Morgunblaðið - 21.08.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN OG UNGLINGAR
FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1997 C 7
Enginn komst
framúr Jens
Islandsmótið í siglingum á Optim-
ist- og Europe-bátum fór fram
um síðustu helgi. Siglt var á
Skeijafirði, en framkvæmd móts-
ins var í höndum Ýmis í Kópa-
vogi. Keppendur sigldu fimm um-
ferðir, en fjórar þeirra giltu. Sá
sem varð fyrstur í hverri umferð
hlaut ekkert refsistig, sá næsti
fékk 3 stig, sá þriðji 5,7 stig, sá
fjórði átta stig og þannig koll af
kolli.
Stjórnendur Europe-báta geta
vart vegið meira en 65 til 70 kg,
en misjafnt er á hvaða aldri iðkend-
ur skipta yfir í aðra tegund báta.
Það fer eftir líkamsbyggingu hvers
og eins. Aftur á móti er þátttaka
í keppni á Optimist-bátum bundin
við aldur, en leyfilegt er að keppa
á þeim fram á 15. aldursár.
Akureyringurinn Jens Gíslason,
sem keppir fyrir Nökkva, sigraði
í keppni á Europe-bátum. Hann
komst í gegnum keppnina án þess
að hljóta refsistig, sem táknar að
hann hafi verið fyrstur í mark í
öllum fjórum umferðunum sem
giltu til stiga. Hann hafði því tölu-
verða yfirburði. Steingrímur Atla-
son úr Ými varð annar, en hann
fékk 23,4 refsistig. Félagi hans,
Ævar Eðvaldsson, varð þriðji með
31,5 stig.
Um helgina var keppt í tveimur
flokkum á Optimist-bátum. í A-
fjokki sigraði hinn ungi og efnilegi
Ólafur Víðir Ólafsson úr Ými, en
hann hlaut alls 8,7 refsistig. Hjört-
ur Þór Bjarnason frá Nökkva á
Akureyri kom næstur með 12 stig,
en félagi hans, Einar Páll Egilsson
varð þriðji með 34,2 stig.
í B-flokki varð Skúli Þórarins-
son frá Brokey hlutskarpastur.
Hann fékk 16 refsistig. Kári Erl-
ingsson úr Nökkva varð annar með
19 stig, en Elvar Steinn Þorvalds-
son úr Ými hafnaði í þriðja sæti,
hlaut 42,8 refsistig.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Golfmót
handknattleiksmanna
Golfmót hancjknattleiksmanna fer
fram sunnudaginn 24. ágúst nk. á
Grafarholtsyelli og hefst kl. 9.00 ár-
degis. Skráning fer fram hjá Jóni
Pétri ffirssyni í síma 588 9892 eða
með s®|bréfi í síma 588 9896.
ÍSLENSKA liðið bíður eftir að verða flutt á setningu leikanna, f.v.: Hilmar Stefánsson, Gísli
Kjartansson, Hreiðar Guðmundsson, Jónatan Magnússon, Róbert Gunnarsson, Níels Reynis-
son, Hermann Grétarsson, Ingimundur Ingimundarson, Bjarni Fritzson, Valdimar Þórsson,
Einar Björnsson, Haukur Sigurvinsson, Heimir Ríkharðsson, fremstur er Bjarki Sigurðsson.
Handboltastrákamir á
Ólympíudögum Evrópu
Islenska landsliðið í handknatt-
leik 17 ára og yngri hafnaði í
sjöunda og næstneðsta sæti á
Ólympíudögum Evrópuæskunnar
í Portúgal fyrir
ivar skömmu. Liðið
Benediktsson vann aðeins einn
skrifar leik, viðureign við
Austurríki um 7. sætið, 25:12.
„Við vorum óánægðir með að
ná ekki lengra því við töium okk-
ur vera með betra lið, sem hefði
átt að vera á meðal fjögurra
efstu,“ sagði Heimir Ríkharðsson,
þjálfari liðsins. Hann sagði enn-
fremur að röðun í riðlana hefði
verið slæm og riðill íslendinga,
þar sem léku Spánn, Króatía og
Svíþjóð hefði verið sterkari en
hinn riðillinn þar sem léku Danir,
Frakkar og Austurríkismenn auk
heimamanna. Þess má geta að
Danir stóðu uppi sem sigurvegar-
ar eftir úrslitaleik við Svía, en lið
Danmerkur hafði mikla yfirburði
í sínum riðli.
Fyrsti leikur íslands var við
Króatíu en það lið er að miklu
leyti skipað leikmönnum sem léku
til úrslita í Adidas-cup í vor, en
það er Evrópukeppni félagsliða í
þessum aldursflokki. Þar léku tvö
króatísk lið. íslenska liðið byijaði
ágætlega og var marki yfir eftir
15 mín., 5:4. Þá kom slæmur kafli
þar sem andstæðingarnir gerðu 6
mörk í röð og í hálfleik var staðan
14:9, Króatíu í vil. í síðari hálfleik
tókst íslandi ekki að snúa taflinu
við og Króatar sigruðu, 26:21.
ísland lék besta leik sinn í
keppninni við Spánveija og höfðu
yfirhöndina nær allan leiktímann.
Um miðjan síðari hálfleik var for-
ysta íslands íjögur mörk, 14:10.
