Morgunblaðið - 02.07.1997, Side 28

Morgunblaðið - 02.07.1997, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1997 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FRAMFARIR í DÓMS- OG LÖG- REGLUMÁLUM NÝ LÖGREGLULÖG fela í sér umfangsmestu skipu- lagsbreytingu á stjórn löggæzlu í landinu í lang- an tíma. Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, sagði m.a. á blaðamannafundi, sem efnt var til í tilefni af gildistöku laganna, að tilgangur þeirra væri að gera feril rannsókna og ákæru hraðari og skilvirkari en verið hefði. Þannig yrði stór hluti mála í höndum sama embættis frá upphafi rannsóknar til málflutnings fyr- ir dómi. Stofnun ríkislögreglustjóraembættisins styrk- ir og ótvírætt yfirstjórn lögreglunnar í landinu. Stærsta breytingin, sem hin nýju lög hafa í för með sér, er stofnun ríkislögreglustjóraembættis, samfara niðurlagningu Rannsóknarlögreglu ríkisins. Rann- sóknir á brotamálum færast nú til lögreglustjóraemb- ætta í landinu. Starfsvið lögreglunnar í Reykjavík breikkar mikið, en hún tekur yfir um 80% þeirra verk- efna, sem RLR hafði með höndum. Starfsmenn RLR færast yfir til nýs embættis ríkislögreglustjóra og lög- reglunnar í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi. Á þessum áratug og í tíð núverandi dómsmálaráð- herra hafa verið stigin nokkur stór skref til betri hátta í dóms- og lögreglumálum. Ein mesta réttarbót um áratugaskeið var aðskilnaður dómsvalds og umboðs- valds, en í henni felst, að sami aðili getur ekki rannsak- að og dæmt í máli. Þar þarf nú dómara, sem er alger- lega óháður rikisvaldinu. Hér er byggt á meginregl- unni um aðskilnað löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds, sem tímabært var að fylgja eftir með þessum hætti. Bygging nýs og glæsilegs dómshúss Hæstaréttar gerbreytti og allri starfsaðstöðu þessa æðsta dómstóls ríkisins. Hæstiréttur hafði búið við þröngan húsakost, sem vart var sæmandi réttarríki sem okkar. Dómshús Hæstaréttar svarar til alþingishúss og stjórnarráðs- húss og nú hafa öll æðstu sig þrískipts ríkisvalds feng- ið virðulegt þak yfir höfuðið. Með nýju dómshúsi má ætla að vegur réttarins vaxi og afköst hans aukist. Bygging fangelsa er ill nauðsyn, en afbrot eru hluti af samfélagi manna sem bregðast verður við. Bygging nýs fangelsis að Litla-Hrauni var löngu tímabær fram- kvæmd, m.a. til að tryggja að fangelsismál væru í eins öruggu horfi og frekast er kostur, bæði að ytri búnaði og inntaki starfseminnar. Það var ekki síður stórt spor í fangelsismálum þegar óhæft fangelsi í Síðumúla var lagt niður og stefna mörkuð að bættu umhverfi og aðstöðu fanga. Þessari stefnu þarf að framfylgja, enda unnið að nýjum áfanga í þeim efnum með nútímalegu fangelsi í Reykjavík. Fangelsismála- stofnun var merkilegt skref til hins betra og starfsemi hennar hefur skilað góðum árangri. Aðbúnaður í ís- lenzkum fangelsum hefur stórbatnað og staðizt kröfur erlendra sérfræðinga, sem um þau mál hafa fjallað. Síðast en ekki sízt ber að nefna ný lögreglulög, sem fyrr er vikið að. Tilgangurinn er að gera feril rann- sókna og ákæru hraðari. Það er og hlutverk ríkislög- reglustjóra að miðla upplýsingum innan lögreglunnar og vinna að því að hinum pólitísku ákvörðunum æðstu handhafa ríkisvaldsins, sem