Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997
AÐSEIMDAR GREIIMAR
MORGUNBLAÐIÐ
Arangur þró-
unarsamvinnu
Islands
FYRIR nokkru kom
út skýrsla um j>róun-
arsamvinnu Islands
eftir Jónas H. Haralz
hagfræðing sem unnin
var á vegum utanríkis-
ráðuneytisins að frum-
kvæði stjómar Þróun-
arsamvinnustofnunar
íslands (ÞSSÍ). All-
miklar umræður hafa
orðið í flölmiðlum um
þróunarsamvinnu ís-
lands í kjölfar skýrsl-
unnar og ber að fagna
þeirri umræðu.
Enn sem komið er
hefur áhugi á þróunar-
málum hér á landi ver-
ið lítill og eins og glögglega kemur
fram í skýrslunni hafa framlög ís-
lands til tvíhliða þitfunaraðstoðar
verið með allra lægsta móti sé mið-
að við aðrar þróaðar þjóðir sem við
gjaman miðum okkur við.
Frammistaða ÞSSÍ
í öllum meginatriðum má segja
að niðurstaða skýrslunnar sé sú að
þróunarsamvinna íslands, sem að-
allega hefur verið á sviði sjávarút-
vegs, hafi tekist vel. Af fjórum sam-
starfslöndum ÞSSÍ sem em Namib-
ía, Malawi, Mozambique og Græn-
höfðaeyjar kemur fram að þrátt
fyrir byijunarörðugleika hafi vel til
tekist í Namibíu og Malawi og upp-
haf þróunarsamvinnu við Moz-
ambique sem hófst 1995 lofi góðu.
Til þessara landa rennur nú um 92
prósent þeirra fjármuna sem ÞSSÍ
hefur til umráða. Aðeins á Græn-
höfðaeyjum hafí þróunarsamvinna
íslendinga misheppnast, en þangað
fara nú um 8 prósent fiármuna
ÞSSÍ.
Nú má deila um það hversu gagn-
leg störf ÞSSÍ á Grænhöfðaeyjum
hafa verið. Á hitt ber að líta að sé
þetta rétt verður þessi árangur í
heild að teljast góður og ólíklegt
er að tvíhliða þróunarsamvinnu-
stofnanir nágrannalandanna hafi
staðið sig betur hvað þetta varðar
í Afríku.
Mikiá úrvd é
fðllegum rúfflffltnaái
SkóUvörðustig 21 Sími 551 4050 Reykiavtk.
Engin heimsálfa á
við meiri efnahagserf-
iðleika að stríða en
Afríka. Hvergi er þörf-
in fyrir aðstoð þróaðra
ríkja meiri og er líklegt
að svo muni verða
áfram í náinni framtíð.
Þróunarsamvinna í
Afríku gengur yfírleitt
hægt og erfiðlega. Al-
þjóðabankinn telur t.d.
að um 51 prósent verk-
efna sinna í Afríku
misheppnist að ein-
hverju eða öllu leyti.
Þetta gerist þrátt fýrir
að bankinn hafi yfir að
ráða mjög fjölmennu
og hæfu starfsliði með langa
reynslu, auk mikilla fjármuna. Ef
rétt er að yfir 90 prósent verkefna
ÞSSÍ í Afríku séu i viðunandi
ástandi hlýtur það að teljast góð
útkoma. Ekki síst ef haft er í huga
að þó stofnunin hafí mjög góðu
Þróunarsamvinna
íslendinga hefur í öllum
megin atriðum tekist
vel segir Hilmar Þ.
starfsliði á að skipa, er það bæði
fámennt og fjármagn til umráða
mjög takmarkað.
Undirbúningur verkefna
í skýrslunni er lagt til að auknu
fé sé varið til undirbúnings verkefna
og að vel undirbúnar tillögur að
verkefnum verði lagðar til grund-
vallar árlegum fjárhagsáætlunum.
í höfuðstöðvum ÞSSÍ starfa nú
aðeins tveir starfsmenn og hlýtur
það að teljast lítið miðað við þau
umfangsmiklu stjómunar- og und-
irbúningsstörf sem þar þarf að
sinna. Því verður að telja skynsam-
legt að styrkja aðalskrifstofu stofn-
unarinnar og gerir ÞSSI ráð fyrir
þessu í fjárhagstillögum sínum fyr-
ir árið 1998. Megin hluti starfsliðs
stofnunarinnar um 20 talsins mun
eftir sem áður vera staðsett í sam-
starfslöndunum.
