Morgunblaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.04.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL1997 B 9 KNATTSPYRIMA Lizarazu til Bayern BAYERN Miinchen hefur keypt franska landsliðsmanninn Lizarazu frá Atletico Bilbao á Spáni. Bayern borgaði 300 millj. ísl. kr. fyrir Lizarazu, sem er 27 ára. Hann skrifaði undir fimm ára samning. Reuter Balakov með þrennu BÚLGARINN Krasimir Balakov skoraði í fyrsta skipti meira en tvö mörk í leik með Stuttgart. Hann gerði gott betur, setti þrjú mörk of fagnar hér þrennu sinni ásamt Glo- vane Elber, sem skoraði eitt mark. Þýskaland stend- urbestaðvígi ÞÝSKALAND sótti um að halda HM 2006 fyrir fjórum árum og stendur best að vígi, að sögn Sepps Blatters, fram- kvæmdastjóra FIFA. Hann sagði að staða þess væri í raun mjög sterk en allar þjóð- ir gætu sótt um mótshaldið og FIFA tæki ákvörðun 2000. Þjóðveijar með Franz Beekenbauer í fararbroddi vilja að Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, komi fram sem ein heild á bak við eina Evrópuþjóð. UEFA tekur ákvörðun um það 17. apríl og ákveður þá hvort sam- bandið eigi að styðja Þýskaland eða England sem hafa sótt um mótshaldið en Blatter sagði að UEFA þyrfti ekki að sameinast um eina umsókn. Hann sagði að Afríkuþjóðirnar Morokkó, Egyptaland og Suður-Afríka vildu halda keppnina og í Suður-Ameríku væru um- sóknir frá Brasilíu og Argentínu sem sýndi að baráttan stæði ekki aðeins á milli álfa heldur einnig innan álfa. Bæjarar á góðri ferð Bayern Miinchen er með fimm stiga for- ystu í þýsku deildinni. Liðið hafði heppn- ina með sér og vann Köln 3:2 um helgina en Dortmund tapaði 3:2 í Duisburg og féll í fjórða sæti. Stuttgart vann Hansa Rostock 5:1 og er í þriðja sæti með 52 stig en Leverk- usen er með 53 stig. ítalski miðhetjinn Ruggiero Rizzitelli var með tvö mörk og Jrgen Klinsmann eitt fyrir Bayern sem er með 58 stig þegar fimm umferðir eru eftir. Þetta var sjöundi sigur Bayern á heimavelli í röð. Þrennan Krasimir Balakov, Giovane Elber og Fredi Bobic skoraði fyrir Stuttgart. Bobic byijaði þegar eftir þijár mínútur, 18. mark hans á tímabilinu, Balakov gerði tvö mörk á tveimur mínútum eftir hálftíma leik og Elber afgreiddi boltann í netið á 71. mínútu eftir sendingu frá Bobic. Marco Haber gerði fimmta markið en Yasser Radwan minnkaði muninn undir lokin. Þetta var ellefti leikurinn í vetur sem Stuttgart skorar fleiri mörk en fjögur, sem er met í Þýskalandi. Rétt áður en leikur Dortmund byijaði kom í ljós að Andreas Möller var með flensu og gat ekki leikið og þar með var liðið án allra sem annars væru í byijunarliðinu. Duisburg byijaði vel og þegar staðan var 2:0 var ljóst hvert stefndi. „Enn er 21 stig í pottinum," sagðj Ottmar Hitzfeld, þjálfari Dortmund. „Við urðum fyrir áfalli en verðum að sigra Bayern í staðinn.“ Portúgalinn Sosa meiddist í leiknum og leikur ekki með Dortmund um næstu helgi - vöðvaþræðir í læri slitnuðu. Um næstu hegi verða tveir stórleikur, Stuttgart mætir Leverkusen og Dortmund tekur á móti Bayern Munchen. Óvænt stórtap Juventus gegn Udinese íTórínó MIKIL spenna er nú komin í toppbaráttuna á Ítalíu. Juvent- us beið óvænt afhroð gegn Udinese á heimavelli 0:3 um helgina á meðan Parma vann enn einn 1:0 sigurinn, í þetta skiptið gegn Roma, og er nú aðeins þremur stigum á eftir Juve. Inter niðurlægði Milan í nágrannaslag Mflanó liðanna, sigraði 3:1 og er íþriðja sæti. Algjört svartnætti, leikmenn mínir voru tómir og andlaus- ir,“ sagði Marcello Lippi þjálfari Juventus eftir að lið EinarLogi hans hafði beðið Vignisson óvænt skipbrot gegn skrifar frá Udinese á Delle Alp- l,allu hi í Tórínó eftir hörkugengi undanfarið. Frakkan- um Genaux hjá Udinese var vísað af leikvelli eftir einungis tveggja mínútna leik fyrir svívirðingar í garð dómarans en gestirnir létu það ekki á sig fá og Brasilíumaðurinn Amoroso náði forystunni úr víta- spyrnu, sem dæmd var fyrir brot á Þjóðveijanum Oliver Bierhoff, rétt fyrir leikhlé. „Gulldrengurinn" Bierhoff klár- aði síðan leikinn fyrir Udinese á fyrstu fjórum mínútum síðari hálf- leiks, fyrst gerði hann hörkumark með skalla og lagði síðan upp mark fyrir Amoroso. Ekkert gekk upp hjá Juventus, lið- ið