lúta að löggæzlu, verði fylgt eftir. Sem og að hafa eftirlit með því að fram- kvæmd löggæzlunnar verði í samræmi við lög - og veita lögreglustjórum stuðning. Þá ber honum að starf- rækja sérstaka rannsóknardeild sem rannsakar skatta- og efnahagsbrot. Hann annast einnig alþjóðasam- skipti á sviði löggæzlu og sinnir yfirstjórn einstakra löggæzluverkefna í landinu. Þau fjögur nýlegu dæmi, sem hér hafa verið tínd til, eru öll mikilvæg framfaraspor í dóms- og lögreglu- málum á líðandi áratug, sem ástæða er til að fagna sérstaklega. S VEINBJÖRN Björnsson há- skólarektor sagði í ræðu sinni við brautskráningu nú í vor að vegna þarfar fyrir breiðara og traustara starfsnám þyrfti að lyfta skemmra starfsnámi af fram- haldsskólastiginu. Slíkt gæti falið í sér almenna menntun fyrir þá sem ekki hafi hug á löngu háskólanámi með fræðilegu ívafi. I samanburði við önnur lönd væri ísland yfir meðaltaii hvað varðaði lengra nám en skemmra nám vantaði að mestu. í dag eigi meginfjöldi nemenda því ekki annan kost hér á landi en Háskóla íslands. í ræðu við skólaslit Iðnskólans í Reykjavík í vor gerði skólastjórinn, Ingvar Ásmundsson, að umtalsefni að einungis um fjórðungur nemenda í framhaldsskólum hér á landi leggi stund á starfsmenntun, % stundi bóknám. Hélt hann því fram að þess- um hlutföllum þyrfti að vera þveröf- ugt háttað. Ingvar segir forsendu þess að starfsmenntun eflist í landinu vera þá að frelsi starfsmenntaskóla sé auk- ið og að skólunum sé gert kleift að koma á fót fjölbreyttum starfsnáms- brautum í samstarfi við atvinnugrein- arnar. Ný lög um framhaldsskóla kveða á um skipun starfsgreinaráðs fyrir hveija iðngrein og er ráðinu ætlað að skipuleggja nám í greininni og hafa með því yfirumsjón. Ingvar telur að starfsgreinaráð eigi eftir að reynast þung í vöfum og hann vill tryggja að ráðið starfi í samráði við skólana. Nýjar námsbrautir verði að vinna sér hefð og þeim verði ekki komið á með tilskipunum menntayfir- valda. Ingvar telur að starfsnám þurfi ekki nauðsynlega að komast á há- skólastig. „Þróunin er reyndar sú að sífellt fleiri stúdentar sækja inn á starfs- námsbrautir. Sé háskólapróf skil- greint sem próf að loknu stúdents- prófi er nálgun okkar við háskólastig- ið sífellt meiri,“ segir Ingvar. „Mér finnst hins vegar ekki rökrétt að það fái ekki aðrir að stunda starfsnám en þeir sem lokið hafa stúdentsprófi. Slíka þröskulda á ekki að setja í veg fyrir fólk.“ Fjöldinn sækir í nýju námsbrautirnar Ingvar segir stefnu skólans vera þá að draga úr almennu bóknámi og styrkja enn frekar starfsnám. Mikil fjölgun hefur verið á tölvubraut þar sem fjórðungur nemenda skólans stundar nú nám. Á hönnunarbraut hefur nemendum einnig fjölgað tals- vert. Sama aukning á sér ekki stað innan löggiltu iðngreinanna en hafa ber í huga að nemendur þar eru þó um helmingur af nemendum skólans. „Samningsbundnum iðnnemum hefur fækkað þar sem meistarar hafa ekki tekið við nemendum í jafnríkum mæli og áður en kreppa varð í at- vinnulífinu og slíkt tekur alltaf' tíma að jafna sig þó svo að atvinnulífið sé búið að rétta sig af,“ segir Ingvar. Þessir nemendur hafa þó yfirleitt komist í starfsþjálfun fyrr eða síðar. Ingvar segir nokkuð um það að til skólans leiti nemendur sem gefist hafi