Morgunblaðið - 21.08.1997, Side 5
4 C FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 C 5
URSLIT
Liechtenstein - Island 0:4
Sportpark Esohen-Maui-en. Undankeppni
HM i knattspymu — 8. riðill. miðvikudagur
20. ágúst 1997.
Aðstæður: Steikjand liiti og sól — 30 stig.
logn. völlurinn of mjúkui' og ósléttur, liall-
aði út á kantana.
Mörk íslands: Einar Þór Daníelsson (28.),
Brynjar Björn Gunnarsson (40.), Sigurður
Jónsson (62.), Trvggvi Guðmundsson (63.).
Skot: Liechtenstein 3 - ísland 28
Horn: Liechtenstein 3 - ísland 13
Rangstaða: Liechtenstein 2 - ísland 2
Gul spjöld: Einar Þór Daníelsson (13. mín.
- brot), F. Schaedler (17. - brot).
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Oleg Timofejev, Eistlandi.
Aðstoðardómarar: V. Vingradov og I. Lja-
hovetski.Eistlandi.
Áhorfendur: 550.
Liechtenstein: M. Heeb - T. Hanselmann,
P. Hefti, J. Ospelt, M. Stocklase, D. Telser
- D. Frick, M. Frick, D. Hasler, P. Klaunz-
el (M. Telser 74.), F. Schadler (P. Marxer
46.) - M. Telser.
ísland: Kristján Finnbogason - Lárus Orri
Sigurðsson, Guðni Bergsson, Eyjólfur
Sverrisson, Hermann Hreiðarsson - Rúnar
Kristinsson, Sigurður Jónsson (Bjarni Guð-
jónsson 65.), Brynjar Björn Gunnarsson,
Einar Þór Daníelsson (Tryggvi Guðmunds-
son 53.), Arnór Guðjohnsen (Arnar Grétars-
son 73.) - Helgi Sigurðsson.
Kristján Finnbogason, Lárus Orri Sigurðs-
son, Guðni Bergsson, Eyjólfur Sverrisson,
Hermann Hreiðarsson, Sigurður Jónsson,
Brynjar Björn Gunnarsson, Rúnar Kristins-
son, Einar Þór Daníelsson, Helgi Sigurðs-
son, Arnór Guðjohnsen, Tryggvi Guðmunds-
son, Arnar Grétarsson, Bjarni Guðjónsson.
Undankeppni HM
Evrópa
8. riðill:
Búkarest, Rúmeníu:
Rúmenía - Makedónia................4:2
Viorel Moldovan 2 (36. vsp., 62.), Constant-
in Galca (40.), Ilie Dumitrescu (65.) - Mi-
roslav Dzokic 2 (52., 90.). - 15.000.
Dublin, írlandi:
írland - Litháen..................0:0
32.600.
Staðan:
Rúmenía..............7 7 0 0 24 2 21
Makedónía............8 4 1 3 21 14 13
írland...............7 3 2 2 15 4 11
Litháen..............7 3 2 2 6 5 11
fsland...............7 1 3 3 5 8 6
Liechtenstein........8 0 0 8 2 40 0
■Næstu leikir eru ísland - Írland, Liechten-
stein - Rúmenía og Litháen - Makedónía
6. september.
1. riðill:
Sarajevo, Bosníu:
Bosnía - Danmörk..................3:0
Edin Mujic (19.), Elvir Bolic 2 (25. vsp.,
35. vsp.). - 35.000.
Staðan:
..6 4 1 1 11 5 13
Danmörk 6
6
5
6
Slóvenía 5
Rússland.
ísrael...
Ikvöld
Knattspyrna
1. deild karla:
Laugardalsv.: Þróttur-ÍR.kl. 20
Kappróður
Islandsmótið í kappróðri verð-
ur í Nauthólsvík í dag. Keppni
í yngri flokki hefst kl. 16.30
og í eldri flokki kl. 17.30.
Kýpur...............6 114 5 14 4
Lúxemborg...........6 0 0 6 1 17 0
6. riðiii:
Teplice, Tékklancii:
Tékkland - Færeyjar.................2:0
Pavel Kuka (14. vsp.), Lubos Kozel (27.).
- 8.332.
