Morgunblaðið - 16.05.1997, Side 11

Morgunblaðið - 16.05.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/gg FRÁ Langá á Mýrum, fremst er Myrkhylur, þá Breiðan og síðan Strengirnir. Langá óvænt í útboð LANGÁ á Mýrum er komin í útboð og rennur út frestur til að skila tilboðum í ána sunnudagmn 25. maí. Útboðið ber brátt að. Útleigu- mál virtust í föstum skorðum og aðeins eftir að staðfesta undirritað- an leigusamning fyrir 1998 á aðal- fundi Veiðifélags Langár og í hluta- félagi leigutaka fyrir skömmu. Aðalfundur Veiðifélags Langár var haldinn í lok apríl og auk aðal- fundarstarfa lá fyrir fundinum að staðfesta leigusamning við Ingva Hrafn Jónsson, Runólf Ágústsson og Stefán Ólafsson fyrir árin 1998 til 2002, en þeir félagar hafa frá og með komandi sumri haft ána á leigu í þrjú ár. Kvöldið fyrir aðalfund barst annað tilboð í ána, frá Ingva Hrafni, mun hærra að krónulölu en tilboðið sem lá fyrir til af- greiðslu. Það nam 17,7 milljónum, en það nýja 23 milljónum sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. í hærra tilboðinu var ráð fyrir því gert að Veiðifélag Langár reisti nýtt veiðihús sem hýsti veiðimenn á 8 stöngum og yrði endurgjalds- laust fyrir væntanlegan leigutaka. Gamla veiðihúsið við Langárfoss er ekki í eigu Veiðifélags L.angár, heldur Stefáns Ólafssonar og fjöl- skyldu hans. Skilafrestur tilboða að renna út Vífill Oddsson stjórnarmaður í Veiðifélagi Langár staðfesti þess- ar upplýsingar og gang mála í samtali við blaðið og sagði hann að miklar umræður hefðu orðið á fundinum og niðurstaða málsins var sú að bjóða veiðina út með skilafresti á tilboðum 25. maí. Sagði Vífíll enn fremur að Ingvi Hrafn hefði setið fyrsta könnun- arfund veiðifélagsins og leigutaka, en síðan verið erlendis er fleiri fund- ir fylgdu og gengið var frá samn- ingi með fyrirvara um samþykki á aðalfundi veiðifélagsins og í hluta- félagi leigutaka. Sér hefði skilist að ósamkomulag væri í hlutafélag- inu um skiptingu leigunnar manna í millum, Ingvi hefði til þessa verið með 7 stangir í mið- og efsta hluta árinnar og Runólfur og Stefán 5 stangir á neðsta svæðinu, en skipt- ing leigunnar verið jöfn. Rannsókn umfangsmikils fjársvikamáls lokið Fimm sviku út fyrir 43 milljónir RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis- ins hefur lokið rannsókn umfangs- mikils fjársvikamáls sem kom til hennar kasta í lok mars, en á ann- an tug manna var handtekinn í tengslum við rannsókn þess og sættu fimm gæsluvarðhaldi. Nafn- verð þeirra fjárhæða sem um er að ræða nemur 43,2 milljónum króna á pappírum. Aðallega var um að ræða fjár- svik með útgáfu innstæðulausra tékka, vöruúttektum, skuldabréfa- útgáfu, víxlaútgáfu og yfirtöku áhvílandi skulda á fasteignum. Þetta var gert í nafni hlutafélaga með kennitölu, en félögin áttu eng- ar eignir og ráku enga starfsemi. Blekktir með ónýtum pappírum „Viðskiptamenn voru þannig blekktir til að láta af hendi vörur og fá í staðinn ónýta pappíra sem ekkert stendur á bak við, en á papp- írunum leit út fyrir að menn væru að eiga viðskipti við „fyrirtæki". í örfáum tilvikum voru viðskiptin hins vegar gerð í nafni einstakling- anna sjálfra," segir Hörður Jóhann- esson yfniögregluþjónn hjá RLR. í tengslum við rannsóknina hefur RLR meðal annars náð til baka og lagt hald á tólf bifreiðar sem félag- arnir