Morgunblaðið - 17.06.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.06.1997, Blaðsíða 8
4 GOLF / OPNA BANDARISKA MEISTARAMOTIÐ Hrakfarir Mont- gomeries SKOTINN Colin Montgo- merie hefur síðustu fjögur árin verið besti kylfíngur Evrópu, en þrátt fyrir það hefur honum aldrei tekist að sigra á einu af stóru mótun- um fjórum. Oft hefur munað litlu en nógu samt. árið 1992 virtist hann öruggur með sig- ur á Pebble Beach vellinum þegar Opna bandaríska meistaramótið fór þar fram. En Tom Kite fann taktinn í rokinu síðasta daginn og sigraði. Montgomerie tapaði í þriggja manna umspili á Oakmont veilinum í sama móti 1994 þegar Emie Els sigraði og 1995 tapaði hann í PGA-meistaramótinu, enn og aftur í umspili. Woods í efsta sæti UNDRABARNIÐ Tiger Woods náði ekki að sýna sitt besta á mótinu, en hann stóð sig samt nógu vel til að kom- ast í efsta sæti heimslistans og verða þar með sá yngsti til að ná þeim árangri, aðeins 21 árs. Greg Norman frá Ástralíu hefur verið í efsta sæti um nokkurt skeið en nú náði Woods því, aðeins ári eftir að hann gerðist atvinnu- maður. Frábær árangur hjá pilti. Efstu menn eru Woods með 9,91 stig, Norman (9,78), Montgomerie (9,61), Ernie Els (9,31) og Nick Price (9,24). Woods gekk illa að pútta TIGER Woods reið ekki feit- um hesti frá viðureign sinni við Congressional-völlinn. Þrátt fyrir það gerði hann margt faliegt sem gladdi mikinn fjölda áhorfenda sem fylgdi honum allar 72 braut- imar. „Ég tek ofan fyrir þessum velli, hann var mjög erfíður og fór illa með mig,“ sagði Woods sem sagðist samt nokkuð ánægður með margt sem hann gerði. „Pútt- in fóm með mig. Eg gat ekki reiknað út réttan hraða í þeim og þá fór stefnan veg allrar veraldar," sagði Wo- ods sem þrípúttaði þrisvar á seinni níu holunum á laugar- daginn og endurtók leikinn á fyrri níu síðasta daginn. Margir duttu úr keppni ELDINGARNAR á föstudag- inn, öðriun degi keppninnar, virtust fara illa í suma kepp- endur og margir frægir kylf- ingar urðu að sætta sig við að fá ekki að spila nema tvo hringi, því eftir það var keppendum fækkað og til að komast áfram urðu menn að leika á 147 höggum, eða sjö höggum yfir pari. Meðal þeirra sem ekki komust áfram má nefna Corey Pavin, Bernhard Langer, Mark Calcavecchia, Mark Brooks, Scott Simpson, Robert Al- lenby, Ian Woosnam, Curtis Strange, Masashi Ozaki og Greg Norman, sem var efstur á heimslistanum fyrir mótið. I ÍÞRÓntR Reuter ERNIE Els sigraðl á Opna bandaríska meistaramótinu á sunnudaglnn. Hér slær hann upp úr sandglompu á fjórðu braut. Els lék síðustu flmm holurnar allar á parl á meðan helstu keppinautar hans fengu óþarfa skolla á 17. holunnl. Els hafði það sem Montgomerie vantaði ERNIE Els frá Suður-Afríku sigraði á Opna bandaríska meistara- mótinu í golfi um helgina, lék á 276 höggum, einu höggi færra en Skotinn Colin Montgomerie, sem varð enn og aftur að sjá af titlinum. Það sem skildi á milli var fyrst og fremst sjálf stjórn. Els var sex höggum á eftir Montgomerie eftir fyrsta hring, en lék síðustu þrjá hringina af öryggi á meðan Montgomerie sprakk á limminu. Els er fyrsti útlendingurinn í 87 ár sem sigrar tvisvar á Opna bandaríska meistaramótinu. Veður setti mark sitt á annan og þriðja dag því þá þurfti að fresta leik vegna eldinga sem gengu yfír svæðið. Lokaspretturinn var spennandi enda voru fjórir að beij- ast um sigur; Els, Montgomerie, Tom Lehman og Jeff Maggert. Maggert heltist þó úr lestinni á síð- ustu holunum en hinir tveir sáu sæng sína uppreidda á 17. holunni. Els hélt ró sinni, lék síðustu fimm holurnar á pari og hampaði bikarn- um öðru sinni á þremur árum, en kappinn sigraði einnig á mótinu árið 1994, eftir