upp á bóknámi í öðrum skólum og vilji fara í verklegt nám. Hann bendir á að nemendur geti lokið stúdentsprófi frá Iðnskólanum jafnframt því að ljúka starfsnámi og að þeir nemendur séu oft mun betur settir á vinnumarkað- inum en þeir sem lokið hafa prófi frá menptaskólum. „Ég tel að starfsmenntaskólarnir þurfi að fá rýmri heimild til að út- skrifa stúdenla. Nú eru stúdentar brautskráðir af tæknibraut þar sem námið byggist á stærðfræðikennslu en við teljum að stúdentspróf af rekstrarbraut myndi henta mjög mörgum nemendum betur þar sem Breyttar áherslur í menntun með eflingu starfsnáms námið er aðgengilegra og kennslan þar nýtist betur þeim sem hyggja á störf í iðngreinum. Það væri skref í átt að auknu vægi starfsmenntunar að beina nemendum til stúdentsprófs í gegnum starfsnám," segir Ingvar. Fornám við alla framhalds- skóla æskilegt Iðnskólinn býður upp á heilsárs- fornám auk svokallaðra 0 áfanga þar sem ígildi grunnskólaprófs er endur- tekið. Þangað sækja nemendur sem bæta þurfa árangur sinn fyrir áfram- haldandi nám hvort heldur sem er við Iðnskólann eða aðra framhaldsskóla. „í fyrrahaust sóttu miklu fleiri en áður í þetta nám og í raun alltof marg- ir. Þetta er þáttur í skólastarfinu sem við teljum að eigi að dreifa í fleiri skóla,“ segir Ingvar. Á tímabili var Iðnskólinn eini skólinn á höfuðborgar- svæðinu sem hafði fornámsbraut en nú fer slík kennsla einnig fram í Borg- arholtsskóla. Aðrir skólar sem tekið hafa upp slíka upprifjunaráfanga eru Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Pjöl- brautaskólinn við Ármúla og Mennta- skólinn við Hamrahlíð. „Mér fyndist eðlilegt að allir framhaldsskólar tækju þátt í að sinna þessari nauðsynlegu þjónustu þó svo að áfangakerfið sé oft betur til þess fallið að rétta nemendur við í einstökum greinum," segir Ingvar. Bóknámshefðin sterk á íslandi Helga M. Steinsson, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands, segir að það hversu lágt hlutfall nemenda hér á landi fari í starfsnám samanbor- ið við nágrannalöndin megi að hluta til rekja til þess hversu sterk bóknáms- hefðin er á íslandi. Greinilega sé þörf á viðhorfsbreytingu hjá almenningi. Hún segir að könnun sem gerð hafi verið á námsvilja nemenda leiði í ljós að hugur ungs fólks standi oft frekar til verklegs náms en bóklegs. Það örli hins vegar á því að fólki finnist starfs- nám ekki eins mikilvægt og bóknám og ungt fólk sé jafnvel að taka stúd- entspróf áður en það fer í verknám. Skýringin á því hvers vegna svo fáir leiti í starfsnám sé þó talsvert flóknari en svo að hana megi eingöngu rekja til viðhorfs fólks til námsins. Hafa beri í huga að dýrara sé fyrir ríkið að halda úti starfsnámi en bókn- ámi þar sem skólarnir taki við færri nemendum í senn og kennslukostnaður ---------- sé meiri. „I löggiltu iðn- greinunum þurfa nemendur að komast á samninga og slíkt er háð atvinnuástandi í viðkomandi landshlutum. Á Austurlandi hefur yfir- leitt gengið vel að komast á samning í málmiðngreinum en aftur verr í rafiðngreinum en þessu hefur kannski verið öfugt farið í öðrum landshlutum,“ segir Helga. Hún tekur undir þá skoðun háskóla- rektors að styrkja þurfi tengsl skóla og atvinnulífs og hún telur að það gæti verið verknámi mjög til bóta. Fyrirhuguðu