð eftir meistara Þórberg, Hjartsláttur lífsins, Fjórt- án ára, Á Þorláksmessukvöld og Borgin á bjarginu. Ef Egill þessi er sá hinn sami og átti síðar á efnisskránni verkið Martröð, þá heyrðist enginn skyldleiki þar á milli. Lögin við ljóð Þórbergs voru afar lítið áhugaverð, en Martröð við ljóð Arnar Arnarssonar var mjög vel skrifað, þó ekki í þeim skilningi að auðvelt væri að syngja það, því svo margt var þarna sam- ankomið af umferðarhættum að martröð væri hvetjum kór. Kannski var það aðallega böss- unum að kenna að hljómurinn var ekki alltaf hreinn, því bassinn var gjarnan eins og þokulúður, sér- staklega í veikum söng, en í svona rnúsik þarf tónninn einmitt að vera mjög þéttur ef verkið á að heppn- ast. Eigi að síður var hér um rnjög áhugaverða tónsmíð að ræða, og hljóta að koma fleiri góðir hluth' úr perina þessa Egils seinna. Á undan Martröð söng kórinn sex lög eftir Paul Hindemith. Að öllum lík- indum þarf atvinnumannakór til að fá þessi lög til að lifna. Auð- veld eru þau ekki í flutningi og margt hljómaði fallega, en í heild- ina voru þau dálítið líflaus. Einfalt og fallegt lag eftir Hjálmar H. Ragnarsson kom fyrst eftir hlé og síðan ágætur „kórsats" eftir fyrrverandi stjórnanda kórs- ins, Árna Harðarson, og aftur út- setningar á tveim þjóðlögum eftir Hjálmar og nú á léttari og ijör- ugri nótum. Svolítið vafasamt fannst mér af stjórnandanum að slá hveija nótu í síðara laginu, sem syngst á töluverðum hraða, hætt er við að léttleikinn náist þá ekki. Afar fallega útsett hjá Jakobi Hall- grímssyni var Móðir mín í kví kví og sömuleiðis útsetning Atla Ing- ólfssonar á þjóðlaginu Eg veit eina baugalínu. Að vísu er útsetningin úr allt öðrum heimi en útsetning Jakobs, og ekki verður maður áber- andi var við þjóðlagið sjálft, en eigi að síður áhugaverð. Barn í dalnum, einnig þjóðlag, útsett af Árna Harðarsyni er byggt á effekt- um, sem auðheyrilega áttu greiðan aðgang að áheyrendum. Atli Heimir getur leyft sér að skrifa í gömlum madrigalstíl við texta eftir Odd Björnsson úr leik- ritinu Dansleik og í lokin átti Leif- ur Þórarinsson þtjú lög sem hann kallar Maríuvers, við texta Stefáns frá Hvítadal, Vilborgu Dagbjarts- dóttur og það síðasta við kaþólskan helgitexta. Þetta eru fögur lög hjá Leifi og heiðarlega unnin, eins og öll hans skrif. Kannske var það minnisstæðast við þessa tónleika öll þau ágætu tónverk sem kórinn flutti og ekki heyrast daglega og ekki má gleyma að óska kórnum til ham- ingju með 25 ára starf, sem von- andi ekkert lát verður á. Ekki er lítilfjörlegri gagnrýni minni á kórinn stefnt gegn stjórn- anda hans Hákoni Leifssyni. Hann hefur auðheyrilega mikinn metnað fyrir kórinn og fer fram og þrosk- ast með árunum, eins og góðu vínin. Ragnar Björnsson Sýningar Smáborgara- brúðkaupsins hafnar að nýju LEIKFÉLAG Selfoss hefur hafið sýningar að nýju eftir páskafrí á Smáborgarabrúð- kaupinu eftir Bertolt Brecht í leikstjórn Viðars Eggerts- sonar. Sýnt var á föstudag og laugardag og síðustu sýning- ar verða 17., 18. og 19. apríl og hefjast allar sýningarnar kl. 20.30 í Kaffileikhúsinu, Sigtúnum 1, Selfossi. Enn um dóp MR-kórinn með tón- leika í Há- teigskirkju KÓR Menntaskólans í Reykjavík heldur tónleika í Háteigskirkju á morgun, miðvikudag, kl. 20.30. Flutt verður hátíðarkantatan „Rejoice in the Lamb“ fyrir ein- söng, kór, pákur og orgel eftir Benjamin Britten. Tónskáldið samdi verkið eftir 1943 fyrir St. Matthew’s Church, Northampton, en text- inn er eftir Christopher Smart og var saminn á 18. öld. Hann er lofsöngur, þar sem „þjóðir, tungumál, blóm og skepnur lof- syngja guð“. Á tónleikunum í Háteigs- kirkju verður kantatan flutt í upprunalegri mynd. Eggert Pálsson leikur á pákur og Mar- teinn H. Friðriksson á orgel. Einsöngvai'ar eru nemendur úr MR: Árný Ingvarsdóttir, Mar- ía Mjöll Jónsdóttir, Jónas Guð- mundsson og Árni Björnsson. Stjórnandi í verki Brittens er Þórunn Björnsdóttir. Kórinn syngur einnig mótett- ur og sálma eftir Caldara, Moz- art, Gumpelzheimer, Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Nordal. Stjórnandi