Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 19

Morgunblaðið - 02.10.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 19 ÚR VERINU Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir MIKIL skipaumferð hefur verið í Siglufjarðarhöfn undanfarna daga og ekki hefur hafst undan að vinna alla þá rækju sem borist hefur þar að landi. Góð rækjuveiði hefur verið norður af Langanesi Löndunarbið á Siglufirði MJÖG góð rækjuveiði hefur undanfarið verið norður af Langanesi og löndunarbiðar gætt á Siglufirði í rækjunni nú í vik- unni þó að menn eigi miklu frem- ur að venjast slíku í loðnu og síld. Að sögn Kristjáns Rögnvaldsson- ar, hafnarvarðar á Siglufirði, lönduðu fjórir togarar og fjórir bátar um 380 tonnum af rækju í síðustu viku sem er metafli á einni viku. Þar af voru 280 tonn unnin á Siglufírði, en ekið var með um 100 tonn suður til Kefla- víkur og Grindavíkur til vinnslu. Fjórir togarar stunda rækju- veiðar á vegum Þormóðs ramma- Sæbergs. Það eru Stálvík, Siglu- vík, Múlaberg og Sólberg og hafa forsvarsmenn fyrirtækisins grip- ið til þess ráðs að kalla skipin inn eftir 50 tonna veiði þar sem að rækjuverksmiðja fyrirtækisins afkastar vart meiru. Sigla, skip Siglfirðings, sér rækjuverksmiðju Pólar, sem einnig er á Siglufirði, fyrir hráefni. Þormóður rammi-Sæberg hef- ur nýlega samið við verslunar- keðju Marks og Speneer um tölu- vert magn af rækju í neytenda- pakkningum sem fara munu beint í stórmarkaðina. Að sögn Stein- ars Svavarssonar, gæðastjóra hjá Þormóði ramma-Sæbergi, hófst þessi starfsemi af einhverri al- vöru um miðjan september, en að hans sögn eru í bígerð fleiri samningar af þessu tagi. í verk- smiðjunni á Siglufírði er ein- göngu pakkað eftir pöntunum. Gert er ráð fyrir að um það bil sex til sjö starfsmenn vinni við þessa framleiðslu til að byrja með en til greina kemur að setja á vaktafyrirkomulag síðar. Eins og fram hefur komið í fréttum lagði Þormóður rammi niður alla bolfiskvinnslu fyrir- tækisins í landi í sumar og hefur AUÐUR Sigurgeirsdóttir, verkstjóri í pökkunarsal Þormóðs ramma- Sæbergs, heldur á tilboðspakkningu fyrir Marks og Spencer. síðan verið að byggja upp full- rækju þar sem nú fer fram ýmiss komna pökkunarverksmiðju fyrir konar tilraunavinnsla. Loðnan lætur bíða eftir sér ENGIN loðna hefur fundist ennþá en þrjú skip, Beitir NK, Hólmaborg SU og Víkingur AK, hafa verið við leit á vest- ursvæðinu og suður með Grænlandssundi. Hefur engin breyting átt sér stað á þessu svæði frá því að leitað var þar fyrir rúmum hálfum mánuði og þar er miklu minna líf en á sama tíma í fyrra, hvorki hvalur né fugl. Skipin höfðu fengið ágætis veður til leitar en í gærkvöldi var þó búist við nokkrum kalda úti af Vestfjörðum. Leituðu skipin á nokkuð stóru svæði eða þar sem veiðin byij- aði í fyrra. Var ekkert að finna en Beitir og Hólmaborg- in leituðu norðvestur með landhelgislínunni milli Græn- lands og íslands og höfðu 10 sjómílna fjarlægð á milli skip- anna. í gær og í nótt ætluðu skipin að leita austureftir. Víkingur hafði verið á svipuð- um slóðum en í gær var hann á siglingu suður Grænlands- sund á leið heim. Hvorki hvalur né fugl Á þessum tíma í fyrra var loðnan farin að veiðast norður af Horni og komið hefur fyr- ir, að hún hafi verið farin að fást um þetta leyti austur af Kolbeinsey. Nú er hins vegar lítið líf að sjá, hvorki hval né fugl, og hefur epgin breyting orðið á síðan Guðmundur VE og Víkingur voru þar við leit í vikutíma fyrir rúmum hálf- um mánuði. Menn eru þó að vona, að það sé aðeins spurn- ing um nokkra daga þar til loðnan fer að láta sjá sig. SÝNIN G ARBÍLLINN fer í hringferð um landið. Kynntur á Islandi SÝNINGARBÍLL frá James Walker- verksmiðjunum í Bretlandi er nú staddur á íslandi og verður til sýnis fram til 13. október. James Walker er einhver stærsti framleiðandi pakkningarefnis og pakkninga í heiminum og hefur G.J. Fossberg vélaverslun, Skúlagötu 63, boðið þessar vörur beint frá framleiðanda í rúm 60 ár. Fyrri vikuna verður sérfræðingur frá James Walker í för með bílnum og verða þá höfuðborgarsvæðið og nágrannabyggðir heimsóttar. Seinni vikuna fer bíllinn í hringferð um landið. í dag verður bíllinn til sýnis í Keflavík og Grindavík og á morgun á Akranesi. Mánudaginn 6. október verður hann á Höfn, þriðjudaginn 7. október á Fáskrúðsfírði og Eski- firði, miðvikudaginn 8. október á Neskaupstað, fímmtudaginn 9. októ- ber á Húsavík og Akureyri, föstu- daginn 10. október á Sauðárkróki og mánudaginn 13. október í Reykjavík. Þeim, sem koma í sýning- arbílinn og panta JW-vörur, er boðið upp á 20% afslátt af þeim. Þessari tölvu fylgir góður prentari - ásamt mótaldi og 4ra mánaða Internetáskrift hjá Margmiðlun • AMD 200 MHz MMX örgjörvi ' 32 MB EDO minni ' 15" flatur lággeisla skjár ' ATI 3D booster 2 MB skjákort ' 2.6 GB harður diskur ' 20 hraða geisladrif > Soundblaster 16 ' 50w hátalarar • 33.6 bás mótald m/faxi og símsvara ■ 4ra mánaða Internetáskrift hjá Margmiðlun • Kynningamámskeið um Intemetið fylgir • Windows 95 CD, Win95 lyklaborð + mús Kr. 139.900 MEST FYRIR MINNST 400 prentari - 720 dpi . dr fylgja með Tðlvúr Grensásvegi 3 • Simi 588 5900 • Fax 588 5905

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.