Morgunblaðið - 16.05.1997, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 16.05.1997, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 16. MAÍ1997 45 < ( < Sumardag- skrá hafin í Viðey AÐ VENJU hefst sumardagskrá | Viðeyjar um hvítasunnuhelgina. Starfið verður með hefðbundnum hætti. Helsta breytingin er að laug- ( ardagsgöngurnar verða nú að morgninum. Gönguferðirnar verða, eins og í fyrra, raðgöngur, þannig að sá sem kemur fimm laugardagsmorgna eða þriðjudags- kvöld í röð sér allt það merkasta í eynni. Ferðir verða með sama sniði og áður á klst. fresti frá kl. 13-17 um helgar og kl. 14 og 15 virka daga. ( Um hvítasunnuna verður dag- | skráin þannig að á laugardags- morgun kl. 10 verður farið með fetjunni yfir og haldið í gönguferð um austureyna norðanverða. Stans- að verður í skólanum og ljósmynda- sýningin þar skoðuð. Hún gefur góða hugmynd um lífið í þorpinu sem byijað var að byggja fyrir 90 árum og stóð til 1943. Komið verð- I ur j land aftur fyrir kl. 12. Á sunnudag kl. 14 verður staðarskoðun. Þá skoðar fólk kirkj- I una, Stofuna og næsta nágrenni. Það tekur tæpan klukkutíma. Á annan í hvítasunnu messar sr. Jak- ob Ág. Hjálmarsson 1 Viðeyjar- kirkju með aðstoð dómkórs og dómorganista. Eftir messu verður aftur staðarskoðun. Þann dag er aukaferð með kirkjugesti kl. 13.30. Á þriðjudagskvöld kl. 20.30 t verður svo farið með feijunni í fyrstu kvöldgöngu sumarsins. Hún verður farin um sömu slóðir og laugardagsgangan. Hestaleigan bytjar 1. júní. Einn- ig verður starfræktur reiðskóli sem hefur störf 2. júní. Hvort tveggja er á vegum Hestaleigunnar í Lax- nesi. Ljósmyndasýning í Viðeyjar- skóla verður opnuð almenningi 28. júní. Veitingahúsið í Viöeyjarstofu mun síðdegis í sumar bjóða upp á veitingar sem henta vel útivistar- fólki, þ.e. ýmsa „snarlrétti" á til- tölulega vægu verði, segir í frétta- tilkynningu frá staðarhaldara. LEIÐRÉTT Útsvar 11,19% RANGLEGA var farið með útsvars- prósentu í Reykjavík í töflu, sem fylgdi frétt um sameiningu Reykja- víkur og Kjalarness í blaðinu í gær en útsvar í Reykjavík er 11,19% en ekki 11,99%. Harri Syrjanen opnar sýningu sína á morgun FINNSKI gull- og leðursmiðurinn Harri Sytjánen opnar sýningu á verkum sínum á morgun, laugar- dag, kl. 14, í Listhúsi Ófeigs, Skóla- vörðustíg 5. Opnunardagurinn var ekki réttur í blaðinu í gær. Beðist er afsökunar á þessum mistökum. Athugasemd frá forstjóra P og S GUÐMUNDUR Björnsson, for- stjóri Pósts og síma, vill gera at- hugasemd við frétt sem birtist í Mbl. miðvikudaginn 14. maí sl. þar sem fjallað er um úrskurð sam- keppnisráðs um internetþjónustu Pósts og síma. í fréttinni er rætt við Helga Jóns- son hjá Intís og Björn Davíðsson hjá Snerpu sem fullyrða að Póstur og sírni hafi ekki sett upp innhringi- búnað vegna internetþjónustu sinn- ar úti á landi og greiði þar af leið- andi niður þjónustuna. Þessar full- yrðingar eru rangar en hafa því miður verið endurteknar á öðrum vettvangi. Innhringibúnaður var settur upp á Akranesi, Akureyri, Egilsstöðum, Keflavík, ísafirði og Sauðárkróki á tímabilinu 10.-16. október á sl. ári og síðasti innhringibúnaðurinn var settur upp og tekinn í notkun á Hvolsvelli þann 1. nóvember. Skeljungur opnar Select hraðverslun í Breiðholti SKELJUNGUR HF. hefur opnað Select hraðverslun í Shellstöð- inni við Suðurfell í Breiðholti. Þetta er önnur Select hraðversl- unin hér á landi en sú fyrsta var opnuð á Shellstöðinni við Vestur- landsveg í mars sl. I tilefni af opnun Select hrað- verslunarinnar í Suðurfelli verða sérstök opnunartilboð á báðum Select stöðvunum nú um hvíta- sunnuhelgina. Meðal tilboða má nefna að boðið verður upp á pylsurétti og hálfan lítra af gosi fyrir 100 kr, samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu frá Skeljungi. í tilefni af opnuninni munu Skógrækt ríkisins og Skelj- ungur gefa hveijum viðskiptavini í dag og á morgun plöntu. í fréttatilkynningu Skeljungs segir: „í Select hraðverslunun- um eru ávallt á boðstólum ný- bökuð brauð og sætabrauð sem eru bökuð á staðnum en bökun- aröfn er hluti af búnaði allra Select stöðva. Með tilkomu Select stöðvanna á Vesturlands- vegi og í Suðurfelli er bryddað upp á nýrri þjónustu. Hægt er að hringja á stöðina og panta brauð og kökur. Þá tnun sá skammtur sem pantaður hefur verið bíða nýbakaður þegar við- skiptavinurinn kemur að sækja pöntunina. Þessi nýjung ætti að henta sérlega vel á vinnustöðum eða ferðafólki sem vill koma og kaupa nýbakað nesti í ferðalag- ið.