Morgunblaðið - 22.05.1997, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 1997 57
Málþing-
um gróð-
ureyðingu
og íslenska
hestinn
DÝRAVERNDUNARFÉLAG
Reykjavíkur og Dýraverndarsam-
band íslands halda málþing að
Hótel Örk, Hveragerði, föstudaginn
23. maí nk. kl. 13 til að ræða stöðu
íslenska hestsins í ljósi gróðureyð-
ingar.
Eftirtaldir flytja framsöguerindi
og svara spurningum fundargesta:
Hjörleifur Guttormsson, alþingis-
maður, dr. Ólafur Dýrmundsson,
landnýtingarráðunautur, Andrés
Arnalds, Landgræðsla ríkisins,
Bergur Pálsson, formaður Félags
hrossabænda, Sigurður Þórhalls-
son, Landssamband hestamannafé-
laga, Loftur Þorsteinsson, oddviti
Hrunamannahreppi, Kristján
Gestsson, búfjáreftirlitsmaður. For-
sæti, Grétar h. Harðarson, héraðs-
dýralæknir, Hellu, Sigurður Sigurð-
arson, dýralæknir, Tilraunastöð
Háskólans í meinafræði, Keldum
og Árni Matthiesen, formaður,
Dýraverndarráði.
Umræðustjóri er Þorgeir Ást-
valdsson. Sigríður Ásgeirsdóttir,
formaður, setur fundinn og stefnt
er að því að honum ljúki fyrir kl.
17. Haft verður stutt fundarhlé eft-
ir framsöguerindin á meðan kaffi
verður borið í fundarsalinn, síðan
hefjast almennar fyrirspurnir og
umræður.
Helgarferð
til Grænlands
kynnt
LANDNÁMA efnir til helgarferðar
til Grænlands 5. júlí nk. I ferðinni
gefst kostur á að kynnast austur-
strönd landsins. Lent er í Kulusuk
og farið þaðan með þyrlu yfir til
Ammassalik. Dvölin í Grænlandi er
þrír dagar og tíminn verður nýttur
til skoðunarferða til að fræðast um
jarðfræði, náttúrufar og mannlíf.
Leiðsögn í ferðinni er í höndum
Ara Trausta Guðmundssonar, jarð-
eðlisfræðings, sem þekkir Græn-
land í gegnum rannsóknir og ferða-
lög um landið. Ari Trausti verður
á skrifstofu Landnámu, Vesturgötu
5, í dag, fimmtudaginn 22. maí, frá
kl. 15.30-18 til að veita upplýs-
ingar um Grænland og férð Land-
námu.
LEIÐRÉTT
Athugasemd við fréttir
fjölmiðla af löndun
úr Páli Pálssyni
í FRÉTTUM fjölmiðla 20. og 21.
maí hefur því verið haldið fram ít-
rekað að fastir starfsmenn Löndun-
ar hf. sem séu Dagsbrúanrmenn
hafi unnið við löndun úr skipinu
Páli Pálssyni í Reykjavíkurhöfn.
Þetta er rangt. Hið rétta er að
þarna var um svokallaða lausamenn
að ræða en hluti þeirra er félags-
menn í Dagsbrún.
Stjórn Dagsbrúnar lítur það mjög
alvarlegum augum ef félagsmenn
hlíta ekki samþykktum félags-
stjórnarinnar um bann við löbndun
úr vestfirskum skipum frá stöðum
þar sem landverkafólk á í vinnudeil-
um. Fastráðnir starfsmenn Löndun-
ar hafa hlýtt þeim fyrirmælum.
Gagnvart þeim félagsmönnum
Dagsbrúnar sem þarna áttu hlut
að máli og brutu samþykktir félags-
ins mun stjórnin beita fyllstu hörku
og skoða hvort ekki eigi að svipta
þá félagsaðild sem felur í sér m.a.
að öðrum félagsmönnum er bannað
að vinna með þeim.
■■ ■ Halldór Bjötnsson, fQrm^ður..
FRÉTTIR
FARIÐ verður frá Undirhlíðum í svokölluðum Skólalundi
og gengið að Kaldárseli.
um
Græna trefilinn“
FYRSTA skógarganga skóg-
ræktarfélaganna, Ferðafélags
Islands og Búnaðarbankans um
„Græna trefilinn" hefst í dag,
fimmtudaginn 22. maí. Gengin
verður raðganga um útmörk
höfuðborgarsvæðisins og hefst
fyrsta gangan í Undirhlíðum í
svokölluðum Skólalundi og
verður gengið að Kaldárseli.
