Morgunblaðið - 30.04.1997, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
Sigurvin aflur til ÍBV
Sigurvin Ólafsson, sem hefur
verið hjá Stuttgart í Þýska-
landi í tæplega fjögur ár, leikur
með Eyjamönnum í sumar nema
eitthvað óvænt komi upp á.
„Eg hef ekki skrifað undir neinn
samning en ég hef hug á að koma
heim og halda áfram í skóla, ljúka
stúdentsprófinu, og kem heim í
sumar nema aðstæður breytist
verulega á næstu vikum,“ sagði
hann við Morgunblaðið í gær.
Sigurvin, sem hefur verið fyrir-
liði ungmennalandsliðsins undan-
farin tvö ár, sagði að komið væri
að ákveðnum tímamótum hjá sér.
„Ég hef leikið með varaliði Stutt-
gart undanfarin ár og félagið hef-
ur boðið mér að vera áfram á sömu
kjörum en ég fæ fá tækifæri með
aðalliðinu," sagði kappinn, sem lék
æfingaleik með aðalliði Stuttgart
á móti landsliði Búlgaríu í gær-
kvöldi. „Mér hefur gengið mjög
vel og ég hef öðlast mikla reynslu
en valið stendur á milli þess að
taka áhættuna og bíða eftir tæki-
færinu sem óvíst er að komi eða
láta námið hafa forgang."
Miðjumaðurinn er samnings-
bundinn Stuttgart til 1. júlí en síð-
asti leikur varaliðsins er í lok maí.
Liðið stendur vel að vígi í keppn-
inni og á mikla möguleika á að
komast upp í efstu deild varaliða.
Sigurvin sagði að léki hann með
Eyjamönnum, eins og hann væri
nánast búinn að ákveða, kæmi til
greina að hann fengi að sleppa
síðasta leiknum, ef viðureignin
skipti ekki máli í lokastöðunni, og
gæti því komið fyrr heim, en ljóst
væri að hann yrði ekki með í fyrstu
umferðunum.
Olafur
þjálfar
Gróttu
STJÓRN handknattleiks-
deildar Gróttu hefur gert
samning við Ólaf Lárusson
um þjálfun 2. deildar liðs
meistaraflokks karla.
Ólafur, sem er 39 ára og
fþróttakennari að mennt, er
reyndur þjálfari og hefur
m.a. þjálfað meistaraflokk
karla hjá KR en á liðnu tíma-
bili þjálfaði hann kvennalið
Stjömunnar sem lék til úr-
slita um íslandsmeistaratitU-
inn.
Eins og fram hefur komið
standa yfir viðræður milli
Gróttu og KR um samvinnu
og jafnvel samruna og halda
þær áfram en handknatt-
leiksdeUdir félaganna senda
sameiginleg lið til keppni í
kvennaflokkum næstatíma-
bU.
toúmR
FOLK
■ ANDY Möller og félagi hans frá
Dortmund, Stefan Reuter, verða
hvorugur með landsliði Þýskalands,
í HM-leiknum gegn Ukraínu í dag
vegna meiðsla.
■ FIORENTINA var í gær dæmt
til þess að leika næstu tvo leiki sína
í Evrópukeppninni í knattspyrnu í
500 km fjarlægð frá heimavelli sín-
um í Flórens. Auk þess skal félagið
greiða 3,5 milljónir króna í sekt til
knattspyrnusambands Evrópu
vegna óláta á heimaleik liðsins gegn
Barcelona í undanúrslitum Evrópu-
kepgni bikarhafa í síðustu viku.
■ A UMRÆDDUM leik var kastað
flösku í Bobby Robson þjálfara
Barcelona og tveir Ieikmanna hans
Sergei Barjuan og Ivan de la Pena
urðu fyrir því að þeim var kastað
rusli frá áhorfendum.
■ RUI Costa og félagi hans Stefan
Schwarz leikmenn Fiorentina voru
dæmdir í leikbann í Evrópukeppninni
fyrir að móðga dómara leiksins eftir
að flautað hafði verið af. Costa fékk
fjögurra leikja bann og Schwarz
þriggja.
■ LUIS Olivera liðsmaður Fior-
entina er vísað var af leikvelli í
margumræddum leik fékk tveggja
leikja bann svo og Miguel Nadal
leikmaður Barcelona sem einnig
fékk reisupassann.
■ AEK Aþena fékk einnig sektar-
miða frá knattspyrnusambandi Evr-
ópu vegna óláta stuðningsmanna
þeirra er félagið tók á móti Paris
Saint Germain í Evrópukeppni bik-
arhafa í mars sl. Grikkjunum var
gert skylt að greiða sem svara til
20 milljóna króna.
M RAY Houghton, miðvallarleik-
maður frá Crystal Palace, er á ný
í landsliðshópi Irlands, sem mætir
Rúmenum í HM í dag í Búkarest.
Houghton er orðinn 35 ára.
