Morgunblaðið - 02.07.1997, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.07.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997 21 Morgunblaðið/Björn Björnsson EVA Snæbjarnardóttir lagði blómsveig á leiði Stefáns íslandi. Heiðruð minning Stefáns íslandi Alþýðusönghátíð á Sauðárkróki Uppákomuljóðskáld gerir metsamning London. The Daily Telegraph. Sumartón- leikar í Skálholti SUMARTÓNLEIKAR í Skál- holtskirkju verða haldnir í tutt- ugasta og þriðja sinn í sumar og hefjast um helgina. Boðið verður upp á tónleika fímm helgar í júlí- og ágústmán- uði. Tónleikar verða haldnir í Skáiholtskirkju kl. 15 og 17 á laugardögum og kl. 15 á sunnu- dögum. Sumartónleikarnir styrkja helgihald í Skálholts- kirkju með þátttöku tónlistar- manna í messum sem verða á sunnudögum kl. 17 en tónlistar- flutningur hefst kl. 16:40 fyrir messu. Hildigunnur Rúnarsdótt- ir tónskáld hefur útsett stólvers eftir síra Einar Sigurðsson í Eydölum sem flutt verða í mess- um. Erindi tengd tónleikahaldinu verða haldin í Skálholtsskóla á laugardögum kl. 14. Fyrsta tónleikahelgi verður 5. og 6. júlí. Kári Bjarnason flyt- ur erindi um síra Einar Sigurðs- son í Eydölum. Rut Ingólfsdótt- ir, fíðluleikari, leikur einleiksverk eftir Jón Leifs, Tryggva M. Bald- vinsson, Atla Heimi Sveinsson og færeyska tónskáldið Kristian Blak. Frumflutt verður messa eftir Oliver Kentish, staðartón- skáld. Flytjendur eru Voces Thu- les ásamt Kjartani Guðnasyni slagverksleika og Hilmari Erni Agnarssyni orgelleikara. Stjórn- andi er Kjartan Óskarsson. Önnur tónleikahelgi verður 12. og 13. júlí. Þá mun Rósa Þorsteinsdóttir kynna segul- bandasafn Árnastofnunar og andlegan söng fyrri tíma. Hed- wig Bilgram, heimskunnur org- el- og semballeikari frá Þýska- landi, flytur einleiksverk eftir J.S. Bach, Forqueray o.fl. Marta G. Halldórsdóttir, sópran, flytur söngverk eftir J.S. Bach, Purceli og Telemann ásamt Hedwig Bilgram. Þriðja tónleikahelgi verður 26. og 27. júlí. Guðrún Kvaran flyt- ur erindi um hljóðfæraeign ís- lendinga áður fyrr og Bachsveit- in í Skálholti, ásamt Ólafi Kjart- ani Sigurðarsyni, bassabaritón, flytja söng- og strengjaverk eft- ir Purcell, Leclair, nána ættingja J.S. Bach, Hándel, Biber ogTele- mann. Stjórnandi Bachsveitar- innar og einleikari verður hinn nafnkunni fíðluleikari, Jaap Schröder frá Hollandi. Að tón- leikahelginni lokinni heldur Bachsveitin í tónleikaferð til Frakklands. Fjórða tónleikahelgi verður um verslunarmannahelgina 2.-4. ágúst. Áskell Másson, staðartónskáld, spjallar um eigin verk og sönghópurinn Hljómeyki ásamt einsöngvurunum Sverri Guðjónssyni, kontratenór og Mörtu G. Halldórsdóttur, sópran, flytja söngverk eftir Áskel og frumflutt verða ný trúarleg kór- verk eftir staðartónskáldið. Gunnar Kvaran, sellóleikari leik- ur sellósvítur nr. 3 og 5 eftir J.S. Bach og frumflytur einleiks- verk fyrir selló eftir Karólínu Eiríksdóttur. Kolbeinn Bjarna- son, flautuleikari og einn helsti forsprakki Caput hópsins flytur einleiksverk fýrir alt- og bassa- flautu frá Japan, Kóreu, Mexíkó o.fl. Fimmta og síðasta helgi sum- arsins verður 9. og 10. ágúst. Poul Hoxbro, pípu- og slagverks- leikari frá Danmörku flytur er- indi um viðhorf miðaldakirkjunn- ar til tónlistar og tónlistar- manna. Poul Hoxbro og sópran- söngkonan Agnethe Christensen skipa miðaldadúettinn ALBA og flytja Maríusöngva frá miðöld- um. Lokatóna sumarsins á Tjarnarkvartettinn sem flytur Maríusöngva og íslensk og er- lend söngverk. Aðgangur að fyrirlestrum og tónleikum er að