Morgunblaðið - 27.09.1997, Page 14
14 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
LAIMDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
HLUTI ferðalanganna sólar sig fyrir utan bæinn Sænautasel á
meðan öðrum dvelst í lummukaffinu inni í baðstofu.
Aldraðir til Austurlands
Þórshöfn - Eldri borgarar
brugðu undir sig betri fætinum á
dögunum og fjölmenntu í rútu-
ferð um Austurland. Ferðin var
farin í framhaldi af kynningar-
fundi sem var haldinn til að
kynna starf í félögum eldri borg-
ara en ekkert slíkt félag er form-
lega starfandi hér í byggðarlag-
inu ennþá en stendur trúlega til
bóta. Fararstjóri var Bjarnveig
Skaftfeld.
Vopnafjörður var fyrsti
áfangastaður hópsins og þar var
haldið beint að skoða aðstöðu
félags eldri borgara. Þar voru
hlýjar viðtökur, boðið upp á kaffi
og konfekt, þar að auki dillandi
harmoníkuspil. Hópurinn hélt þar
næst á Hótel Svartaskóg í Jökul-
dælahreppi þar sem hádegisverð-
ur skyldi snæddur og varð enginn
fyrir vonbrigðum þar, matur góð-
ur og vel úti látinn og umhverfið
einstaklega fallegt. Afram var
haldið til Egilsstaða, komið við í
Miðhúsum og þaðan sem leið ligg-
ur í bæinn Klaustursel þar sem
gestir virtu fyrir sér ýmis húsdýr
þar á bæ, s.s. hreindýr, refi,
heimaríka álft og gæsir. Ahuga-
vert handverkshús var þar líka
að sjá. Síðasti áfangi þessa ferða-
lags var bærinn Sænautasel í Jök-
uldalshreppi en þar er gamli
tíminn enn við völd. Kaffi og
lummur voru á boðstólum að
gömlum sið og afar gaman að sjá
hversu vel hefur tekist til við
endurbyggingu þessa gamla bæj-
ar í upprunalegt horf. Dagur var
kominn að kveldi þegar rútan
skilaði ferðalöngunum aftur til
síns heima eftir ánægjulegan dag.
Útisvæði við Sundhöll Selfoss
Framkvæmdir undir
kostnaðaráætlun
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
SIGURÐUR Jónsson, forseti bæjarstjórnar, og Sigmundur Stef-
ánsson, forstöðumaður Sundhallar Selfoss, ánægðir með niður-
stöður vegna framkvæmda við Sundhöll Selfoss.
Selfossi - Á fundi byggingarnefnd-
ar Sundhailar Selfoss 19. sept. voru
lagðar fram áætlaðar niðurstöður á
byggingarkostnaði vegna fram-
kvæmda á útisvæði Sundhallarinn-
ar.
Samkvæmt alútboði var gert ráð
fyrir að kostnaður við verkið yrði
48,4 milljónir. Með viðbótarkostn-
aði vegna aukinnar jarðvinnu og
fyllingu, borana, ýmissa umbeðinna
viðbótarverka, verka sem voru unn-
in af öðrum en aðalverktaka, auk
kostnaðar vegna verkfræðinga og
arkitekta nemur heildarkostnaður
við verkið 55,6 milljónum, að frá-
dregnum vsk.
Að frádreginni gjöf frá Seifoss-
veitum 5,3 milljónum og framlagi
Atvinnuþróunarsjóðs Selfoss til
framkvæmdanna, 5,1 milljón króna,
verður kostnaður bæjarsjóðs 45,3
milljónir. Á fjárhagsáætlun var gert
ráð fyrir 47 milljónum til þessa
verks, mismunur er 1,7 milljónir.
Stóraukin aðsókn
Byggingarnefndin lýsti ánægju
sinni með þessa niðurstöðu sem
sýnir að sú leið sem farin var með
alútboði skilaði verulegum árangri,
bæði hvað kostnað snertir og betra
mannvirki.
Að sögn Sigurðar Jónssonar
bæjarfulltrúa hafa framkvæmdir
staðið undir þeim væntingum sem
ætlast var til í upphafi. „Fram-
kvæmdir hafa staðist kostnaðar-
áætlun, tíma og gæði mannvirkis,"
sagði Sigurður. Hann telur einnig
að miðað við þá aðsókn sem verið
hefur í sumar verði að skoða með
fullri alvöru_ stækkun búningsað-
stöðunnar. í júlímánuði í fyrra
komu 8.000 gestir í Sundhöllina en
í sama mánuði í ár voru gestirnir
18.000, sem verður að teljast óvenju
mikil aukning.