Mæting og rútuferðir frá
Mörkinni 6, húsi Ferðafélagsins,
kl. 19.40 og við kirkjugarðinn í
Hafnarfirði við Kaldárselsveg
kl. 20 en þaðan verður ekið með
göngumenn í Skólalund. Að
göngu lokinni verða göngumenn
teknir upp í Kaldárseli og ekið
á upphafsreit. Þátttökugjald er
500 kr. úr Mörkinni en 300 kr.
úr Hafnarfirði.
Næstu vikurnar í sumar verð-
ur svo gengið á fimmtudags-
kvöldum í júní, júlí og fram í
miðjan ágúst. Staðkunnugir
leiðsögumenn frá skógræktarfé-
lögunum og Ferðafélaginu
verða með í för og segja frá því
sem fyrir ber. Síðasta skógar-
gangan verður svo á Mógilsá
þann 16. ágúst. Göngurnar eru
við allra hæfi og allir velkomnir.
Biskup í
Strassborg
BISKUP íslands, herra Ólafur
Skúlason, sækir þessa viku fundi
í Strassborg, þar sem guðfræði-
stofnun Lúterska heimssambands-
ins hefur aðalstöðvar sínar.
Ólafur hefur verið stjórnarfor-
maður stofnunarinnar frá árinu
1990 þegar hann tók við af fyrrver-
andi forseta Lúterska heimssam-
bandsins, dr. Hanselmann, biskupi
lútersku kirkjunnar í Bæjaralandi.
Þetta kjörtímabil hefur Hansel-
mann biskup verið varaformaður
stjórnarinnar.
Guðfræðistofnunin annast ýmis
mál fyrir höfuðstöðvar Lúterska
heimssambandsins í Genf og stýr-
ir viðleitni samtakanna til þess
að efla samstarf milli ólíkra
kirkjudeilda. Starfsfólkið í Strass-
borg átti þannig stóran hlut í
undirbúningi að svokallaðri
Porvoo-samþykkt þar sem lút-
erskar kirkjur Norðurlanda og
Eystrasaltslandanna og Anglik-
önsku kirkjunnar á Bretlandseyj-
um efla samstarf sín í milli með
gagnkvæmri viðurkenningu á
vígslum og sakramentum.
Á þessum fundi verður einnig
rætt um þingið í Hong Kong í
sumar en þangað fara þrír fulltrú-
ar íslensku kirkjunnar, einn karl,
ein kona og einn ungur maður
undir þrítugu. Til þess að halda
sig innan ramma þessarar skil-
greiningar samtakanna um fulltrú-
aval, sækir Ólafur biskup ekki
þingið sem fulltrúi íslensku kirkj-
unnar heldur sem stjórnarmaður í
Lúterska heimssambandinu, segir
í frétt frá Biskupsstofu.
Ferðakynning
Útivistar
FERÐAF'ÉLAGIÐ Útivist stendur
fyrir ferðakynningu fimmtudaginn
22. maí. Kynningin verður haldin
í Fóstbræðraheimilinu að Lang-
holtsvegi kl. 20. Kynnt verður dag-
skrá sumarsins og áhersla lögð á
fjölbreytt ferðaúrval.
,Á meðal ferða sumarsins má
nefna Hornstrandaferðir Útivistar
en á ferðaáætlun sumarsins eru
fimm ferðir sem skipulagðar eru
á þær slóðir. Þá eru fjölmargar
ferðir yfir Fimmvörðuháls á boð-
stólum í sumar. Einnig eru í boði
styttri ferðir svo sem dagsferðir
og er þar helst að nefna fjalla-
syrpu Útivistar og Árgöngur.
Fjallasyrpan er samansett af níu
dagsferðum þar sem gengið er á
fjöll í nágrenni Reykjavíkur svo
sem Móskarðashnúka, Skarðs-
heiði, Ingólfsfjall, Botnssúlur o.fl.
Samhliða fjallasyrpunni stendur
Útivist fyrir árgöngum en það eru
rólegar göngur þar sem gengið
er meðfram ám á láglendi.
Allt er þetta og fieira tjl kynn-
ingar á ferðakynningu Útivistar
sem er öllum opin.