“ Sauðburðar- kver komið út KOMIÐ er út Sauðburðarkver eftir Sigurð Sigurðarson dýralækni á Keldum. Er heftið ætlað bændum og íjármönnum og hefur að geyma upplýsingar um helstu sjúkdóma í fullorðnu fé og lömbum. Sigurður Sigurðarson segir að kverið sé að stofni til minnispunkt- ar frá fræðslufundum um sauðfjár- sjúkdóma frá því í vor og síðasta vor en nokkru efni hafi verið bætt við. Fremst í heftinu eru almennar upplýsingar um sjúkdóma og varn- arkerfi í sauðfé og er fjallað um sjúkdóma sem koma fyrir í ám fyr- ir burð og eftir, kafli er um með- göngu og burð ánna, fóðurefni og snefilefni, sem geta valdið sjúkdóm- um vegna skorts og eitrunar. Þá er kafli um burðarhjálp og fleira og yfirlit yfir nokkra lambasjúk- dóma. Lýst er einkennum og að- gerðum til varnar og lækninga. Heftið kostar kr. 500 og er hægt að fá það sent án póstkröfukostnað- ar frá búnaðarsamtökum og hjá höfundi. Sýning á merki kristni- hátíðar árið 2000 SÝNING á tillögum sem bárust í opinni samkeppni um merki kristni- hátíðar árið 2000 verður opnuð al- menningi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 17. maí nk. í febrúar var efnt til samkeppni um merki kristnihátíðar. Skilafrest- ur var 15. apríl sl. Alls bárust 181 tillaga undir 137 dulnefnum. Dóm- nefnd skipa: Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, formaður, Þóra Kristjánsdóttir, listfræðingur, Guð- mundur Oddur Magnússon, FÍT, Jón Ágúst Pálmason, FÍT og Birna Garðarsdóttir, FÍT. Sýning á innsendum tillögum verður opin almenningi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur um hvíta- sunnuna. Laugardaginn 17. maí er opið kl. 12-18. Lokað verður hvíta- sunnudag, en annan í hvítasunnu, mánudaginn 19. maí verður opið kl. 12-18, þriðjudaginn 20. maí kl. 8-19 og miðvikudaginn 21. maí kl. 8-19. Vorfundur Parkinson- samtakanna VORFUNDUR Parkinsonsamtak- anna á íslandi verður haldinn laug- ardaginn 17. maí kl. 14 í safnaðar- heimili Áskirkju. Dr. Ásgeir B. Ellertsson, yfir- læknir, segir fréttir af 12. alþjóða- þingi lækna urn Parkinsonveiki sem haldið var í London í mars sl. Systk- inin Jóhanne Marín og Albert Sölvi Óskarsbörn leika saman á píanó og saxafón og Linda Heiðarsdóttir og Sigurður Hrannar Hjaltason silfur- methafar í Suður-Amerískum döns- um sýna dans. Lyfjafræði- safnið opið í sumar LYFJAFRÆÐISAFNIÐ verður nú aftur opið í sumar, en það var í fýrsta sinn opið almenningi í fyrra. Safnið stendur við hliðina á Nes- stofu á Seltjarnarnesi og verður opið á sama tíma og Nesstofusafn- ið, þ.e. á sunnudögum, þriðjudög- um, fimmtudögum og laugardögum milíi klukkan 13 og 17. í safninu má sjá muni og minjar úr íslenskum apótekum frá upphafi þessarar aldar fram til okkar daga, og skoða hvernig lyfjagerð var hátt- að enn lengra aftur í tímann. í júní verður gerð, í samvinnu við Nesstofusafnið, tilraun til að hafa söfnin opin til klukkan 22 tvö kvöld í viku, þriðjudaga og fimmtu- daga, til þess að gefa skokkurum og útivistarfólki kost á að skoða söfnin í leiðinni. Hátíðarhöld Norðmanna á Islandi 17. maí Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDEGI Norð- manna 17. maí minnast þeir við- töku stjórnarskrár Noregs er fram fór á Eidsvoll 17. maí 1814. Fjöldi Norðmanna býr á íslandi og þeir koma saman og halda dag- inn hátíðlegan. Konurnar skarta þjóðbúningum héraða sinna og Nordmannslaget, félagNorðmanna og vina þeirra á íslandi, efnir