Morgunblaðið - 27.09.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
um að aðlagast áður en ég fer að
borða aftur. Safar eru góðir til þess.
Eftir fóstu er það of mikið álag að
borða venjulega máltíð strax. En
fastan endumærir líkamann og færir
líffærunum hvíld og lífsorku og
rannsóknir sem ég þekki til benda til
að hún auki viðnám við ýmiss konar
sjúkdómum.
egar ég er í „takti“, heima hjá
mér en ekki á ferðalagi finn
ég aldrei fyrir hungri allan
mánudaginn þegar ég fasta. Já, það
er sunnudagur núna en ég fasta ekki
meðan ég er hér. Ég tek hlutina ekki
of hátíðlega; menn mega ekki verða
of stífír og ósveigjanlegir. Það er fyrir
öllu að láta ekld slá sig út af laginu ef
eitthvað óvænt kemur upp á og
kunna að fylgja flæðinu."
Nú er komið að eftirréttum og koff-
ínlausu kaffí.
- Hvort viltu jarðarberjaosta-
köku eða bláberjaköku? spyr annar
borðfélagi, Lísa B. Hjaltested.
„Hvort sem er,“ svarar Shanti og
ypptir öxlum. Hann fær bláberja-
köku en blaðamaður fær sér jarðar-
berjakökuna og okkur ber saman um
að þær séu lostæti. Annars segist
Shanti ekki velja
sér mat eftir þvi
hvernig hann
bragðast í munni
en segist setja
áhrif fæðunnar á
líkamann og hug-
ann í fyrirrúm.
- Hver er uppá-
haldsmaturinn
þinn?
„Ég borða alls
konar mat, ávexti
grænmeti og al-
mennt þann mat
sem grænmetisæt-
ur borða. Mér
finnst gott að
breyta til og festast
ekki í einu fari. Ég
borða oft baunir og
baunasúpu, gróf
hrísgijón, alls kon-
ar grænmeti og svo er ræktað mikið
af kornmat þar sem ég á heima.“
- Af hverju borðarðu ekki kjöt?
„Það er miklu erfiðara fyrir lík-
amann að melta kjöt heldur en ávex-
ti, grænmeti og það sem græn-
metisætur borða. Til þess að melta
kjöt þarf mikla orku, sérstaklega
þegar fólk étur yfir sig og tyggur
ekki almennilega. Kjöt skilur eftir
sig mikið af úrgangsefnum eins og
t.d. þvagsýru og minnkar möguleika
líkamans á að verjast bilunum og
sjúkdómum. Svo er það slæmt fyrir
hugann og andann.
Hugurinn tekur á sig mynd eftir því
sem maður borðar. Maturinn er okk-
ar grófi líkami, hugurinn sá fíngerði.
í jógaheilsufræði skiptum við mat í
þrennt: satvik er hreinn matur, sem
stuðlar að hreinleika, hugarró og
innri friði. Hann nærir líkamann og
hjálpar til að losa um þreytu og
spennu. Þetta eru t.d. ferskir ávext-
ir, grænmeti, hnetur og korn og
þurrkaðir ávextir. Líka náttúrulegar
mjólkurvörur. Rajasik heitir matur
sem er örvandi fyrir líkama og sál,
gerir menn eirðarlausa, tilfinninga-
næma og æsta og ýtir líka undir
hungurtilfinningu. Þetta er t.d. kjöt,
alkóhól, fiskur, egg og mikið krydd-
aður matur. Tamasik er svo þriðji
flokkurinn sem dregur úr starfsvilja
og gerir mann sljóan, orkulítinn og
sinnulausan. Þetta er hvers konar
rotnandi og úldnandi matur og af-
gangar, og t.d. verksmiðjuframleidd-
ur og unninn matur.
vo er matur ýmist alkalískur
eða súr. Við efnaskipti á
sterkju og próteinum og dýr-
um verður til þvagsýra, brennisteins-
sýra og fosfórsýra sem mynda úrfell-
ingar. En við efnaskipti á ávöxtum og
grænmeti, líka mörgum súrum
ávöxtum, verða til alkalísk steinefni
eins og kalsíum, magnesíum, natiium
og kalíum. Flestur matur er súr:
kjöt, kaffi, sykur, hveiti, fiskur, unn-
inn matur, lyf,
gosdrykkir og ís.
Náttúrulegur
mjólkurmatur
myndar hlutlaus-
ar úrfellingar. Til
þess að ná og
halda jafnvægi
þarf að borða
meira af alkalísk-
um mat en súr-
um. En það ætti
ekki að útiloka
súran mat heldur
koma á jafnvægi
og auka við það
sem maður borð-
ar af alkalískri
fæðu. Flestir
gera of lftið af því
og eru þess
vegna með of
súrt mataræði.
Það getur valdið mörgum vandamál-
um, hefur t.d. slæm áhrif varðandi
gigtarsjúkdóma. Alkalískur matur er
góður fyrir hjartað, dregur úr slím-
framleiðslu og hefur alls konar góð
áhrif á mann.“
- Hvernig kanntu við þig á Is-
landi?
