Morgunblaðið - 02.10.1997, Page 11

Morgunblaðið - 02.10.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 11 FRÉTTIR Reglugerð sem skyldar hjólreiðamenn 14 ára og yngri til hjálmanotkunar tók gildi í gær Morgunbl aðið/Þorkell ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra og börnin setja upp hjálm. „Þetta er ekkert mál,“ sagði Þorsteinn eftir að hann settist á hjól í fyrsta sinn í 29 ár. Ráðherrann á hjóli í fyrsta sinn í 29 ár REGLUGERÐ sem skyldar alla hjólreiðamenn yngri en 15 ára að nota hjálma tók gildi í gær. íslend- ingar eru fyrstir Evrópuþjóða að setja slíkar reglur, en Nýja-Sjáland og nokkur ríki í Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu hafa þegar farið þessa leið. Engin viðurlög verða við brotum gegn reglunum fyrst um sinn „Reglugerðin er að vísu tíma- bundin tilraun og afmörkuð við þennan hóp, en ég er sannfærður um að þetta muni að lokum leiða til almennrar skyldunotkunar hjálma,“ sagði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra í gær. Hann vitnaði í Ólaf Ólafsson landlækni þess efnis að með setningu reglu- gerðarinnar gætu þeir báðir, ráð- herrann og landlæknir, látið af störfum því þeir hefðu látið svo mikið gott af sér leiða. Slysavarnafélag íslands ætlar að he§a áróðursherferð fyrir hjálmanotkun næsta vor og meðal annars verður gert myndband til að sýna rétta notkun þeirra. Á lyóli í fyrsta sinn í 29 ár Mikill krakkaskari á hjólum, og með hjálm, safnaðist saman fyrir framan Laugardalshöllina til að fagna tímamótunum, og til að njóta veitinga í boði Mjólkursam- sölunnar. Nokkrir miðaldra ráða- menn tóku sig til og hjóluðu einn hring með börnunum áður en þeir stigu upp í limmósínurnar og óku á brott. Þorsteinn Pálsson, sem var að setjast upp á reiðhjól í fyrsta sinn í 29 ár, sagði að hjálmurinn myndi sennilega koma sér að góðum not- um, en komst þó klakklaust á leið- arenda. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri bar sig fagmann- lega, enda vön hjólreiðum og á hjálm og notar hann alltaf. Hún sagðist þó enn eiga eftir að venja eiginmann sinn á þann góða sið. Árni Sigfússon borgarfulltrúi var mannalegastur allra, mættur á eig- in hjóli að heiman og í hjólreiðaföt- um og hló að jakkafata- og kápu- klæddum viðvaningunum. Lísa Ingadóttir. Pálmi Hreinsson. Allir noti hjálm! HVERNIG fáum við börn til að nota reiðhjólahjálm? Um- ferðarráð svaraði því á þennan hátt i gær og óskaði sérstak- lega eftir að allir hefðu þessar leiðbeiningar í huga: • Notum sjálf hjálm þegar við hjólum. • Tölum við börnin okkar um það af hveiju við viljum láta þau nota hjálm. •Verðlaunum börnin fyrir að nota hjálm. • Leyfum börnunum ekki að fara út að hjóla nema þau séu með hjálm. • Hvetjum vini barnanna okk- ar til að nota hjálm. Nær alltaf með hjálm LÍSA Ingadóttir, 11 ára, er alltaf með hjálm. „Ég hef aldrei dottið á hausinn af hjólinu, en einu sinni rak ég hausinn í vegg. Þá hefði ég sjálfsagt meitt mig mikið ef ég hefði ekki verið með hjálm.“ Henni fannst fullorðna fólkið ekk- ert hallærislegt með hjálmana. Pálmi Hreinsson, sem líka er 11 ára sagði að Þorsteinn ráðherra væri flottur á hjólinu. „Það er asnalegt að vera ekki með hjálm.“ Pálmi var á hjóli systur sinnar, því hans eigin hjóli hafði verið stolið og það eyðilagt. „Ég hef dottið á hausinn í torfærum og hefði slasað mig ef ég hefði ekki verið með hjálm." „Ertu alltaf með hjálm?“ spurði blaðamaður. „Jájá,“ sagði Pálmi. „Það er nú ekki alveg rétt,“ sagði félagi hans sem stóð við hliðina á honum. „Jæja,“ sagði Pálmi, „næstum því alltaf. Mig klæjar dálítið und- an honum.