Morgunblaðið - 09.07.1997, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 7
FRÉTTIR
VR hefur
gert fjölda
fyrirtækja-
samninga
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur hefur lokið gerð starfs-
greina- og fyrirtækjasamninga við
þrettán fyrirtæki og viðræður
standa yfir við sex fyrirtæki um
gerð slíkra samninga.
í VR blaðinu sem er nýkomið út
segir að starfsgreina- og fyrir-
tækjasamningar verði fyrirsjáan-
lega helsta verkefni samninga-
nefnda og starfsmanna Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur á næstu
mánuðum en fyrirtækjasamningar
hafa um langt skeið verið eitt af
baráttumálum félagsins.
Lokið er gerð fyrirtækjasamn-
inga við eftirtalin fyrirtæki: Fjöl-
miðlun hf. vegna félagsmanna í VR
á Bylgjunni og Stöð 2, Vöruveltuna
hf. vegna starfsfólks 10/11 verslan-
anna, Regn ehf., Dressman á ís-
landi ehf., Ingvar Helgason hf.,
Bónus sf., Flugfélag íslands hf. og
Flugleiðir hf., Bifreiðastöðvarnar
Hreyfil, BSR og Bæjarleiðir, Bón-
usvídeo ehf., Hagkaup á Eiðistorgi,
Áburðarverksmiðjuna og Sements-
verksmiðjuna. Viðræður standa yfir
við Fálkann hf., Kreditkort hf.,
Osta- og smjörsöluna sf., Sam-
vinnuferðir/Landsýn hf., Neyðarlín-
una og Útfararstofu kirkjugarð-
anna.
I fullan gang í haust
Þá hafa verið gerðir starfsgreina-
samningar við Félag íslenskra stór-
kaupmanna vegna starfsfólks í
heildverslunum, VSI og Vinnumála-
sambandið fyrir starfsfólk sölu:
turna, Apót.ekarafélagið og VSÍ
fyrir starfsfólk apóteka og Sam:
band veitinga- og gistihúsa og VSÍ
fyrir starfsfólk í gestamóttöku.
Gunnar Páll Pálsson, forstöðu-
maður fjármálasviðs VR, segir fé-
lagið hafa að undanförnu mest unn-
ið að gerð fyrirtækjasamninga við
fyrirtæki sem standa utan samtaka
vinnuveitenda. Kvaðst hann gera
ráð fyrir að vinna við starfsgreina-
og fyrirtækjasamninga færi í fullan
gang í haust.
-----♦ ♦ ♦----
Grunnskólar í
Reykjavík og
Kópavogi
Misjafn
tímafjöldi
í GRUNNSKÓLUM í Reykjavík eru
kennslustundir yngstu barnanna
ekki eins margar og í Kópavogi,
en ákveðið hefur verið að bæta við
kennslustundum hjá yngstu nem-
endunum í Kópavogi næsta vetur
og verða kenndar 30 stundir á viku,
sem er eins og kveðið er á um í
grunnskólalögunum sem taka að
fullu gildi 2001.
Kennslustundirnar hjá eldri
bekkjardeildum eru hins vegar
nokkuð fleiri í grunnskólum Reykja:
víkurborgar en í Kópavogi. „í
yngstu bekkjardeildunum kennum
við samkvæmt lágmarki grunn-
skólalaganna í flestum bekkjum
nema 4. bekk en þar verða kenndar
29 stundir í stað 28 eins og gild:
andi grunnskólalög segja til um. í
7. bekk komum við til með að kenna
36 stundir en þar er lágmarkið nú
34 stundir," sagði Ólafur Darri
Andrason hjá fræðslumiðstöð
Reykjavíkur. „Hjá eldri nemendum
grunnskólans kennum við sam-
kvæmt núgildandi gunnskólalögum
nema í 8. bekk þar sem við kennum
37 stundir í stað 35 sem er lágmark-
ið núna.“
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Blátt lón
við Mývatn
BLÍÐVIÐRIÐ sem verið hefur á
norðanverðu landinu gefur ástæðu
til að ieita hentugra staða til bað-
ferða. Ferðalangar er leið áttu um
Mývatnssveit á dögunum fundu
ákjósanlegan stað til að sóla sig
og fara í bað í leiðinni. Við Kísiliðj-
una við Mývatn er heiðblátt lón
með heitu vatni sem gott er að _
sóla sig við á góðviðrisdögum. Á
viðvörunarskilti við lónið eru varn-
aðarorð tii baðgesta, þar segir að
þeir baði sig á eigin ábyrgð í lón-
inu vegna þess að hitastig getur
verið breytilegt og lónið misdjúpt.
Tilraunadúkkur hafa þúsund líf
- fjöLskyldan þín aðeins eitt
Öryggi farþega og ökumanns er lykilatriði í hönnun og smíði á
nýrri Toyota Corolla - því fengu tilraunadúkkur Toyota að finna
fyrir í ótal árekstramælingum.
Toyota Corolla er ein öruggasta bifreið sem völ er á í sínum
^ stærðarflokki enda setur Toyota sér mun strangari reglur
um öryggisbúnað en gildandi öryggisstaölar kveóa
Z) á um. Æ
Toyota Corolla er öruggt val
- hvernig sem á það er litið!
Meðal öryggisatriða má nefna ABS hemlakerfi*,
loftpúða fyrir ökumann og farþega í framsæti,
tvöfalda styrktarbita í hurðum og þriggja punkta
öryggisbelti fyrir alla farþega bílsins.
v® TOYOTA
rolla bifreiðum n