venju ókeypis. Sauðárkróki.Morgunblaðið - Á vegum Afmælisnefndar var á laug- ardag haldin Alþýðusönghátíð á Sauðárkróki. Athöfnin hófst í Kirkjugarði Sauðárkróks með því að leikið var lagið Mín heimabyggð eft- ir Eyþór Stefánsson, tónskáld, en síðan lagði Eva Snæbjarnardóttir, skólastjóri Tónlistarskólands, blóm- sveig á leiði Stefáns Guðmundssonar íslandi óperusöngvara, sem lést 1994 en aska hans var lögð til hinstu hvílu í Sauðárkrókskirkjugarði. Þá flutti Þorbjörns Árnason minn- ingarorð um Stefán en að því loknu sungu viðstaddir undir forsöng Karlakórs Dalvíkur en stjórnandi RITHÖFUNDARNIR Mary Jo Salt- er og Brad Leithauser lesa úr verk- um sínum á Súfistanum, bókakaff- inu í Máli og menningu Laugavegi 18 fimmtudaginn 3. júlí kl. 20. Nú í vetur kom út nýjasta skáld- saga Brads, „The friends of Free- land“ sem _ sækir efnivið sinn að nokkru til íslands. Mary Jo Salter er einkum þekkt fyrir ljóðabækur sínar og í seinustu bók sinni, „Sunday Skaters" orti hún m.a. um Islendinga. Sú bók var ein af fimm Nýjar bækur HRA UNIÐ -jarðsaga fjöl- skyldunnar heitir ný fræðslubók fyrir börn eftir Guðmund Pál Ólafs- son, gefin út hjá Máli og menningu, I bókinni fjallar Guðmundur um myndun og mótun lands og land- nám lífvera í hrauni. Hann lýsir hvernig hraun renna og storkna í ótrúlega fjölbreytilegum myndum og breytast smátt og smátt með vaxandi gróðri og seinna fyrirtil- verknað manna. Guðmundur er þekktur fyrir náttúrubækur sínar og þessi bók er full af fróðleik og skemmtun sem öll fjölskyldan getur nýtt sér, heima í stofu og á ferðum um land- ið. Einnig er hér á ferðinni ítarefni fyrir skóla. Bókin er 72 síður, öll litprentuð. Húner einnig fáanleg áensku (Land of lava a geological saga) og þá með ítarlegri skýringartexta. Bókin var prentuð íHongKong ogkostar 1.980 kr. hans er Jóhann Guðmundsson og Kirkjukors Sauðárkróks undir stjórn Rögnvalds Valbergssonar lag Péturs Sigurðssonar Ætti ég hörpu við texta Friðriks Hansen. Að aflokinni athöfninni í kirkju- garðinum hófst dagskrá í Bóknáms- húsi Fjölbrautaskólans en þar sungu áðurnefndir kórar ásamt Karlakórn- um Heimi en söngstjóri hans er Stef- án R. Gíslason. Einnig komu þar fram einsöngv- ararnir Svana Berglind Karlsdóttir, Þuríður Þorbergsdóttir og Jóhann Már Jóhannsson sem sungu við und- irleik Rögnvaldar Valbergssonar. ljóðabókum það ár sem tilnefnd var til verðlauna bókmenntagagnrýn- enda í Bandaríkjunum. Þau hjónin bjuggu á íslandi um skeið, hafa undanfarið verið búsett í Frakk- landi en eru nú á heimleið til Banda- ríkjanna. Brad Leithauser átti mik- inn þátt í því að saga Halldórs Laxness, „Sjálfstætt fólk“ var gefin út að nýju í Bandaríkjunum,“ segir í fréttatilkynningu. Kynnir á upplestrarkvöldinu er Sigurður G. Tómasson. UNGT breskt ljóðskáld, hinn 26 ára gamli Murray Lachlan Young, sem enn hefur ekki fengið ljóðabók útgefna, gerði fyrir skemmstu samning við EMI-hljómplötuútgáf- una, sem er hærri en dæmi eru um hvað ljóðskáld varðar. Samn- ingurinn hljóðar upp á 1,1 milljón punda, um 120 milljónir ísl. kr. fyrir tvo geisladiska með upplestri Lachlan Youngs á eigin verkum. Samdi líka um myndbönd Þá hefur Lachlan Young einnig samið við MTV- sjónvarpsstöðina um gerð eitt hundrað myndbanda, sem hvert um sig er 90 sekúndur á lengd, og fær hann 250.000 pund fyrir, 25 milljónir ísl. kr. Samanlagt er þetta langtum hærri upphæð en metsöluhöfundurinn Martin Amis samdi um fyrir tveim- ur árum, en hann fær hálfa milljón sterlingspunda, um 50 milljónir ísl., fyrir