Morgunblaðið - 21.08.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 17
Verslunarmiðstöðin Kringlan tíu ára
Ein sem þú ferð létt með
HÚSGAGNAHÖLUN
Bíldsliöfði
Rvfl
510 8000
Opið á sunnudögum
frá haustinu
NÚ ERU tíu ár liðin síðan verslun-
arhúsnæðið Kringlan var opnað,
hinn 13. ágúst 1987. Að sögn Ein-
ars I. Halldórssonar, framkvæmd-
arstjóra Eignarhalds Kringlunnar,
koma árlega um 4 milljónir við-
skiptavina í verslunarmiðstöðina en
árið 1996 var metár, þá komu kring-
um 4,3 milljónir. „Frá og með haust-
inu gefst viðskiptavinum Kringlunn-
ar kostur á að versla á sunnudögum
en 50 verslanir og veitingastaðir
ætla að lengja afgreiðslutíma sinn
og hafa opið á hveijum sunnudegi
frá kl. 13-17,“ sagði Einar. Áður
höfðu nokkrar verslanir opið einn
sunnudag í mánuði.
Viðskiptavinirnir fá rós
í tilefni þess að tíu ár eru liðin
frá opnuninni verður efnt til afmæl-
ishátíðar þar sem ýmislegt verður
gert til skemmtunar.
í dag, fimmtudag, hefst fjöl-
skylduskemmtidagskrá sem stendur
fram á laugardag. Fjölmargir
skemmtikraftar koma fram, s.s.
Spaugstofan, Laddi og félagar,
Furðuleikhúsið og ýmsir tónlistar-
menn. Leiktæki verða sett upp eins
og risarennibraut, hoppkastalar,
hoppróla og frítt verður í Ævintýra-
Kringluna alla dagana. Kjörís og sól
verða með kynningar, Svalabræður
koma í heimsókn og hægt er að
kaupa pylsu og kók á 50 kr. á
Kringlutorginu. Einnig verða versl-
anir í Kringlunni með tískusýningar
þar sem sýnt verður það nýjasta úr
tískuheiminum. Allir viðskiptavinir
Kringlunnar fá rós og börnin fá
blöðrur. Á laugardaginn leika hljóm-
sveitirnar Botnleðja og Woofer fyrir
unglinga á Kringlutorgi.
Olíumyndir eftir Daða Guð-
björnsson myndlistarmann munu
skreyta veggi Kringlunnar, bæði
norður- og suðurhlutann, í tilefni
afmælisins. Verslunin Jens, heldur
sýningu á skúlptúr og silfurmunum
fyrir framan verslunina en þar
verða verk eftir Jens Guðjónsson,
Jón Snorra Sigurðsson og Hauk
Valdimarsson.
Líkan af fyrirhugaðri
tengibyggingu
í undirbúningi er að byggja 8200
fermetra byggingu sem tengir norð-
ur- og suðurhús Kringlunnar þann-
ig að bæði húsin myndi eina heild.
Að sögn Einars eru ýmsar hug-
MorgunblaðiO/Uollí
ÞAU standa við líkanið af Kringlunni, f.v. Halldór Guðmundsson
arkitekt, Þorkell Erlingsson verkfræðingur, Hrafnkell Thorlacíus
arkitekt, Einar I. Halldórsson, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfé-
lags Kringlunnar, og Erla Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri
Kringlunnar.
myndir í gangi varðandi breytingar
á Kringlusvæðinu eins og með
tengibyggingu milli Borgarleik-
hússins og Kringlunnar. „Einnig er
hugmynd að stækka Kringluna til
norðurs að Miklubrautinni. Þá er
gert ráð fyrir því að stoppistöð fyr-
ir stætisvagna komi undir þakið,
þannig fólk geti fari beint úr stræt-
isvagni og inn í Kringluna.“
Richard Abrams skipulagsarki-
tekt vann að skipulagningu Kringl-
unnar á sínum tíma og nú er hann
að vinna að tillögu að tengibygging-
unni. í dag verður búið að setja upp
myndir af stækkun Kringlunnar,
ásamt líkani af fyrirhugaðri tengi-
byggingu. Viðskiptavinum Kringl-
unnar gefst því kostur á að virða
fyrir sér hvernig hún kemur til með
að líta út á næstu árum.
Diplomat fistölvan
11.3" skjár
120 MHz Intel örgjörvi
256K flýtiminni
16MB minni stækkanl. f 32MB
1080MB harður diskur
1MB VRAM skjáminni
4x geisladrif
Disklingadrif
Soundblaster hljóðkort
Hátalari
íslenskt lyklaborð
. , Snertimús
ISDN Windows 95 á geisladisk
Taska
Gott úrval fylgihluta
KR. 219.900
<Mce97
J5SÍL
ViewSonic
Office 97
Ritvinnsla, töflureiknir, dagbók, gagnagrunnur,
rafrænar glærur, heimaslðugerð og margt fleira.
AÐEINS KR: 21.900
með nýrri Diplomat tölvu!
BOÐEIND
TÖLVUVERSLUN - ÞJÖNUSTA
6-10« RrykJ.vik • tíml 588 2061 • fax 588 2062 -
NY
UNDIR-
FATALÍNA
Kringlunni
S. 553 7355
' T
Turnberry
Mjög vandað amerískt borðstofusett á
góðu verði. Settið kemur frá hinum
margrómaða framleiðanda Broyhill.
Borð, sex stólar, glerskápur og skenkur
af vandaðri gerð.
■ u
t§ Verð kr.
223.460,
r '* i i
hBkss
■ i
Arlinton Heights
Ameriskt hagæða boróstojusett jyrir
vandláta. Settið kemur frá Broýhill eins
ogTurnberry. —■ .
Borð, sex stólar, glerskápur og skenkur
af vönduðustu gerð.
Verð kr.
418.530,-