Námskeið um
landgræðslu- og
skógrækt á
rýru landi
G ARÐ YRKJU SKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, í samvinnu við
Landgræðslu- og Skógrækt ríkis-
ins standa fyrir námskeiði um
Landgræðslu- og skógrækt á rýru
landi, í Garðyrkjuskólanum laugar-
daginn 24. maí kl. 10-17.
Námskeiðið er ætlað einstakl-
ingum, sumarbústaðafólki, starfs-
mannahópum, félagasamtökum
og verkstjórum í vinnuskólum sem
áhuga hafa á að taka að sér verk-
efni á sviði landgræðslu- og skóg-
ræktar. Fjallað verður um ræktun
á rýru landi, ræktunaraðferðir,
notkun belgjurta og áburðar.
Kennsla fer fram innahúss og
á vettvangi þar sem sýndar verða
með dæmum mismunandi jarðveg-
ur, plöntutegundir og ræktun-
araðferðir. Leiðbeinendur verða
þrír, Jón Guðmundsson, plöntulíf-
eðlisfræðingur hjá RALA, Gunnar
Freysteinsson, skógfræðingur hjá
Skógrækt ríkisins og Guðjón
Magnússon, starfsmaður Land-
græðslu ríkisins. Skráning og
upplýsingar um námskeiðið fer
fram á skrifstofu Garðyrkjuskól-
ans.
Fimm staðir í
N orður-Atlants-
hafi vinna sam-
an með nýjustu
samskiptatækni
NORRÆNA Atlantshafsnefndin
NORA gengst fyrir ráðstefnu
fimmtudaginn 22. maí milli kl. 12
og 16 með þátttöku frá Grænlandi,
íslandi, Færeyjum og Vestur- og
Norður-Noregi um möguleika á að
hagnýta nýja fjarskipta- og upplýs-
ingatækni í þágu íbúa dreifðari
byggða.
Ráðstefnan er fjarráðstefna. Það
þýðir að þátttakendur frá þessum
löndum og landshlutum hittast ekki
allir á einum stað heldur safnast
saman í hvetju landi fyrir sig. Alls
er um fimm staði að ræða: Nuuk
(Norræna húsið), Reykjavík (Land-
símahúsið við Austurvöll), Þórshöfn
(Norræna húsið), Stavanger (Roga-
land Distriksykehus) og Tromsö
(Tromsö Regionssykhus).
Fluttir verða tveir fyrirlestrar.
Auk Kvarn, námsráðgjafi í fjar-
kennslu á háskólastigi frá „Sentral-
organet for fjernundervisning“ mun
halda fyrirlestur um fjarkennslu og
Þorgeir Pálsson, yfírverkfræðingur
á Landspítalanum í Reykjavík mun
halda fyrirlestur um fjarlækningar.
Eftir fyrirlestrana munu sérfræði-
ingar innan heilbrigðis- og mennta-
mála hafa tækifæri til að fjalla um
hvort hér sé um að ræða leið til
sparnaðar eða betri þjónustu. Munu
þátttakendur frá öllum fimm stöð-
unum taka þátt í umræðunum.
Ráðstefnan fer fram á skandin-
avísku. Tæknileg hlið ráðstefnúnn-
ar er skipulögð af „Telofonverk
Föroya Lögtings, Færöerne
televæsen" ásamt öðrum norrænum
stofnunum (Pósti og síma hér á-
landi).
Námskeið
um notkun
GPS-tækja
BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjargar
og Slysavarnarfélag íslands í sam-
vinnu við Ferðafélag Islands stend-
ur fyrir opnu námskeiði um notkun
GPS staðsetningartækja dagana
26. og 27. maí og hefst námskeiðið
kl. 20 bæði kvöldin.
Námskeiðið verður haldið í húsi
Ferðafélags íslands, Mörkinni 6, og
er opið almenningi en gengið er út
frá því að þátttakendur kunni tölu-
vert fyrir sér í notkun áttavita og
landakorta og kemur námskeiðið
ekki til með að nýtast öðrum.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd Gunnlaugs
Geirssonar, prófessors í réttarlækn-
isfræði, vegna frétta af málum Ewu
Klonowski í Bosníu:
„í útsendingu frétta Stöðvar 2 að
kvöldi 16. maí 1997 um málefni Ewu
Klonowski, var sagt að hún hafi
orðið að hætta störfum sínum í Bosn-
íu sökum þess að hún hafi hlotið
ótilhlýðilega umsögn af minni hálfu
um störf sín hérlendis. Af þessu til-
efni óska ég að taka fram eftirfar-
andi:
Mál þetta er í raun afar einfalt.