Sigmundur Stefánsson, forstöðu-
maður Sundhallar Selfoss, tekur
undir þessi orð Sigurðar og segir
að búningsaðstaðan hafi hreinlega
sprungið á mestu álagstímunum í
sumar. Sigmundur er verulega
ánægður með þessar niðurstöður
og segir að nýjar aðsóknartölur
sumarsins sýni að rétt hafi verið
haldið á málum Sundhallarinnar
Nútímavegnr
um Fjarðar-
heiði á 90 ára
afmæli þjóð-
vegarins
Seyðisfirði - Merkur áfangi í sam-
göngumálum Seyðfirðinga og Hér-
aðsmanna hefur náðst eftir að tókst
að klára lagningu bundins slitlags
á veginum yfir Fjarðarheiði á 90
ára afmæli vegarins sem þjóðvegar.
Framkvæmdir við síðasta áfanga
vegagerðarinnar hófust í júlí í fyrra
og kláruðust nú nýlega. Fyrirtækið
Héraðsverk sá um að byggja nýjan
veg um Mjósund ásamt því að gamli
vegurinn var styrktur og endur-
bættur til muna. Dregið var úr
mishæðum og bugðum og bundið
slitlag lagt á þannig að nú er bund-
ið slitlag milli kaupstaðanna
tveggja Seyðisfjarðar og Egils-
staða.
Vegur var fyrst lagður um Fjarð-
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
MINNISVARÐI um Þorbjörn
Arnoddsson sem stendur í
Neðri Stafnum við austurbrún
Fjarðarheiðar.
arheiði sumarið 1893. Hann var
síðan endurbættur 1903 og varð
að þjóðvegi árið 1907. Fyrsta bif-
reiðin var farin um kerruveg þenn-
an árið 1928 og var hópur manna
meðferðis til aðstoðar. Á árunum
1933-34 var lagður bílvegur um
heiðina, en hann síðan færður og
endurbættur á árunum 1946-53.
Endurbætur og tilfærslur á vegar-
stæði hafa síðan verið gerðar með
fárra ára millibili allt frá 1970.
Allir í
Sparisjóðs-
hlaupið
Þórshöfn - Árlegt skemmtiskokk
Sparisjóðs Þórshafnar og ná-
grennis var haldið sl. laugardag,
en hlaupið er árvisst í tengslum
við afmæli Sparisjóðsins, 17.
september. Sparisjóðurinn varð
53 ára á þessu ári.
Þátttakendur voru 32, frá 5
ára aldri allt til rúnú'ga fimm-
tugs og var fólk í misgóón ‘ormi
eins og gengur. Vegalengdin sc*n
var hlaupin var 3 km og hver
þátttakandi númeraður því dreg-
ið var um vinningsnúmer að
hlaupinu loknu. Vinningshafinn
fékk 5.000 króna innlegg á bók
í Sparisjóðnum en auk þess fengu
allir skokkararnir pening merkt-
an hlaupinu, húfur, gos og
nammi, sem var vel þegið eftir
skokkið í góða veðrinu.
Norðvestur-
bandalagið
hf. slátrar í
Búðardal
Búðardal - Sauðljárslátrun hófst
í Búðardal 10. september sl. Að
sögn Sveins Gestssonar sláturhús-
stjóra hefur slátrun farið rólega
af stað. Nokkrir erfiðleikar hafa
verið með að fá fólk í allar stöður
en svo virðist sem það sé að tak-
ast. Alltaf vantar þó meira af vönu
fólki í fláningu, fyrirristu og inn-
anúrtöku. Stefnt er að því að slátra
liðlega 24 þús. dilkum í haust sem
er 10% aukning frá því sem var
hjá Afurðastöðinni áður. Ekki er
hægt að segja neitt til um fall-
þunga eða mat ennþá.
Eitt lítið skref í átt til ESB leyf-
is var tekið í sumar með kaupum
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdðttir
á nýju færibandi sem flytur dilka
úr réttinni í banaklefa. Með þessu
hefur náðst fram veruleg hagræð-
ing sem mun skila sér á næstu
árum.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
NU stunda 22 nemar iðnmeistaranám við Verkmennta-
skóla Austurlands.
Iðnmeistaranám við Verk-
menntaskóla Austurlands
Neskaupstað - Nú í haust hófst í
fyrsta skipti iðnmeistaranám við
Verkmenntaskóla Austurlands í
Neskaupstað. 22 nemendur víðs veg-
ar af Austurlandi stunda í þetta
skipti námið sem tekur yfir þtjár
annir.
Alls eru það 10 iðngreinar sem
kenndar eru í meistaranáminu,
hársnyrting, vélvirkjun, rafvirkjun,
símsmíði, bifvélavirkjun, bílamálun,
bakaraiðn, netagerð, húsasmíði og
rennismíði.
Áður þurftu iðnaðarmenn héðan
að austan að fara til Reykjavíkur til
að stunda þetta nám og má telja
að þorri þeirra nemenda sem nú
stunda meistaranámið hér hefðu
ekki farið í námið nema af því að
það færðist nær þeirra heimabyggð.