Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Arni Sæberg
KRAKKAR fylgdust forvitnir með þegar starfsmenn Hitaveitunnar
dældu upp vatni sem iekið hafði úr röri við Fjallkonuveg, en vatnið
flæddi um tíma um alla götuna.
Vatnslaust en allt á
floti í Grafarvogi
HEITAVATNSLAUST varð í
nokkrum húsum kringum Fjall-
konuveg í Grafarvogi, m.a. í
Foldaskóla, eftir hádegi í gær,
vegna bilunar í götuæð.
Heitt vatn lak úr röri rétt hjá
brunni við gatnamót Fjallkonu-
vegar og Fannafoldar og var unn-
ið að viðgerðum fram undir
kvöld.
Sfmon Sigurðsson hjá bilana-
ESB styrkir
íslenskar
gigtar-
rannsóknir
EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur ný-
lega veitt um eitt hundrað milljóna
króna styrk til evrópsks samstarfs-
verkefnis í gigtarrannsóknum, sem
Kristján Steinsson yfirlæknir og
samstarfsmenn hans eiga frumkvæði
að, með rannsóknum sínum á orsök-
um gigtarsjúkdóma á gigtardeild
Landspítalans.
Að sögn Kristjáns Steinssonar yf-
irlæknis á gigtardeild Landspítalans
og Rannsóknarstofu í gigtsjúkdóm-
um er þetta einn stærsti styrkur sem
Evrópusambandið veitir fyrir rann-
sóknir í líf- og læknisfræði. Hlutur
gigtardeildar og Rannsóknarstofu af
styrknum verður um 13 milljónir
króna. Hann muni skipta sköpum
fyrir fjárhagslegan framgang rann-
sóknanna.
■ íslenskar/10
þjónustu Hitaveitu Reykjavíkur
segir rennslistruflanir ekki óal-
gengar á þessum árstfma. Einnig
segir hann algengt að gufu andi
upp úr brunnum án þess að nokk-
uð sé í raun að. „Þegar kóinar í
veðri þarf ekki svo mikið til að
andi upp úr brunnum og niður-
föllum, svo mikill er hitinn, þar
sem rörin eru óeinangruð niðri í
brunnunum," segir hann.
Svo gæti farið að stærsta verkalýðsfélag landsins færi úr ASÍ
VR krefst breytinga
á starfsemi LIV
MAGNÚS L. Sveinsson, formaður
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, segir í leiðara VR-blaðsins að ef
ekki náist samkomulag um að gera
breytingar á starfsemi Landssam-
bands íslenskra verzlunarmanna sé
það aðeins tímaspursmál hvenær
LÍV líði undir lok. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins ætlar
VR að segja sig úr LÍV verði ekki
gerðar breytingar á starfsemi sam-
bandsins á þingi þess 10.-12. októ-
ber nk.
Aðalfundur VR samþykkti í apríl
sl. að veita stjórn VR umboð til að
taka til endurskoðunar aðild félags-
ins að LÍV. Þessi samþykkt var
gerð í framhaldi af ágreiningi milli
VR annars vegar og verslunar-
mannafélaganna á landsbyggðinni
hins vegar um stefnu í kjaramálum í
nýafstöðnum samningum. Magnús
segir í VR-blaðinu að djúpstæður
ágreiningur hafi einnig verið milli
félaganna um lífeyrismál og skatta-
mál ASI. Ennfremur hafi mjög
skort á fræðslu og kynningarstarf
hjá landssambandinu.
„Framtíð LÍV er undir því komin
hvort það hrindir í framkvæmd því
brýna félags- og kynningarstarfi,
sem hér hefur verið gert að umtals-
efni og vanrækt hefur verið. Ef það
tekst ekki, þá er aðeins spurning
hvenær LÍV líður undir lok. Það
væri mjög alvarlegt og því verða all-
ir að leggjast á eitt að afstýra því.
Abyrgðin hvílir á þeim sem veljast
til forystu í LÍV, þeir verða að hafa
forystu um að það megi takast,"
segir Magnús.