bráðabana meðal annars við Montgomerie. „Reynslan kennir manni að halda ró sinni og það er nauðsynlegt til að sigra í stórmóti sem þessu, sér- staklega þegar mjótt er á munun- um,“ sagði Els eftir sigurinn. „Emie var hræðilega rólegur. Hann er þannig gerður að hann getur haldið ró sinni þegar mest á reynir og það er það sem þarf til að sigra á svona móti,“ sagði Montgomerie sem lék með Els í síðasta riðli á sunnudag- inn. Montgomerie viðurkenndi á sunnudaginn að hann hugsaði of mikið um þann vafasama heiður að vera útnefndur besti kylfingurinn sem aldrei hefur sigrað á stórmóti. „Eg er aðeins mennskur og viður- kenni því fúslega að ég grét eftir að ljóst varð að ég myndi missa enn eina ferðina af sigri á stórmóti,“ sagði hinn 33 ára gamli Skoti sem aldrei þessu vant lét áhorfendur fara í taugamar á sér og skammaði þá á föstudaginn þegar hann þurfti að bíða í fímm mínútur eftir þögn þeg- ar hann var að pútta á 17. flöt. Hann sló síðan á létta strengi og sagði: „Ef ég held áfram að banka svona harkalega á dymar hlýtur það að enda með því að þær opnast." Lehman reyndi eins og hann gat að halda í við Els en möguleikar hans hurfu þegar hann sló í vatnið við 17. flöt. „I síðasta hring varð ég að spila af ákveðni og alltaf beint á pinna til að eiga möguleika. Eg hafði möguleika og Monty [Montgomerie] líka. Mér líður illa yfir því að hafa ekki sigrað og mér finnst eitthvað vanta þó svo ég hafi alltaf einn sigur á stórmóti til að hugga mig við, en Monty hefur aldrei sigrað. Honum hlýtur að líða hræðilega," sagði Lehman sem var valinn besti leikmaður Bandaríkj- anna í fyrra. Hann hefur haft for- ystu fyrir síðasta dag Opna banda- ríska síðustu þrjú árin, en ávallt þuft_ að játa sig sigraðan. „Ég hef alltaf verið sannfærður um að ég gæti sigrað á stórmóti, þau em allt öðruvisi en önnur mót því þá þarf maður að einbeita sér mun meira og kafa djúpt í sálartetr- ið til að halda stöðugleika. Sjáið hvernig Nicklaus gerði þetta, en hann hefur 18 sinnum sigrað á stór- móti. Hann var alltaf með fulla stjórn á sveiflunni og á leik sínum. Ég veit að það er erfitt að gera slíkt, en ég held að þetta sé allt að koma hjá mér,“ sagði Els. Afi hjálpaði mér mikið Foreldrar Els vom meðal áhorf- enda á sunnudaginn, en þau leika bæði golf og hafa gert í 27 ár, eða frá því Els fæddist. Það var Érnie Vernaak, móðurafi Els, sem kynnti þau fyrir golfíþróttinni þegar hann fæddist og Els ræðir oft við þennan 89 ára gamla kylfing. „Ég hringdi heim á laugardaginn og ræddi við afa. Mér fannst ég verða að heyra í gamla manninum, hann er svo fróður og vitur. Eftir samtalið leið mér mjög vel og ég hugsaði mikið til hans síðasta hringinn,“ sagði meistarinn. Nicklaus heldur áfram GOÐSÖGNIN Jack Nicklaus segist ekki á þeim buxunum að hætta keppni meðal þeirra bestu þó hann sé orðin 57ára og hafi tekið þátt í 150 stórmótum í golfi og sigrað 18 sinnum. „Ég hef trúlega ekki leikið eins vel og ég er að gera þessa dagana í ein tíu ár,“ sagði Nick- laus eftir að hann hafði lokið leik á fjórum yfir pari á sunnudaginn, en alls lék hann á 13 yfir pari vallarins. „Það lýtur út fyrir að ég sé að ná mér á strik á ný. Mjöðmin virkar ein sog hún á að virka og ég skemmti mér konunglega í golfi og meðan svo er sé ég enga ástæðu til að hætta,“ sagði Gullni björninn. Gary sonur hans tók þátt í mót- inu en hann náði ekki niðurskurðinum eftir tvo daga þannig að faðir og sonur léku ekki saman síðustu tvo dagana eins og „gamli“ maður- inn hafði vonað. Annar sonur hans, Steven, var þó með Nicklaus allan tímann því hann var kylfusveinn hjá föður sinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.