Kórs Menntaskólans í Reykjavík er Marteinn H. Frið- riksson. LEIKLIST Hótcl Sclfoss KOSTIR HINS VILLTA LÍFERNIS Höfundar: Björgvin J. Hreiöai-sson, Björn Þ. Jóhannsson, Eyrún B. Magnúsdóttir, Lena B. Kristjánsdótt- ir, Rúnar Þórarinsson. Leikstjóri: Guðmundur Karl Sigurdórsson. Leikai-ar: Karen Guðmundsdóttir, Helgi Valur Ásgeirsson, Kolbrún Dögg Eggertsdóttir, Heiðveig Hanna Friðriksdóttir, Rakel Magnúsdóttir, Guðni Kristinsson, Gunnar Sigurðs- son, Helgi Valberg Jensson, Leifur Viðarsson, Adólf Ingvi Bragason, Helgi Haraldsson, Sigtryggur Bjart- ur Kristinsson, Anna Valgerður Sig- urðardóttir, Sigurðui' A. Þorvarðar- son, Böðvar Jens Ragnai'sson, Jón Hnefill Jakobsson, Daldís Yr Guð- inundsdóttir, Kristín Aina Hauks- dóttir, Ragnheiður Antonsdóttir, Ljós: Stefán F. Stefánsson, Sigurður A. Þoi-vai'ðarson. Hljóð: Einar Björnsson. Frumsýnt á Hótel Selfossi 10. apríl. FJöLBRAUTASKÓLI Suður- lands sýnir um þessar mundir verk sem „fæddist á nýju ári. Hugmynd- in kviknaði í áramótagleði og strax á nýársdag var hafist handa“ (til- vitnun í leikskrá), við skriftir senni- lega. En einnig getur verið að átt sé við tiltekt, því, svo ég komi mér strax að efninu, sviðsmyndin bar fæðingarstað verksins glöggt vitni; íbúð sem greinilega hafði hýst klikkað partý, a.m.k. að mati leik- manns. Málið var bara það að partýið stóð enn, held ég. Eða, ég held að gestirnir hafi haldið það. Leikritið, Kostir hins villta líf- ernis, er frumsamið. Höfundar eru fimrn og skrifa um það sem þeir þekkja og þeim er hugleikið; veru- leikann sjálfan. Sá veruleiki er harðari og óvægnari við þátttak- endur en veruleikinn sem flestir telja sér trú um að sé hinn raun- verulegi. Þeir sem lifa í veruleika verksins sigla hraðbyri á áfanga- stað. Áfangastaðurinn er sjálfstor- tíming, tneð örstuttu stoppi í eymd. Leikritið fjallar um dóp og dauða, ekki beint nýtt yrkisefni á þessum síðustu og (ég er meiri bjartsýnismaðui' en svo að ég segi verstu) jafngóðu tímum (ég er ekki það mikill bjaitsýnismaður að ég segi beztu). Söguþræðinum svipaði ögn til kvikmyndarinnar „Train- spotting" og endirinn var ansi líkur lokaatriði kvikmyndarinnar „Sid and Nancy“. Þetta yrkisefni er samt ekki verra en mörg önnur, ef vel er að verki staðið. Og vel var að verki staðið á Selfossi þó að stundum hafi þetta leiðst út í einum of mikla prédikun um vitleysu eiturlyfja- neyzlu. Margt kom fram sem ekki hefur komið fram í umræðunni hingað til, t.d. var margt til í „ein- ræðu“ miðilsins (Sigtryggs Bjarts Kristinssonar). En samt; orðræða hans var í örlítilli mótsögn við verk- ið„ Hann sagði m.a. að fólk þyrfti hvorki dóp né guð til að komast af, aðeins trú á sjálft sig. Leikritið er kynnt í leikskrá sem söngleikur, sem þýðir að hljóm- sveit kom við sögu. Sú var nokkuð þétt og iéttleikandi og _réð þar mestu bassaleikur Árna Ólasonar. Lögin voru, eins og verkið sjálft, frumsamin. Áhrifa margra hljóm- sveita gætti, t.d. var nokkuð sterk- ur Metallicu-keimur af einni byrj- uninni. Söngurinn var þó æði misjafn en Rakel Magnúsdóttir fór á kostum í Þureyjarlaginu. Leikritið var raunsætt í meira lagi. Sem dæmi tek ég sjúkraflutn- ingamennina tvo (Böðvar Jens Ragnarsson og Jón Hnefill Jakobs- son), en gegnum þá var hið land- læga „skítsama-um-hina“-viðhorf tjáð. Leikritið var meira að segja svo raunsætt að kveikt var í sígar- ettum. Logandi sígarettu hef ég ekki séð á sviði síðan Ingvar E. Sigurðsson töfraði eina slíka fram úr frakkaermi sinni í hlutverki Scullerys í Strætinu á Smíðaverk- stæðinu 1993. Svo skemmtilega vill til að leikstjóri þessa verks, Guðmundur Karl Sigurdórsson, fór einmitt með hlutverk Scullerys í uppfærzlu Leikfélags Selfoss 1996. Stórgóð sýning með boðskap sem mætti alveg fara að fá smá- hvíld, svo fólk verði ekki ónæmt fyrir honum. Til þess er hann of mikilvægur. Heimir Viðarsson Morgunblaðið/Sig. Fannar ÚR söngleiknum „Kostir hins villta lífernis”.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.