Morgunblaðið - 09.07.1997, Síða 25

Morgunblaðið - 09.07.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ1997 25 --------------------------1' : þyngdarlinsan 0024+1654. Bláu unandi myndir af einni og sömu hópinn. Ljósmyndin er tekin með laukanum. Sjónaukinn Eins og fram hefur komið er Norræni sjónaukinn staðsettur á eynni La Palma, sem er ein af Kanaríeyjum. Þar er hann í góðum félagsskap margra annarra evr- ópskra sjónauka í 2.400 m hæð yfir sjávarmáli á svokölluðum Strákakletti (Roque de los Muchac- hos), sem er hluti af risastóru eld- ijalli. Veðurfar og aðrar aðstæður á fjallinu eru einstaklega hagstæðar til stjörnuathugana og er það meginástæða þess að norrænir stjörnufræðingar og evrópskir starfsbræður þeirra hafa komið þar fyrir sjónaukum til rannsókna á norðurhveli himins. Auk sjónauk- anna eru á fjallinu verkstæði og tölvuver sem og margs konar þjón- ustuaðstaða fyrir fast starfslið og gestkomandi stjarnvísindamenn. Norræni sjónaukinn er svokallað- ur spegilsjónauki, sem þýðir ein- faldlega að mikilvægasti hluti hans er stór holspegill. Með aðstoð minni hjálparspegils er ljósi frá fjarlægum stjarnfræðilegum fyrirbærum beint að brennipunkti þar sem hægt er að koma fyrir sérstökum myndavél- um og öðrum nákvæmum tækjum til ljósmælinga. Þvermál aðalspeg- ilsins er 2,56 metrar og brennivídd hans rúmir 28 metrar. Speglum og mælitækjum er komið fyrir í stífri grind sem fest er við þunga stæðu. Sjónaukanum má snúa um tvo ása þannig að hægt er að beina honum að hvaða punkti sem er á stjörnu- himninum. Þyngd aðalspegils er tæp tvö tonn en í heild vegur sjón- aukinn með stæðu og öllu saman um 43 tonn. Undir sjönaukanum er svo tölvuvædd stjórnstöð þar sem stjörnufræðingar og tæknimenn fylgjast með mælingum. Til að verja sjónaukann og stjómstöðina fyrir veðri og vindum er þeim komið fyr- ir í sívalningslaga tumi með hreyf- anlegu hvolfþaki, og þegar mæling- ar fara fram er sjónaukanum beint út um þar til gerða rauf á þakinu. Það er samdóma álit sérfræðinga að Norræni sjónaukinn sé einn sá besti í heimi, einkum hvað varðar skeipu og myndgæði. Með því að beita nýjustu tækni, sem meðal ann- ars leiðréttir mælingar jafnóðum fyrir truflunum vegna óróa í and- rúmsloftinu, hefur norrænum stjam- vísindamönnum tekist að smíða tæki, sem er mun öflugra en marg- ir stærri og þekktari sjónaukar af eldri gerð. Til að forðast misskilning er þó rétt að taka fram að til eru sjónaukar sem eru stærri en sá nor- ræni og einnig byggja á háþróaðri nútímatækni. Og í smíðum eða á hönnunarstigi eru sannkallaðir risa- sjónaukar, sem vafalaust munu taka fram öllum þeim sjónaukum sem nú em í notkun. En slíkur er marg- breytileiki himingeimsins að hin nýju tæki ná ekki að anna nema örlitlum hluta þeirra athugana sem nauðsyn- legar eru í nútímarannsóknum í stjömufræði. Norræni sjónaukinn mun því halda áfram að vera í fremstu röð á þeim vettvangi um ófyrirsjáanlega framtíð. Þyngdarlinsur og íslensk verkefni Samkvæmt almennu afstæðis- kenningunni hefur allt efni áhrif á ljós með þyngd sinni. Þannig geta til dæmis stjörnur, svarthol, vetrar- brautir og hópar vetrarbrauta