tvær bækur, og þótti sá samningur með því hæsta sem gerðist á Bretlandi. Samningarnir hafa vakið reiði og öfund annarra ljóðskálda. Peter Thorpes, ritstjóri Poetry Review, sagði samningana fáheyrða. Þeir virtust eiga miklu meira skylt við tískustrauma en ljóðlist og því væri hann afar ósáttur við þá. „Hversdags-kynlíf“ og „MTV-partí“ Lachlan Young segist vera uppákomuljóðskáld. Stíll hans er knappur, beittur og á stundum hæðinn og umfjöllunarefnin eru fengin úr nútímanum; eiturlyf, kynlíf og tónlist. Heiti ljóðanna bera vott um þetta; „Hversdags- kynlíf“, „Það eru hreinlega allir í kókaíni" og „MTV-partí“ eru dæmi um þetta. Flest ljóðin eru flutt við undirleik af ýmsu tagi, leiknir eru tangóar og sjávarhljóð, klassísk verk og rokk. Fyrri geisladiskurinn sem EMI gefur út ber heitið „Vice Versa“ (Og öfugt) og kemur hann út í júlí. PYSJUNÆTUR heitir ný barna- bók sem komin er út hjá Máli og menningu. Höfunduirinn er Bruce McMillan, bandarískur líffræðing- ur, þekktur fyrir barnabækur úr ríki náttúrunnar. Hann hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenn- ingar og þessi bók hefur þegar ver- ið gefin út erlendis. Efnið í bókina sækur þöfundur- inn til Vestmannaeyja. Á síðkvöld- um í ágúst safnast börnin í Eyjum saman og leita að ósjálfbjarga pysj- sem EMI gerir við ljóðskáld og vonast útgáfan til þess að um ein milljón eintök seljist af hvorum geisladisk. „Það er alltaf fólgin áhætta í því að gera samninga við unga listamenn en við teljum hann frábært ljóðskáld, það sama á við um flutning hans og svo er hann afskaplega fyndinn," segir Tony Harlow, markaðsstjóri EMI. „Lac- hlan Young er í raun þrívíður. Við hefðum getað markaðssett hann sem ljóðaflytjanda, háðfugl eða ljóðskáld. Hann er engu líkur en eftir að hafa ráðgast við hann, komumst við að þeirri niðurstöðu að best væri að leggja áherslu á ljóðskáldið.“ Upptökustjóri verður Chris Thomas, sem hefur starfað með rokkhljómsveitum á borð við Sex Pistols, Pink Floyd og Blur. Plötusnúður Lachlan Young var um tíma plötusnúður en hann hefur m.a. komið fram á jasskiúbbi Ronnie Scott í London, í Edinborg og um sl. helgi á Glastonbury-rokkhátíð- inni. Umboðsmaður hans líkir hon- um við engan annan en Byron lá- varð, segir Lachlan Young tala til ungra áheyrenda og nota til þess ljósvakamiðla og rafeindatækni fremur en bækur. Myndböndin sem hann gerir fyrir MTV-stöðina, verða sýnd á milli tónlistarmynd- banda. Ljóðskáldið Michael Horovitz, sem skipuleggur svokallaða ólymp- íuleika í ljóðlist í London, er lítt hrifinn af_ fréttunum af Lachlan Young. _„Ég tel hann ekki gott skáld. Ég held að þetta sé gott dæmi um það þegar skilaboðin eru fólgin í miðlinum og í þessu tilfelli er hann bara tískubóla. Verk Lachlans Young eru ömurleg. Þau eru ekki ljóðlist. Ég þekki mann sem sá hann koma fram og sá sagði að fólk hefði hlegið. Hann er háðfugl, ekki ljóðskáld. En ég ætla ekki að eyða frekari tíma í að ræða hann. Ég hef nógu öðru að sinna.“ um til að hjálpa þeim til sjávar. Halla og vinir hennar bíða með óþreyju eftir þessu árlega ævintýri þegar allir krakkar draga fram pappakassa og vasaljós og keppast við að bjarga sem flestum pysjum. Sigurður A. Magnússon þýddi bókina sem er 32 síður, öll litprent- uð. Hún er einnig fáanleg á ensku og heitir „Nights of the Pufflings “. Bókin varprentuð í Singapúr og kostar 1.390 kr. Hverfisgötu 50, sími 551 5222 Upplestur á bókakaffinu Þetta er fyrsti samningurinn Nýjar bækur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.