Staðan:
Spánn................8 6 2 0 21 4 20
Júgóslavía............8 6 1 1 23 6 19
Slóvakía.............6 4 0 2 14 7 12
Tékkland..............6 2 1 3 9 4 7
Færeyjar..............8 2 0 6 9 26 6
Malta................8 0 0 8 2 31 0
7. riðill:
Istanbul, Tyrklandi:
Tyrkland - Wales...................6:4
Hakan Sukur 4 (5., 37., 72., 83.), Saffet
Akyuz (7.), Oguz Cetin (61.) - Nathan Blake
(18.), Robbie Savage (22.), Dean Saunders
(34.), Andy Melville (52.). - 30.000.
Staðan:
Holland..............6 5 0 1 23 3 15
Belgía...............6 5 0 1 16 6 15
Tyrkland.............6 3 1 2 16 9 10
Wales................7 2 1 4 18 18 7
San Marinó...........7 0 0 7 0 37 0
9. riðill:
Kiev, Úkraínu:
Úkraína - Albanía...................1:0
Serhiy Rebrov (87.). - 35.000.
Bel/ast, N-írlandi:
N-írland - Þýskaland................1:3
Michael Hughes (59.) - Olivier Bierhoff 3
(72., 77., 78.). - 12.035.
Setubal, Portúgal:
Portúgal - Armenía..................3:1
Domingos Oliveira (22.), Luis Figo (30.),
Pedro Barbosa (53.) - Erie Assadourian
(46.). - 14.000.
Staðan:
Úkraína..............9 5 2 2 8 6 17
Þýskaland............7 4 3 0 14 5 15
Portúgal.............8 4 3 1 10 3 15
N-írland.............8 1 4 3 6 8 7
Armenía..............7 0 5 2 5 11 5
Albanía..............7 0 1 6 3 13 1
S-Ameríka
Quito, Ekvador:
Ekvador - Paraguay..................2:1
Alex Aguinaga (53.), Ariel Graziani (78.)
- Richard Baez (5.). - 12.000.
■Þau lið sem þegar hafa tryggt sér sæti á
HM eru Frakkland (gestgjafar), Brasilía
(núverandi heimsmeistarar), Rúmenía, Ní-
gería, Túnis, Marokkó, S-Afríka og Kamer-
ún.
Evrópukeppni
Riðlakeppni 21 árs liða
8. riðill:
Búkarest, Rúmeníu:
Rúmenía - Makedónía................3:0
Laurentiu Rosu (12.), Adrian Mihaleea
(30.), Ionut Lutu (74.). - 2.000.
Dublin, írlandi:
írland - Litháen...................2:0
Neale Fenn (55., 90.). - 2.000.
Staðan:
Rumenia 6 6
írland 5
Litháen 5
Makedónía 6
5 3 0 2 10 2 9
5 1 0 4 4 9 3
3. riðill:
Búdapest, Ungveijalandi:
Ungveyjaland - Sviss.................1:1
Laszlo Klausz (53.) - Stephane Chapuisat
(90.). - 40.000.
Helsinki, Finnlandi:
Finnland - Noregur...................0:4
Stale Solbakken (8.), Petter Rudi (12.),
Jostein Flo (48.), Tore Andre Flo (84.).
Staðan:
Noregur...............6 4 2 0 15 2 14
Ungvetjaland.........6 2 2 2 6 6 8
Sviss................5 2 1 2 5 5 7
Finnland.............6 2 1 3 8 10 7
Aserbaidsjan.........5 1 0 4 2 13 3
4. riðill:
Minsk, Hvíta-Rússlandi:
Hvíta-Rússland - Svíþjóð..............1:2
Sergei Gurenko (38.) - Kennet Anderson
(76.), Per Zetterberg (85.). - 10.000.
Tallinn, Eistlandi:
Eistland - Austurríki.................0:3
Anton Polster 3 (46., 69., 88.).
Staðan:
Skotland.............8 5 2 1 9 2 17
Austurríki...........7 5 1 1 11 4 16
Svíþjóð..............7 5 0 2 14 9 15
Lettland..............7 2 1 4 9 11 7
Hvíta-Rússland.......7 115 4 12 4
Eistland.............8 116 4 14 4
5. riðill:
Sofia, Búlgaríu:
Búlgaría - fsrael.....................Is0
Lyuboslav Penev (68.). - 25.000.