starfsgreinaráði sé ein- mitt ætlað að endurspegla starfsþörf 75% nemenda framhalds- skólanna í bóknámi Undanfarið hefur veríð lögð áhersla á að fjölga þurfí valkostum ungs fólks í námi. Hulda Stefánsdóttir bar undir stjómendur nokkurra starfsnámsskóla hvað þeir teldu vænlegt til árangurs og ræddi við Jón Torfa Jónasson, prófessor í uppeldis-og kennslufræð- um við Háskóla íslands. Ingvar Asmundsson Helga M. Steinsson Margrét Friðriksdóttir Sveinbjörn Björnsson Lárus H. Bjarnason Jón Torfi Jónasson atvinnulífsins og meta út frá því áherslur í námi. Fyrirhugað sé að ráðgjafanefndir starfi við skólana og í henni eiga sæti fulltrúar atvinnulífs og skóla. „Við Verkmenntaskólann hefur starfað nefnd skóla- fólks og fulltrúa öflugra fyrirtækja á Austurlandi sem hafa mikinn áhuga á þróun skólastarfsins. Sam- skiptin hafa reynst vel því þarna er fólk sem sér gildi þess að nota menntastofnanir í þágu síns reksturs,“ segir Helga. Háskólanám innan starfsnámsskólanna Margrét Friðriksdóttir, skólameist- ari Menntaskólans í Kópavogi, segist mjög hlynnt hugmyndum háskóla- rektors um stofnun deilda á háskóla- stigi við starfsmenntaskólana. Hún Dýrara að halda úti starfsnámi en bóknámi bendir á að nú sæki yfir 90% af hveij- um árgangi nám í framhaldsskólum og það hljóti að þurfa að auka fjöl- breytni þess náms því ekki hyggi allir á háskólanám. Styttra framhaldsnám sem sniðið er að þörfum atvinnulífsins þurfi að vera fyrir hendi. Að sögn Margrétar er vísir að starfstengdu há- skólanámi á ferðamála- “sviði Menntaskólans í Kópavogi. Menntun leiðsögumanna sem þar fer fram krefjist til dæmis góðrar tungumálakunnáttu og al- mennrar undirstöðumenntunar. Hún sér fyrir sér að starfsnám á háskóla- stigi megi einnig tengja námi við nýtt hótel- og matvælasvið skólans. „Byggð hefur verið mjög glæsileg aðstaða fyrir hótel- og matvælagrein- ar sem er skóli á landsvísu og býður upp á menntun í fjórum lögbundnum iðngreinum. Þar hyggjumst við líka bjóða upp á styttra starfsnám á starfs- menntabrautum svo sem fyrir hótel- þjónustu, gestamóttöku, smurbrauð, fískiðn og skyndirétti," segir Margrét. Stærstur hluti nemenda skólans sækir bóknám til stúdentsprófs. Á bóknámssviði er boðið upp á styttra starfsnám á skrifstofubraut, nám sem skólinn hefur mótað en hefur síðan verið lagað að þörfum atvinnufyrir- tækja eftir ábendingum. Margrét seg- ir það hafa farið vaxandi að nemend- ur ljúki stúdentsprófi áður en þeir hefji verknám. „Það væri æskilegast ef nemendur áttuðu sig á því fyrr hvert hugur þeirra stefnir. Það er ýmislegt sem veldur þessu. Bæði er íslenskt þjóðfélag svolítið upptekið af því að allir hafi stúdentspróf og svo hefur verið mikil aðsókn nemenda í að komast á samninga í löggiltum iðngreinum og það tekst kannski ekki fyrr en þeir eru orðnir 18-19 ára. Á meðan þau bíða eftir að komast á samning kjósa þau þá almennu menntun sem stúdentsprófið er,“ seg- ir Margrét. Mikil uppbygging síðustu árin Hún segir uppbyggingu á aðstöðu fyrir starfsmenntun og iðnnám hafa verið mikla á síðustu 2-3 árum og nefnir sem dæmi Borgarholtsskóla og nýtt hús hótel- og matvælasviðs í Kópavogi. „Mjög hefur verið hugað að málefnum starfsnáms og iðn- menntunar og í nýjum framhalds- skólalögum er kveðið á um