Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 24
roer AííHO’raO.SíJIKiAGUTMMI'l 24 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 _________________________________MORGÚNBLÁÐIÐ ERLEIMT Zoran Djindjic vikið úr embætti borgarstjóra Hvatt til daglegra mótmæla í Belgrad Belgrad. Reuter. STJORNARANDSTÖÐUFLOKKAR í Serbíu hafa hvatt til daglegra mótmæia í landinu eftir að Zoran Djindjic, einum af leiðtogum stjórn- arandstöðunnar, var vikið úr emb- ætti borgarstjóra Belgrad í fyrradag. Um 20.000 stuðningsmenn Djindjic söfnuðust saman í Belgrad í fyrrakvöld til að mótmæla brott- vikningunni en hundruð lögreglu- manna réðust á þá með kylfum til að stöðva göngu þeirra. Djindjic hvatti fylgismenn sína til að hefja dagleg mótmæli í serbnesku höfuð- borginni eins og síðastliðinn vetur þegar hundruð þúsunda manna söfn- uðust saman á götum borgarinnar á hveijum degi til að krefjast þess að Slobodan Milosevic, þáverandi forseti Serbíu, viðurkenndi sigra stjórnarandstöðunnar í borg- arstjórnarkosningum í Belgrad og fleiri serbneskum borgum. Milosevic neyddist ti! að verða við þeirri kröfu eftir þriggja mánaða mótmæli og hann hefur nú tekið við embætti forseta Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu og Svartfjallalands. Hætta á stjórnlagakreppu Fréttaskýrendur sögðu að frekari götumótmæli gætu aukið á vanda Milosevic, sem hefur reynt að tryggja að sósíalistar haldi völdunum í Serbíu eftir að hafa ráðið þar lögum og lofum í hálfa öld. Sósíalistum tókst þó ekki að fá meirihluta þing- sætanna í kosningum 21. september og frambjóðandi þeirra fékk ekki nógu mikið fylgi til að ná kjöri í forsetakosningum sem haldnar voru sama dag. Kosið verður að nýju milli tveggja efstu frambjóðendanna á sunnudag en kosningarnar verða ógildar ef kjörsóknin verður minni en 50%. Nái forsetaefni sósíalista ekki kjöri gæti orðið stjórnlaga- kreppa í landinu. Milosevic er einnig í vanda vegna ólgu meðal albanska meirihlutans í Kosovo-héraði, þar sem námsmenn hafa sótt í sig veðrið að undanförnu og boðið sósíalistum birginn. Lög- reglan beitti táragasi og kylfum til að kveða niður mótmæli þeirra í Pristina, höfuðstað héraðsins, í gær. Þá hefur Milosevic sætt harðri gagniýni í Svartíjallalandi og búist er við að andstæðingar hans þar fari með sigur af hólmi í þing- og forseta- kosningum í landinu á sunnudag. Liður í valdabaráttu Djindjic var vikið frá fyrir atbeina Vuks Draskovic, leiðtoga Serbnesku endurreisnarhreyfingarinnar (SPO), sem myndaði bandalag gegn honum með sósíalistum og þjóðernissinnum í Róttæka flokknum í borgarstjórn- mm. Turnberry Mjög vandað amerískt borðstofusett á góðu verði. Settið kemur frá hinum margrómaða framleiðanda Broyhill. Borð, sex stólar, glerskápur og skenkur af vandaðri gerð. i Verð kr. , 223.460,- ... Wr'i /* r- fc Éfe 'Mmid Arlinton Heights Amerískt hágæða borðstofusett fyrir vandláta. Settið kemur frá Broyhill eins og Turnberry. Borð, sex stólar, glerskápur og skenkur afvönduðustu gerð. Verðkr. 