Morgunblaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 02.07.1997, Blaðsíða 52
www.mbl.is/boltinn 52 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP Góður boltl! I Morgunblaðið/Ragnheiður Kristjánsdóttir „ENGAR vælumyndir, takk!“ Ég mæli með Skapið mót- ar smekkinn Björn Blöndal blaðamaður á Austra Svartur hlébarði laus á ný ► ELMER „Geronimo“ Pratt, fyrrverandi leiðtogi Black Panther samtak- anna, er ekki fyrr kominn úr fangelsi en kvikmynda- gerðarmenn eru farnir að biðla til hans til þess að fá réttinn til að kvikmynda sögu hans. Pratt, sem hef- ur haldið fram sakleysi sínu frá upphafi, hefur setið í fangelsi í 25 ár, en hann var dæmdur fyrir rán og morð sem var fram- ið árið 1968. Pratt og lögfræðingur hans síðustu 23 árin, Stu- art Hanlon, hafa fengið sér til aðstoðar Jonnie L. Coc- hran til þess að semja ekki af sér, en Pratt er að skoða bæði möguleikana á að selja sögu sína í bókar- og kvikmyndaformi. Haft var eftir Cochran í Los Ange- les Times að 10 til 12 fyrir- spurnir hafi borist frá vel- þekktum Hollywood leik- stjórum, bæði hvítum og svörtum. Saga Pratt er ævintýra- legri en nokkur skáldskap- ur. Hann barðist í Víetnam og var margheiðraður fyr- ir frammistöðu sína, en starfsemi hans með Black Panther samtökunum kom honum á óvinsældarlista stjórnvalda. Árið 1972 var hann dæmdur í fangelsi fyrir morðið á Caroline Olsen. Pratt hefur fjórum sinnum reynt að fá dóminn ógildan, en það var fyrst nú í byrjun júní að dómari ákvað að mál hans skyldi endurskoðað í ljósi nýrra upplýsinga. Þessar upplýs- ingar benda til þess að aðalvitnið gegn Pratt hafi verið á mála hjá FBI og logið í vitnastúku. Hvort mál Pratt fær Hollywood-endi er enn óvíst en væntanleg kvik- mynd getur að minnsta kosti endað vel sem ástar- saga. Pratt og kona hans, Ashaki, sem skildu meðan hann sat inni, tilkynntu eftir að hann var látinn laus gegn tryggingu að þau ætluðu að gifta sig aftur. BJÖRN segir að hann hafi horft mikið á vídeó síðan hann komst í kynni við slíkt tæki 10 ára gamall. „Maður notar þetta jafnt til slökunar og afþreyingar, smekkurinn mótast af því ástandi sem maður er í hveiju sinni. Ég vil t.d. ekki að það sé talað of mikið þegar ég er þreyttur, þá eru það myndir, stútfullar af tilgangs- lausu ofbeldi sem blíva. En sem bet- ur fer er ég ekki alltaf þreyttur og þá er mjög mismunandi hvað verður fyrir valinu. Það eru bara fáein „tabú“ í gangi, Barbra Streisand og einhveijar vælumyndir. Þessar myndir sem ég nefni hér á eftir eru ekki endilega uppáhaldsmyndirnar mínar, enda efast ég um að geta nefnt þær, en þetta eru allt snilldar- verk og ekki orð um það meir.“ Harry hvað? Who’s Harry Crumb? - 1989. Leikstjóri: Paul Flaherty. John Candy, Jeffrey Jones, Annie Potts. „Þýðingin ein og sér er næg ástæða til að taka þessa öskrandi snilld með hinum ægifagra, en því miður dauða, John Candy. Hann ieikur einkaspæj- ara, sem kemur úr mikilli einkaspæj- arafjölskyldu, en er kannski ekki sá alglúrnasti. Fallegur feitur maður í alls konar dulargervum og vand- ræðalegum aðstæðum; getur ekki klikkað." Eftirfarinn Stalker - 1979 Leikstjóri: Andrei Tarkovsky. Alex- ander Kaidanovsky, Nikolai Grinko, Anatoli Solonitsin og Alice Fri- endlich. „Andrei Tarkovsky gerði þessa mynd sem ég sá fyrst 10 ára gamall á kvikmyndahátíð og varð gjörsamlega heillaður. Ég sá hana aftur mörgum árum seinna á mynd- bandi og varð ekki fyrir vonbrigðum. Þrír karlar fara inn á svæði þar sem loftsteinn á að hafa fallið, til að leita að einhverjum vitsmunum úr geimn- um. Senurnar eru gjörsamlega magnaðar, en það er betra að vera ekki mjög órólegur þegar þessi mynd er leigð." Hinir villtu The Wild Bunch - 1969 Leikstjóri: Sam Pekinpah. William Holden, Ernest Borgnine, Robert Ryan, Edmond O’Brian, Warren Oat- es, Ben Johnson og Jaime Sanchez. „Tímamótaverk meistara Sams Pek- inpah. Nokkrir gæjar sem eru komn- ir af léttasta skeiði lenda í vondum málum enda að sjálfsögðu allir dauð- ir. Fyrsti alvöru ofbeldisvestrinn, ruddi brautina fyrir nýjar víddir í þessum geira kvikmyndanna. Will- iam Holden, Warren Oates, Ernest Borgnine, Ben Johnson og fleiri góð- ir Pekinpah-leikarar í góðu stuði. (Vantar að vísu Kris, en hann hefur bara ekki verið orðinn nógu gamall.)