■ SANDOR Puhl knattspyrnu-
dómari frá Ungverjalandi dæmir
úrslitaleik Juventus og Dortmund
í Meistaradeild Evrópu. Hann hefur
áður dæmt viðureign þessara liða
en það var er þau áttust við í úrslit-
um UEFA keppninnar vorið 1993.
Þá dæmdi Puhl fyrri viðureignina.
■ PUHL er þó kannski þekktastur
fyrir að dæma úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar í Bandaríkj-
unum árið 1994 er Brasilíumenn
lögðu ítali í vítapsyrnukeppni, eftir
framlengdan og markalausan leik.
jjli wm
H Wm
? íyilf : ‘H
jpH BBf ,
>Æf, ífL'Hp 11 V j.
llt 1
Morgunblaðið/Kristinn
SAMNINGUR Knattspyrnusambands íslands og Búnaöarbankans handsalaður í gær. Frá vinstri: Jón Adolf Guðjónsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Sólon Sigurðsson, bankastjóri Búnaðarbankans.
Búnaðarbankinn
og KSÍ í samstarf
|/’ nattspyrnusamband íslands
gerði samkomulag við
Búnaðarbanka íslands sl. haust
um að bankinn annaðist fjármögn-
un upp á 230 milljónir vegna fram-
kvæmda á nýrri stúku á Laugar-
dalsvelli sem verður lokið 1. júní
og ýmsar aðrar endurbætur á vell-
inum. í gær voru samningar undir-
ritaðir í höfuðstöðvum KSÍ og var
um tvíhliða samning að ræða.
Annars vegar samningur um
framangreindar framkvæmdir og
hins vegar samstarfssamningur,
að verðg;ildi um 10 milljónir króna,
sem er til ailt að fimm ára. Búnað-
arbankinn verður einn helsti sam-
starfsaðili KSÍ og verður nafn
bankans áberandi á nýja Laugar-
dalsvellinum.
Framkvæmdirnar eru fjár-
magnaðar með erlendu láni hjá
Búnaðarbanka íslands og er end-
urgreiðsla tryggð með 15 ára
samningi Reykjavíkurborgar og
KSÍ um framkvæmdir á Laugar-
dalsvelli.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagðist mjög ánægður með
samstarfið við Búnaðarbankann.
„Við gerðum þennan samning
fyrst og fremst til að hraða fram-
kvæmdum. Við máttum búast við
því að fá á okkur heimaleikjabann
og jafnvel sektir ef stúka yrði
ekki byggð. Nú er ljóst að stúkan
verður tilbúin 1. júní, áður en
Smáþjóðaleikarnir hefjast og fyrir
HM-leikinn á móti Litháen 11.
júní. Ég vil lýsa ánægju minni
með samstarfið við Búnaðarbank-
ann því hann gerði okkur mögu-
legt að hraða framkvæmdum.“
Sólon Sigurðsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, sagði að bank-
inn hefði lengi stutt við bakið á
íþróttum í landinu. „Við höfum
styrkt íþróttastarfið í landinu mik-
ið á síðustu árum og erum við
meðal annars aðalstyrktaraðili
Smáþjóðaleikanna. Við erum ekki
að gera það af eintómri mann-
gæsku að styrkja íþróttastarfið því
við teljum okkur líka tengja bank-
ann við íþróttaæsku landsins með
þessu,“ sagði Sólon.
Eggert sagði að stefnt væri að
því að flytja skrifstofur KSÍ niður
á Laugardalsvöll, undir gömlu
stúkuna, 15. júní í sumar. KSÍ á
húsnæðið þar sem skrifstofur sam-
bandsins eru nú, í íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal, en sambandið
hyggst leigja húsnæðið þegar það
flytur niður á Laugardalsvöll.
Capello
frá Real
FABIO Capello, þjálfari Real
Madrid, staðfesti í útvarpsviðtali
í gær að hann færi frá félaginu
eftir yfirstandandi tímabil. Að
undanförnu hefur verið hávær
orðrómur um að hann væri á leið-
inni aftur til AC Milan en Capello
sagðist hafa tekið fyrrnefnda
ákvörðun sl. sunnudag og árétt-
aði að hann hefði ekki gert samn-
ing við annað félag. Jupp Heync-
kes, þjálfari Tenerife, er talinn
líklegastur til að taka við Real
Madrid.
Capello sagðist hafa ákveðið
að hætta hjá Real eftir að hafa
fullreynt að ekki væri hægt að
starfa með stjórn félagsins. „Ég
hef haft mínar efasemdir um
framhaldið í viku og sagði forset-
anum frá því en ekki er hægt að
vinna með mönnum sem leka öllu
í fjölmiðla sem sagt, er,“ sagði
hann. Capello bætti við að hann
ætlaði að ljúka ætlunarverkinu,
að gera Real að Spánarmeistara,
en liðið er með átta stiga forystu
í deildinni. „Ég er sannfærður
um að Real verður meistari og
Evrópumeistari að ári,“ sagði
hann.