Staðan:
Búlgaria..............6 5 0 1 15 5 15
..6 4 2 0 15 2 14
..8 4 1 3 9 7 12
5. Istvan Bathazi (Ungv.).........
6. Uwe Volk (Þýskal.).............
7. Jani Sievinen (Finnl.).........
8. Kresimir Cac (Króatíu).........
200 metra bringusund kvenna:
1. Agnes Kovacs (Ungv.)...........
■Evrópumet
2. Alicja Peczak (Póll.)..........
3. Brigitte Becue (Belgíu)........
4. Inna Nikitina (Úkr.)...........
5. Jaime King (Bretl.)............
6. Anne Poleska (Þýskal.).........
7. Karine Bremond (Frakkl.).......
8. Linda Hindmareh (Bretl.).......
4x200 metra skriðsund karla:
1. Bretland...
2. Holland...
3. Þýskaland....
4. Ítalía...
5. Pólland.....
6. Sviss....
■Svíar voru dæmdir úr keppni.
4.21,93
4.23.76
4.24,59
4.35,36
2.24.90
2.28.04
2.28.90
2.29.76
2.30,02
2.30,40
2.30,65
2.31,68
7.17,56
.7.17,84
.7.18,86
.7.19,27
.7.31,45
.7.38,77
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
INæsti leikur er ísland - írland 5. sept.
Vináttulandsleikur
Rússland - Júgóslavía............0:1
Slavica Jocanovic (86. vsp.). - 10.000.
Holland
1. deild
Roda-Utrecht.....................1:0
Sparta Rotterdam - Graafschap....1:1
Groningen - Volendam.............3:0
Willem II - NEC Nijmegen.........1:2
PSV Eindhoven - RKC Waalwijk.....5:1
Heerenveen - NAC Breda...........3:1
Skotland
Deildabikarkeppnin
Dundee United - Hibernian........2:1
■Eftir framlengingu.
Dunfermline - St. Mirren.........2:0
Motherwell - Greenock Morton.....3:0
Stirling - Kilmarnock............6:2
Spánn
Meistarar meistaranna
Barcelona - Real Madrid..........2:1
Nadal (11.), Giovanni (85.) - Raul
(6.). - 90.000.
■Síðari leikur fer fram á laugardag.
Sund
Evrópumeistaramót
100 metra flugsund karla:
1. Lars Frolander (Svíþj.).....52,85
2. Denis Silantiev (Úkr.)......53,27
3. Frank Esposito (Frakkl.)....53,28
4. Vladislav Kulikov (Rússl.)..53,84
5. Thomas Rupparth (Þýskal.)...53,99
6. Denis Pankratov (Rússl.)....54,00
7. Marcin Kacmarek (Póll.).....54,49
8. Peter Horvarth (Ungv.)......54,51
200 metra skriðsund kvenna:
1. Michelle de Bruin (írl.)...1.59,93
2. Nadezdha Chemezova (Rússl.).... 1.59,97
3. Camelia Potec (Rúm.)......2.00,17
4. MartinaMoracova (Slóvakíu).2.00,34
5. Kerstin Kielgass (Þýskal.).2.00,36
6. Karen Pickering (Breti.)..2.01,02
7. Olena Lapunova (Úkr.)....2.01,11
8. Josefin Lillhage (Svíþj.).2.01,46
400 metra fjórsund karla:
1. Marcel Wouda (Hotl.)......4.15,38
2. Frederic Hviid (Spáni)....4.19,68
3. Robert Seibt (Þýskal.)....4.20,43
4. Xavier Marchand (Frakkl.).4.21,64
HELGARGOLFIÐ
Hornafjörður
Opna Hornafjarðarmótið verður á laugar-
dag og sunnudag. 36 holur með og án for-
gjafar.
Isafjörður
Ljónsbikarinn, 36 holu keppni með og án
forgjafar verður á laugardag og sunnudag.
Grafarholtið
Opna Toyota-mótið verður hjá GR á laugar-
dag, 18 holur með og án forgjafar. Auk
peningaverðlauna fyrir sigur án forgjafar
er sigurvegaranum boðið að keppa á World
Match Play á Wentworth-vellinum í Eng-
landi 7. til 13. október.
Bakkakot
Opið mót verður á laugardag, Stableford
7/8 forgjöf.
Keilir
Opið mót á laugardag, 18 holur með og
án forgjafar.
Garðabær
Opna Ölgerðarmótið verður hjá GKG á laug-
ardag, 18 holur með og án forgjafar.
Stykkishólmur
Opna Hótel Stykkishólms-mótið verður á
laugardag, 18 holu punktakeppni.
Ólafsfjörður
Opna Coca Cola-mótið verður á Ólafsfirði
á laugardag. 18 holur með og án forgjafar.
Grindavík
Opna Schweppes-mótið verður á sunnudag,
18 holur með og án forgjafar.
