Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 4

Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997________________________ FRÉTTIR aicj/wjaí^jojit MORGUNBLAÐIÐ Frumvarp um húsaleigubætur f undirbúningi í félagsmálaráðuneytinu Greiddar af öllu húsnæði alls staðar á landinu Bankaráð Seðlabankans Réttur maka til dagpeninga afnuminn FRUMVARP um húsaleigubætur er í undirbúningi í félagsmálaráðu- neytinu og verður væntanlega lagt íram á Alþingi á næstu vikum. Gert er ráð fyrir að þær breytingar verði m.a. gerðar á núverandi húsaleigu- bótakerfi að bætur verði greiddar af öllu leiguhúsnæði alls staðar á land- inu, en nú er það í valdi hvers sveit- arfélags fyrir sig að ákveða hvort húsaleigubætur eru greiddar, auk þess sem þær eru ekki greiddar vegna húsnæðis í opinberri eigu. Nefnd á vegum félagsmálaráðu- neytisins vinnur að undirbúningi frumvarpsins. Samkomulag er um flest atriði. Þó er enn ekki komin niðurstaða varðandi skattlagningu húsaleigubóta, en þær eru skatt- skyldar nú. Páll Pétursson félags- málaráðhérra segist vonast eftir því að samkomulag náist í þeim efnum innan fárra daga. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði í Morgunblaðinu í gær að breyta þyrfti lögum sem kveða á um að ekki séu greiddar húsaleigubætur vegna leigu á hús- næði í eigu hins opinbera. Einnig sagði borgarstjóri brýnt að afnema skattlagningu húsaleigubóta og benti á í því sambandi að vaxtabæt- ur, sem greiddar eru vegna öflunar eigin húsnæðis, séu undanþegnar skatti. Rök bæði með og á móti _ Félagsmálaráðherra sagði að það væru bæði rök með og á móti því að skattleggja húsaleigubætur. Fjár- málaráðuneytið legði áherslu á að flækja ekki skattkerfið og fjölga undanþágum, en á hinn bóginn væri samanburðurinn við vaxtabætum- ar. Hann teldi aðalatriðið fyrir sveitarfélögin vera að þær húsa- leigubætur sem þau greiddu gengju til þess að aðstoða leigjendur en yrðu ekki tekjupóstur íyrir ríkis- valdið. Málið sneri að fjármálaleg- um samskiptum ríkis og sveitarfé- laga og unnið væri að lausn. Þá væri einnig á það að líta að stór hópur þeirra, sem nytu húsaleigubóta, væri undir skattleysismörkum. Breyting í þá veru að undanþiggja þær skatti myndi ekki verða til þess að bæta hlut þess hóps. „Meginatriðið finnst mér vera að húsaleigubætur séu greiddar um land allt og af öllu leiguhúsnæði. Skattaleg meðferð er svo sérmál sem við verðum að leysa,“ sagði Páll. VR-félagar á at- vinnuleysisskrá Vilja frek- ar vera í VR en fá hærri bætur TÆPLEGA þúsund félagar í Verslunarmannafélagi Reykja- víkur, sem voru á atvinnuleys- isskrá, vildu greiða áfram 1% félagsgjald en atvinnulausum er gefinn kostur á að hætta þeirri greiðslu og fá hærri bætur sem því nemur. Aðeins sex völdu hina leiðina en frá þessu segir í nýjasta tölublaði VR-blaðsins. Með nýjum lögum um at- vinnuleysistryggingar frá 1. júlí sl. verða vinnumiðlanir að fá skriflega yfirlýsingu hjá þeim sem eru atvinnulausir um það hvort þeir vilja áfram greiða 1% félagsgjald til stétt- arfélags síns eða hætta aðild og fá frekar 1% hærri bætur. Af tæplega 1.000 VR-félögum á atvinnuleysisskrá voru að- eins 6 sem ekki vildu njóta áfram réttinda sem þeir höfðu áunnið sér sem félagar í VR. Segir í VR-blaðinu að þetta bendi til þess að VR hafi já- kvæða ímynd í hugum félags- manna og þeim séu vel ljós þau mikilvægu réttindi sem félags- aðild fylgi. í blaðinu er getið um þessi réttindi, en þau eru m.a. greiðslur sjúkradagpen- inga úr sjúkrasjóði verði félagi veikur meðan hann er atvinnu- laus, dvöl í orlofshúsum VR, námsstyrkir og ókeypis lög- fræðiaðstoð vegna kjaramála, svo sem innheimtu laima. Eldur í bílskúr \ > ELDUR kom upp í bflskúr á Langholtsvegi í gær. Ungur mað- ur sem var við skúrinn var fluttur á slysadeild þar sem líkur voru taldar á að hann hefði fengið reykeitrun. Mikill eldur logaði í Iofti og veggjum bflskúrsins þegar slökkvilið bar að. Inni í skúrnum var ýmislegt dót, þar á meðal stórt vélhjól sem skemmdist mik- ið. Rjúfa þurfti þak hússins til að komast að eldinum og gekk þá greiðlega að slökkva hann. Engin hætta var á því að eldurinn bærist í nærliggjandi hús þar sem hann stendur sér á lóð. Eldsupptök eru ókunn. Morgunblaðið/Ámi Sæberg BANKARÁÐ Seðlabankans hefur ákveðið að afnema þá reglu að bankinn greiði ferðakostnað fyrir maka bankastjóra bankans þegar þeir eru á ferðalögum erlendis. Þröstur Ólafsson, formaður banka- ráðs Seðlabankans, segir að þetta hafi verið gert nýlega vegna þess að búið sé að taka ákvörðun um