Morgunblaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1997 23 LISTIR Bænir og brauð BÆNIR og brauð nefnist sýn- ing á tréristum Þorgerðar Sig- urðardóttur á Jómfrúnni í Reykjavík sem stendur yfir nú í júlí. I kynningu segir: „Sá siður þekkist víða um lönd að brauð sem bakað er í hátíðar- og við- hafnarskyni sé skreytt á marga vegu. Brauð var ekki hvers- dagsfæða hér á landi á fyrri tíð og varla gert nema á hátíðum og tyllidögum. Aðallega þekkt- ist tvennt: Laufabrauðið til há- tíðarbrigða á jólum og skreyttar pottkökur þar sem yfírborðið hafði verið mótað með kring- lóttri útskorinni íjöl. Yfirleitt sýndi þetta „þrykk“ bæði skreytingar og texta, iðulega úr bænum eða sálmum, en stundum veraldlegs eðlis. Hend- ingarnar „Það á að gefa börnum brauð/að bíta í á jólunum" sýna hve brauð var mikill hátíðarmat- ur og enduróma þann tíma þeg- ar kaup á mjöli voru lítil og það helst notað í grauta. Tréristurnar á sýningunni eru allar frumverk en í þeirri hefð sem sjá má á brauðmótum á íslenskum byggðasöfnum og Þjóðminjasafni. Textarnir eru sumir til á gömlum mótum en komu líka úr öðrum áttum.“ Þijár systur fyrstar á svið LEIKÁRI er nú lokið í Þjóðleik- húsinu en undanfarnar vikur hafa staðið yfir æfingar á Þrem- ur systrum eftir Tsjekhov, sem verður fyrsta frumsýningin á Stóra sviðinu í haust. Það er litháíski leikstjórinn Rimas Tuminas sem sljórnar uppfærslunni en hann leikstýrir nú í þriðja sinn í Þjóðleikhúsinu. Uppfærslur Rimasar vekja jafn- an mikla athygli og hefur hann hlotið fjölda alþjóðlegra viður- kenninga og verðlauna. Höfundur leikmyndar og bún- inga í Þremur systrum er landi leikstjórans Vuytautas Narbutas og tónlist semur Faustas Latenas. Báðir störfuðu þeir með Rimasi í fyrri uppfærslu hans í Þjóðleik- húsinu; Mávinum, sem tilnefndur var til Menningarverðlauna DV í leiklist 1993 og Don Juan. Þrjár systur eru nú settar upp í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu. Leikendur eru Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir, Halldóra Björns- dóttir, Edda Arnljótsdóttir, Balt- asar Kormákur, Guðrún S. Gísla- dóttir, Arnar Jónsson, Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir Snær Guðna- son, Gunnar Eyjólfsson, Sigurður Skúlason, Randver Þorláksson, Stefán Jónsson, Sigurður Sigur- jónsson og Guðrún Þ. Stephensen. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi verkið. Lýsingu hannar Páll Ragnarsson. Aðstoðarleikstjóri og túlkur er Ásdís Þórhallsdótt- ir. Fyrirhugað er að frumsýna Þijár systur um miðjan septem- ber. Breska ríkisstjórmn Operunni skipað að stíg’a niður af stallinum London. The Daily Telegraph. BRESKA ríkisstjórnin hefur fyrir- skipað stjórnendum Kongunglegu óperunnar að verða „óperuhús þjóð- arinnar" að nýju. Það var Mark Fisher menningarmálaráðherra sem lét þessi boð út ganga og krafðist skjótra viðbragða af hálfu stjórnar óperunnar. Stjórnin er ósátt við ímynd Kon- unglegu óperunnar, sem hefur orð á sér fyrir að vera eingöngu fyrir þá sem nægan hafa aurinn og svífa um skartklæddir \ hléi með kampavíns- glas í hendi. Ástæða reiði stjórnvalda er ekki síst sú að óperan fær um 14 milljónir sterlingspunda í styrki af almannafé og rúmar 78 milljónir úr breska lottóinu. Samanlagt eru þetta yfir 100 milljónir punda, um 11 millj- arðar ísl. kr. Þá hefur Chris Smith, ráðherra þjóðararfleifðar, fyrirskipað rannsókn á rekstri hússins og hefur lýst því yfir að dragi stjóm þess ekki úr útgjöldum og bæti ímynd óperunn- ar, kunni hún að verða svipt opinber- um styrkjum. Menningarmálaráðherrann kveðst hafa tilkynnt formanni stjórnarinnar að grípa yrði til einhverra ráða, ekki yrði við unað eins og ástandið væri nú. Krefst stjórnin þess að fleirum verði gert kieift að sækja sýningar óperunnar, með því að lækka miða- verð, farið verði í fleiri leikferðir og sjónvarpað og útvarpað oftar frá sýningum en nú er gert. Chadlington lávarður, formaður stjórnar Konunglegu óperunnar, sagðist alveg sammála ráðherranum. Hann vildi ekkert fremur en að fleiri sæktu sýningar óperunnar og að þjóðinni yrði að finnast hún eiga hlut- deild í henni. Kvaðst hann vonast til þess að áhorfendahópurinn