“ Ben Húr Ben-Hur -1959 Leikstjóri: William Wyler. Charlton Heston, Jack Hawkins, Stephen Boyd og Haya Harareet. „Það ætti tvímælalaust að varða við lög að hafa ekki séð þessa stórmynd með Charlton Heston í hlutverki ríks gyð- ings sem lendir í hremmingum á tím- um Jesú Krists og Pontíusar Pílatus- ar. Krossfesting Krists, hestvagna- kappasktur, holdssjúkir galeiðuþræl- ar og allt sem nöfnum tjáir að nefna prýða þessa ellefu Óskara mynd, sem William Wyler leikstýrði. Þetta er “stórmyndin“.“ Morgunblaðið/Ásdís VALGERÐUR er hress að vanda. Alltaf eitt- hvað nýtt að gerast ► VALGERÐUR Matthíasdóttir, einn af stofnendum Stöðvar 2, er komin aftur þangað til starfa eftir sex ára hlé. „Mér finnst mjög skemmtilegt að vera komin aftur. Á sínum tíma var ég i fyrsta fréttamagasíninu 19:19, sem er aðeins með öðru sniði í dag. Nú er ég einn umsjón- armanna Islands í dag, þar sem fjallað er um hlutina út frá öðrum sjónarhornum en fréttir," sagði Valgerður í samtali við Morgun- blaðið. „Við stofnun Stöðvarinnar byrj- aði ég á því að hanna allt hús- næðið. Síðan var ég i sljórninni, og vann mjög náið með Jóni Ótt- ari, þar sem ég bjó með honum á þeim tíma. Ég byggði upp lista- deildina sem snýr að dagskrár- gerðinni, og fór siðan út í dag- skrárgerð sjálf. Ég hætti á Stöð 2 á sínum tíma í beinu framhaldi af þeim breyt- ingum sem þá urðu á Stöðinni, þegar stofnendur fyrirtækisins fóru út úr því, þá fannst mér líka kominn tími til þess að breyta til og sagði upp. Það er sérstaklega gaman að vera komin aftur, þar sem ég þekki þetta allt svo vel, bæði starfsfólkið og innréttingarnar. Þótt ýmislegt nýtt fólk sé komið til starfa, þá eru hér enn mjög margir sem ég vann með á árunum 1986-1991.Svo er auðvitað yndis- legt að vinna með Páli Magnús- syni sem ég var með í að ráða á sinum tíma. Ég hef ekki verið í magasínþætti af þessu tagi í all- langan tíma, en í gegnum árin hefur verið mjög nauðsynlegt fyr- ir mig að endurnýja mig og breyta til. Þannig verða verkefnin skap- andi og skemmtileg, og hér á Stöð 2 er alltaf eitthvað nýtt að ger- ast,“ sagði Valgerður að lokum. Útiskilti Vatnsheld og vindþolin Allar stærðir og gerðir Margir litir - gott verð JbOfnasmiðlan Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100 Verksmiðja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100 Á réttum kili ► ROBERT Downey jr. vinnur nú að þvi að koma leikferli sínum aftur á réttan kjöl. Þijár nýjar kvikmyndir eru væntanlegar með kappanum, „The Gingerbread Man“, sem Robert Altman leikstýr- ir, „One Night Stand“, sem Mike Figgis leikstýrir, og „Two Girls and A Guy“, sem James Toback leikstýrir. Downey er nú á töku- stað fyrir „U.S. Marshals", sem Warner Bros. framleiðir. í „Two Girls and A Guy“ leikur Downey á móti Natashu Wagner og Heather Graham. Mótleikkonur hans eru kannski ekki vel þekktar en það er líklega að verða breyting á því, að minnsta kosti hvað varð- ar Wagner. Hún er að leika í „First Love, Last Rites“ og hefur skrifað undir samning um að leika aðal- kvenhlutverkið í „Revenant", sem er vampírusaga skrifuð af Matt- hew Bright. ROBERT Downey jr. einbeitir sér að vinnunni um þessar mundir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.