verka- skiptingu skólanna sem ég er mjög hlynnt. Skólarnir hafa umsjón með ákveðnum sviðum sem leiðir til mark- vissara og skipulagðara náms,“ segir Margrét. Hún segir þetta einn lið í því að fjölga nemendum í starfsnámi, þess sé þegar farið að gæta við Mennta- skólann í Kópavogi. „Það þarf líka að leiðbeina nemendum með nám á þessum sviðum. Ég er ekki að kasta rýrð á stúdentsprófið þegar ég segi að við hömpum því mjög á kostnað starfsnáms. Einfaldasta leiðin fyrir nemendur er að sækja menntun til stúdentsprófs, það krefst ekki svo mikillar umhugsunar eða ákvarðana- töku að fara með straumnum," segir Margrét. „Hlutirnir gerast ekki á ein- um degi, það þarf áfram að vinna vel í þessum málum. Ákveðinn ---------- grunnur hefur verið lagður svo við erum kannski betur í stakk búin til að reka áróð- ur fyrir starfsnámi." Sérhæfing starfsnáms- skóla til bóta Lárus H. Bjarnason, aðstoðarskóla- meistari í Borgarholtsskóla, leggur áherslu á samstarf starfsnámsbrauta við atvinnulífið og möguleika starf- andi fólks á að leita til skólans með eftirmenntun sem auðveldi því að fylgjast með þróun í viðkomandi fagi. Hann telur skýrari verkaskiptingu og sérhæfingu starfsnámsskóla til bóta. Borgarholtsskóli fer með kennslu málmiðngreina og bílgreinanáms auk þess sem skólinn er hverfisskóli bók- náms á framhaldsstigi. Nemendum skólans fjölgar ört, á fyrsta skólaárinu nú í vetur voru 400 nemendur við skólann en fullbyggður mun skólinn taka við 1.000 nemendum. Bílgreina- nám er mjög eftirsótt og innan þess stendur nú yfir tilraun með samstarf við atvinnulífið í gegnum Fræðslumið- stöð bílgreina sem er til húsa í skólan- um. Lárus telur mikilvægt að þróa nýjar námsleiðir í framhaldsskólum og tekur dæmi af nýjum 2 ára starfs- námsbrautum, verslunarbraut og fé- lagsþjónustubraut. „Styttra starfs- námi mæta stundum hindranir ákveð- inna starfsgreina sem telja að námið skarist á við starfssvið fólks sem á að baki lengra nám í þessum greinum með lögvörðum starfsréttindum," seg- ir Lárus. Hann tekur undir með þeim sem segja að meiri fjölbreytni þurfí að gæta í starfsnámi. „Einhæft atvinnulíf er ákveðið vandamál hér á landi, spum eftir fólki í iðnaðarstörf sem krefjast þekkingar á hátækni hefur ekki verið svo mikil. Þetta kann m.a. að vera ástæða þess hversu lítið fólk sækir í námið.“ Láms bendir á að stundum sé það svo að nýir valkostir í menntun skapi þörf á vinnumarkaðinum og tek- ur sem dæmi menntun sjúkraliða sem ekki var talin mikil þörf fyrir áður en menntun þeirra hófst. Framboð náms geti með þessu móti átt þátt í þróun- inni í atvinnulífinu. Láms segir þó einn nýjan skóla eins og Borgarholtsskóla ekki geta breytt hugarfari þjóðarinnar til starfsnáms. Starfsmenntun færð á háskólastig Jón Torfi Jónasson, prófessor í upp- eldis- og kennslufræði við Háskóla íslands, hefur talsvert fjallað um til- högun starfsnáms. Hann segir skoðun sína þá að flytja beri allt starfsnám á háskólastig. Bjóða eigi upp á sér- menntun í ákveðinni starfsgrein að loknu almennu bóknámi til stúdents- prófs. Styður hann skoðun sína m.a. þeim rökum að svo virðist sem nem- endur sjálfir kjósi að haga námi sínu á þennan hátt. „Margir hafa haldið því fram að skynsamlegt sé að efla starfsmenntun á framhaldsskólastig- inu