yrði ekki eins afmarkaður og nú væri. Hallinn á rekstri óperuhússins var 4 milljónir punda á síðasta ári, rúm- ar 400 milljónir ísl. kr. Tapið á síð- asta leikári nam um 1,5 milljónum punda, um 150 milljónum ísl. kr. Á meðal þeirra aðgerða sem stjórn hússins hyggst grípa til, er að selja myndbönd og geisladiska með upp- tökum af uppsetningum hússins, flölga útsendingum og setja upp sýningar í kvikmyndahúsum. íslenzkar skopmyndir í Genf SKOPMYNDIR eftir Þorstein Eggertsson eru á skopmynda- sýningu sem nú er í Genf. Það er Al- þjóðasam- band hug- vitsmanna sem stendur að sýning- unni en við- fangsefni teiknaranna er tengt upp- T , . finningum. Þorstemn Um ^ þfe_ Eggertsson und Jkn_ ingar eftir á annað hundrað teiknara prýða þessa sýningu sem sett verður upp_ víða um heim og er líklegt að íslending- ar fái að sjá hana um aldamót- in. í tengslum við sýninguna var gefin út bók með úrvali teikninga en í henni eru þijár eftir Þorstein. „Þátttakendur voru beðnir um að senda sex til átta myndir og allflestir fengu mynd birta í bókinni," sagði Þorsteinn. „Bókin verður seld á almennum markaði." Þá hafa ljóð eftir Þorstein birzt í tveimur enskum ljóða- söfnum sem gefin voru út og segir hann að þar á meðal hafí í fyrsta skipti verið ljóð eftir hann af alvarlegum toga. Þor- steinn er einn mikilvirkasti dægurlagahöfundur íslendinga og aðspurður kveðst hann eiga auðvelt með að setja sig í mis- munandi stellingar eftir við- fangsefnum. „Það má taka lík- ingu af listamanni sem er jafn- vígur á hljóðfæri sem striga. Jafnharðan og hann er sestur við hljóðfærið þvælast ekki fyr- ir honum aðferðir málaralistar- SKOPMYND eftir Þor- stein Eggertsson úr bók með verkum skop- myndateiknara frá sýn- ingunni í Genf. Norskur stúdentakór STUDENTERSANGFORENINGEN ýmsum tímabilum. Til Reykjavíkur í Bergen heimsækir ísland og held- ur tónleika í Langholtskirkju fimmtudaginn 3. júlí kl. 20. Kórinn mun syngja norsk, sænsk, finnsk, þýsk og bandarísk verk frá kemur kórinn frá Akureyri og Seyð- isfirði þar sem hann söng á Norsk- um dögum. Stjórnandi kórsins er Tore Jo- hannessen. Innilegustu þakkir fyrir gjafir og árnaðaróskir á sextugsafmœli mínu 26. júní 1997. Guð blessi ykkur öll. Daníel Benjamínsson, Víðinesi, Kjalarnesi. Mitac 166 Intel 166 mhz örgjörvi 16 mb innra minni 15" stafrænn litaskjár 1700 mb harður diskur 16 hraða geisladrif 16 bita hljóðkort 25w hátalarar Lyklaborð & mús Windows '95 & bók 6 íslenskir nýjir leikir Alfræðiorðabók á CD Corel 4 teikniforrit 116.990 kr Þá ættir þú að hafa nægan tíma til að takast á við þau verkefni sem bjóðast í Fifa Manager '97. Þessi frábæri fótboltaleikur er nú kominn á PC tölvu og er raunverulegasti framkvæmdastjóraleikur sem framleiddur hefur verið. Kepptu ensku knattspyrnunni og reyndu að ná sem bestum árangri því annars er stjórn knattspyrnu- félagsins að mæta. En þú getur jú alltaf endurræst tölvuna. ( BT. Tölvur - Grensásvegi 3 - 108 Reykjavík - S:5885900) " Er búið að reka þig nýlega ? ] BIRGIR Schiöth við eitt verka sinna. Sýnir í Eden BIRGIR Schiöth, myndlistarkenn- ari, sýnir myndverk sín í Eden í Hveragerði frá 30. júnítil 13. júlí nk. Flestar myndirnar eru málaðar með pastellitum. Einnig eru þar teikningar með blýanti og svartk- rít. Myndefnið er nokkuð fjöl- breytt m.a. sótt í síldarsöltun á Siglufirði á árum áður, hraun- myndir, portrettmyndir, hestar o.fl. Birgir er fæddur á Siglufirði 1931, stundaði nám við Gagn- fræðaskólann þar, Menntaskólann á Akureyri og Kennaraskóla Is- lands. Kenndi verkmennt og mynd- list við Gagnfræðaskólann á Siglu- firði í 20 ár en síðan kenndi hann við grunnskólana í Garðabæ. Með kennslunni hefur hann verið í myndlistarnámi í myndlistarskól- um og í einkatímum hjá Gunnlaugi St. Gíslasyni. Hann hefður áður sýnt í Hafnarfirði, Reykjavík, Hveragerði, Siglufirði og á fjórum stöðum á Austurlandi. Hann er nú hættur kennslunni og sinnir ein- göngu myndlistinni. Um þessar mundir eru einnig til sýnis myndir eftir Birgi í Fjarðar- nesti v/Bæjarhraun í Hafnarfirði, á Selfossi í Kaffi krús og á Eyrar- bakka í kaffistofu Lefolii.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.