418. Reuter ZORAN Djindjic, einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Serbíu (t.h.), karpar við lögreglumenn, sem stöðvuðu mótmæli stuðningsmanna hans í Belgrad eftir að honum var vikið úr embætti borgarstjóra. inni. Fréttaskýrendur sögðu að at- lagan að Djindjic væri liður í baráttu Draskovic fyrir því að verða óum- deildur leiðtogi stjórnarandstöðunn- ar. Draskovic og Djindjic voru banda- menn í borgarstjórnarkosningunum í nóvember sl. þegar Zajedno, banda- lag stjórnarandstöðuflokkanna, bar sigurorð af sósíalistum. Alltaf hefur þó verið grunnt á því góða með þeim og fjandskapur þeirra magnaðist þegar flokkur Djindjic neitaði að styðja Draskovic í forsetakosningun- um. Djindjic og fleiri stjómarand- stöðuleiðtogar ákváðu að sniðganga kosningarnar. Draskovic varð í þriðja sæti í for- setakosningunum og fékk tæpa milljón atkvæða. Jagland sætir gagnrýni flokksfélaga Ósló. Morgunblaðið. STÓR hluti Óslóardeildar norska Verkamannaflokksins er ósáttur við hvernig flokksformaðurinn, Thorbjorn Jagland forsætisráð- herra, rak kosningabaráttuna fyrir nýafstaðnar þingkosningar, þar sem flokkurinn náði ekki þeim atkvæðafjölda sem að var stefnt. Undanfarna viku hafa Jagland og samheijar hans í flokksforystunni mátt sæta all- harðri gagnrýni í flokksdeildum víða um landið vegna þess hvern- ig þeir héldu á málum I kosninga- baráttunni og í kjölfar kosning- anna. Dagblaðið Verdens Gang sagði frá því í fyrradag að Gro Balas, fyrrverandi borgarstjóm- arfulltrúi í Ósló, hefði efnt til uppgjörs við flokksforystuna á fundi í flokksdeild höfuðborgar- innar. Aftenposten hefur líka heimildir fyrir því að gagnrýni hafí verið höfð i frammi á vinnu- brögð forsætisráðherrans á fundi í flokksfélaginu Sosialdemo- kratisk forening, en það félag er eldra en Verkamannaflokkur- inn sjálfur, stofnað 1885. 36,9% takmarkið vafasamt Í hveiju gagnrýnin nákvæm- lega felst er ekki fullljóst af frétt- um blaðanna, en vitað er að Gro Balas hafí lagt mest upp úr því í sinni gagnrýni að yfírlýst mark- mið Jaglands um að flokkurinn yrði að ná 36,9% fylgi í kosning- unum - það sama og í síðustu kosningum, að öðrum kosti myndi hann láta stjómartaumana af hendi. Einnig hlaut Balas góðar undirtektir á fundi flokksdeild- arinnar er hún gagnrýndi hvern- ig Jagland tók á Framfara- flokknum í kosningabaráttunni; hann hefði tekið skakkan pól í hæðina með því að einbeita sér að því að gagnrýna stefnu Framfaraflokksins í efnahags- málum í stað þess að taka fyrir stefnu hans í málefnum innflytj- enda. Bilun í indversku gervitungli Bangalore á Indlandi. Reuter. FYRSTA indverska gervitunglinu, sem er að öllu leyti starfhæft, var skotið á loft á mánudag, en snurða hljóp á þráðinn í gær er í ljós kom að sporbraut þess var sporöskju- laga en ekki hringlaga eins og til stóð. Vísindamenn við indversku geimrannsóknasamtakanna sögðu ástæðuna vera þá, að bilun hefði orðið í eldflauginni sem bar gervi- tunglið á braut. Að öðru leyti hefði geimskotið verið óaðfinnanlegt. Á næstu dögum yrði reynt að lag- færa villuna og koma gervitungl- inu á fyrirhugaða braut. Þetta er fjórða geimskotið sem samtökin standa að, en í fyrstu þrem báru eldflaugarnar tilrauna- gervitungl sem voru einungis að hluta til starfhæf. Framkvæmdastjóri viðskipta- sviðs geimrannsóknasamtakanna sagði í gær að geimskotið sýndi að Indveijar hefðu að fullu tök á þeirri tækni er þyrfti til að koma gervitunglum á braut. Vonast Ind- veijar til að fá sinn skerf af dijúg- um heimsmarkaði fyrir geimskot, og hafa þegar gert samninga um að koma gervitunglum á spor- braut. Síðla á næsta ári verður suður-kóreskt gervitungl flutt, ásamt indversku, út í geiminn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.