í febrúar sl. óskuðu rannsóknaaðilar
í Bosníu eftir upplýsingum um störf
Ewu Klonowski hérlendis og var
gefin starfslýsing á vinnu hennar á
Rannsóknastofu í réttarlæknisfræði.
Nokkru síðar kom beiðni frá Physic-
ians for Human Right sem réð Ewu
til starfa í Bosníu þar sem enn var
beðið um upplýsingar um störf henn-
ar hér og vinnu við beinarannsóknir.
Upplýsingar voru þá veittar um það
er varðaði störf hennar á Rann-
sóknastofu í réttarlæknisfræði en
ráðlegt að leita umsagnar próf. Y.
Þátttökugjald er 1.800 kr. og er
hámarksfjöldi 15 þátttakendur. Þar
sem fullt hefur verið á undanfarin
námskeið eru vætanlegir þátttak-
endur vinsamlega beðnir um að
skrá sig á skrifstofu Ferðafélagsins
í síðasta lagi fyrir hádegi mánudag-
inn 26. maí.
Gámasala í
Holtagörðum
FYRIRTÆKIN í Holtagörðum,
IKEA, Bónus og Rúmfatalagerinn,
taka saman höndum við gámasölu
um helgina sem hefst á föstudaginn.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
þessi fyrirtæki starfa saman að
gámasölu því hún hefur verið haldin
í nokkur ár.
í boði verður úiwal vara frá þessum
fyrirtækjum á verulegum afslætti,
eða alit að 70%. Meðal vara verður
Klippan-sófí frá IKEA á 19.900 kr.,
barnaróla frá Bónus á 6.900 kr. og
sæng frá Rúmfatalagernum á 990
kr. Þessar vörur ásamt mörgum öðr-
um verða til boða þannig að allir
ættu að geta gert góð kaup.
Fræðsla um
matjurtir í
heimilisgarðin-
um í Keflavík
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, stendur fyrir nám-
skeiði um matjurtir í heimilisgarðin-
um í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
Keflavík laugardaginn 24. maí kl.
13-18. Leiðbeinandi verður Gunn-
þór Guðfinnsson, kennari við Garð-
yrkjuskólann.
Hann mun fjalla um allt það helsta
sem viðkemur ræktun á matjurtum
í heimilisgarðinum og lífrænni rækt-
un, safnhaugagerð og fleira. Allir
þátttakendur á námskeiðinu fá upp-
lýsingabækling um matjurtir sem
Gunnþór hefur tekið saman. Skrán-
ing og nánari upplýsingar um nám-
skeiðið fást á skrifstofu Garðyrkju-
skólans.
Fyrirlestur um
margfaldan missi
NÝ dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð, gangast fyrir fræðslu-
fundi í Gerðubergi í kvöld, fímmtu-
dagskvöldið 22. maí, kl. 20 í Gerðu-
bergi.
Þar flytur Páll Eiríksson geðlækn-
erindið Margfaldur missir - vááhrif.
Efni þetta höfðar fyrst og fremst til
þeirra sem misst hafa fleiri en einn
ástvin, segir í frétt frá samtökunum.
Allir eru velkomnir.
Iscan við Háskólann í Flórída sem
þekkti til kunnáttu Ewu um beina-
rannsóknir og hefur það væntanlega
verið gert.
Ekkert var það sagt um störl'
hennar I Rannsóknastofu í réttar-
læknisfræði annað en staðreyndir
og unnt er að vottfesta ítarlega í
hveiju þau voru fólgin.
Um ráðningu hennar til starfa í
Bosníu og starfslok hennar þar hef-
ur undirritaður ekkert að segja þar
sem það er að sjálfsögðu í valdi
vinnuveitenda að ráða og segja upp
starfsfólki sínu. Rannsóknaaðilar í
Bosníu höfðu frumkvæðið að því að
afla upplýsinga um starfsferil henn-
ar þérlendis.
Ég vísa á bug öllum ásökunum
um að hafa haft horn í síðu Ewu
Klonowski og hef aðeins vottað það
sem rétt er en hef að öðru leyti
ekki haft nein afskipti af málum
hennar þar.
Ég fagna því og finnst drengilegt
af fagfélagi hennar að veita henni
lögfræðiaðstoð í máli þessu og ég tel
að sjálfsögðu eðlilegt að leggja málið
fyrir dómstóla, ^e.rjstjiess.þörf.t-
Athugasemd frá
Gunnlaugi Geirssyni