Viðræður um breytingar
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
formaður LÍV og varaforseti ASÍ,
sagði að viðræður hefðu átt sér stað
milli sín og VR og á milli VR og
nokkurra stórra verslunarmannafé-
Iaga um ágreiningsmál þar sem far-
ið var yfir áherslur VR. Hún sagðist
gera ráð fyrir að menn myndu setj-
ast niður aftur á næstu dögum og
fara yfir þær hugmyndir sem fram
hefðu komið um breytingar á starf-
semi sambandsins, en formaður VR
hefur verið í fríi undanfarnar vikur.
Hún sagðist ekki telja að ágreining-
ur milli félaganna væri raunveru-
lega svo mikill að menn ættu ekki
að geta náð saman.
Morgunblaðið/Rax
Steingrímur Hermannsson um yfírlýsingu Seðlabanka
Undrandi á að málið
skyldi fara í íjölmiðla
„ÉG ER ákaflega undrandi á að
þetta mál skyldi fara í fjölmiðla og
veit ekki hvemig það hefur gerst.
Vitanlega á að leysa svona mál inn-
an bankans en ég sinnti þessum
málum í góðri trú,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson, bankastjóri
Seðlabankans, um yfirlýsingu
bankaráðs Seðlabankans í fyiradag
um athugasemdir við þátttöku
bankans í kostnaði við ferðir sem
ekki tengdust bankanum.
Steingrímur Hermannsson, sem
staddur er í fríi í Bandaríkjunum,
kvaðst hafa sinnt þessum umhverf-
ismálum í góðri trú; að bankaráðið
væri því ekki andvígt, og hann hefði
í fyrrahaust tekið við formennsku í
trúnaðarráði Millenium Institute í
Washington eftir að hafa rætt við
Þröst Ólafsson, formann bankaráðs
Seðlabankans. Stofnunin vinnur að
ýmsum rannsóknum á umhverfls-
og efnahagsmálum.
„Ég hélt að þetta félli undir það
sem við köllum einu nafni efna-
hagsmál en vildi ekki gera það fyrr
en ég hefði rætt við formanninn og
hann gerði enga athugasemd. Ég
sagði að þetta þýddi þrjár ferðir á
ári til Washington þar sem stofn-
unin hefur aðsetur. Formaðurinn
segir í yfirlýsingunni að þó að hann
hafi enga athugasemd gert hafi það
ekki þýtt samþykki en ég spyr þá
aftur hvers vegna í ósköpunum
heldur maðurinn að ég hafi verið
að tala um þetta við hann ef ég ætl-
aði að gera þetta á eigin vegum,
svo þetta kemur mér mjög á
óvart.“
Umhverfismál hafa mikil
áhrif á efnahagsþróun
Steingrímur Hermannsson
kvaðst þeirrar skoðunar að um-
hverfismálin séu orðin þverfagleg
og farin að hafa mikil áhrif á efna-
hagsþróun almennt en ekki aðeins
á líf mannsins. Steingrímur segir að
í 12 manná trúnaðarráði Millenium
Institute séu sérfræðingar úr ýms-
um sviðum atvinnulífs en engir
stjórnmálamenn. Sagði hann starf-
semina áhugaverða og að hann
hefði hug á að kynna hana betur
hérlendis.
Aðspurður sagðist Steingrímur
ekki fara fleiri ferðir vegna Milleni-
um Institute á vegum bankans ef
ekki væri skilningur fyrir því að
slíkt væri æskilegt og kæmi fram
ósk um endurgreiðslu myndi hann
skoða það. „Ef menn halda að þetta
tengist ekki efnahagsmálum þá fer
ég ekki í þessar ferðir á vegum
bankans. Mér finnst það hins vegar
þröngsýni því það er staðreynd, að
viljum við byggja álver á Islandi
verður að gera ráðstafanir til að
draga úr koltvísýringsmengun sem
er mjög kostnaðarsamt og snertir
okkur efnahagslega. Þetta er dæmi
um stöðugt vaxandi áhrif umhverf-
isins á efnahagsþróun."