sveigt ljósgeisla af upphaflegri braut og bjagað, magnað og klofið myndir af fjarlægari ljósuppsprett- um, rétt eins og um venjulegar lins- ur væri að ræða. Slík fyrirbæri eru því nefnd þyngdarlinsur. Hópur vetrarbrauta getur til dæmis mótað og magnað tvær eða fleiri myndir af daufri vetrarbraut, sem er hand- an við hópinn. Myndirnar eru venju- lega ílangar og stundum boga- dregnar eins og sjá má á ljósmynd- inni af vetrarbrautahópnum 0024+ 1654 hér á síðunni (tölurnar í nafni hópsins lýsa staðsetningu hans á stjörnuhimninum). Þar sem mynd- irnar eru flestar stærri og bjartari en fyrirmyndin er ljóst að líta má á þyngdarlinsur sem eins konar stjörnusjónauka sjálfrar náttúrunn- ar. í augum stjarnvísindamanna eru þær því mikilvæg og kærkomin við- bót við venjulega jarðneska sjón- auka. Eftir að fyrsta þyngdarlinsan fannst árið 1979 hefur mikið verið unnið að rannsóknum á þessu fyrir- bæri og óhætt mun að fullyrða að þyngdarlinsustjömufræði sé nú sú undirgrein stjörnufræðinnar sem er í hvað örustum vexti. Þær þyngdarlinsur sem stjarn- fræðingar hafa uppgötvað eru jafnólíkar og þær eru margar. Ný- lega hafa til dæmis fundist vísbend- ingar um linsur í okkar eigin Vetr- arbraut, sem eru væntanlega dauf- ar dvergstjörnur eða risastórar reikistjömur. Linsurnar sem hér verða til umræðu eru þó mun stærri og fjarlægari, nefnilega stakar vetr- arbrautir og hópar þeirra. Myndirnar sem linsumar móta eru margvíslegar. Stundum er um tvær eða fleiri myndir að ræða af einni og sömu vetrarbraut eða dul- stirni. I örfáum tilvikum er linsan því sem næst nákvæmlega í sömu sjónlínu og fyrirmyndin og myndin er þá aðeins ein og nær hringlaga (svokallaður Einsteinshringur). Þá eru dæmi um linsur er sýna stakar myndir af mörgum vetrarbrautum. Einstaka sinnum má jafnvei sjá fleiri en eitt þessara afbrigða hjá einni og sömu linsunni. í sérhveiju tilviki gefa mælingar á linsuhrifum ekki aðeins upplýsingar um fyrir- myndina heldur einnig um linsuna sjálfa, massa hennar og dreifíngu efnisins. Þetta er sérlega mikilvægt þegar um hóp vetrarbrauta er að ræða og menn hafa áhuga á því að kanna hversu mikið er þar af hulduefni. Það er einmitt slík rann- sókn, sem fyrstu íslensku athugan- irnar á La Palma snúast um. Ef allt gengur að óskum fer fyrsta mælingin fram í október næstkomandi. Norræna sjónaukan- um verður þá beint að 0024+1654, vetrarbrautahópnum sem þegar hefur verið minnst á og sést á ljós- myndinni. Þessi stórfenglega þyngdarlinsa í stjörnumerkinu Fisk- unum fannst árið 1988 og er í um það bil fimm milljarða ljósára fjar- lægð. Ætlunin er að ljósmynda lins- una og nánasta umhverfi hennar og reyna þannig að sjá eins margar fjarlægari vetrarbrautir og mögu- legt er. Með samanburði við önnur svæði á hvelfingunni, þar sem linsu- hrifa gætir ekki, má sjá hvernig linsan bjagar og magnar myndirnar af hinum fjarlægu vetrarbrautum að baki. Til stendur að beita nýrri úrvinnsluaðferð, sem stjömufræð- ingar í Edinborg og Berkeley hafa þróað, og nota mæliniðurstöðurnar til að kortleggja efnisdreifinguna í linsunni. Síðan má reikna út hversu stór hluti linsunnar er fólginn í