og laða unglinga til að leggja stund á hana en ég er nokkuð viss um að það á ekki eftir að gerast,“ segir Jón Torfi. „Ég hef áður talið eðlilegustu leið- ina að hafa starfsnám innan fram- haldsskólanna, rétt eins og þeir sem eru í forsvari fyrir skólana hafa gert en nemendur virðast ekki vera þeirrar skoðunar þar sem þeir sækja í bók- legt nám á framhaldsskólastigi. Sag- an sýnir okkur að nemendur hafa býsna oft rétt fyrir sér,“ segir Jón Torfi. Hann bendir á að starfsmenntun á háskólastigi takmarki oftast frjölda nemenda með inntökuprófi. „Hluti vandans er sá að fólki stendur ekki til boða í nægilega ríkum mæli starfs- nám á háskólastigi. Ástandið mun batna til muna með skólum eins og tilvonandi Verslun- arháskóla enda sýnir að- sókn í nám við Háskólann á Akureyri og Samvinnu háskólann á Bifröst að þörfin fyrir slíkt nám er mikil.“ Hann segir þróunina í heiminum benda til þess að það eigi eftir að mæða mest á tölvu- og tungumála- kunnáttu fólks í framtíðinni og að samkvæmt því ætti að vera skynsam legt fyrir ungt fólk að ljúka fyrst almennu stúdentsprófi. „Ungt fólk sér lífið i óljósum hyllingum næstu 40 árin en atvinnulífið hugsar ein ungis um næstu 2-3 árin.“ Nauðsyná viðhorfs- breytingu til starfsnáms íslendingar fluttu mörg mál á þingi Evrópuráðsins Evrópuhöllin í Strassborg þar sem þing Evrópuráðsins er haldið. Þátttaka A-Evrópu- landa mun byggjast á lýðræðisþróun þar Strassborg. Morgunblaðið. KJARNORKUMAL og önn- ur orkumál voru meðal aðalviðfangsefna Evr- ópuráðsþingsins í Strassborg í liðinni viku og tóku íslenskir þingmenn þátt í umræð- unum. Þeir töluðu í fleiri málum: um Evrópubankann, ástand mann- réttindamála í Bosníu-Herzegóvínu og upplýsingabyltingn eða hlut- verk ríkisins í framþróun tækni og vísinda. Formaður íslensku sendi- nefndarinnar, Lára Margrét Ragn- arsdóttir, kveðst ánægð með sinn litla hóp, miklu varði að láta rödd sína heyrast með þeim hætti að máli skipti. Þriggja manna sendi- nefnd frá íslandi geti með mikilli vinnu notið virðingar og haft áhrif næstum eins og 18 manna nefndir Breta eða Rússa. Umfang starfsins hafi aukist gríðarlega síðustu ár, eftir að ráðið stækkaði um helming vegna inngöngu Austur-Evrópu- ríkja, en spennan sem ríkti þá í fyrstu sé liðin hjá og meira komist í verk. Þing Evrópuráðsins er hinn stóri vettvangur pólitískrar umræðu í Evrópu. Fjörutíu lönd eiga aðild að ráðinu, en í Evrópusambandinu, sem einnig heldur þingmannafundi í Strassborg, eru fimmtán lönd. Skýrslur sem Evrópuráðsþingið samþykkir fara fyrir ráðherra- nefnd, sem hrindir þeim stundum í framkvæmd. Samþykki Evrópu- ráðsþingsins er svo vitanlega styrk- ur þeim þingmönnum sem kjósa að taka mál upp á heimavelli. Is- land hefur öðru hveiju beinna hagsmuna að gæta, til dæmis í orkumálum og fiskveiðimálum, en Lára Margrét segir mikilvægt að einskorða sig ekki við þessa mála- flokka heldur taka afstöðu til ann- arra mála líka, til þess einfaldlega að mark sé tekið á málflutningnum. Nýju löndin komist ekki upp með hvaðeina Ákveðið var á þinginu nú að senda hóp 40 þingmanna úr Evr- ópuráðinu ásamt fulltrúum ESB og ÖSE til kosningaeftirlits í Albaníu, sem er eitt þeirra landa sem óskað hafa inngöngu í ráðið. Ljóst þykir að skilyrðum um