fimm höfðu keypt. Einnig hefur náðst til baka mest af þeim vörum sem sviknar voru út, að undanskildu nokkru magni af bygg- ingarefni. Af helstu viðskiptum má nefna útgáfu innstæðulausra ávísana fyrir um 2,4 milljónir króna, en með þeim tókst þeim að svíkja út hús- gögn, hreinlætistæki, raftæki og búnað fyrii' veitingahús hjá verslun- um og þjónustufyi'irtækjum. Með reikningsviðskiptum fyrir um 1,3 milljónir voru teknar út bygginga- vörur o.fl. hjá byggingavöruverslun og aðrar vörur hjá ýmsum fyrir- tækjum. Allt var þetta skrifað hjá einhveiju af „félögunum". Þá voru yfirteknar fasteignir og áhvílandi veðskuldir fyrir samtals 23,7 milljónir króna í nafni félaga og einstaklinga. Keyptar voru fast- eignir í nafni félaganna eða ein- staklinga í hópnum og nánast allt andvirði greitt með yfirtöku áhvíl- andi skulda. Með víxlaútgáfu fyrir 8,2 milljónir króna voru keyptar bif- reiðar og fasteignir, auk jjess seni víxlum var komið í umferð með öðrum hætti, t.d. afhentir öðrum að „láni“. Þá voru gefin út skulda- bréf fyrir 7,6 milljónir króna og voru útgefin skuldabréf einkum notuð til bifreiðakaupa en einnig til greiðslu skulda, auk þess sem að minnsta kosti eitt þeirra var selt í banka. STEINAR WAAGE SKOVERSLUN Gúmm ístígvél góV^ Verð 1.995,- Litur svört, rauð, gul Stærðir 36-41 Teg. 725 Gott úrval af stígvélum frd Nokia og Vikingjyrir börnin PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR STEINAR WAAGE , SKÓVERSLUN SlMI 551 8519 ^ \oppskórinn A- VCUUSUHDI IHGÚIFSTOGI SlMI: íi! 111! STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN^ SlMI 568 9212 ^ VEIÐIHUS í Borgarfirði Borgarfjörður á sér merka og langa sögu tengda laxveiði. Laugardaginn 17. maí bjóða Borgfirðingar almenningi að skoða veiðihús við nokkrar helstu laxveiðiár í héraðinu. Húsin verða opin almenningi þann dag frá kl. 13:00 til 18:00 - leiðsögumenn verða í húsunum. Verið velkomin. Veiðihúsið Fossás stendur við Grímsá. Húsið var tekið í notkun árið 1973 og þykir mjög sérstakt í Húsið er í Andakílshreppi, um 8 km norð- austur af Hvanneyri, beygt inn af vegi nr. 52. Veiðihúsið Lundur stendur við Hítará um 30 km vestan við Borgarnes. Ekinn er Ólafsvíkurvegur (nr. 54). Húsið var upprunalega byggt af Jóhannesi Jósefssyni (Hótel Borg) upp úr 1940. I því er safn merkra muna. Veiðihúsið við Langá stendur við Ólafs- víkurveg (nr. 54) um 6 km vestan Borgarnes. Húsið er veiðihús landsins, byggt 1884. Húsið var á fyrri hluta aldarinnar í eigu breskra auðmanna. Veiðihúsið við Norðurá er glæsi- legt hús og stendur þar sem útsýni er tilkomumikið. Beygt er til hægri af vegi nr. 1 um 3 km fyrir norðan Munaðarnes. Veiðihúsið við Þverá stendur á árbakkan- um þar sem útsýni er mjög fallegt. Það var byggt snemma á tugnum og endurnýjað fyrir nokkrum árum. Beygt er af þjóðvegi nr. 1 við verslunina Baulu, inn á veg 50 (Stafholtstungur). Beygt þaðan inn á veg 522 (Þverárhlíð). Ekið inn á veg 524 og fram hjá bænum Helgavatni. SÉRTILBOÐ Eftirtaldir aðilar veita sértilboð á gistingu um hvítasunnuhelgina: ■ Farfuglaheimilið Golfskálanum Hamri, s: 437 1040 ■ Ferðaþj. bænda, Bjargi, Borgarnesi, s: 437 1925 ■ Ferðaþj. bænda, Fljótstungu, Hvítársíðu, s: 435 1198 ■ Mótel Venus, Hafnarskógi, s: 437 2345 Mcirkciðsroð Borgorness

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.