Morgunblaðið - 21.08.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 C 3
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Gísli stefnir
á tvo titla
ÞORLÁKSHAFNARBÚINN Gísli
G. Jónsson er efstur í bæði ís-
landsmótinu í torfæru og í
heimsbikarmótinu, en fyrri um-
ferð þess fórfram sl. laugardag
í Jósepsdal. Hann er með gott
forskot í íslandsmótinu, þegar
aðeins eitt mót er eftir, en for-
ystan í heimsbikarmótinu er
naum, hann er rétt á undan
Haraldi Péturssyni.
Um tíma leit út fyrir að Gísli
hætti keppni á miðju keppnis-
tímabili vegna peningaskorts. Hon-
um gekk illa að afla styrktaraðila,
þrátt fyrir frábæra frammistöðu síð-
ustu ár. En á endanum fékk hann
stuðning sem nægði tii að réttlæta
áframhaldandi þátttöku. í heimsbik-
armótinu lagði hann íslandsmeistar-
ann Harald Pétursson að velli með
50 stiga mun, en Helgi Schiöth varð
þriðji. í flokki götujeppa vann hins-
vegar Hornfirðingurinn Gunnar
Pálmi Pétursson Akureyringinn Hrólf
A. Borgarsson með aðeins fimm stiga
mun, þegar upp var staðið.
„Vissulega er gaman að hafa for-
ystu í íslandsmótinu og heimsbikar-
mótinu á sama tíma, en þetta getur
allt breyst í einni þraut. Eg á samt
að vera í nokkuð sterkri stöðu til
íslandsmeistara, má verða fjórði þó
helstu andstæðingar mínir vinni,“
sagði Gísli, sem rekur bílaverkstæð-
ið Bíliðjuna í Þórlákshöfn ásamt
konu sinni Vigdísi Grímsdóttur.
„Breytingar sem ég gerði á jeppan-
um hafa skilað sínu og í heimsbikar-
mótinu var aflið örlítið meira vegna
stærri nítróbúnaðar. Það nægði til
að hrella hina strákana. Reyndar
bilaði skiptingin á lokasprettinum,
fyrsti gírinn gaf upp öndina. Ég
slapp þó í gegn í öðrum gír. Það
verður gaman að fást við þrautirnar
á Helju í lokamótinu, ekki síst mýr-
ina. Ég hef klúðrað titli þar og það
má ekki henda aftur.
Reyndar vantar mig ausudekk,
sem ekki fæst í landinu, en ég er
einfaldlega ekki tilbúinn að fjárfesta
í slíku dekki. Þetta er búið að vera
nógu dýrt samt. Ef ég fæ ekki góð-
an stuðningsaðila fyrir næsta ár, sel
ég að öllum líkindum jeppann. Það
er Norðmaður sem vili kaupa hann
eftir síðustu keppni og jeppinn gæti
því farið úr iandi í vetur. En þetta
kemur allt í ljós á næstu vikum,
bæði hvert titlarnir tveir fara og
hvar jeppinn minn verður að ári“,
sagði Gísli.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
GÍSLI G. Jónsson stefnir á tvo tltla í torfærunni.
Hradskreiður
en fallvaltur
SKOTINN Colin McRae hefur
oft unnið í heimsmeistara-
mótinu og vann síðustu
keppni á Subaru bíl sínum.
McRae er í sannkallaðri rall-
fjölskyldu. Faðir hans er
Jimmy McRae sem varð
margslnnis breskur meist-
ari og annar sonur hans,
Alistar McRae hefur orðið
breskur rallmeistari og ekur
þessa dagana á Volkswag-
en Golf. Synirnir ólust upp á
bóndabæ, þar sem þeir
sprettu oft úr spori í tún-
jarðinum á bílum, löngu áður
en þeir fengu bílpróf. Það
hefur greinilega hjálpað
þeim að ná I fremstu röð í
heimi rallökumanna.
ÍÞRÚWR
FOLX
■ FORMULA 1 ökumaðurinn
Jean Alesi náði besta tíma í æfing-
um á Silverstone brautinni í vik-
unni, ók á 1.25,45 mínútum. Dam-
on Hill var með þriðja besta tíma,
1.24,21. Þessir ökumenn keppa á
Spa brautinni í Belgíu um næstu
helgi.
■ MIKAEL Schumacher ók 300
km á Mugello brautinni á Italíu á
endurhönnuðum Ferrari. Engin
vandamál komu upp, en Jacques
Villeneuve ók brautina á 1,5 sek-
úndum betri tíma en Schumacher.
■ JARNO Trulli sló hins vegar
hraðamet á brautinni á Prost bíl
sínum, ók á 1.23,41 mínútum. Oli-
ver Panis, sem ók fyrir Prost en
fótbrotnaði í Kanada, er farinn að
ganga að nýju.
■ ALÞJÓÐARALLIÐ er í sept-
ember og verið er að vinna að því
að fá Kalle Grundel á Mitsubishi
og Louise Aitken Walker á Honda
í keppnina, en báðir eru þekktir
atvinnuökumenn. Louise er frá
Bretlandi en Grundel er sænskur.
■ BRESKI herinn mætir í alþjóða-
rallið með sex Land Rover jeppa.