lýðræðislegar kosningar verði ekki fullnægt, en meta þurfi stöðuna til að ákveða meðhöndlun aðildarumsóknarinn- ar. Lára Margrét segir að eftirlits- nefndir verði einnig sendar öðru hverju til ríkja sem þegar eru kom- in í ráðið og rætt sé um reglur til að refsa eða leggja hömlur á áhrif þeirra landa sem ekki standast kröfur um mannréttindi og lýð- ræði. Skerðing eða afnám atkvæð- isréttar hafi verið nefnt, en ákvörð- un ekki tekin. Lokaumræða um kjarnorkuslys- ið í Tsjernobyl fór fram á þinginu og fékk Lára Margrét henni flýtt til að örugg afgreiðsla næðist. „I Iok þingfunda er oft komið los á fólk og þetta mikilvæga mál var sett á dagskrá föstudagsins var. Ég var hrædd um að það lenti út- undan og afar fegin því að umræðu lauk á þriðjudeginum. Þar voru staðfestar niðurstöður nefndar sem ég hafði orð fyrir 1993, um afleið- ingar slyssins, einkum skjaldkirtils- krabbamein í börnum og andlega * áþján á svæðinu. Alþjóða kjarn- orkumálastofnunin hafði andmæit skýrslunni 1993, en nú hlaut hún staðfestingu og jafnframt var vilja lýst til að auka aðstoð við fórn- arlömb og rannsóknir á afleiðing- unum.“ Hætt við að vísa Tsjernobyl til ESB „Til stóð að vísa Tsjernobyl til Evrópusambandsins,“ segir Lára Margrét, „en þar fékk ég sam- þykkta breytingartillögu, einkum vegna þess að löndin 15 í ESB hafa ekki beinna hagsmuna að gæta. Evrópuráðsþingið fjallar því áfram um afleiðingar slyssins og mælist til samstarfs þeirra sem að koma, það var önnur tillaga frá íslensku nefndinni. Þetta var því áfangasig- ur og hann tengist að mér virðist almennri hreyfingu í þá átt að fyr- irbyggja slík mengunarslys." Kafli í þessa veru var í skýrslu um orkusamning Evrópu, sem Tómas Ingi Olrich kynnti og fékk samþykkta á þinginu og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu. Island er ekki meðal 20 landa sem þegar hafa undirritað samninginn, sem miðar að því að skapa fjárfesting- um lagalegan grundvöll og stuðla að efnahagsuppbyggingu, ekki síst í Austur-Evrópu. Öruggir orku- gjafar, eins og vatn, koma við sögu og aðgerðir til að koma reglu á orkuvinnslu sem hætta kann að stafa af. Tómasi var falið að semja skýrslu um Evrópustefnu í orku- málum. Jafnframt mun hann fjalla um skýrslu landbúnaðarnefndar ráðsins um svokallaða sjálfbæra nýtingu auðlinda sjávar, fiskveiðar og það annað sem ekki gengur á forðann heldur miðar að jafnvægi. Lára Margrét til Bosníu Ræða þriðja íslendingsins, Hjálmars Jónssonar, tengdist einn- ig kjarnorku. í umræðum efna- hagsnefndar fagnaði hann aðgerð- um Evrópubankans (EBRD) til að treysta öryggi kjarnorkuvera í Austur-Evrópu. í þeim hluta álf- unnar sæist vel hve efnahagur réði miklu um lýðræði og mann- réttindi. Hjálmar hvatti til nánari samvinnu bankans við Evrópuráð- ið, löggjafa sem oft legði grunn að fjárfestingum og efnahagsum- bótum. Á Evrópuráðsþinginu var einnig rætt um Bosniu-Herzegóvínu og . var Lára Margrét eini þingmaður Norðurlanda til að tala. Hún mælti með því að alþjóðaherinn (SFOR) yrði áfram í landinu og tók undir það almenna sjónarmið að friður kæmist ekki á meðan stríðsglæpa- menn gengju lausir þar. Lára Mar- grét fer fyrir Evrópuráðið í kosn- ingaeftirlit í Bosníu í september. •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.