Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 30

Morgunblaðið - 02.10.1997, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Gunnlaugur Scheving í Lista safni Islands Lífið heldur áfram Listprjón í Galleríi Sævars Karls FJÓLA. Hilmarsdóttir, fata- ogtísku- hönnuður, opnar sína fyrstu sýningu á listprjóni í Galleríi Sævars Karls á morgun, föstudag kl. 16. Fjóla útskrifaðist frá Norfolk Inst- itute of Art and Design í Englandi árið 1989. Þar nam hún hönnun um tveggja ára skeið og var verðlaunuð bæði árin fyrir verk sín. í kynningu segir: „Þeir sem unna fallegri og listrænni hönnun fá hér einstakt tækifæri, því flíkur sem þessar hafa aldrei sést á sýningum hér áður. Fjóla var tæpa þrjá mán- uði að teikna og pijóna hveija þeirra. Sannkallað listpijón, allt að 100 litir, eru í hverri kápu og mótívin eru fuglar, landslag og íslensk munstur." Sýningunni lýkur 22. október. ♦ ♦ ♦ Fyrirlestur um íslensk kirkjuklæði ELSA E. Guðjónsdóttir, fyrrverandi deildarstjóri Textíl- og búningadeild- ar Þjóðminjasafnsins, heldur fyrir- lestur í anddyri íjóðminjasafns ís- lands í dag, fimmtudag, kl. 17. Fyrir- lesturinn nefnir hún Islensk kirkju- klæði á miðöldum. Erindið er annað í röð fyrirlestra sem efnt er til í tengslum við norsk- íslensku kirkjusýninguna Kirkja og kirkjuskrúð sem stendur yfir í Þjóð- minjasafninu. Elsa fjallar um ís- lensku miðaldaklæðin sem talin eru einstök í sinni röð. „Elsa er manna fróðust um þessi efni og hefur helg- að rannsóknir sínar þeim um ára- tugaskeið," segir í kynningu. Sýningin Kirkja og kirkjuskrúð, Miðaldakirkjan í Noregi og á ís- landi, Samstæður og andstæður mun standa til 18. október nk. og því fara að verða síðustu forvöð að skoða úrval þjóðargersema beggja þjóð- anna. Sýningin verður að því búnu flutt til Noregs þar sem hún verður fyrst sett upp í Norsk Folkemuseum í Ósló. BJÖRN Bjamason menntamála- ráðherra opnar sýninguna Gunn- laugur Scheving - Ur smiðju lista- mannsins föstudaginn 3. október kl. 20. Sýningin er byggð á úrvali úr dánargjöf Gunnlaugs en þegar hann lést 1972 arfleiddi hann lista- safnið að öllum verkum sínum, alls um 1.800 verkum. Gjöfin er mjög margbreytileg; meðal annars 12 olíumálverk, 306 vatnslitamyndir, fjöldi túsk- og vatnslitaskissna, teikningar, grafíkmyndir og 50 teiknibækur og nokkrar dagbæk- ur. Á sýningunni verður úrval olíu- málverka og skissur og undirbún- ingsmyndir sem tengjast þeim. Með því gefst tækifæri til að fylgj- ast með ferli myndanna, allt frá fyrstu frumdráttum og síðan stig af stigi er myndhugsunin tekur margvíslegum umbreytingum. Gunnlaugur Scheving er einn af fremstu og rismestu listamönn- um íslands. Hann fæddist í Reykja- Ljósmynda- sýning í Gerðubergi framlengd í MENNINGARMIÐSTÖÐ- INNI Gerðubergi stendur yfir ljósmyndasýning af listsköpun barna frá Norðurlöndum. Boð- ið er upp á leiðsögn um sýning- una með Sigrúnu Guðmunds- dóttur, lektor KHÍ, og Kristínu Ólafsdóttur leikskólakennara miðvikudaginn 8. október frá kl. 10-12 og 13-15. Sýningunni hefur verið framlengt til 12. október nk. vík en fluttist snemma til Seyðis- fjarðar. Hann Iagði stund á mynd- list við Konunglegu akademíuna í Kaupmannahöfn en fluttist til Is- lands að námi loknu. Gunnlaugur tilheyrir þeirri kynslóð listamanna sem fram komu í lok fjórða áratug- arins. í verkum Gunnlaugs er mað- urinn alltaf í öndvegi, bæði í sjáv- ar- og sveitalífsmyndum hans. í fyrirlestrasal verður sýnd sjón- varpsmynd um Gunnlaug Scheving frá 1992. Um Gunnlaug hafa verið skrif- aðar tvær bækur; eftir Matthías Johannessen: Gunnlaugur Schev- ing og eftir Grete Link: Árin okk- ar Gunnlaugs. I tengslum við sýn- inguna verður gefið út veglegt rit með greinum eftir listfræðingana Halldór