Alþjóðleg reynsla af þróunarsam-
vinnu undanfama áratugi sýnir að
æskilegt er að þróunarverkefni séu
vel undirbúin, en um leið nægilega
sveigjanleg svo hægt sé að breyta
þeim og aðlaga eftir aðstæðum í
samstarfslandinu. Þess má geta að
Alþjóðabankinn hefur ákveðið að
fækka í starfsliði sínu í höfuðstöðv-
um stofnunarinnar í Washington
DC og ijölga um leið í starfsliði
sínu í samstarfslöndum sínum.
Reynsla bankans sýnir að þau verk-
Hilmar Þ.
Hilmarsson
EXPLORER LIMITED
Ár^. '96, ek. 10 þús. km,
hvitur, með öllu.
Skipti á ódýrari.
Verð 4.400 pús.
GRAND CHEROKEE ORVIS
Árg. '95, ek. 13 þús. km,
með öllu.
Skipti á ódýrari.
Verð 3.890 þús.
efni sem mótuð em í samvinnu við
heimamenn, eða alveg af þeim sjálf-
um, era lang líklegust til að takast
vel og verða sjálfbær. Þetta er líka
reynsla ÞSSÍ þann tíma sem stofn-
unin hefur starfað.
Þó undirbúningur verkefna á
aðalskrifstofu stofnunarinnar verði
að öllum líkindum aukinn mun
áfram verða lögð höfuðáhersla á
sveigjanleika í framkvæmd þeirra
og að fullt tillit sé tekið til óska
heimamanna við mótun og fram-
kvæmd verkefna. Stofnunin mun
því áfram njóta þeirra yfirburða
sinna sem talað er um í skýrslunni
að bregðast fljótt við óskum heima-
manna og laga sig eftir breyttum
aðstæðum þegar við á.
Aukið fjármagn og fleiri
verkefni
í skýrslu sinni leggur Jónas H.
Haralz til að opinber framlög til
ÞSSÍ sem árið 1997 vora rúmlega
170 milljónir króna verði um
200-250 milljónir króna fyrir árið
2000 og 350-400 milljónir króna
árið 2003. Þannig myndu framlög
íslands til tvíhliða þróunarmála á
næstu fímm áram aukast úr 0,10%
af þjóðarframleiðslu í 0,15 prósent,
sem enn væri langt fyrir neðan
framlög flestra nágrannaríkja okk-
ar til þróunarmála. Þetta markmið
telur skýrsluhöfundur ekki æskilegt
markmið, heldur raunhæft að teknu
tilliti til aðstæðna og aðgátar.
Rétt er að taka fram að engin
ákvörðun liggur enn fyrir hjá stjóm-
völdum um hvort eða hversu mikið
framlög til tvíhliða þróunarstarfs
verði aukin. Tillögur skýrsluhöfund-
ar verða að teljast hóflegar en skyn-
samlegar því langan tíma tekur að
undirbúa verkefni í þeim heimshluta
sem ÞSSÍ starfar. Ljóst er að áætl-
un til nokkurra ára, eins og lagt
er til í skýrslunni, myndi styrkja
stöðu stofnunarinnar mjög í þeirri
viðleitni hennar að undirbúa raun-
hæf verkefni fyrir samstarfslönd
sín.
Starfsemi ÞSSÍ hefur hingað til
nánast eingöngu takmarkast við
uppbyggingu sjávarútvegs, og þá
aðallega við þjálfun heimamanna,
rannsóknir og tilraunaveiðar. Fá
samstarfslönd og eitt aðalstarfssvið
er skynsamlegur vettvangur þegar
fjárframlög era jafn takmörkuð og
við núverandi aðstæður. Verði
framlög hinsvegar aukin í takt við
tillögur Jónasar H. Haralz mun
skapast svigrúm til þess að hefja
þróunarstarf á fleiri sviðum og jafn-
vel fjölga samstarfslöndum.
íslendingar hafa margt að bjóða
á vettvangi þróunarmála til viðbótar
sérþekkingu sinni í sjávarúvegi.