Ólafsvík
Opna Ólafsvíkurmótið verður á sunnudag,
18 holur með og án forgjafar.
Blönduós
Opna Tryggingarmiðstöðvarmótið verður á
sunnudag, 18 holur með og án forgjafar.
Hjóna- og parakeppni
Hjóna- og parakeppni verður á laugardag
í Grindavík og verður þá leikin punkta-
keppni. Á sunnudag verður hjóna- og para-
keppni í Kiðjabergi og þar telur betri bolti.
Kvennamót
Opið kvennamót verður á Dalvík á laugar-
daginn, 18 holur með og án forgjafar.
Öldungamót
Sveitakeppni öldunga verður á Akureyri um
helgina.
Golfmót hreyfihamlaðra
Golfmót hreyfihamlaðra á vegum GSÍ og
FÍ verður á Nesvellinum á sunnudag. Þátt-
tökurétt eiga þeir sem af völdum sjúkdóma
eða slysa búa við fötlun í hreyfilimum.
Leiknar verða 18 holur með punktafyrir-
komulagi og fullri forgjöf. Þátttaka tilkynn-
ist í síma 561-1930 (Nesklúbburinn) en
Hörður Barðdal veitir allar nánari upplýs-
ingar í sima 562-2711 eða 896-6111.
Mikill
heiður
Tryggvi Guðmundsson, Eyja-
maðurinn knái, skoraði fallegt
mark í Liechtenstein - sem var
jafnframt hans annað mark í tveim-
ur landsleikjum á stuttum tíma.
Tryggvi skoraði sigurmarkið gegn
Færeyingum á Höfn í Hornarfirði
á dögunum, 1:0, á elleftu stundu,
eða 88. mín.
„Það verður að halda áfram að
hamra járnið á meðan það er heitt.
Ég er mjög ánægður með að hafa
fengið að leika hér og skora. Maður
verður að sýna hvað maður getur,
þegar tækifærið gefst. Ég var
ákveðinn að vaða í gegn þegar ég
fékk knöttinn, lék á tvo varnarleik-
menn og setti knöttinn í hornið fjær.
Það er mikill heiður að fá að leika
fyrir íslands hönd - maður fer langt
á stoltinu," sagði Tryggvi.
Erfitt
þar til við
skoruðum
Þetta var erfitt fram að því að
við náðum að skora okkar
fyrsta mark. Eftir það var leikurinn
á léttari nótunum. Það var gott að
markið kom í fyrri hálfleik, því að
þá losnaði um ákveðna spennu,“
sagði Rúnar Kristinsson, sem lék
einn sinn besta leik með landsliðinu
í langan tíma - var ákveðinn og
árásargjarn. „Liechtensteinar eru
ekki með mjög sterkt lið. Þó að svo
sé er aldrei hægt að bóka sigur fyrir-
fram gegn veikari andstæðingum.
Við erum óvanir að stjórna leikjum,
en það gekk vel nú og við náðum
að halda út allan leikinn. Það var
að vísu farið að gæta þreytu hjá
leikmönnum í seinni hálfleik enda
hitinn mikill og það tekur sinn toll
að vera nær stöðugt í sókn. í fyrri
hálfleik voru allir leikmenn að gefa
sig, voru á ferðinni til að fá knött-
inn. Við lékum síðan mjög skynsam-
lega í seinni hálfleik, héldum knett-
inum vel og létum hann ganga -
gerðum síðan árásir á þá þegar tæki-
færi gafst til. Við hefðum jafnvel
mátt refsa þeim meira, fengum tæki-
færi til þess. En þannig er knatt-
spyrnan, menn hitta ekki alltaf
markið þótt reynt sé. Þá varði mark-
vörður þeirra mörg góð skot. Við
ætlum ekki að svekkja okkur yfir
því að hafa ekki skorað fleiri mörk,
við erum sáttir við fjögur núll sig-
ur,“ sagði Rúnar.
Ekkiþað
fallegasta
Þetta var ekki fallegasta mark
sem ég hef skorað. Ég sá
knöttinn hafna á stönginni og
hrökkva af henni þetta einn metra
út í teiginn. Ég var á réttum stað
og þurfti ekki annað en að pota
knettinum í netið. Mark er mark,
það skiptir ekki máli hvernig þau
eru skoruð," sagði Brynjar Björn
Gunnarsson, sem skoraði fyrsta
mark sitt fyrir ísland í Liechten-
stein.
