Morgunblaðið - 17.04.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 21
ERLENT
Rekinn vegna
bænagjörðar
Kaupmannahöfn. Morgpinblaðið.
MUSLIMA á námskeiði í skóla
á vegum danska atvinnuráðu-
neytisins hefur verið vísað úr
skóla vegna bænahalds af þeirri
ástæðu að hann neitaði að biðj-
ast fyrir á snyrtingunni. Málið
hefur vakið blendnar tilfinning-
ar, því umburðarlyndi og skiln-
ingur á aðstæðum innflytjenda
er viðkvæmt mál í Danmörku
eins og víðar.
Músliminn hafði það fyrir sið
að leggjast á bæn að hætti rétt-
trúaðra um hádegisleytið á
ganginum við mötuneyti skólans,
ásamt sjö öðrum trúbræðrum
sínum. Þar sem bæninni fylgir
ákall fór bænahaldið ekki fram-
hjá öðrum nemendum, sem um
þetta leyti dags streyma í mötu-
neytið. Einhveijir nemenda
kunnu þessu illa og álitu bæna-
haldið ögrandi og lá við að upp
úr syði og slagsmál hlytust af.
Skólayfirvöld tóku á málinu
og fóru þess á leit við bæna-
mennina að þeir héldu sig við
trúarbókstafmn og bæðust fyrir
á bak við luktar dyr, sem í þessu
tilfelli gæti verið salerni skólans.
Þegar þetta spurðist út þótti til-
boðið móðgun við múslimana og
af hálfu skólans var því haldið
fram að það hefði ekki verið
snyrtingin heldur búningsher-
bergi, sem þeim var boðið upp
á. Sjö múslimanna tóku boðinu
um aðra aðstöðu og fluttu bæn-
irnar af ganginum, en sá áttundi
hélt áfram að biðjast fyrir á
ganginum. Þegar hann lét sér
ekki segjast var honum vikið úr
skóla.
Málið þykir hið erfiðasta fyrir
skólayfírvöld, því það hefur ein-
mitt verið áhyggjuefni að skól-
inn, sem ætlaður er atvinnulaus-
um eða þeim sem þurfa á eftir-
menntun að halda, laði ekki að
sér nægilega marga innflytjend-
ur, en atvinnuleysi meðal þeirra
er erfitt viðureignar. Danska al-
þýðusambandið hefur gagnrýnt
skólann fyrir brottreksturinn, því
alltaf sé hægt að fínna lausn á
svona máli með því að höfða til
umburðarlyndis og skilnings, sé
vilji fyrir hendi.
Sameiginleg-
ur gjaldmið-
ill í Bosníu
Washington. Reuter.
NICHOLAS Burns, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
lýsti því yfír á þriðjudag að forsæt-
isráðið í Bosníu hefði fallist á einn
gjaldmiðil í landinu.
Þessi ákvörðun er í samræmi við
Dayton-friðarsamkomulagið og
féllst forsætisráðið sem fulltrúar
múslima, Króata og Serba eiga
sæti í, á gjaldmiðilinn. Hann kall-
ast marka og verður verðgildi hans
hið sama og þýska marksins, en
það hefur verið aðalgjaldmiðillinn
í Bosníu um nokkurt skeið.
Ert þú
EINMANA
Vantar þig vin að
tala við?
VINALÍNAN
561 6464 • 800 6464
öll kvöld 20 - 23
KONGURIRIKIÞINU!
Og sofðu rótt um allar nætur.
Þegar þú ákveður að kaupa þér ameriskt rum skaltu koma til okkar og
prófa hvort þér líkar millistíf, hörð eða mjúk dýna. 68 ára reynsla við
prófa hvort þér líkar mllllstíf, hörð eða mjuk dyna. 68 ára reynsla við
dýnuframleiðslu hefur kennt SERTA heilmikið um það hvernig dýna
verður fullkomin. SERTA dýnan sameinar frábær þægindi, góðan
stuðning og langa endingu. Sérþjálfað starfsfólk okkar tekur vel á
móti þer og leiðbeinir við val á réttu dýnunni fyrir þig eða ykkur.
Við eigum SERTA dýnurnar alltaf til á lager og þelm fylgír allt
að 15 ára ábyrgð.
Veríð velkomm i stærstu ruma og
dýnuverslun landsins.
HÚSGAGNAHÖLUN
BlkXMM! 20 -112 Dvlk ■ S:S10 2000
Þegar þú vilt lúxus -skaltu velja Serta,
amerísku dekurdýnuna.