B. Runólfsson og Júlíönu Gottskálksdóttur. Fyrirlestrar og Ieiðsögn um sýn- inguna verða auglýstir siðar. Sýningin stendur til 21. desem- ber. KVIKMYNPIR Háskólabíó FUNI „Fever Pitch“ ★ ★ ★ Leikstjóri: David Evans. Handrit: Nick Homby byggt á samnefndri skáldsögu hans. Kvikmyndatöku- stjóri: Chris Seager. Tónlist: Neal MacColl og Doo Hewerdine. Aðal- hlutverk: Colin Firth, Ruth Gemm- ell. Film Four. 1996. MÁLFRÆÐINGURINN Noam Chomsky, sem er ekkert mannlegt óviðkomandi, sagði einhvern tíma að fólk notaði íþróttirnar sem hentuga leið til þess að forðast að takast á við raunveruleg vandamál er þarfn- ast umræðu og úrlausna. íþróttir notaði fólk til þess að flýja raunveru- leikann og forðast að taka ábyrga afstöðu. Urslit í íþróttakappleikjum, sem í raun skipta engu máli, verða því mikilvægari en t.d. úrslit kosn- inga af því íþróttakappleikjum fylgir engin ábyrgð heldur þvert á móti leikur. Hvaða máli skiptir það raun- verulega að ÍBV varð íslandsmeist- ari í knattspyrnu? spyr Chomsky og auðvitað miklu fleiri í hópi svokall- aðra antísportista. Hann ætti að sjá bresku gamanmyndina Funa eða „Fever Pitch“. Hann gæti lært sitt- hvað af henni um fólk og íþróttir og þetta að halda með sínum mönnum - og hata þá ... Myndin er byggð á samnefndri sögu eftir Nick Homby, sem einnig skrifar handrit hennar, og segir af forföllnum áhanganda breska knatt- spyrnuliðsins Arsenal. Umgjörðin er keppnin um Englandsmeistarabikar- inn árið 1989 þegar Arsenal hafði talsverða möguleika á að hreppa KVIKMYNPIR Iláskólabíó SJÁLFSTÆÐAR STELPUR „Career Girls“ ★ ★ ★ Leikstjóm og handrit: Mike Leigh. Kvikmyndataka: Dick Pope. Aðal- hlutverk: Katrín Cartlidge, Lynda Stedman, Kate Byers, og Mark Ben- ton. 87 mín. Bresk. Thin Man Productions/ Matris Film & Television Partnership/ Channel Four Films. 1997. í SJÁLFSTÆÐUM stelpum held- ur Mike Leigh áfram að skoða hvunndaginn og sérkennileg hegð- unarmynstur með aðstoð leikara sinna. Myndin er lausari í böndun- um en verðlaunamyndin Leyndar- mál og lygar, sem var reyndar óvenju strúktúreruð af Leigh-mynd að vera. Tvær vinkonur, Hannah (Katrin Cartlidge) og Annie (Lynda Stedman), sem leigðu saman á há- skólaárunum, hittast eftir sex ára aðskilnað og eyða helgi saman. Ekkert yfirmáta dramatískt gerist. Þær borða og drekka, og skoða íbúðir, og hitta fyrir röð tilviljana nokkrar manneskjur sem snertu líf þeirra þegar þær leigðu saman. Endurfundurinn vekur upp minn- ingar og myndin flakkar á milli nútímans og fortíðarinnar. Brotin púslast saman hægt og rólega en myndin verður þó aldrei heil eða fulllokið. Sjálfstæðar stelpur veitir innsýn í líf Hannah og Annie en skilar engum lokalausnum. Þegar Annie og Hannah kynnast er sálfræðineminn Annie svo feimin að hún getur ekki horfst í augu við fólk, og svo taugaveikluð að hún er með útbrot vegna taugaspennu, auk þess að vera með astma. Hannah felur hins vegar sitt óör- yggi með því að vera hvöss, árásar- hann í fyrsta skipti í 18 ár. Colin Firth leikur Arsenaláhangandann fima skemmtilega en er annars ekki þekktur fyrir gamanleik (D’Arcy í sjónvarpsþáttunum Hroka og hleypi- dómum). Hann er kennari sem lifir nákvæmlega eftir Chomskyreglunni; hann tekur ekki afstöðu í neinu nema það snerti Arsenalliðið. Ef því vegnar illa líður honum illa. Ef því vegnar vel líður honum vel. Hann gerir áætl- anir í lífi sínu byggðar á leikjaskrá liðsins. Hann varðar lítið um sitt eig- ið líf og líf annarra. Þegar honum er boðið betur launað starf sér hann ekki tilganginn. Þegar hann fer að búa með kvenmanni, sem Ruth Gem- mell leikur, og barnar hana kemur það við hann en Arsenal skiptir meira máli. Kennarinn ætti að vera bijóstum- kennanlegur og er það í augum sam- býliskonunnar; maðurinn