Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANMA Jltoininmlilafeife 1997 FIMMTUDAGUR 26. JUNI BLAD Meistarar [A lágu í Ólafsfirði ÍSLANDS- og bikarmeistarar Ak- urnesinga í knattspyrnu eru úr leik í bikarkeppninni. Þeir töpuðu 0:1 fyrir Leiftri í 16-liða úrslitum í Ól- afsfirði í gærkvöldi. Arnar Grétars- son gerði eina markið í þessari fyrstu innbyrðis viðureign félag- anna í bikarkeppni KSÍ. Á mynd- inni er Sigursteinn Gíslason, leik- maður ÍA, með knöttinn en Gunnar Már Másson, fyrirliði norðanmanna, til varnar. í baksýn er Davíð Garð- arsson. Önnur úrslit í keppninni í gær urðu þau að Valur sigraði Fylki 2:0, Þróttur vann Þór frá Akureyri 2:0 og Breiðablik lagði Grindavík 1:0 á útivelli. ■ Leiklrnir / C4 Morgunblaðið/Bjöm Gíslason Roberto Baggio á förum frá AC Milan ÍTALSKI knattspyrnumaðurinn Roberto Baggio er að öllum líkindum á förum frá AC Milan. Baggio staðfesti í gær þann orðróm að Fabio Capello, þjálfari Milan, hefði haft sam- band við kappann til þess að tilkynna honum að ekki yrðu not fyrir hæfileika hans þjá liðinu á komandi keppnistímabiii. Baggio sagðist nyög vonsvikinn yfir þessum fréttum en bætti jafnframt við að hann hefði allt eins búist við því að þurfa að taka pokann sinn. Baggio hefur verið orðaður við féiög á borð við Vicenza og Napólí á Ítalíu og Barcel- ona á Spáni, en hann segist eiga þann draum heitastan að komast i ítalska landsliðshópinn fyrir HM í Frakklandi á næsta ári. Baggio verður þó sennilega ekki eini leik- maður Milan, sem seldur verður frá félaginu fyrir komandi timabil þvi fastlega er búist við að Júgóslavinn Dejan Savicevic fái einnig reisu- passann. Ostabúningarnir hverfa hjá Sviss SVISSNESKA landsliðið í alpagreinum, sem hefur klæðst hinum sérstöku gulu „ostabúning- um“ í keppni undanfarin ár verður ekki i þeim eftir Ólympíuleikana í Nagano í Japan á næsta ári. Svissneska skíðasambandið og ostafyrir- tækið,sem hefur verið helsti styrktaraðili landsliðsins, hafa ákveðið að samningurmn verði ekki framlengdur. Samningurinn tók gUdi 1992 og færði hann svissneska skíðasam- bandinu m.a. 1,3 milijónir dollara eða tæplega 100 miiyónir króna á síðasta ári. Björgvin lék vel á Portmanrnock BJÖRGVIN Sigurbergsson úr Keili lék best íslensku kylfinganna á Evrópumótinu sem hófst á Portmamock-vellinum í trlandi í gær. Björgvin lék á 75 höggum og er í 4. til 9. sæti eftir fyrsta dag. Kristinn G. Bjarnsson, úr GR, og Þórður EmU Ólafsson, úr Leyni, léku báðir á 78 höggum og eru i 28. tU 38. sæti, Örn Ævar Hjartarson úr GS lék á 82 höggum, Þorsteinn HaHgrímsson úr GR á 83 og Björg- vin Þorsteinsson úr GA á 88. íslenska sveitin er í 10. sæti eftir fyrsta dag en fá högg eru í efstu sætin, og raunar i neðri sæti líka. Veðrið var lslendingunum hagstætt í gær, talsverður vindur en þurrt en veðurspáin fyrir daginn i dag er ekki góð, spáð er tíu vindstig- um og rigningu. KNATTSPYRNA Bibercic leikur með Stjömunni gegn KR MARKAHRÓKURINN mikli Mihajlo Bibercic klæðist Stjörnubún- ingnum í kvöld — leikur gegn fyrrum félögum sínum hjá KR [1995] í 16-liða úrslitum í Bikarkeppni KSÍ á Stjörnuvellinum. „Mikki," sem lék með Skagamönnum fyrri hluta keppnistímabilsins í fyrra, skrifaði undir samning við Stjörnuna í gærkvöldi og leikur með liðinu út keppnistímabilið. Lúðvík Steinarsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunn- ar, sagði að það væri mikill styrkur fyrir leikmannahóp Stjörnunnar að fá Bibercic. „Við vitum hvað hann getur.“ Bibercic mætti í Garðabæ- inn í gærkvöldi og fylgdist með æfingu hjá Stjörnunni, sem þeir Bjarni Sigurðsson og Einar Guð- mundsson stjórnuðu - þeir stjórna liðinu gegn KR. Hvað með þjálfaramálin hjá Stjörnunni? „Við höfum verið að ræða við ákveðinn mann og höldum því áfram — eins og staðan er nú í þeim viðræðum, er ekki rétt að gefa upp hver maðurinn er,“ sagði Lúðvík. Það má með sanni segja að Bi- bercic er ekki ókunnugur því að leika á velli Stjömunnar — hann hefur tvisvar mætt með skotskóna sína þangað og hrellt varnarmenn og markverði Stjörnunnar. „Mikki“ skoraði bæði mörk Skagamanna er þeir lögðu Stjömunna að velli í 1. deild 1996, 2:0. Þá skoraði hann einnig tvö mörg þegar Skagamenn fögnuðu sigri í Garðabæ 1994, 4:1. „Við vonum svo sannarlega að Bibercic haldi uppi sinni fyrri iðju hér á vellinum er hann leikur með okkur gegn KR,“ sagði Lúðvík. Sóknarleikmenn Stjömunnar hafa ekki verið á skotskónum í sumar, sem sést best á því að að Stjarnan hefur aðeins skorað þrjú mörk í sjö deildarleikjum — aftasti varnarmað- urinn skoraði eitt, aftasti miðvallar- leikmaðurinn eitt og eitt var sjálfs- mark andstæðinga Stjörnunnar. Þess má geta að Bibercic hefur aldrei skorað deildarmark gegn KR í leik með Skagaliðinu, í þau þrjú ár sem hann hefur leikið með IA gegn KR. FRJÁLSAR: FYRSTA TAP MICHAELS JOHNSONS í400 M HLAUPI í ÁTTA ÁR / C8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.