„Ég get ekki annað en verið
ánægður með leik okkar. Við feng-
um töluvert af færum, en nýttum
aðeins fjögur. Við hefðum getað
skorað mun fleiri mörk, en þessi
fjögur eru nægilegur skammtur að
þessu sinni - sigurinn var fyrir öllu,
það var kominn tími á hann,“ sagði
Brynjar Björn, sem verður á ferð
og flugi á næstu dögum - hann fer
með KR-ingum til Ólafsfjarðar á
laugardaginn og heldur síðan til
Krítar á sunnudaginn, þar sem
KR-ingar leika Evrópuleik gegn
OBI á þriðjudaginn kemur.
„Það er í mörg horn að líta, ég
vona að við KR-ingar fögnum sigri
á Ólafsfirði og síðan á Krít. Við
stefnum á að fara áfram í Evrópu-
keppninni - það er lífsspursmál
fyrir okkur KR-inga,“ sagði Brynjar
Björn.
íslendingar unnu sinn stærsta sigur á stórmóti í Liechtenstein Hvað var sagt eftir að „tjaldið féll" í Liechtenstein?
„Þrjú stig í höfn,
fjögur mörk skoruð
U
Morgunblaðið/Maurice Shourot
RÚNAR Kristinsson á hér í baráttu við tvo leikmanna Lichtenstein og hafði betur sem oftar í leiknum.
Rúnar og félagar hans í landsliðinu léku allir vel í gærkvöldi.
Ekki stóð steinn
yfir steini í vöm
Liechtenstein
íslendingar unnu sinn stærsta sigur í undankeppni HM
— j
og EM í gær. Sigmundur O. Steinarsson var á með-
al 550 áhorfenda í 32 stiga hita á Sportpark Eschen-
Mauren í Eschen, sem er umkringdur Ölpunum. íslend-
ingar skoruðu fjögur mörk, sem þeir hafa aldrei áður
náð á stórmóti. Það stóð stundum ekki steinn yfir steini
í vörn Liechtenstein, svo illa var hún leikin.
Það voru ánægðir og sveittir leik-
menn og þjálfari, sem dvöldust
góða stund úti á vellinum til að jafna
sig eftir leikinn. „Ég er ánægður með
sigurinn hér í Liechtenstein - mjög
ánægður. Strákarnir náðu að einbeita
sér að þessu verkefni. Þeir léku af yfir-
vegun og sigurinn hefði hæglega getað
orðið miklu stærri. Liechtensteinar
leika mjög aftarlega á vellinum, þannig
að strákarnir urðu að nýta sér þær
glufur sem gáfust. Það var mikilvægt
að vinna fyrsta sigurinn í HM og þessi
sigur gefur okkur ákveðinn kraft fyrir
leikinn gegn írum á Laugardalsvellin-
um. Sigurinn á að vera hvatning fyrir
landsliðið og fólkið heima á íslandi -
ákveðin áskorun að fjölmenna á Laug-
ardalsvöllinn er við leikum gegn írum
og styðja við bakið á strákunum. Þetta
er aðeins einn áfangi á leið okkar til
stærri verka,“ sagði Guðjón Þórðarson,
landsliðsþjálfari.
Guðjón má vera ánægður. Þó svo
að mótheijarnir væru ekki sterkir, náðu
leikmenn íslands yfirhöndinni í byijun
og gáfu ekki eftir. Liechtensteinar
ætluðu sér að byggja upp varnarmúr
í kringum mark sitt, en þeim tókst það
ekki - það stóð ekki steinn yfir steini
í aðgerðum þeirra þegar íslendingar
voru sem grimmastir, skoruðu tvö
mörk á aðeins tveimur mín. í seinni
hálfleikinn og lögðu þar með hornstein-
inn að sigrinum, 4:0.
Um leið og dómarinn frá Eistlandi,
Oleg Timofejev, flautaði til leiks, voru
Liechtensteinar ákveðnir að leggja
steina í götu íslendinga með því að
setja „yfirfrakka" á Helga Sigurðsson
og Arnór Guðjohnsen - tveir leikmenn
eltu þá eins og skuggar út um allan
völl. Helgi fékk ekki frið allan leikinn
fyrir Patrek Hefti, sem hreinlega „heft-
aði“ sig við hann. Daniel Telser hafði
gætur á Arnóri.
Það tók strákana nokkurn tíma að
átta sig á því að það voru þeir sem
stjórnuðu ferðinni - yfirburðir þeirra
voru á öllum sviðum knattspyrnunnar.