Liðsmenn breska hersins hafa keppt
hér síðustu ár og sett skemmtilegan
svip á keppnina. Þeir mæta aðvenju
Sighvati Sigurðssyni og Úlfari
Eysteinssyni sem halda uppi heiðri
íslenskra jeppamanna ásamt Hjör-
leifi Hilmarssyni.
■ TOYOTA bílaverksmiðjan hefur
smíðað nýjan fjórhjóladrifinn rallbíl
með útliti Corolla. Marcus Grön-
holm ók honum í finnskri rall-
keppni en lenti í byijunaröðrugleik-
um. Didier Auriol mun aka bílnum
í 1000 vatna rallinu í Finnlandi.
Metþátttaka er í keppninni sem er
sú hraðasta í heimsmeistarakeppn-
inni í rallakstri.
■ VALUR Vífilsson tryggði sér
íslandsmeistaratitilinn í flokki
ofurbíla í kvartmílu á dögunum.
Hann ók heimasmíðaðri spyrnu-
grind og setti nýtt íslandsmet, ók
á 9,42 sekúndum. Auk þess að
keppa í kvartmílu er hann duglegur
við að aðstoða menn í torfæru og
hefur starfað sem þulur á bílkross-
mótum.
Subarn með forystu í
keppni bflaframleiðenda
Svíarnir Kenneth Erikson og
Parmander unnu rallkeppni á
Nýja Sjálandi sem gilti til heims-
meistara. Þeir óku Subaru Impreza
og munaði aðeins 13 sekúndum á
þeim og Carlos Sainz og Louis
Moya á Ford Escort í baráttunni
um gullið eftir 400 km akstur.
Þriðju urðu Finnarnir Juha Kankk-
unen og Juha Piironen á Ford Esc-
ort. Með sigrinum náði Subaru for-
ystu í keppni bílaframleiðenda, en
Finninn Tommi Makinen á Mitsub-
ishi Lancer er fremstur í keppni
ökumanna.
Makinen féll hinsvegar úr leik í
nýsjálenska rallinu. Velti harkalega
eftir að hafa misst bílinn þversum.
Skotinn Colin McRae varð einnig
að hætta, tímareim gaf sig í Su-
baru bíl hans eftir að hann hafði
verið fyrstur um tíma. Sainz náði
síðan forystu á kafla, en keppnin
stóð í fjóra daga og voru 400 km
eknir á sérleiðum. Á lokadegi
keppninnar ók Sainz á kind og tap-
aði miklum tíma, en kindin týndi
lífinu. „Við komum yfir blindhæð á
180 km hraða í sjötta gír og kindin
stóð á miðjum vegi og góndi á okk-
ur. Ég gat ekkert gert og bíllinn
skemmdist talsvert, en við náðum
að halda áfram, þó við yrðum
bremsulausir", sagði Sainz.
Þó Sainz næði besta tíma á öllum
síðustu sérleiðunum tókst honum
ekki að vinna upp forskot Erikson,
sem rétt marði sigur í æsispenn-
andi keppni. Af 83 bílum sem lögðu
af stað komst 51 í mark, en sérleið-
irnar voru ýmist flughálar vegna
aurbleytu eða skraufaþurrar.
Staðan í keppni bílaframleiðenda
er sú að Subaru er með 74 stig,
Mitsubishi 56 og Ford 55, en sex
mót eru eftir á keppnistímabilinu.
Finnska 1.000 vatna rallið verður
í lok ágúst. í keppni ökumanna er
Makinen með 42 stig, Sainz 34,
McRae 32 og Erikson 24.
Aðalvöllurinn í Laugardal
Þróttur - ÍR
Kl. 20:00 í kvöld
Nú mætir enginn ekki
LIFI ÞRÓTTUR
Tennis Tennis Tennis
Vetraráskrift hefst 1. sept. nk. Þeir sem voru með fastan tíma
síðast liðinn vetur og vilja halda honum eru vinsamlegast beðnir
um að staðfesta bókun á völlum eigi síðar en 26. ágúst nk.
Að þeim tíma liðnum verða vellir leigðir öðrum.
Tennishöllin hf.,
Dalsmári 9-11, Kópavogur, s. 564 4050,
fax 564 4051, tennis@islandia.is
GOLFKLÚBBUR BAKKAKOTS
MOSFELLSDAL
OPNA VÍS MÓTIÐ 23. ÁGÚST '97
18 holu STABLEFORD keppni, 7/8 forgjöf.
Karla- og kvennaflokkur.
Ræst verður út frá kl. 9 - 11 og 13 - 15.
Glæsileg verðlaun, golfvörur, veitt fyrir 3 efstu sæti í hverjum flokki.
Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum.
Eftir verðlaunaafhendingu verða dregin út tvenn verðlaun úr
skorkortum viðstaddra.
Mótsgjald: 2000 kr.
Skráning í golfskála og síma 566-8480 fimmtudaginn 21/8
kl. 15 - 21 og föstudaginn 22/8 kl. 16 - 20.
Æfingadagur er föstudaginn 22/8.
Munið forgjafarskírteinið.
STYRKTAR AÐILI: vátryggingaféwg ísiands hf