Augljóst er að þjóðin býr yfir mik-
ilii þekkingu t.d. á sviði mennta-
mála og heilbrigðismála og myndi
aðstoð íslenskra sérfræðinga á þeim
sviðum ekki koma samstarfslöndum
okkar að minni notum en sú aðstoð
sem veitt hefur verið við uppbygg-
ingu sjávarútvegs þróunarlanda.
Verði ákveðið að ryðja nýjar braut-
ir í þessu efni þarf að tryggja stöð-
uga en hóflega aukningu fjárveit-
inga til þessa málaflokks frá ári til
árs, líkt og Jónas leggur til.
Að lokum vil ég leyfa mér að
þakka þeim fjölmiðlum sem fjallað
hafa um þróunarsamvinnu íslend-
inga í kjölfar útkomu skýrslu Jónas-
ar H. Haralz. Sú umræða var löngu
tímabær og heldur vonandi áfram.
Höfundur er aðstoðarmaður
utanríkisráðherra og stjómar-
formaður Þróunarsam vinnu-
stofnunar íslands.
Valdníðsla er
þjóðarmein
TVÖ ÁR era liðin frá
því að endi var skyndi-
lega bundinn á starf
eiginmanns míns Ait-
ors Yraola lektors í
spænsku við Háskóla
íslands. Eftir langvar-
andi atvinnuleysi hér á
landi sá hann sig til-
neyddan að yfirgefa
landið, sem var honum
á móti skapi, þar sem
hann hafði bundið
tryggð við ísland.
Þetta hefur haft af-
drifaríkar afleiðingar í
för með sér fyrir hann
persónulega og fjöl-
skyldulíf okkar.
Samkvæmt samtali sem við átt-
um við Sveinbjöm Bjömsson, rektor
Ég fer þess á leit við
prófessorinn, segir
Anna Þorsteinsdóttir,
að hann láti af að beita
sér gegn eiginmanni
mínum.
Háskóla íslands, í júlímánuði 1995
staðfesti hann að Áitor hefði aldrei
brotið af sér í starfí, aldrei sætt
áminningu né nokkurn tíma verið
borið á brýn að hafa ekki staðið sig
í starfi. Umboðsmaður Alþingis
fjallaði um málið og komst hann
að þeirri niðurstöðu i áliti sem hann
sendi frá sér hinn 20. mars sl. að
fyrrverandi deildarforseti heim-
spekideildar hafi farið útfyrir vald-
svið sitt með að segja Aitori upp
störfuih.
Þegar umboðsmaður kemst að
niðurstöðu um að brotin hafí verið
lög á einstaklingi af erlendum upp-
runa með fyrrgreindum afleiðingum,
vakna með manni ýmsar spuming-
ar, meðal annarra sú hver sé réttar-
staða útlendinga í íslensku samfélagi
og hvort mál Aitors endurspegli
stjómsýslu landsins almennt?
Viðbrögð Vésteins Ólasonar pró-
fessors þegar fréttamenn leituðu
álits hans á málinu vora óvænt.
Ekki var að sjá að brygði fyrir votti
af iðran hjá honum yfir að hafa á
ólögmætan hátt íþyngt erlendum
manni. í vandræðagangi leitaði
hann allra ráða til að breiða yfír
gjörninga sína. Það virðist ekki vera
fyrrverandi rektorsefni mikið
áhyggjuefni að deild sem hann veitti
forstöðu við æðstu menntastofnun
landsins hefur brotið lög, að mati
umboðsmanns Alþingis. Ábyrgðinni
varpar hann á aðra, deildarmenn
heimspekideildar, starfsmanna-
stjóra, lögfræðing háskólans og lög-
fræðing menntamálaráðuneytis.
Hefur embætti deildarforseta þá
aðeins vald og enga ábyrgð?
Vésteinn Olason deildarforseti
bar upp tillögu um uppsögn Aitors
í deildarráði þann 3. febrúar 1995
undir liðnum önnur mál 3b og bygg-
ir hana á því að Aitor sitji í óheimil-
aðri stöðu og hafí ekki hæfnisdóm.
Á fundinum sátu 12 manns. Aðeins
5 greiddu atkvæði með tillögunni,
aðrir sátu hjá. Um leið
og deildarforseti hafði
knúið fram 5 atkvæði
með tillögu sinni sendi
hann Aitori sem var
nýlega farinn utan í
rannsóknaleyfi upp-
sagnarbréf.