Þegar Einar Þór Daníelsson skoraði
fyrsta markið á 28. mín. var aldrei
spurning hver færi með sigur af hólmi,
heldur hvað sigur Islendinga yrði stór.
Besta dæmið um yfirburðina er að
Liechtensteinar áttu aðeins þijú skot
að marki_ íslands - eitt í seinni hálf-
leik, en íslendingar áttu 28 skot eða
skalla að marki þeirra, fengu þrettán
hornspyrnur á móti þremur, öllum í
fyrri hálfleik.
Vörn íslenska liðsins var yfirveguð
og ákveðin, miðjumennirnir áttu góða
spretti, en erfiðasta hlutverkið fékk
Helgi Sigurðsson, sem lék einn fremst
með mann límdan við sig. Sigurinn í
Liechtenstein var sigur liðsheildarinnar
sem fór aldrei útaf sporinu.
Oa 4[ Rúnar Kristinsson komst upp að endamörkum hægra megin á
■ I 28. mín., sendi knöttinn fyrir markið - þar var Einar Þór
Daníelsson á réttum stað, í markteig við fjærstöng og sendi knöttinn í
netið.
Oa Hermann Hreiðarsson sendi knöttinn frá vinstri kanti yfir til
■ ■æRúnars, sem tók knöttinn niður — lék inn í vítateig og sendi
knöttinn framhjá Heeb, markverði. Knötturinn hafnaði á stöng, Bryiyar
Björn Gunnarsson var á réttum stað og skoraði af stuttu færi á 40. mín.
0B Arnór Guðjohnsen tók hornspymu frá hægri á 62. mín. —
a^Jsendi knöttinn vel fyrir markið og yfir til Sigurðar Jónsson-
ar, sem var við vítateigshomið íjær. Sigurður tók knöttinn niður á bijóst-
ið, iék inn í vítateig og spymti knettinum, sem hoppaði fram hjá mark-
verðinum, í homið Qær.
Om n Tryggvi Guðmundsson fékk knöttinn vel fyrir utan vítateig
B*#á 63. mín. — lék á tvo leikmenn Liechtenstein og sendi knöttinn
í netið.
ÍSLENDINGAR héldu uppi
ákveðinni „leiksýningu" hér í
Liechtenstein, þar sem leikar-
arnir sýndu að þeir geta vel
stjórnað leik og farið rétt með
rullurnar sína á leiksviðinu, án
þess að hvíslari komi þar ná-
lægt. Þegar „tjaldið féll“ geng-
um við rakleitt til fyrirliðans
og báðum hann að lýsa leikn-
um í fáeinum orðum að leiks-
lokum. Lögfræðingurinn
Guðni Bergsson varð fyrir
svörum og hann sagði ákveð-
ið: „Þrjú stig fhöfn, fjögur
mörk skoruð og við fengum
ekkert á okkur. Er þetta ekki
gott hjá mér?
Eg samþykkti það - klappaði
hann upp! „Við erum sáttir við
leik okkar hér. Þessi leikur telur
ekkert nema á stigatöflunni. Það var
kominn tími til að fagna sigri í und-
ggggggggg ankeppni HM. Við
Sigmundur Ó. gleðjumst ekki lengi,
Steinarsson því að við þurfum að
skrifarfrá hugsa vel um næstu
Liechtenstein lejkí okkar sem verða
erfiðir - fyrst gegn írum á Laugar-
dalsvellinum og síðan gegn Rúmeníu
í Búkarest 6. og 10. september. Það
eru verkefni sem við tökumst á við
óhræddir og bíðum spenntir eftir að
fást við,“ sagði Guðni.
Kristján Finnbogason, markvörð-
ur, var ekki síður ánægður og sagði
að leikurinn gegn Liechtenstein væri
rólegasti iandsleikurinn sem hann
hefði leikið, af þeim sextán sem
hann á að baki. „Að hafa haft lítið
að gera í markinu og fagna fjögur
núll sigri er ánæguefni fyrir mig.
Það var aðeins tvisvar sinnum sem
hætta skapaðist við mark okkar,
einu sinni í fyrri hálfleik og síðan
undir lok leiksins. Það losnaði um
ákveðna spennu þegar Einar Þór
skoraði fyrsta mark okkar. Það er
gott fyrir mig að hafa átt rólegan
dag hér, því að það eru erfið verk-
efni framundan hjá okkur KR-ing-
um,“ sagði Kristján.