að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög og því eigi samanburður á kjörum banakastjóra Seðlabank- ans við bankastjóra rildsviðskipta- bankanna ekki lengur við. Um áramótin 1993 og 1994 var réttur maka bankastjóra Seðla- bankans til dagpeninga afnuminn. Þröstur sagði að þetta hefði verið gert m.a. vegna yfirlýsinga þáver- andi viðskiptaráðherra um að réttur maka bankastjóra Landsbanka og Búnaðarbanka til dagpeninga yrði afnuminn. Það hefði hins vegar aldrei verið gert. Bankaráðið hefði því tekið þá ákvörðun árið 1996 að setja þetta inn aftur. Jafnframt hefðu laun bankastjóra Seðlabank- ans verið hækkuð. Ástæðan hefði verið sú að laun þeirra voru miklu lægri en laun bankastjóra Lands- banka og Búnaðarbanka og raunar hefði launamunurinn verið svo mik- ill að Seðlabankastjórar hefðu varla verið hálfdrættingar á við suma að- stoðarbankastjóra ríkisviðskipta- bankanna. Samanburður á ekki lengur við Þröstur sagði að eftir að ákvörð- un hefði verið tekin um að breyta Landsbanka og Búnaðarbanka í hlutafélög ætti þessi samanburður ekki lengur við og þess vegna hefði verið tekin ákvörðun um að afnema rétt maka bankastjóra Seðlabank- ans til ferðadagpeninga. Seðlabank- inn væri núna eini ríkisbankinn og stjómendur hans tækju hér eftir sjálfstæðar ákvarðanir um launa- kjör og án samanburðar við aðra banka. Konu leitað á Mjóafjarðarheiði í fyrrinótt Kom fram eftir níu klukkustunda hrakninga HVAÐ HEITIR STRAKURINN? KONA um fertugt, Bylgja Magnús- dóttir, lenti í miklum hrakningum á Mjóafjarðarheiði í fyrrinótt eftir að bíll sem hún ók lenti út af veginum. Eftir að 40 manns úr björgunarsveitr um víða úr fjórðungnum höfðu leitað hennar kom hún fram á bænum Hesteyri í Mjóafirði. Hún háfði villst, í dimmviðri og þoku og var um það bil 9 tíma að komast um 20 km leið. Hún var köld, hrakin og hrufluð og lá í gær á sjúkrahúsinu við Neskaup- stað en var óðum að jafna sig, að sögn læknis. Hundur Bylgju sem hvarf eftir umferðaróhappið, var hins vegar ekki kominn fram í gær. Leitaði hundsins Bylgja var á leið frá Neskaupstað í heimsókn til Önnu M. Guðmunds- dóttur, bónda á Hesteyri. Á heiðinni lenti bfllinn út af veginum. Bylgja lagði af stað gangandi að sækja að- stoð, _ og ekki síður í leit að hundin- um sínum sem varð hræddur við útafaksturinn og lét sig. hverfa í myrkrið. Anna á Hesteyri, sem átti von á gestinum, sagðist hafa farið að undrast um Bylgju. Þegar ekkert hafði heyrst til hennar um miðnætti var kominn beygur í Önnu. Hundurinn hvarf í myrkrið Hún hringdi þá í granna sinn, Sig- fús Vilhjálmsson í Brekku. Sigfús fór akandi til leitar, fann bflinn og farþega Bylgju sem þar beið. Bylgju fann hann hins vegar ekki þrátt fyr- h’ að aka margsinnis frá bflnum og niður í Mjóafjörð en þangað hafði hún gengið þegar hundurinn svaraði ekki kalli. Þegar Bylgja kom ekki fram voru björgunarsveitir kallaðar til leitar og fóru 40 menn með hunda frá Eskifirði, Egilsstöðum, Neskaup- stað og Reyðarfirði. Bylgja birtist hjá Önnu um kl. 8 í gærmorgun. Eftir að hafa yljað sér þar var hún flutt á sjúkrahúsið á Egilsstöðum og síðan á Neskaupstað. Hvasst og vottaði fyrir sleipu Anna á Hesteyri segir að veður hafi verið slæmt og skilyrði erfið þessa nótt. „Það var hvasst og vott- aði fyrir sleipu,“ sagði hún. Bylgja hafði villst út fyrir veg á leið sinni og fallið niður skriður, rotast um stund og meitt sig. „Þarna er kröpp vinkil- beygja og þar datt hún niður. Hún var að þreifa íyrir sér hvar vegurinn lægi en þá allt í einu tekur tómið við henni. Það var niðamyrkur. Tunglið er að verða búið. Það var rigning og kannski vottur af þoku; alveg blý- svart,“ segir Anna M. Guðmunds- dóttir, sem í fyrrinótt sá ekki einu sinni ljósin á heiðinni. Þreytt, köld og rennandi blaut Bylgja er vel staðkunnug í Mjóa- firði en lenti í svo miklum villum að hún þurfti að vaða yfir á til að kom- ast leiðar sinnar. Hún var því gegn- drepa þegar hún kom heim að Hest- eyri. „Hún var þreytt, köld og renn- andi blaut,“ segir Ánna. Bylgja hafði verið hlýlega klædd, m.a. í þykkri peysu og góðum leðurjakka. Fyrir hönd Bylgju bað Anna M- Guðmundsdóttir Morgunblaðið að lýsa eftir seppanum sem hvarf > myrkrið við slysstaðinn. Þetta er svartur kjölturakki, gráskeggjaður, 1 árs og fælist ókunnuga. Anna á Hesteyri segir að sér detti í hug þessi gamla vísa þegar hún hugsar til seppans á heiðinni: Mikil ósköp eru að sjá angann vafinn dyggðum. Litlumfótumlabbará langt frá mannabyggðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.