Morgunblaðið - 17.08.1997, Side 16
16 SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
.Q
£
£
£
£
Góður
bolti!
RúRek djasshátíðin
verður sett í sjöunda
sinn 10. september.
Erlendir og innlendir
listamenn koma fram á
um fjórða tug tónleika
og sem fyrr er áhersla
lögð á frumflutning ís-
••
lenskra verka. Orlygur
Steinn Sigurjónsson
kynnti sér dagskrána
og ræddi við Guðmund
Emilsson stjórnarform-
ann hátíðarinnar og
tónlistarráðunaut
ríkisútvarpsins.
TRÍÓ Björns Thoroddsens ásamt Agli Ólafssyni leikur á djassmessu i Árbæjarkirkju 14. september.
SKIPULEGGJENDUR Rú-
Rek-hátíðarinnar segja að
uppistaða hennar sé djass
sem höfðar ljúflega til allra,
en skirrast þó ekki við að leita út á
jaðra djasstónlistarinnar bæði land-
fræðilega og í öðrum skilningi. Lett-
neskum djasstónlistarmönnum og
þýsku dans- og djassleikhúsfólki
hefur verið boðið á hátíðina. Djass-
leikhúsið er á mörkum ftjálsra leik-
forma og helgisiða og fjallar sýning-
in um það þegar Gagarin snýr aftur
úr ferð sinni úr geimnum og sann-
reynir að mannkynið hefur glatað
minningum sínum. „Djassleikhúsið
angar af spuna og er nokkuð sem
við þekkjum ekki, en það verður án
efa spennandi að kynnast því í ná-
vígi,“ segir Guðmundur Emilsson.
Þá verður í Árbæjarkirkju flutt
djassmessa þar sem Tríó Björns
Thoroddsens og Egill Ólafsson ann-
ast messusvör og sálmasöng af
djasslegum toga. Erkidæmið um jað-
ardjass á hátíðinni er tíu saxófóna
gjörningasveit frá Þýskalandi.
Hljómsveitin leikur gjaman í fram-
andlegu umhverfi eins og á járn-
brautarstöðvum, í vatnsgeymum,
sundlaugum og dómkirkjum.
- En hví þessi jaðarsvæði á Rú-
Rek '971
„Því er auðsvarað," segir
Guðmundur. „Kúltur, og þar-
með djasskúnst, er ekki kæk-
ur, heldur „konsept" eða
hugsun sem leitar sífelldrar
endurnýjunar."
FRANK Foster er gesta-
stjórnandi Stórsveitar
Reykjavíkur á
tónleikum
13. sept-
ember.
JAZZBRÆÐUR eru ásamt fleirum fulltrúar yngri íslenskra djass-
leikara flyija og frumsamið efni á Hótel Sögu 12. september.
Fyrirkomulagi RúRek hátíðarinn-
ar er þann veg farið að dag hvern
eru síðdegistónleikar RúRek á veit-
ingahúsinu Jómfrúnni við Lækjar-
götu kl. 17 og síðan miðnæt-
urtónleikar með nýstár-
legu sniði á sama stað
hvert kvöld kl. 23.
„Þarna verður starf-
ræktur Djassklúbbur
RúRek með leður-
sófaspjalli í beinni
útsendingu á hveiju
kvöldi. Það verður leik-
djass til mið-
mn
nættis og síðan brestur á spuni í
tali og tónum. Þar mun Þórir Bald-
ursson sitja við Hammond orgelið í
viðbragðsstöðu þegar gestir heíja
söng eða hljóðfæraleik í beinni út-
sendingu. Ennfremur gefst gestum
þarna kostur á að hitta listamenn á
hátíðinni og útvarpsmenn kappkosta
að leita eftir áliti þeirra i viðtölum
um lífið og djassinn," segir Guð-
mundur. „Þetta er nýjung í menning-
arlífinu sem færir listamanninn nær
tónlistarunnendum og mig grunar
að fleiri hátíðir taki þetta „messu-
form“ upp í framtíðinni," segir Guð-
mundur.
Af viðameiri tónleikum má nefna
sex tónleika í Súlnasal Hótels Sögu
sem hefjast allir kl. 21. þann 10.
september kl. 21 leika Pierre Dorge
og New Jungle Orchestra, 12.
september leika Djassbræður og
Krafla, 13. september leikur Stór-
sveit Reykjavíkur undir stjórn Frank
Fosters gestastjórnanda hátíðarinn-
ar. 17. september leikur Gunnlaugur
Briem trommuleikari og útlendinga-
hersveitin, 18. september er afmæl-
ishátíð Áma ísleifssonar píanóleik-
ara og 19. september leikur tríó
Jacky Terrasson. í Sunnusal verða
þrennir tónleikar kl. 21 dagana 11.,
15. og 17. september, þar sem leika
tríó Egils Straume, tríó Tómasar
R. Einarssonar og RekSinki kvart-
ettinn.
Frumflutningur metnaðarmál
Fmmflutningur íslenskra djass-
verka er metnaðarmál RúRek og
strax á setningarhátíðinni á miðviku-
dag kl. 17 frumflytur Septett, skipað-
ur Tríói Carls Möllers og strengja-
kvartettinum M30 þætti úr Fjórðu
víddinni eftir Carl Möller. Á föstudag
frumflytja Jazzbræður og Krafla
frumsamið efni, RekSinki kvartettinn
frumflytur fimm djassverk eftir Björn
Thoroddsen og á afmælishátíð Arna
ísleifssonar verða frumflutt djassverk •.
eftir Árna ísleifsson auk verka eftir I
Steingrím Guðmundsson og Birgi
Bragason til heiðurs afmælisbaminu.
„Með frumflutningi íslenskra verka
stuðlar RúRek að endurnýjun í djasst-
ónsmíðum," segir Guðmundur um
þessa áherslu hátíðarinnar.
Guðmundur segist fagna því að á
hátíðinni muni verða hægt að heyra
fulltrúa yngri og eldri kynslóðar ís-
lenskra djasslistamanna í bland við
„fallstykkin", sem hann nefnir svo
og á þar við erlenda gesti. „Ungir
íslenskir djasslistamenn kveða sér
hljóðs í hátíðarsamhengi og fær hver
sveit eitt kvöld til að sýna hvað hún
getur. Gott dæmi eru tónleikar með
Jazzbræðrum og Kröflu á Hótel
Sögu. Svo verður spennandi að fylgj-
ast með snillingum á borð við Jacky
Terrasson og tríói hans, sem hefur
fengið einróma lof gagnrýnenda víða
um heim auk Frank Fosters, sem
að margra mati er arftaki Count
Basie.“
Guðmundur segir að endingu að
RúRek hátíðin sé lýsandi dæmi um
samtakamátt menningarfýrirtækja,
en auk RÚV taka Reykjavíkurborg
og FÍH þátt í skipulagningu og fram-
kvæmd RúRek. „Tiltrú manna á
samstarf sem þetta hlýtur að aukast
ef menn horfa til RúRek hátíðarinn-
ar og ég vona að í framtíðinni verði
stemmning fyrir sambærilegu sam-
starfi á öðrum sviðum tónlistar."
Guðmundur vildi að auki koma á
framfæri þökkum til stjórnar RúRek
hátíðarinnar,_ en hana skipa Árni
Scheving, Ásgeir Sigurgestsson,
Breki Karlsson, Friðrik Theódórsson
og Sigurður Flosason.
PÍANÓLEIKARINN Jacky
Terrasson er einn gesta Rú-
Rek hátíðarinnar og leikur á
Hótel Sögu 19. september.
___________LISTIR ______
Dýfur í djassheimum