jafn- an til hátíðardagskrár þennan dag. Dagskráin hefst kl. 9.30 í Foss- vogskirkjugarði þar sem minning- arathöfn fer fram við minnisvarð- ann um fallna norska hermenn. Turid Birkeland, menningarmála- ráðherra Noregs, leggur blómsveig við minnisvarðann og flytur ávarp. Kl. 10.30 verður skrúðganga, leikir og barnaskemmtun í Norræna hús- inu og kl. 17 á sama stað verður móttaka norska sendihetrans fyrir Norðmenn búsetta á íslandi og aðra gesti. Kl. 20 verður síðan hátíðarkvöldverður Nordmanns- laget í Viðey. Evrópsk ráð- stefna um MS- sjúkdóminn í DAG hefst á Hótel íslandi evr- ópsk ráðstefna um MS-sjúkdóminn (Multiple Sclerosis) og stendur hún til hádegis á hvítasunnudag. í fréttatilkynningu frá MS-félagi Is- lands kemur fram að þetta er í fyrsta sinn sem stór ráðstefna um MS-sjúkdóminn er haldin hér á landi. Von er á þátttakendum frá íjórtán Evrópulöndum og segir í fréttatilkynningunni að ef vel tak- ist til að þessu sinni, sé hugsanlegt að alþjóðleg ráðstefna verði haldin hér á landi um sjúkdóminn eftir tvö ár eða svo og þá með þátttöku á milli 300 og 400 manns. Ferðir um hvítasunnuna FERÐAFÉLAG íslands efnir nú um hvítasunnuhelgina til nokkurra styttri og lengri ferða. Farið verður föstudagskvöldið 16. maí austur í Öræfasveit þar sem ætlunin er að ganga á Öræfajökul, fara út á Ing- ólfshöfða o.fl. Gist verður að Hofí. Á laugardagsmorgunin 17. maí verður lagt af stað í ferð á Snæfells- nes og í Þórsmörk. Heimkoma úr ferðunum er á annan í hvítasunnu. í Snæfellsnessferðinni er stefnt að göngu á Snæfellsjökul en einnig verða aðrar skoðunar- og göngu- ferðir í boði. M.a. verður litið á slóð- ir árbókar Ferðafélagsins í Hítardal en bókin kemur út í næstu viku. Ferðin er á afmælistilboði fyrir fé- lagsmenn Ferðafélagsins. Gist verður að Lýsuhóli í Staðarsveit. í Þórsmerkurferðinni er gist í Skagfjörðsskála í Langadal en í þeirri ferð ér boðið upp á göngu- ferðir við allra hæfí og einnig er möguleiki á göngu yfir Fimmvörðu- háls á laugardeginum. Af styttri ferðum er farin 2. áfangi Reykjavegarins á hvíta- sunnudag, 18. maí, og á annan í hvítasunnu er gönguferð á Vífils- fell kl. 13. Nánari upplýsingar veitir skrif- stofa Ferðafélagsins að Mörkinni 6. Wynne Goss í Klettinum KLETTURINN, kristið samfélag, hefur fengið heimsókn Wynne Goss sem er forstöðumaður Vine Christ- ian Center í Wales. Samkomur með Wynne Goss verða í dag, föstudaginn 16. maí og mánudaginn 19. maí í húsnæði Klettsins að Bæjarhrauni 2 I Hafn- arfírði. Samkomurnar hefjast kl. 20 og þar eru allir velkomnir. Vaka styrkir verkfallssjóð STJÓRN Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði hefur ákveðið að senda Alþýðusambandi Vestfjarða fram- lag í verkallssjóð, 500.000 kr. „Með þessu framlagi viljum við votta ykkur virðingu okkar og senda ykkur einlægar baráttu- kveðjur," segir í bréfi Vöku. Athugasemd Ágæti ritsjóri. í blaði yðar þann 14. maí sl. er frétt um könnun á dagvistarþörf í Reykjavík. Þar segir í fyrirsögn að 69% foreldra óski eftir leikskóla- plássi. Að mínu mati gefur fyrir- sögnin tilefni til að draga þá álykt- un að þar með óski 31% ekki eftir leikskólaplássi. Þar sem það væri ekki í samræmi við veruleikann er rétt að vekja athygli á því, sem reyndar kemur fram í annars ágætri frétt blaðsins, að rúm 90% foreldra óska eftir leikskólaplássi. Af þeim vilja hins vegar 69% ekki aðra þjónustu en leikskóladvöl, sem er nokkuð annað en fyrirsögnin gefur til kynna. Vonast ég til þess að blaðið birti þessa athugasemd. Virðingarfyllst, Árni Þór Sigurðsson, fonnaður stjórnar Dagvistar barna. Nemendaheimsókn til Iðnskólans TÓLF skoskir nemendur ásamt þremur kennurum voru í heim- sókn hjá Iðnskólanum i Reykja- vík í vikunni. Nemendurnir eru þroskaheftir. Var fjölbreytt dagsrá skipulögð fyrir þá hér á landi. Iðnskólinn mun endur- gjalda heimsóknina næsta ár. Myndin var tekin af hópnum í Árbæjarsafni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.