„Náðum að skora snemma"
„Þetta gekk vel hjá okkur - náð-
um að skora snemma eins og við
ætluðum okkur. Það er engin spurn-
ing, við vorum miklu sterkari - leik-
menn lögðu sig alla fram í verkefn-
ið, sem var þýðingarmikið fyrir ís-
lenska knattspyrnu," sagði Her-
mann Hreiðarsson.
„Höfðum þá í vasanum"
„Eftir að við vorum búnir að skora
tvö mörk, vorum við mjög öruggir
í öllum aðgerðum okkar í seinni
hálfleik - höfðum þá í vasanum,"
sagði Eyjólfur Sverrisson.
„Það hefði verið gaman að skora.
Ég fékk 25 mínútur til að setja
mark, en ég fékk ekki færi,“ sagði
Bjarni Guðjónsson, sem kom inná
sem varamaður fyrir Sigurð Jóns-
son. „Það er sama hve lengi leik-
menn leika inni á, þeir verða að
nýta tímann sinn vel. Fjögur núll
sigur er góður og ég, eins og aðrir,
fer héðan ánægður. Við vorum
ákveðnir að leggja okkur alla fram
og það var gert.“
„Langþráður sigur“
„Formaðurinn er mjög ánægður
með það sem hann sá hér - lang-
þráður sigur er í höfn og það örugg-
ur stórsigur," sagði Eggert Magn-
ússon, formaður KSÍ. „Við komum
hingað til að vinna og við förum
héðan hamingjusamir. Það var mikið
í húfí fyrir okkur, því að krafan
heima á íslandi var sigur, ekkert
annað. Við höfum aldrei unnið svona
stóran sigur, hvorki í undankeppni
HM eða EM. Eftir að strákarnir
skoruðu annað markið var sigurinn
öruggur.“
„Alltaf gaman að skora“
„Það er alltaf gaman að skora
mörk - það opnaðist glufa, sem ég
nýtti mér,“ sagði Sigurður Jþnsson,
sem skoraði þriðja mark íslands.
„Þegar við mættum til leiks vissum
við að það var afar mikilvægt að
skora mark sem fyrst, sem við og
gerðum. Það var aðeins í byijun hjá
Rúmenar fyrstir
Rúmenar urðu í gærkvöldi fyrst-
ir Evrópuþjóða til þess að
tryggja sér sæti á HM í Frakklandi
þegar þeir lögðu Makedóníu að velli,
4:2, í Búkarest. Það voru þeir Vior-
el Moldovan, sem skoraði tvívegis,
Constantin Galca og Ilie Dumi-
trescu sem tryggðu Rúmenum sig-
urinn, en Miroslav Dzokic náði að
svara fyrir Makedóníu með tveimur
laglegum mörkum.
Rúmenar leika eins og kunnugt
er í sama undanriðli og íslending-
ar, en það gera einnig írar og Lithá-
ar, sem gerðu markalaust jafntefli
í Dublin í gær.
Tyrkir eygja enn veika von um
að komast í úrslitakeppni heims-
meistaramótsins eftir 6:4 sigur á
Walesbúum í Istanbul, en í þeirri
viðureign fór hinn sókndjarfi Hakan
Sukur á kostum og skoraði fjögur
mörk. Sukur var þó ekki sá eini sem
var á skotskónum í gærkvöldi því
Anton Polster skoraði öll mörk
Austurríkismanna þegar þeir lögðu
Eista, 3:0, í Tallinn og það sama
gerði Olivier Bierhoff í 3:l-sigri
Þjóðveija á N-írum.
Þjóðveijar sitja þó áfram í 2.
sæti 9. riðils því efsta liðið, Úkra-
ína, lagði Albaníu að velli í gær,
1:0, í Kiev. Portúgalar fylgja Þjóð-
veijum síðan eins og skugginn og
eru í 3. sæti eftir 3:1 sigur á Armen-
um í Setubal - hafa hlotið jafnmörg
stig og Þjóðveijar en eru með óhag-
stæðara markahlutfall. í Minsk
tóku Hvít-Rússar á móti Svíum og
náðu forystunni í fyrri hálfleik með
marki frá Sergei Gurenko, en Svíar
gáfust ekki upp og þeir Kennet
Anderson og Per Zetterberg náðu
að tryggja Svíum sigurinn undir lok
leiksins.