“ Hugmyndir Leikfélags Islands og Við Tjörnina um rekstur Iðnó Húsaskjól fyrir frjálsa leik- hópa og rekið án styrkja Kjörnefnd Sjálfstæðis- flokks vegna prófkjörs í Reykjavík Kannað hvort nöfn- um skuli bætt við KJÖRNEFND vegna prófkjörs sjálfstæðismanna í Reykjavík síðar í mánuðinum vegna borgarstjórnar- kosninga næsta vor situr nú á stöð- ugum fundum og kannar hvort bæta skuli við fleiri nöfnum á lista vegna prófkjörsins. Sextán manns tilkynntu um framboð sitt í byijun vikunnar. Eitt verkefna kjörnefndar er að kanna hvort bæta skuli við nöfnum og leita hófanna verði það niður- staðan. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin en búist er við að nefnd- in ljúki þessum athugunum sínum fyrir helgina. Halda á prófkjörið föstudag og laugardag 24. og 25. október næst- komandi. FYRIR borgarráði Reykjavíkur ligg- ur nú tillaga um að gengið verði til samstarfs við Leikfélag Reykjavíkur og veitingahúsið Við Tjörnina um rekstur Iðnó með tilteknum skilmál- um. „Hugmyndin er að þarna verði leiksýningar, tónleikar og fleira," sagði Magnús Geir Þórðarson hjá Leikfélagi íslands. Verður þetta þá þriðja atvinnu- leikhúsið í borginni? „Það er ekki hugmyndin heldur að þetta sé hús- næði sem frjálsir atvinnuleikhópar komast í. Ekki að þetta verði stofn- un, “ segir Magnús Geir. Hann segir að félagið vilji leita eftir samstarfi við sem flesta lista- menn og sjálfstæða leikhópa sem ekki hafa átt húsaskjól undir sína starfsemi. Reynt verði að halda þannig utan um að verkefni passi saman og útkoman verði heilsteypt verkefnaskrá. Einnig segir Magnús Geir stefnt að því að efna til tónleika- raða í húsinu í samstarfi við tónlist- armenn. Ekki bara léttmeti í skilmálum Reykjavíkurborgar kemur fram að rekstraraðilar Iðnó geti ekki vænst annarra styrkja en þeirra að fá húsið til afnota en Magn- ús Geir segir að ekki megi setja samasemmerki milli léttmetis og þess að setja upp leiksýningar sem þurfa að ganga upp fjárhagslega. Þótt settar verði upp sýningar sem talið er að fólk vilji sjá þýði það ekki að menn ætli að varpa listræn- um metnaði fyrir róða. „Þó að Iðnó eða Leikfélag íslands fái ekki opin- bera styrki er ekki útilokað að hóp- arnir fái styrki vegna sinna sýn- inga,“ segir hann ennfremur. Viðræður borgarinnar og Leikfé- lags íslands um Iðnó hafa staðið yfir í nokkra mánuði og Magnús Geir segir að unnið hafi verið að ýmsum öðrum hugmyndum og velt vöngum yfir verkefnavali. Hann vill hins vegar ekkert upplýsa í því efni fyrr en eftir að málið er í höfn og afgreiðslu borgaryfirvalda lokið. Að því búnu verði allt sett á fullt við að útbúa verkefnaskrá. Hins vegar segir hann ekki ólíklegt að fyrsta verkefnið í húsinu verði á vegum Leikfélags Reykjavíkur í tengslum við aldarafmæli þess. Við Tjörnina áfram Jóhann Helgi Jóhannesson hjá veitingahúsinu Við Tjörnina segir enn ýmislegt ófrágengið varðandi fyrirkomulag á veitingarekstri í Iðnó enda séu samningar ekki í höfn og það hafi fyrst í fyrradag orðið lík- legt að þetta tækifæri mundi gef- ast. Hann segir stefnt að því að hafa opið veitingahús í Iðnó á hverj- um degi, jafnvel verði veitingastaður á efri hæðinni þar sem boðið yrði upp á veitingar og jafnvel seldur matur með sumum leiksýningum. Meðal þess sem er óljóst er hvort um daglegan kaffihúsarekstur verð- ur að ræða. Við Tjömina verður þó rekinn áfram, segir Jóhann. „Það er spurn- ing hvort það er ekki markaður fyr- ir okkur á tveimur stöðum,“ segir Jóhann Helgi aðspurður hvort veit- ingahúsið verði þá ekki sinn eiginn keppinautur. Hins vegar áréttar hann að reksturinn í Iðnó muni aðal- lega verða í tengslum við lista- og menningaruppákomur í húsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.