Morgunblaðið - 31.08.1997, Page 1
ms gflöpi-
(ðdlDQg
SUNNUDAGUR
31. ÁGÚST 1997
SUNNUPA6UR
fltargiiiifrlabtfe
BLAÐ
Um þessar mundir er verið að opna nýtt gistiheimili í Sólheimum í Grímsnesi. Guðrún
Guðlaugsdóttir heimsótti Sólheima og kynnti sár þá margvíslegu starfsemi sem þar fer fram.
á Sólheimum
HIÐ nýja gistihús ber nafn-
ið Veghús, þar eru 16
gistirúm en fyrir eru 17
gistirúm í Brekkukoti, en
það er hið formlega nafn
á gistiþjónustunni í Sólheimum. Öll að-
staða er hin ágætasta í þessum tveimur
gistihúsum í Sólheimum og er víst að
ekki mun væsa um þá sem hana nýta
sér. Sólheimar hafa annars verið þekkt-
ari fýrir annað en ferðamannaþjónustu
fram til þessa. Þeir sem hingað til hafa
ráðist til vistar á Sólheimum hafa sjald-
an tjaldað til einnar nætur - ekki held-
ur þeir sem bjuggu þar á túninu í tjöld-
um sumarið 1930, meðan verið var að
reisa nýtt og glæsilegt íbúðarhús sem
Sesselja H. Sigmundsdóttir ætlaði til
bamaheimilisreksturs. Hún hafði þá
nýlega keypt jörðina Hverakot sem
hún gaf nafnið Sólheimar. A þeim 67
árum sem liðin eru síðan þessir atburð-
ir urðu hefur starfsemin á Sólheimum
vaxið og dafnað svo með ólíkindum er.
Nú er þar lögheimili rösklega 80 íbúa
og er Óðinn Helgi Jónsson fram-
kvæmdastjóri þessa sérkennilega litla
„þorps“ þar sem helmingur íbúanna
hefur að meginmarkmiði að styðja til
þroska og starfa hina fjörutíu einstak-
lingana sem þar búa.
I Sólheimum hófst skipulagt starf
að umönnun fatlaðra á Islandi og þar er
einnig upphaf lífrænnar ræktunar á
Norðurlöndum. Sólheim-
ar eru elsti staður sinnar
esseí/a n