sýni- lega efninu í vetrarbrautahópnum. Það sem á vantar kemur þá frá ósýnilega hlutanum, hulduefninu. í dag er þetta ein af örfáum þekktum leiðum til að afla upplýsinga um hið furðulega hulduefni í hópum vetrarbrauta og þar með í alheimi. í þessu fyrsta rannsóknarverkefni munu íslendingar hafa samvinnu við stjarnvísindamenn í Kaup- mannahöfn, Ósló og Edinborg. Annað íslenskt linsuverkefni er nú á undirbúningsstigi og ef af mælingum verður fara þær í fyrsta lagi fram sumarið 1998. Um er að ræða tvö dulstirni, sem eru hlið við hlið í stjörnumerkinu Herkúlesi og eru með fjarlægustu fyrirbærum er sést hafa. Þau virðast álíka langt í burtu og eru því sem næst eins hvað varðar útgeislun og aðra eigin- leika. Það er því líklegt að þetta séu tvær myndir af einu og sama dulstirninu, mótaðar af þyngdar- linsu milli dulstirnisins og jarðar- innar. Vandinn er bara sá, að það er enga linsu að sjá á svæðinu. Ætlunin er að leita að linsunni og kortleggja efnisdreifmgu hennar. Þetta er flókið rannsóknarverkefni, sem mun reyna verulega á mæli- getu Norræna sjónaukans. Ef vel tekst til má hugsanlega sjá sveiflur í birtu myndanna tveggja, en almennt má búast við slíkum breytingum vegna hamfara í glóandi heitu efni á leið inn í risa- svartholið í miðju dulstirnisins. Ljósið frá myndunum berst til jarð- ar eftir mislöngum leiðum og þær breyta því birtu sinni á mismunandi tíma. Út frá tímamuninum má reikna svokallaðan Hubblesstuðul, sem er mælikvarði á núverandi þensluhraða alheims. Gildið á stuðl- inum setur einnig mörk á það hversu langur tími er liðinn frá Miklahvelli. Þessi snjalla aðferð byggir á hugmynd norska stjarneðl- isfræðingsins Sjurs Refsdals og hefur þann kost að vera óháð flest- um þeim óvissuþáttum sem fylgja öðrum aðferðum. Líkurnar á því að svona birtubreytingar sjáist í þessu ákveðna tilviki eru hins vegar ekki miklar, en aðferðin er nefnd hér í lokin til að undirstrika enn frekar hið mikilvæga hlutverk þyngdar- linsa í rannsóknum á eðli og þróun alheimsins. EinarH. Guðmundsson erprófessor í sljarneðlisfræði við Háskóia fslands. Ömólfur E. Rögn valdsson stundar doktorsnim í stjarneðlisfræði við Háskólann í Kaupmannahöfn. Reuter VlSINDAMENN hafa nefnt þennan grjóthnullung Jóga, en hann er litlu stærri en fjarstýrði jeppinn, sem notaður er til rannsókna á efnasamsetningu grjóts á Mars. Marsleiðangur Ratvíss gengur vel Mun meira af gögnum borist en vænst var BORIST hefur mun meira af gögnum en vænst hafði verið frá geimfarinu Ratvís, eða Pathfind- er, sem lenti á Mars sl. föstudag. Hefur borist rúmlega þrefalt það magn sem vísinda-og leiðangurs- menn áttu von á. Ástæðan er sú, að lítið er af truflunum í þeim upplýsingum sem send eru milli Mars og jarðar og því hægt að auka sendingahraðann meira en reiknað hafði verið með. „Það sem hefur komið í ljós er að menn hafa getað þrefaldað sendingarhraðann án mikilla vandræða," sagði dr Haraldur P. Gunnlaugsson, eðlisfræðingur við Kaupmannahafnarháskóla. Har- aldur er nú í miðstöð Ratvísleið- angursins í Pasadena í Kalifomíu, þar sem hann sinnir rannsóknum á ryki af yfirborði Mars. Fylgst er með því hvernig