Alþingi
tekur til
starfa
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra,
og Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, gengu fremstir í flokki
þingmanna úr kirkju til setningar
122. löggjafarþings þjóðarinnar í
gær. Starfsbróðir Ólafs frá Lit-
háen, Vytautas Landsbergis, fylgd-
ist með þingsetningunni og endur-
kjöri Ólafs til embættisins.
■ Aðgangur/6
„Eg trúi því ekki að það sé ósk
stærsta verkalýðsfélags landsins að
kljúfa verkalýðshreyfinguna. Mér
finnst hins vegar sjálfsagt að ræða
þær athugasemdir og áherslur sem
þeir hafa og sjá hvort hægt er að
samræma þær þeim áherslum sem
aðrir hafa í sambandinu. Það mun-
um við gera á næstu dögum. Það er
bara af hinu góða að endurskoða
starfsemina," sagði Ingibjörg.
Gangi VR úr Landssambandi ís-
lenskra verzlunarmanna gengur fé-
lagið um leið úr ASÍ.
-------------------
Forsætisráðherra flytur
stefnuræðu sína í dag
Andsvör
leyfð og
umræðan
stytt
SAMKOMULAG hefur tekist milli
þingflokka um að umræða um
stefnuræðu forsætisráðherra verði
með breyttu fyrirkomulagi. Um-
ræðan verður stytt og leyfð verða
andsvör við ræðum þingmanna. Þá
mun forsætisráðherra svara gagh-
rýni sem að honum beinist. Forsæt-
isráðherra flytur ræðuna í kvöld kl.
20.30.
Ólafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, hefur beitt sér fyrir breyt-
ingunum. Ekki náðist samkomulag
um tillögur til breytinga sem lagðar
voru fram fyrir ári, en nú náðu
þingflokkamir saman. -Fyrirkomu-
lag umræðunnar verður þannig að
forsætisráðherra flytur stefnuræðu
sína sem tekur u.þ.b. 25 mínútur.
Talsmenn annarra þingflokka fó
síðan 8 mínútur hver til að flytja
sínar ræður. í annarri umræðu héf-
ur hver þingflokkur 6 mínútur til
umráða og þá gefst þingmönnum
jafnframt tækifæri til andevara. I
þriðju umferð verður ræðutími
hvers þingflokks 3 mínútur og í
þeirri umferð mun forsætisráðherra
svara gagnrýni. Gert er ráð fyrir að
umræðan standi í u.þ.b. 125 mínút-
ur, en áður hefur hún jafnan staðið í
um 160 mínútur.
Líflegri umræða
Ólafur sagðist vonast eftir að
breytingin yrði til þess að umræðan
yrði líflegri og markvissari. „Það er
almennur vilji fyrir því að gera um-
ræðuna líflegri og ekki síður að það
eigi sér stað skoðanaskipti mill*
flokksleiðtoga. Ég tel að það fyrir-
komulag sem við tökum upp núna
sé byrjunin á því. Ég fell hins vegar
ekki frá þeirri hugmynd minni að
stefnuræðan verði flutt við þing-
setningu og umræður um hana
verði kvöldið eftir,“ sagði Ólafur.
Starf framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjöðs
Sautján umsóknir
SAUTJAN umsóknir höfðu í gær
borist um starf framkvæmdastjóra
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins sem
taka á formlega til starfa um áramót.
Amar Sigurmundsson, formaður
stjórnar sjóðsins, segir ekki útilokað
að fleiri umsóknir berist og segir
hann stjómina væntanlega gera út
um ráðninguna á morgun.
Arnar Sigurmundsson segir brýnt
að framkvæmdastjórinn komi til
starfa sem allra fyrst þar sem mörg
verkefni bíði úrlausnar. Stjórnin
heldur fjórða fund sinn á morgun og
segist Arnar vona að þá takist að
ákveða ráðningu. Leita þurfi hús-
næðis fyrir starfsemina, sem gert sé
ráð fyrir að verði í Reykjavík, og
ráða starfsfólk en núverandi starfs-
menn sjóðanna sem verða sameinað-
ir í Nýsköpunarsj óðnum muni ganga
þar fyrir. Stofnfé Nýsköpunarsjöðs
atvinnulífsins verður fjórir milljarð-
ar króna.