Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 1
f' HANDKNATTLEIKUR NBA-DEILDIN í KÖRFUKNATTLEIK: LARRY BIRD ÞJÁLFARIINDIANA / C4 Skagamenn fá þriðja útlend- inginn ÍSLANDSMEISTARAR Skaga- manna eru að fá til sín þríðja út- lendinginn í næstu viku. Það er Júgóslavi sem er með ítalskt vega- bréf og heitir Dragan Ristic. Hann er þrítugur sóknarmaður og hefur leikið í 3. deild á Ítalíu um nokk- urt skeið. Om Gunnarsson, varaformaður Knattspyrnufélags ÍA, og Uros Ivanovic, sem fer sem túlkur, halda utan í dag til að ganga frá samningum við Ristic. „Við gerum ráð fyrir því að Ristic verði klár í fyrsta leikinn í íslandsmótinu á móti IBV ef við náum samningum við hann sem allt bendir til,“ sagði Gylfi Þórðarson, formaður Knatt- spyrnufélags IA. Ivan Golac, þjálfarí Skaga- manna, þekkir Ristic vel og lagði mikla áherslu á að fá hann til IA. Hann lék sem framheiji hjá Dundee United í Skotlandi þegar Golac þjálfaði liðið. Fyrir eru tveir Júgóslavar hjá IA, Vladan Tomic, vamar- og miðjumaður og Alek- sanda Linta, vinstri útheiji. Teitur leikur með Njarðvík TEITUR Örlygsson, landsliðsmað- ur í körfuknattleik, hefur ákveðið að leika með sínum gömlu félögum í Njarðvík næsta vetur. Hann gerði eins árs samning við Njarð- víkinga. Teitur, sem er einn besti körfuknattleiksmaður landsins, lék með gríska 1. deildar liðinu Laríssa í fyrravetur og hafði ekki áhuga á að vera áfram í Grikk- landi. Nýráðinn þjálfarí Njarðvík- inga er Friðrik Ingi Rúnarsson, sem var með Njarðvík fyrir nokkr- um árum og þá lék Teitur einnig með félaginu. Birgir Leifur áfram í Kalmar ÍSLANDSMEISTARINN í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, tryggði sér í gær rétt til að leika þríðja og fjórða keppnisdaginn á fyrsta mótinu í sænsku mótaröðinni, sem stendur yfir í Kalmar. 159 kylfing- ar hófu keppni og hafnaði Birgir Leifur í 29.- 44. sæti og komst því áfram. Hann var í 83. til 102. sæti eftir fyrsta keppnisdag, lék á 77 höggum, fimm yfir pari vall- arins. í gær lék hann á parí, eða 72 höggum. Birgir Leifur lék sam- tals á 149 höggum, besta skor var 142 högg. fttorgpittMðtiniS* 1997 LAUGARDAGUR 10. MAÍ BLAD Sigtryggur í KA og Duranona til Eisenach SIGTRYGGUR Albertssiin ákvað í gær að ganga til liðs við íslands- meistara KA í handknattleik, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Sigtryggur, sem hefur leikið með Gróttu, hafði hugsað sér að hætta, en tók tilboði norðanmanna um að veija mark þeirra á næsta keppnistímabili. Róbert Julian Duranona verður hins vegar ekki áfram með KA því í gær gerði hann samning við Eisenach í Þýskalandi. Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, leyfði honum að skreppa til Þýskalands með því skilyrði að hann gengi frá sínum málum svo hann gæti ein- beitt sér að næsta verkefni, HM í Japan. Eisenach sigraði i sínum ríðli í 2. deild á nýliðnu tímabili og leik- ur þar af leiðandi í 1. deild á næsta tímabili en fyrsti leikur þess verð- ur við „Islendingaliðið“ Wupper- tal. Sem kunnugt er þjálfar Viggó Sigurðsson Wuppertal en á meðal leikmanna þess eru landsliðsmenn- irnir Dagur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Geir Sveinsson, sem gekk til liðs við þýska liðið í vor. Landsliðið til Japans undir verndarvæng Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna Sárt ad þurfa að setja Rúnar út FRIÐRIK Pálsson, for- stjóri SH, og Guðmundur Ingvarsson, formaður HSÍ, takast í hendur eftir undirritun samstarfs- samnings SH og HSÍ í gær. í tilefni Japansferð- arinnar bauð SH upp ð japanska rétti i Perlunni til að búa landsliðshóp- inn sem best undir það sem koma skal. Morgunblaðið/Kristinn Guðmundur Ingvarsson, for- maður Handknattleikssam- bands íslands, og Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, undirrituðu í Perl- unni í gær samstarfssamning vegna þátttöku landsliðins í loka- keppni heimsmeistaramótsins sem hefst í Japan eftir viku. „Þetta er stór stund fyrir okkur í HSÍ, samn- ingurinn er okkur mikils virði," sagði Guðmundur og bætti við að allur stuðningur skipti mjög miklu máli því ferðin væri mjög dýr. SH opnaði söluskrifstofu í Japan 1989. Fram kom á fundinum í gær að fyrirtækið væri stærsti söluaðili loðnu í Japan og væri með um 10% markaðarins í sölu á úthafsrækju, sem þætti gott, auk þess sem það hefði sterka stöðu í viðskiptum með karfa og grálúðu. Friðrik sagði að fyrirtækið hefði farið í landvinninga í austur með góðum árangri og því væri við hæfi að styrkja landsliðið þegar það færi á sömu slóðir enda væru vinnubrögð- in á sömu nótum, „allir fara héðan til Japans til að gera sitt besta.“ Á fundinum tilkynnti Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, endan- legan hóp þeirra sem fara til Jap- ans á mánudag. Að undanförnu hafa 17 ■■■■■■■■ leikmenn búið sig undir keppnina en aðeins má fara með 16 menn og því verð- ur einn að sitja eftir heima. Þorbjörn sagði að valið hefði verið erfitt en reglur væru reglur og niður- staðan hefði verið að sleppa Rúnari Sig- tryggssyni úr Hauk- um. „Það er sárt að þurfa að setja Rúnar út, því hann hefur sýnt að hann á heima í hópnum og hefur staðið sig vel,“ sagði Kumamoto, gegn úrvals- liði Sigurðar Gunnars- sonar, þjálfara Hauka, í Smáranum í Kópavogi í dag kl. 16. JapansfaramSr Þorbjöm. Landsliðið í hand- knattleik leikur kveðjuleik sinn áður en það heldur til Landsliðshópurinn sem tekur þátt í HM í Kumamoto, er þannig: Markverðir: Reynir Þ. Reynisson, Fram Guðmundur Hrafnkelsson. Val Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA Aðrir leikmenn: Róbert Sighvatsson, Schutterwald Björgvin Björgvinsson, KA Bjarki Sigurðsson, UMFA Valdimar Grímsson, Stjömunni Dagur Sigurðsson, Wuppertal Patrekur Jóhannesson, Essen Gústaf Bjamason, Haukum Konráð Olavson, Stjömunni ólafur Stefánsson, Wuppertal Geir Sveinsson, Montpellier Julian Róbert Duranona, KA Jason Ólafsson, Leutershausen Júlíus Jónasson, TV Suhr Fæst hjá

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.