ryk og hvers konar sest á segla, sem eru á fimm stöðum á Ratvís-farinu sjálfu, og á grundvelli upplýsinga sem þannig er safnað verður gerð áætlun fyrir næsta mánuðinn um hvernig best sé að fylgjast með þeim upplýsingum sem berast frá farinu. Úrvinnslan tekur mánuði „Það á eftir að taka okkur ein- hveija mánuði að vinna úr öllum þeim niðurstöðum sem við fáum upplýsingar um þróun yfirborðs plánetunnar," sagði Haraldur. Mikil áhersla var lögð á að myndir frá lendingu Ratvíss kæmu fyrir almenningssjónir eins fljótt og auðið var eftir lending- una. Eru myndimar aðgengilegar á heimasíðu NASA, nánar til tek- ið Rannsóknarstofu í þotukný, sem er sú deild innan NASA er stjómar ómönnuðum rannsóknar- geimförum til annarra hnatta í sólkerfinu. Stjórnaði hún meðal annars öllum ómönnuðu rann- sóknarförunum til tunglsins. Vef- slóð rannsóknarstofunnar er http://www.jpl.nasa.gov „Frá því að geimfarið lenti tók ekki nema um 12 klukkustundir að gera myndir aðgengilegar," sagði Haraldur. „Fyrir tuttugu árum þurftu menn að setjast niður í tvo daga, eða svo, og líma sam- an myndir,“ sagði hann um þenn- an þátt Víking-leiðangursins til Mars 1976. Á jeppanum, sem Ratvís bar til Mars og fjarstýrt er frá jörð, er efnagreiningartæki, sem nefnt hefur verið rófsjá, og notast það við alfageislun, róteindageislun og röntgengeislun til að lesa efna- samsetningu þess sýnis sem það er að skoða. Með því hafa nú í fyrsta sinn fengist upplýsingar um efnasamsetningu gijóts á Mars. Á fréttamannafundi sem hald- inn var á rannsóknarstofunni í Pasadena í gærkvöldi að íslensk- um tíma, var greint frá fyrstu niðurstöðum rannsókna á gijót- hnullungi á yfirborði Mars, skammt frá lendingarstað Rat- víss. Hafa geimvísindamennimir nefnt hnullung þennan Bamacle Bill, og var gögnum um hann safnað á sunnudag og mánudag. Kom í ljós að efnasamsetningu hans svipar til þess sem finnst í gijóti í Andesfjöllum í Suður- Ameríku. Næst var jeppanum beint að hnullungi öllu stærri en jeppinn sjálfur, og hefur sá verið nefndur Jógi, eftir teiknimyndabirninum góðkunna. Alls hefur jeppanum verið ekið um 40 sentimetra vega- lengd frá því honum var ekið úr Ratvís-farinu. Þeim hraða, sem nú er á send- ingum gagna frá Pathfinder til rannsóknastofunnar í Pasadena, verður haldið þar til um miðjan ágúst. Eftir það verður á ný lagt á ráðin, og geimfarinu gert að fylgjast með rannsóknartækjum öðru hvoru og senda þær niður- stöður til jarðar. Megnið af þeim gögnum sem munu berast frá geimfarinu koma til jarðar nú á fyrsta mánuði leiðangursins. Ástæður þessa eru meðal annars hagkvæmnisþættir, eins og til dæmis sá, að óhagkvæmt er að hafa hundruði vísindamanna víða að úr heiminum saman komna á rannsóknarstofu NASA í Pasad- ena svo mánuðum skipti. í minningu Sagans Geimfarið Ratvís hefur nú verið skírt upp og heitir Carl Sagan- stöð, í minningu geimvísindahugs- uðarins Carls Sagans, sem lést í lok síðasta árs. Hann gegndi lykil- hlutverki í framkvæmd Mariner, Víking, Voyager og Galíleó-geim- könnunarleiðangra NASA, og hlaut fyölda viðurkenninga fyrir starf sitt. í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.