Morgunblaðið - 31.08.1997, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Stóru sumarmyndirnar
frá Hollywood hafa
ekki verið upp á marga
físka að mati Arnalds
Indriðasonar. Þær eru
nógu dýrar og íburðar-
miklar en einhver hefði
þurft að skrifa handrit
þeirra í stað þess að
láta brellurnar taka
völdin.
NU, ÞEGAR ágóst-
mánuður er liðinn,
eru flestar af stóru
sumarmyndunum
frá Hollywood
komnar hingað í
bíóin og sjaldan eða aldrei hafa þær
valdið jafnmiklum vonbrigðum. Þær
hafa gengið bærilega og sumar
mjög vel í miðasölunni en sem af-
þreyingarefni eru þær langflestar
vondar og sumar verri en það. Þrjár
þeirra eru framhaldsmyndir og
hverri annarri ömurlegri. Ein er
Terry Gilliam mynd en því miður
gerð af Luc Besson og ein er tölvu-
brellumynd um svartklædda menn í
geimverustríði á jörðinni, sniðug-
lega gerð amerísk gamanmynd en
jafntóm og heilabúið í Lucy Ball.
Það er eitthvað að í Hollywood
þegar þaðan kemur slík súpa af
vondum sumarmyndum. Fyrsta
regian virðist vera sú að eftir því
sem myndirnar þaðan eru dýrari
því fíflalegri eru þær. Önnur reglan
er sú að ef ekkert handrit er til
staðar má alltaf fela það á bak við
stórkostlega íburðarmikil leiktjöld.
Hér eru fimm höfuðskepnur sumar-
myndanna sem hefðu þurft að vera
gerðar eftir kvikmyndahandritum.
Framhaldsmyndin Batman og
Robin er mjög nærtækt og lýsandi
dæmi um þróunina í Hollywood.
Það er fjórða myndin í flokki Bat-
manmynda sem undrabarnið Tim
Burton gerði í upphafí að enn einni
sögu sinni um týnda barnið, sem er
hornreka í mannlegu samfélagi.
Gúmmíhetjan Batman lék sér í
póstmódernískum leðurblökuhelli,
þjáðist vegna dauða foreldra sinna
og einangraði sig með batleikfong-
unum sínum staðráðinn í að hefna
sín á óbótamönnum að eilífu; hann
var stórskrítinn en samt skiljanleg-
ur. í fjórðu myndinni, sem hinn
hæfileikalitli fyrrum gluggaskreyt-
ingarmeistari Joel Schumacher
stýrir, er Batman einhver leiðinleg-
asta hasarmyndahetja sögunnar.
George Clooney, nýjasti hjarta-
knúsari draumaverksmiðjunnar,
leikur Batman og er á svipinn eins
og hann sé ofboðslega þreyttur
barnalæknir nýkominn heim af
alltof langri bráðavakt og á þá eftir
að dröslast um alla nóttina í kafara-
búningi frá Versace. Allar aðrar
persónur myndarinnar eru líflegri
en hann og þær eru samt allar hinar
ómerkilegstu: Schwarzenegger er
aumkunarverður frostpinni lokaður
SUMARMYNDIRNAR
1997. MIB, Batman, Fimmta
höfuðskepnan, Horfinn heimur
og Leifturhraði 2.