losnar ekki úr barndómi og er fastur í einhverri æskuhrifningu sem brýst út á hverj- um laugardegi þegar leikið er í enska boltanum og hefur mótað alit hans líf. En Firth og rithöfundurinn Hornby vita betur og leggja áherslu á að gera hann miklu fremur skiljan- legan en hlægilegan. Fótboltinn er lífið sjálft, hann er taugin í æsku- minningarnar, sem allir trega, hann tryggir samastað í tilveru sem veitir annars ekki mikið skjól og hann ger- ir þig að einum af „þeim“, hvort sem er í sigri eða tapi. Þessar tilfinningar eru inntakið í Funa og þær eru settar fram oft á spaugilegan hátt þótt undir niðri kraumi alvaran. Þetta er ekki aðeins mynd fyrir fótboltafríkin heldur alla þá sem vilja komast að því hvað þetta eiginlega er að halda með lið- inu sínu. Arnaldur Indriðason gjöm, og hæðin. Hún er óþolandi enskunemi sem þarf sífellt að sýna hvað hún er klár með orðaleikjum. í upphafi á maður erfitt með að ímynda sér að þær nái saman og verði vinkonur. Galdurinn hjá Leigh og leikkonunum er að það er ná- kvæmlega það sem gerist, og virð- ist fullkomlega eðlilegt vegna þess að þær bæta hvor aðra upp. Áldurinn og lífið slípar báðar til. Þegar þær hittast aftur hefur Hannah meiri stjórn á skapi sínu, á meðan Annie getur horft í augun á fólki og útbrotin era horfin þó að enn hafi hún astma. Báðar era búnar að leggja svörtu „Cure“-fötin til hliðar og komnar í pen „buis- ness“-kvennaföt. Hannah hefur náð lengra í lífsgæðakapphlaupinu, starfar í London og er að hugsa um að kaupa sér íbúð, en Annie býr með mömmu sinni í gamla heimabænum sínum og er ekki eins ánægð með starf sitt. Tregatilfinning einkennir endur- lit vinkvennanna. Háskólaárin era grá, kuldaleg og tilfinningalega hrá en tilveran býr samt yfir krafti sem vantar í hlýjum pastellitum núsins. Áhersla er lögð á að sýna hvað ungt fólk sem er að mótast getur verið grimmt og óvægið. Ekki ein- göngu í samskiptum vinkvennanna sín á milli heldur einnig við sam- leigjandann Claire, og háskólanem- ana Ricky (Mark Benton) og Adrian (Joe Tucker). Sjálfstæðar stelpur er brota- kennd mynd sem hefur að geyma mörg skörp andartök. Hversdagslíf Hannah og Annie býr bæði yfir húmor og depurð sem Cartlidge og Stedman koma til skila á kraftmik- inn og fínlegan hátt. Þessi sjötta kvikmynd Leighs er ekki stórmynd en hún býr yfir meira afli en mörg dramatískari verk. Anna Sveinbjarnardóttir Fyrirlest- ur um „tarGET“ FULLTRÚAR verkefnisins tar- GET halda fyrirlestur í Nýlista- safninu, Vatnsstíg 3b, á morg- un, föstudag, kl. 20.30. tarGET er nafn á listviðburði sem sjö ungir listamenn frá íslandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku eru að undirbúa um þessar mundir. Listamennirnir dvelja af þessu tilefni í gesta- vinnustofunni í Straumi í Hafn- arfirði. Afrakstur dvalarinnar í Straumi mun verða sýndur í Norræna húsinu í Reykjavík í október, í Stenersenmuseet í Ósló janúar, i Tröndelag Kunstnersenter í mars og síð- ast í Stokkhólmi í maí í nýju safni sem heitir Fárgfabriken. Listamennirnir, John Oivind Eggesbo, Torbjorn Skárild, Brynhild Bye, Magnea Ás- mundsdóttir, Sólveig Birna Stefánsdóttir, Maria Friberg og Birgitta Silfverhielm eiga það sameiginlegt að hafa öll verið skiptinemar á íslandi og í Nor- egi. Vinna þeirra er byggð á þessum útgangspunkti, eða kynnum þeirra hér á landi og er í senn tilraun til að vinna saman að settu listrænu markmiði og jafnframt að vinna með þær félagslegu að- stæður sem skapast við það að búa saman í liðlega tvo mánuði fjarri vinnustofum og heima- högum. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Morgunblaðið/Ásdís SÝNINGIN undirbúin í Listasafni íslands. Afram Arsenal!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.