fékk tvær víta- spyrnur en Vieri og Zidane só- lunduðu þeim og eftir að Taccin- ITALIA Inter niðurlægði Milan í nágranna- urinn verður spennandi þótt ég telji Juventus eiga meiri mögu- leika. Þetta var slappur leikur en þeim mun betra að klára dæmið. ardi var vísað af slag Möanó liðanna, Það var býsna leikvelli er stund- -------;-----~, ------------- skrýtið að spila á arfjórðungur var SÍQTaðÍ 31 móti „Barónin- ° --------og ljóst að liðinn af síðari — hálfleik var ljóst að Juventus næði aldrei að komast inn í leikinn. „Við vorum þreyttir, erum nú einu sinni ekki vélmenni" sagði „II soldatino (litli hermaður- inn), Angelo Di Livio, landsliðsmað- ur Juve. Parma hefur þotið upp töfluna síðari hluta tímabilsins, hefur dreg- ið 13 stig á Juve í síðustu 14 um- ferðum. Argentínumaðurinn Hern- an Crespo tryggði Parma stigin þijú á Ólympíuleikvanginum í Róm í fremur slökum leik. Crespo var síógnandi og skemmtilegar rispur hans og enn ein snilldarframmistað- an hjá Frakkanum Lillian Thuram var það eina sem gladdi augað. Parma minnkaði forystu Juve í þijú stig og stefnir nú í hreinan úrslitaleik um titilinn á milli liðanna í þriðju síðustu umferð deildar- keppninnar í Tórínó. „Endasprett- --- um hann á mikið verk fyrir höndurn," sagði Carlo Ancelotti þjálfari Parma eftir leik- inn. „Baróninn" er Nils Liedholm, en undir hans stjóm varð Ancelotti meistari hjá Roma. Liedholm er goðsögn á Ítalíu eft- ir gifturíkan feril sem leikmaður og þjálfari og tók í fjórða skiptið við stjórninni hjá Roma í vikunni, 75 ára gamall. „Ég get hughreyst Berlusconi með því að við látum lið hans sleppa með svona þrjú mörk,“ sagði boru- brattur forseti Inter, Massimo Mo- retti fyrir slag Mílanó liðanna á sunnudaginn og leiddist greinilega ekki ófarir Milan undanfarið. For- setinn reyndist sannspár, Inter setti þijú mörk, fyrst Djorkaeff úr víti en síðan fylgdu tvö skallamörk frá Ivan Zamorano og Maurizio Ganz. Þeir þremenningar gerðu oft mikinn usla í óskipulagðri vörn Milan þótt liðið geti reyndar þakkað Gianluca Pagliuca sigurinn en hann varði oft frábærlega frá framheijum Milan. Hann réð þó ekki við vel útfært skot frá Roberto Baggio undir lok leiksins. Leiks Sampdoria og Lazio var beðið með eftirvæntingu og kringumstæðurnar eilítið einkenni- legar: Liðin heyja harða baráttu um sæti í Evrópukeppninni og nái Samp að skáka Lazio í þeim slag verður Sven Göran Eriksson að láta sér deildarkeppnina nægja næsta vetur en hann tekur við liði Lazio í sumar og sagt er að hann vilji fá fyrirlið- ann Roberto Mancini með sér til Rómar. Fyrri hálfleikur einkenndist af dútli og dúlli hjá báðum liðum en Samp var þó sterkari aðilinn. Á 22. mínútu síðari hálfleiks náði lið- ið loks að brjóta ísinn, Vicenzo Montella skoraði úr víti sem dæmt var fyrir brot á besta manni vallar- ins, Argentínumanninum Sebastian Veron. Montella hefur nú gert 18 mörk í deildinni og er markahæstur ásamt Inzaghi. Honum var kippt útaf rétt fyrir leikslok og reyndist það dýrkeypt, liðið fékk aðra víta- spyrnu og án hans kom það í hlut Mancini að taka vítið. Brenndi hann því snyrtilega af og muna elstu menn ekki eftir því að kempan hafi skorað úr vítaspyrnu. Shearer krýndur sá besti ALAN Shearer, markahrókur þjá Newcastle, var krýndur besti leikmaður úrvalsdeild- arinnar í Englandi á suimu- dagskvöldið. Það voru leik- menn deildarinnar sem völdu hann, efnilegasti leikmaður- inn var valinn David Beckham hjá Manchester United. She- arer er annar leikmaðurinn sem hefur fengið þessa nafn- bót tvisvar, en hann var einn- ig valinn sá besti 1995. Hinn leikmaðurinn er Mark Hugh- es, leikmaður með Chelsea. Eindhoven lagði Ajax PSV Eindhoven sigraði Ajax 2:0 í toppslag hollensku deildarkeppn- innar á sunnudag. PSV er í efsta sæti deildarinnar með 62 stig þegar sex umferðir eru eftir og Feyenoord er í öðru sæti með jafn mörg stig. Þetta var fyrsta tap Ajax í deild- inni eftir vetrarhléið. Philip Cocu og Belginn Gille de Bilde, sem gekk tii liðs við félagið fyrir skömmu, gerðu mörkin. Patrick Kluivert og Jari Litmanen léku ekki með Ajax. Kluivert er meiddur og Litmanen tók út leikbann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.