Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 7

Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 C 7 BORN OG UNGLINGAR Vigfús Dan setti met VIGFÚS Dan er 14 ára Horn- firðingur og keppir fyrir Ung- mennasambandið Úlfljót. Hann þykir mikið efni í kúluvarpi og setti íslandsmet á Goggamótinu í kasti með 3 kg kúlu í flokki 14 ára en var samt 2 metra frá sínu besta. „Þetta met á eftir að verða bætt. Það situr ennþá í manni ferðalagið að austan,“ sagði Vigfús. Hann tekur íþrótt sína alvarlega: „Ég skoða þessa helstu kappa á myndbandi, t.d. Randy Barnes með hringstílinn sinn.“ Vigfús hefur mikinn áhuga á að spreyta sig á Norð- urlöndum og komast á mót þar: „Mig Iangar,“ segir hann og brosir, „en það er náttúrlega dýrt. Eg gæti kannski fengið styrki.“ Vigfús æfir fyrir aust- an og hefur aðstöðu í netagerð- inni þegar veður eru válynd. „En ég get ekki verið þar leng- ur þar sem ég er farinn að kasta upp í loft!,“ sagði þessi geðþekki kúluvarpari. 'iii . Morgunblaðið/Borgar Þór GOTT að hafa mömmu með á Goggaleikunum! Morgunblaðið/Borgar Þór Jón Sveinbjörn Óskarsson, 7 ára, hugsaði sig vel um áður en hann sagði, að Magnús Scheving væri uppáhaldsíþróttamaðurinn hans. ÞÓRDÍS Ólafssdóttir, 8 ára, var ekki alveg á því, að svara spurnlngum blaða- manns en leyfði honum að taka af sér eina mynd. Hún sagðist vera fljót að hlaupa og hefði unnið í 60 metra hlaupi á Goggamótinu. Hvöttu ákaft lið sitt ÞESSAR stelpur fylgdust spenntar með keppni í grlndahlaupi og hvöttu ákaft sitt lið. Þær sögðust vona að FH myndl vinna. Þær voru sammála um að Guðrún Arnarsdóttlr væri þeirra uppáhaldsiþróttakona. Frá vinstrl: Hrafnhlldur Eva Step- hensson, IManna Rut Jónsdóttlr, Björg Magnúsdóttir, Andrea Hilmarsdóttir, Guðrún María Omarsdóttir og Erla Magnús- dóttir. Morgunblaðið/Borgar Þór Setti „Goggamet“ VINKONURNAR Krlstín Birna Óiafsdóttir og Guðrún Björg Ellertsdóttir, voru hæstánægðar með mótið. Kristín hafðl nýlokið við setja „Goggamet“ en hún á íslandsmetin í víða- vangshlaupi og 60 metra hlaupi innanhúss í sínum aldurs- flokkl. „Sláðu í gegn á Akranesi“ Opna LANCÖME kvennamótið hjá Golfkldbbnum Leyni á Akranesi laugardaginn 28. júní. Leiknar verða 18 holur í opnum flokki kvenna. Þrenn glæsileg verðlaun með og án forgjafar. Nándarverðlaun á par-3 brautum. Ræst út frá 10.00-13.00. Skráning er hafín í síma 431 2711 Síðustu forvöð til að skrá sig er kl. 20.00 á fostudag. GL LANCÖME Coopers &Lybrand Open Opið golfmót verður haldið á golfvelli Oddfeilowa Urriðavatnsdölum laugardaginn 28. júní 1997 kl. 8.00. Glæsileg ferðaverðlaun innanlands sem utan, með og án forgjafar. Einnig eru veitt verðlaun fyrir vera næstur holu á 4/13 braut. Skráning fer fram í síma 565 9092. Coopers &Lybrand 1 - ak KUMHO DEKK OPIÐ GOLFMÓT Opna Kumho golfmótið verður haldið á hinum glæsilega golfVelli að Kiðjabergi í Grímsnesi laugardaginn 28. júní 1997 Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti með og án forgjafar. Verðlaun fyrir lengsta teighögg, og fyrir að vera næstur holu í einu höggi. Verðmæt vinninga ca. 140.000 krónur, auk þess sem vegleg verðlaun verða veitt þeim sem fer holu í höggi. Dregið verður úr skorkortum viðstaddra keppenda og fá þrír keppendur góða vinninga. Skráning í síma 486 4495 HJÓLBARPASTÖÐIN BÍLDSHÖFÐA 8 HJÓLBARDAHÖLLIN FELLSMÚLA 24

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.