Morgunblaðið - 26.06.1997, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.06.1997, Qupperneq 8
FRJALSIÞROTTIR Fyrsta tap Johnsons í 400 m hlaupi í átta ár MICHAEL Johnson tapaði 400 metra hlaupi ífyrsta skipti í átta ár, á stigamóti alþjóða frjálsíþróttasambandsins í París í gærkvöldi. Þetta var fyrsta mót bandaríska heims- og ólympíumeistarans, eftir að hann tognaði á lærvöðva í einvígi við Kanadamar.ninn Donovan Bailey í 150 m hlaupi í Kanada 1. júní - en Banda- ríkjamaðurinn hafði ekki tapað 400 m hlaupi síðan 1989. Hafði fagnað sigri 56 sinnum í röð. Antonio Pettigrew, landi John- sons, sigraði í 400 m hlaup- inu í gær á 44,86 sek. og David Kamoga frá Uganda varð annar á 45,19. Johnsons, sem varð , ólympíumeistari bæði í 200 og 400 m hlaupi í Atlanta í fyrra, náði aðeins fímmta sæti á 45,76. Hann náði reyndar forystu strax í byrjun og hélt henni þangað til komið var i úr síðustu beygjunni. Johnsons fór rakleiðis burt af leikvanginum eft- ’ ir hlaupið, án þess að ræða við ; fréttamenn. Þjálfari meistarans, Clyde Hart, sagði: „Okkur var ekki ljóst hve mikill kraftur væri í Johnson. Hraði var aukaatriði, því hann er venju- lega orðinn fyrstur eftir 200 metra, i en eftir að hafa ekki hlaupið í mánuð, og ekki 400 metra í nærri tvo mánuði, kemur það augljóslega 1 niður á viðkomandi. Hart sagði þá Johnson munu endurskoða keppn- isáætlun Michaels; ekki væri ljóst hvort hann hlypi meira í Evrópu um sinn eða snéri aftur heim. Donovan Baily, heims- og ólympíumeistari í 100 m hlaupi, sýndi í gær að hann er kóngur í ríki sínu þegar sú grein er annars vegar. Hann mætti Bandaríkja- mönnunum ungu, Maurice Green og Tim Montgomery - sem urðu í tveimur fyrstu sætunum á banda- ríska meistaramótinu á dögunum 1 - og sigraði örugglega. Veður var ' ekki gott í París, rigningarúði og ] frekar kalt en Bailey hljóp á 10,07 i sek. „Veðrið var ekki gott en mér t finnst alltaf gaman að koma til i Parísar og sigra í 100 metra i hlaupi," sagði Bailey á eftir. En þrátt fyrir að sigur Bailey væri öruggur sýndu Bandaríkja- ; mennirnir tveir að þeir gætu jafn- vel ógnað veldi hans á HM í Aþenu í ágúst. Þeir hlupu á 9,90 og 9,92 | á bandaríska meistaramótinu um daginn og í gær varð Montgomery annar á 10,12, landi hans Brian Lewis hljóp á 10,19 og Green á 10,23 og varð fjórði. Frankie Fredericks frá Namibíu, sem varð annar bæði í 100 og 200 m hlaupi í Atlanta í fyrra, sigraði örugglega í 200 m hlaupinu í gær- kvöldi en Ato Boldon frá Trinidad - sem náð hefur besta tíma ársins í 100 m hlaupi - varð að gera sér sjötta sætið að góðu í 200 m hlaup- inu á 20,75. ÉfiÉliílI < il'inn-faii ........... ... ■ - fy: Reuter DONOVAN Balley kemur í mark sem öruggur sigurveg- ari í 100 m hlaupinu í París. Hér tll hllöar er Mlchael Johnson á harðaspretti I 400 metra hlauplnu; hann náði forystunnl snemma og hélt hennl allt þar tll komlð var á belnu brautlna eftlr síðustu beygju - þá gaf hann eftlr og varð að láta sér fimmta sætið lynda. Franska stúlkan Marie Jose Perec - ólympíumeistari í 200 og 400 m hlaupi - olli aðdáendum sínum miklum vonbrigðum með því að ná aðeins sjöunda sæti í 200 m hlaupinu. Afsökunum Perec þess efnis, að þetta væri fyrsta hlaup hennar í ár og hún væri einnig að ná sér af smávægilegum meiðslum á fæti, var illa tekið á blaðamanna- fundi eftir hlaupið; viðstaddir blís- truðu á hana. Bandarísku stúlk- unni Inger Miller var aftur á móti fagnað; hún sigraði á 22,48 sek. og jafnaði þar tímann sem náðst hafði í ár. Perec hljóp á 23,17. Bandaríkjamaðurinn Bryan Bronson er í miklum ham um þess- ar mundir og sigraði í 400 m grindahlaupi; hafði betur á öðru mótinu í röð gegn ólympíumeistar- anum Derrick Adkins, landa sínum. Bronson náði í gær þriðja besta tíma ársins; 48,15 sek. og sigraði Zambíumanninn fræga, Samuel Matete, auðveldlega. Hann fór á 48,93 og Adkins varð þriðji á 48,96. ■ Úrslit / C4 VIKINGALOTTO: 17 19 21 32 36 38 BONUSTOLUR: 6 8 34 Góður bolti!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.