Morgunblaðið - 09.07.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 9
FRETTIR
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson.
VÆN silungahrúga úr Arnarvatni stóra.
Hár með-
alþungi í
Þverá og
Kjarrá
ÞÓTT smálaxagöngur séu að glæðast
mjög í ýmsum ám suðvestan- og
vestanlands og örli aðeins á þeim
fyrir norðan, þá er það stórlax sem
ber uppi aflann í Þverá og Kjarrá.
Undir kvöld á mánudaginn voru
komnir 450 laxar á land úr ánum.
Að sögn Jóns Ólafssonar, eins
leigutaka ánna, var meðalþungi 40
iaxa sem veiddust í ánum á tveimur
vöktum um helgina 8,21 pund. Að-
eins 28 laxar af heildaraflanum voru
4 punda eða smærri og aðeins tveir
þeirra voru 3 pund. Þetta sýnir að
smálaxinn er vænn og mjög algeng
stærð á stórlaxinum er 12 pund. Stór-
laxagöngur hafa víða brugðist en
augljóslega ekki í Þverá og Kjarrá.
Bleikjan að ganga í Víðidalsá
„Það veiddust 100 bleikjur tíu
fyrstu veiðidagana á silungasvæðinu
í Víðidalsá og það er betri byijun
en við áttum von á. Hún byrjar að
ganga snemma þetta sumarið, það
er ljóst,“ sagði Ragnar Gunnlaugs-
son á Bakka í Víðidal í samtali við
blaðið í gærmorgun. Hann sagði að
einn daginn hefðu 33 bleikjur veiðst
á tvær stangir. „Þetta er mest 1-3
punda bleikja, en ein 5 punda var
stærst til þessa. Þá veiddist einn lax
í fyrradag," bætti Ragnar við.
Mokveiði í Arnarvatni stóra
Margir hafa fengið ljómandi veiði
í Arnarvatni stóra í sumar og eru
dæmi um að tvær stangir hafi haldið
af heiðinni með 150 fiska eftir þriggja
daga veiði. Fiskur er af góðri stærð
og hefur farið stækkandi þar sem
veiðihópur í Vestur-Húnavatnssýslu,
Dísin, hefur grisjað vatnið á hveiju
sumri síðustu árin. Silungur sem
veiddur er í grisjuninni er flakaður
og frystur og síðan seldur ýmsum
aðilum innan héraðsins og utan.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
hefur bætt enn einu silungsveiði-
svæðinu við, frá Sprænutanga við
Þingvallavatn, niður allt Efra-Sog
og út í Úlfljótsvatn að gömlum far-
vegi Kaldár, skammt neðan brúar
við Steingrímsstöð.
Þá hefur SVFR einnig tekið í
umboðssölu lausa daga á miðsvæði
og efsta svæði Langár á Mýrum.
Er það í samvinnu við leigutakann,
Ingva Hrafn Jónsson.
Útsalan
er hafin
20-50 %
afsldttur
\
i
t .
4
&iss>a -tískuhús
Hverfísgötu 52, sími562 5110
byltingarkennda
litalínan
paroligaHeiTera
Kynning
Á morgun
frákl. 13 - 18.
NANA
Hólagarði
Dugguvogi 2-104 Reykjavík
Lokað í dag
Útsalan hefst á morgun
Polarn&Pyret
Vandaður kven- og barnafatnaður.
Kringlunni, sími 5681822
3.969-
Tilboð
SÖKKAR
FYLGJA í KAUPBÆTi
Fleiri en bflstjórar
kunna ab meta þessa
einstöku sandala...
Einstaklega mjúkir og þægilegir sandalar sem bæði bílstjórar og aðrir
athafnamenn kunna svo sannarlega að meta. Fást í dökkbrúnu leðri.
Stærðir 39-47.
Góðir sumarsokkar úr 65% bómull og 35% polyamid,
fylgja hverju pari í kaupbæti, til 19. júli.
Grandagarði 2, Rvík, simi 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-14
ENDURSKIPULAGNING SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
LOKAUTKALL A MORGUN
Á morgun, fimmtudaginn 10. júlí, er lokainnlausn nokkurra flokka spariskírteina
ríkissjóðs. Eigendur þessara skírteina, sem eru ekki búnir að skipta yfir í ný
spariskírteini, geta nú tryggt sér góð skiptikjör á markflokkum spariskírteina
til 16. júlí.
Spariskírteini þessi bera enga vexti eða
verðbætur eftir lokagjalddaga þeirra á
morgun. Hafðu samband strax í dag við
Lánasýslu ríkisins og tryggðu þér ný
spariskírteini í markflokkum til 5 eða 8 ára
í stað þeirra gömlu.
Lokagjalddagi
Flokkur
10. 07. 1997 SP1989 II8D
10. 07. 1997 SP1985 IA
10. 07. 1997 SP1985 IB
10.07.1997 SP1986 I3A
10. 07. 1997 SP1987 I2A
10. 07. 1997 SP1987 I4A
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð, sími S62 6040
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA • SALA • ÍNNLAUSN • ASKRIFT