Heimir segir mjög vafasama dóma
á lokakaflanum hafi slegið ís-
lenska liðið út af laginu með þeim
afleiðingum að Spánveijum tókst
að komast yfir í blálokin og sigra
með eins marks mun, 19:18.
„Mikil harka færðist í leikinn á
lokakaflanum og t.d. var Jónatan
[Magnússon] fluttur á spítala eft-
ir höfuðhögg þegar fimm mínútur
voru til leiksloka,“ sagði Heimir.
Hann segir að varnarleikurinn
hafi verið góður þar sem Jónatan
hafi farið fyrir íslenska liðinu í
vörninni, en vandinn var sá að
íslensku markverðirnir náðu sér
ekki á strik.
í sókninni lék Róbert Gunnars-
son mjög vel, skoraði sex mörk
og fékk tvö víti, en Róbert var
markahæsti línumaður mótsins og
með markahæstu mönnum móts-
ins ásamt Ingimundi Ingimundar-
syni.
Riðill íslenska liðsins var það
jafn að þrátt fyrir tvö töp hefði
sigur á Svíum í síðasta leik nægt
til þess að leika um 3. sætið á
mótinu, þar sem Spánveijar 4 stig
en Króatía og Svíþjóð með 2 stig.
Jafnræði var með Islendingum og
Svíum framan af leik en undir lok
fyrri hálfleiks náðu Svíar þriggja
marka forskoti sem þeir létu ekki
af hendi. Heimir segir að íslenska
liðið hafi ekki leikið vel í þessum
leik, fljótfærni verið í sóknarleikn-
um og varnarleikur slakur.
Þar með var ljóst að íslenska
liðið léku um 7. sæti við Austur-
ríki. Var stefnan sett á að leggja
þá á sannfærandi hátt og laga
heildarmarkatölu liðsins. Þess má
geta að Austurríkismenn töpuðu
sínum leikjum í riðlinum með 3
til 5 marka mun. Heimir segir að
íslenska landsliðið hafi verið sam-
stillt í þessum leik, varnarleikur-
inn góður og fjöldi marka skorað-
ur úr hraðaupphlaupum.
í hálfleik var íslenska liðið með
fimm marka forskot og í seinni
hálfleik jókst munurinn jafnt og
þétt allt til loka, úrslitin 25:12 og
markatalan orðin hægstæð sem
nam 2 mörkum.
Heimir segir ennfremur að
þrátt fyrir að ekki hafi gengið sem
best hjá íslenska liðinu hafi for-
maður portúgalska handknatt-
leikssambandsins haft samband
við sig í mótslok og boðið HSÍ að
senda landslið drengja fæddra
1978 og 1980 á tvö mót sem fram
fara í Lissabon í desember næst-
komandi og í júní á næsta ári.
Breiðablik
fékk silfur
í Danmörku
BREIÐABLIK sendi tvo hópa drengja
í 4. flokki til keppni á móti jafnaldra
sinna í Hillerod í Danmörku á dögun-
um. Báðum liðunum gekk vel en sér-
staklega var árangur yngra liðsins at-
hyglisverður því það náði öðru sæti í
mótinu.
Að sögn Halldórs Þorsteinssonar
þjálfara sigraði yngra liðið Virtus frá
Italíu í fyrsta leik, 7:1. í öðrum leik
mætti liðið AIK Sillhövde, Svíþjóð, og
vann auðveldan sigur, 16:0. Síðasti
leikurinn í riðlinum var gegn liði Hill-
erod og einnig sá leikur reyndist auð-
veldur og úrslitin 10:2, Breiðabliki í
vil. Þá var komið að undanúrslitum og
þar mætti Breiðablik liði Firenze frá
Italíu. Einnig í þeim leik sótti Breiða-
blik sigur, lokatölur 3:0. Úrslitaleikur-
inn var æsispennandi og þar mættust
Breiðablik og þýska liðið Kreis Vechta.
Að leikslokum var staðan jöfn 1:1, en
svo fór að lokinni vítakeppni að þýska
félagið hafði sigur, 5:4.
Eldra liðið sigraði sænska félagið
Möldal í fyrsta leik 3:0, en varð að bíta
í það súra epli að tapa fyrir finnska
liðinu KTP Arsenal í öðrum leik, 1:2.
í síðasta leik riðlakeppninnar mætti
Breiðablik liði Hillerod og hafði betur,
3:2. Breiðablik komst áfram í undanúr-
slit en tapaði þar fyrir Twyford og var
þar með úr leik. Þess má geta að það
sigraði einmitt í þessum aldursflokki.
SILFURLIÐ Breiðabliks í
4. flokki á knattspyrnu-
mótinu í Hillerod, aftari
röð f.w.: Halldór Örn Þor-
steinsson, þjálfari, Ein-
ar Hjaltason, Vignir
Bjarnason, Pétur Bene-
diktsson, Hafsteinn Dan
Kristjánsson, Haraldur
Gunnarsson, Randver
Sigurjónsson, Haukur
Már Ingvarsson. Fremri
röð f.v.: Geir Gunnars-
son, Hannes Magnús-
son, Jens Harðarson,
Ingi Hilmarsson, Sigur-
jón Jónsson, Ágúst Þór
Ágústsson.
Morgunblaðið/Guðni Dagur
KEPPENDUR áttu fullt í fangi með að stýra bátum sínum í
sterkum vindinum á sunnudag.