„Mjög vel, hérna er andrúmsloftið
og umhverfið afslappað og þægilegt;
engh' glæpir, engar byssur, ekkert
ofbeldi. Fólk virðist samheldið og op-
ið og hér ganga hlutirnir vel fyrir
sig,“ segir Shanti Desai jógameist-
ari. Áðm- en borðhaldinu er slitið
stendur þessi kviki og glaðlegi mað-
ur upp með myndbandsvélina sína
og festir borðfélaga sína og aðra
gesti veitingahússins á myndband í
bak og fyrir.
Uppskriftin
Marinerað
tnfu meéi
hirsi
TOFU er lagt í lög sem er búinn
til úr tamari, rauðvíni, tómatp-
urré, hvítlauk, engifer og sesam-
olíu. Látið liggja í leginum yfir
nótt og bakað í ofni í 20-30 mín-
útur. Skorið eftir þörfum. Borið
fram með bökuðum kúrbit (zuc-
chini), soðnu hirsi-sesam og
steiktum paprikum.
5kjöl um 5amband
KOMIÐ hefur i Ijós
leyniskjöl sem áttilfflK |
að sýna fram á
heföi gert samkomu-
lag við Marilyn Mon-
ro« til að tryggjo
á skjölunum. En
aðrir sérfrœð-
ingar, ráðnir af
ABC, skáru ur
um að aðalskjal-
ið hefði verið
vélritað á ritvél,
sem hefði verið
framleidd mörg-
Um árum eftir
Pagsetningu
• Heimildar-
f tettir ABC
verða byggðir á
Kennedy og þekMWVl
rithöfundur fella út JJ
kafla f vœntanlegff
bék sinni, samkvamf
heimildum New York
Tlmes.
Rithandarsérfrœð-
ingar ABC höfðu áður
greint fré þvi að ekki
Fnóvember.
Samkvæmt
ónafngreindum
heimildum
band Kennedys
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 23
böit/un P
FYRIR stuttu kom út nýr
leikur á leikjatölvuna Play-
Station og ber hann nafnið
Legacy of Kain og er árangur sam-
starfs Crystal Dynamics og Silicon
Knights.
Legacy of Kain fjallar um ferða-
lang sem er myrtur á hrottalegan
hátt og gefst síðan tækifæri
til að verða vampýra og
koma fram hefndum. I
bræði sinni grípur hann
færið fegins hendi, en ekki
er nóg að drepa morð-
ingjana því spurningin
er: Hverjir fyrirskipuðu
morðið? Hvort er hefnd-
argjöfín blessun eða
bölvun? Upp frá þessu
hefst ofsafengin leit
Kains að lækningu við
vampýrisma.
Samblandl
Leikir snúast iðulega
um góðar hetjur og
göfuglyndi. Ingvi M.
Árnason gerðist illvíg
blóðsuga.
hlutverka-
ng ævin-
týraleiks
Legacy of Kain
er sambland af
hlutverka- og æv-
intýraleik og hef-
ur höfundum
tekist mjög vel
að blanda sam-
an þessum tveim þátt-
um. Grafik leiksins er mjög góð og
einnig eru myndbönd öll vel
heppnuð og fagmannlega gerð.
Legacy of Kain er ekki með því
sniði sem er vanalegt í tölvuleikj-
unum því í þessum leik ert þú ekki
góði bjargvætturinn heldur vondi
morðinginn. Til
þess að lifa þarftu að drepa og
limlesta bæði óvini jafnt sem sak-
laust fólk í rúmum sínum. Leikur-
inn er því ekki fyrir veikgeðja ein-
staklinga sem gætu tekið það
næn-i sér að ráðast á mann úti á
götu, drepa hann og sjúga úr hon-
um blóðið.
Eitt af einkennum leiksins er að í
honum neyðist söguhetjan til að
vera vond en kýs það ekki sjálf
vegna mannvonsku sinnar, því eins
og kemur fram í byrjun gi'einar
var Kain myrtur án nokkurs tilefn-
is og grípur eina tækifæri sitt til að
ná fram hefnd.
Margai' mismunandi
drápsaðferðir
eru í leiknum og
fjölbreytni mikil,
þú getur valið úr
21 galdraþulu til
þess að drepa
óvini þína, stjóma
þeim, eða lækna
sjálfan þig. Að vera
vampýra hefur bæði
marga kosti og
marga galla. Kain
getur breytt sér í leð-
urblöku, úlf, þoku eða
venjulega mannveru, á
móti kemur að hann
þolir hvorki vatn né
sólarljós.
Til að losna undan
bölvuninni þarf Kain að
drepa níu meðlimi
hringsins sem á laun
stjómar öllu landinu og
að lokum þarf hann að
ákveða hvort heimurinn
bjargist eða eyðileggist.
Blood Omen: Legacy of
Kain er án nokkurs vafa
einn besti leikur ársins og nýtur
hann nú þegar vaxandi vinsælda
hjá PlayStation og PC-aðdáendum.
Iblltewoll
Wíf er mtti tímum
Laukakörfur - allt úrvals laukar
LAUKAKARFA KR. 1499,
INNIHALD:
30 túlipanar
20 krókusar
20 perluliljur
10 stjörnuíiljur
15 páskaliljur
SAMTALS 95 LAUKAR
LAUKAKARFA KR. 999,
INNIHALD:
20 túlipanar
10 krókusar
20 perluliljur
10 páskaliljur
SAMTALS 60 LAIJKAR
INNIHAIJD:
3 jólahýasintur
5 jólatúlipanar
5 jólaliljur
12 jólakrókusar
25 JOLALAUKAR