Aitor hafði fengið
samþykki allra lögg-
iltra aðila sem koma
að veitingu rannsókn-
arleyfis til að verja 6
mánuðum til rann-
sókna í Madrid. Rann-
sóknarleyfinu var gjör-
spillt fyrir honum
vegna óvæntrar og
skýringarlausrar upp-
sagnar úr starfi rúmum mánuði
eftir að hann hóf það. Hann hafði
engin tök á að reisa rönd við og
veija sig utan úr heimi gegn þess-
ari óvæntu atlögu. Ég tel það stríða
á móti siðrænum reglum og há-
skólavenjum að segja manni upp
stöðu sem staddur er erlendis í
rannsóknarleyfi.
í heimspekideild sitja um 60
manns. Fæstir þeirra höfðu hug-
mynd um uppsögnina þar sem að-
förin var skipulögð í kyrrþey og í
fjarvera Aitors. Aðeins 5 deildar-
menn studdu tillögu deildarforseta
og því þykir mér nú ómaklegt af
fyrrverandi deildarforseta að varpa
ábyrgðinni yfir á alla heimspeki-
deild. í deildinni sitja fjölmargir sem
Aitor átti langt og farsælt samstarf
með. Samskipti Aitors og starfs-
mannastjóra Háskóla íslands vora
ætíð með vinsamlegum hætti og
einnig er erfitt að sjá samhengið í
því hvaða hag lögfræðingar úti í
bæ höfðu af því að hvetja til ólög-
legra aðgerða á hendur Aitori.
Prófessor Vésteini Ólasyni virðist
einkar lagið að beina spjótum sínum
að einstaklingum og honum er ekk-
ert heilagt í þeim efnum. Þess bera
vitni greinaskrif hans í blöðum síð-
ustu vikur sem með gífuryrðum
byggja á ómaklegum ásökunum á
hendur fréttamönnum sem ekki
eiga við nokkur rök að styðjast. Þau
skrif dæma sig sjálf.
Þegar álit umboðsmanns lá fyrir
var því komið til Félags háskóla-
kennara, til stjómar BHMR og
ýmissa lögfræðinga. Samhljóma
niðurstaða allra aðila var að alvar-
lega hefði verið brotið á vinnurétt-
indum einstaklings og að málið
ætti erindi í ijölmiðla.
Aitor settist að hér á landi í því
augnamiði að láta gott af sér leiða
til íslensks samfélags og hefur aldr-
ei gert á hlut nokkurs manns. Með
lögbroti og langri röð ranginda og
siðferðilegs misréttis hefur hann
verið beittur harðræði sem ég tel
að bijóti í bága við hugmyndir
manna um velsæmi í vestrænu rétt-
arríki.
Ýmsir kennarar og nemendur
heimspekideildar, Rithöfundasam-
band Islands, forystumenn BHMR
og fleiri einstaklingar mótmæltu
uppsögninni á grandvelli mannrétt-
inda bæði með formlegum og
óformlegum hætti.
Auknu sjálfstæði háskóladeilda
þarf að fylgja aukin ábyrgð, réttlæt-
iskennd og vönduð vinnubrögð. Per-
sónuofsóknir hvort sem þær eiga
rætur að rekja til uppruna viðkom-
andi eða annars era hveijum sem
Anna
Þorsteinsdóttir
Húðkrem dr. Guttorm Hernes
Húökrem dr. Guttorm Hernes frá Bodo í Noregi
hefur vakið verðskuldaða athygli á Norðurlöndunum
fyrir frábæran árangur við meðhöndlun ýmissa vandamála.
Nú aftur fáanlegt í
Blómavali Sigtúni, Blómavali Akureyri
og í versluninni Hornabæ Hornafirði.
hlut eiga að máli til vansæmdar.
Ég fer þess nú á leit við Véstein
Ólason prófessor, að hann láti end-
anlega af því að beita sér gagnvart
eiginmanni mínum sem hefur hrök-
klast úr landi af hans sökum.
Fjölmargir íslendingar era nú við
nám og störf í ESB-ríkjum. Ekki
get ég til þess hugsað að þeir þurfi
að sæta aðför líkt og hér hefur
verið rakið.
Upplýsingar í símum 555 3334,588 6369,898 8835 og 899 0840.
Höfundur er grunn- og
framhaldsskólakennari.