Norðmenn standa vel að vígi í 3.
riðli eftir 4:0 sigur á Finnum í Hels-
inki, en það voru þeir Stale Solbakk-
en, Petter Rudi, Jostein Flo og Tore
Andre Flo sem skoruðu mörk Norð-
manna. í sama riðli skildu Ungveij-
ar og Svisslendingar jafnir, 1:1, og
verður að telja mjög ólíklegt að ann-
að þessara liða nái að skjótast upp
fyrir Norðmenn.
Búlgarar skutust á topp 5. riðils
þegar þeir lögðu ísraelsmenn, 1:0,
í Sofía og hafa nú hlotið einu stigi
meira en Rússar. Búlgarar og Rúss-
ar mætast í næstu tveimur leikjum
riðilsins, en ísraelsmenn hafa hins
vegar lokið keppni og komast því
ekki til Frakklands.
Óhætt er að fullyrða að óvænt-
ustu úrslit gærkvöldsins hafi litið
dagsins ljós í Bosníu en þar náðu
heimamenn að leggja Dani, 3:0.
Edin Mujic kom Bosníumönnum yfir
um miðjan fyrri hálfleik og áður en
flautað var til leiksloka bætti Elvir
Bolic tveimur mörkum við úr víta-
spyrnum. Danir eru þó enn í efsta
sæti 1. riðils, en þeir mæta Króötum
í Kaupmannahöfn í september.
okkur, að menn voru óþolinmóðir -
vildu helst skora á fyrstu mínútu.
Sú óþolinmæði hvarf fljótt, þegar
við sáum að það var aðeins spurning
hvenær fyrsta markið kæmi.“
„Erfitt að leika einn frammi“
„Það er óneitanlega erfitt að leika
með mann límdan við sig - og þá
sérstaklega þar sem mitt hlutverk
var að leika einn í fremstu víglínu.
Ég er vanur að leika í liði sem leik-
ur 4-4-2, þar sem ég er með einn
leikmann mér við hlið,“ sagði Helgi
Sigurðsson, sem var á fullri ferð
allan ieikinn með menn á bakinu.
„Það skiptir ekki mestu máli að vera
með Ieikmann sér við hlið, heldur
það að ég fékk tækifæri til að leika
heilan leik. Ekki skemmir það
ánægjuna að vera í sigurliði, sem
vinnur 4:0.“
„Útisigur!"
ÞAÐ vakti athygli íslendinga
sem mættu á leikinn í Liecht-
enstein, að á einum stað á
vellinum var íslenskur fáni
og stórt hvitt lak, sem búið
var að letra á „Útisigur!“ Það
var ekki íslendingur sem
hafði komið lakinu og fánun-
um fyrir, heldur þýskur ís-
landsvinur frá Kiel, sem sagð-
ist vera mikill aðdáandi Is-
lendinga. Hann hélt t.d. með
Dortmund þegar Atli Eð-
valdsson lék með liðinu, en
er hættur að halda með því
nú - heldur með St. Pauli frá
Hamborg. Hann var fróður
um íslenska handknattleiks-
menn - hans heitasta ósk er
að íslendingur fari að leika
með Kiel í handknattleik.
Óskaleikmaður hans er Héð-
inn Gilsson.
„Drekkuhlé"
HITINN var inikill þegar leik-
urinn hófst, eða um 32 gráð-
ur. Þegar varð að gera hlé á
leiknum þegar markvörður
Liechtenstein meiddist á 35.
mín., geystust allir leikmenn
íslenska liðsins að hliðarlín-
unni til að fá sér vatn að
drekka, en um sextíu lítrar
biðu þeirra í kðssum við vara-
mannabekkinn.
Bjami Fel.
lýsti á tveimur
stöðvum
ÚTVARPSMANNI frá Liecht-
enstein þótti greinilega að
Bjarni Felixson æsti sig um
of í lýsingu sinni. Hann kom
tvisvar sinnum með hljóð-
nema sinn að Bjarna, til að
hlustendur í Liechtenstein
gætu heyrt lýsingu Bjarna.
„Sendið bolt-
ann til mín!“
UNDIR lok leiksins hrópaði
Guðjón Þórðarson, landsliðs-
þjálfari, inn á völlinn til sinna
manna - „bætið marki við
strákar!“ Sonur hans, Bjarai,
kaUaði þá móti: „Hvað er mik-
ið eftir?“ Guðjón svaraði
strax: „Sex mínútur!“ Þá
hrópaði Bjarni til meðspilara
sinna: „Sendið boltann til mín
... boltann til mín!“ Þrátt fyrir
mikla löngun tókst honum eða
félögum ekki að bæta við
rnarki.