Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.10.1997, Blaðsíða 42
tÍ2 FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi HALLDÓR PÉTUR KRISTJÁNSSON fiskmatsmaður, Hlíf II, ísafirði andaðist á Sjúkrahúsi ísafjarðar sunnudaginn 28. september. Jarðarförin fer fram frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 4. október kl. 14.00. Jón Halldórsson, Sóley Sigurðardóttir, Auður Haildórsdóttir, Rafn Þórðarson, Ólína Halldórsdóttir, Arnaldur Árnason, Sigrún Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG ELÍN ELÍASDÓTTIR frá Hallbjarnareyri, áður Sæviðarsundi 13, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 3. október kl. 15.00. Bjarni Gunnarsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Svanhildur Gunnarsdóttir, Sturlaugur G. Filippusson, Valgerður Gunnarsdóttir, Jón B. Guðmundsson, María Gunnarsdóttir, Árni Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, KRISTÍN KARLSDÓTTIR, Brimhólabraut 6, Vestmannaeyjum, andaðist aðfaranótt þriðjudagsins 30. septem- ber í Hraunbúðum, Arnmundur Þorbjörnsson, Ásta Arnmundsdóttir, Sigurður Jónsson, Gyða Arnmundsdóttir, Viðar Aðalsteinsson, og barnabörn. + Eiginmaður minn og faðir, JÓN GUÐMANN VALDIMARSSON, Háeyrarvöllum 38, Eyrarbakka, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudag- inn 28. september sl. Jarðarförin verður gerð frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 4. október kl. 14.00. Stefanía Magnúsdóttir, Árni Guðmannsson, og fjölskyldur. + Hjartkær eiginmaður minn, GUÐMUNDUR HÖRÐUR GUÐMUNDSSON, Brekkugötu 5 í Vestmannaeyjum, sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja föstudaginn 26. september sl., verður jarðsettur frá Landakirkju laugardaginn 4. október nk. kl. 11.00 f.h. Sigurbjörg Guðnadóttir. + Þökkum innilega öllum þeim sem hafa sýnt okkur samhug og vinarþel við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur okkar, móður, tengdamóður og ömmu, ÖNNU MARÍU EINARSDÓTTUR, Heiðarhjalla 43, Kópavogi. Bolli Magnússon, Ásta Magnúsdóttir, Einar Einarsson, Ásta Bolladóttir, Ralph Ottey, Magnús Bollason, Elín Eiríksdóttir, Bolli Magnússon yngri. MÁLFRÍÐUR ÓSKARSDÓTTIR Málfríður (Dadda) Óskars- dóttir Möller fædd- ist 4. apríl 1925. Hún lést 24. desem- ber 1996. Foreldr- ar: Anna Signrjóns- dóttir, f. 14. marz 1891 á Brunnastöð- um, Vatnsleysu- strönd, og Óskar Lárusson, stór- kaupinaður, f. 15. janúar 1887. Syst- kini: Sigrún, Arn- björn, Lárus, Dór- othea. Uppeldis- systkini: Adolf Karlsson og Axel Óskar Lárusson. Eftirlif- Við viljum í fáum orðum minn- ast konu sem reyndist fjölskyldu okkar sannur vinur og hjálparhella í fjarlægu landi. Dadda Möller fluttist ung til Bandaríkjanna með Pálma manni sínum og bjó þar til æviloka, en hún lést í desember síðastliðnum. Lengst af bjó hún í Birmingham, Alabama, en þar var Pálmi pró- fessor í tannlækningum. Margir fróðleiksþyrstir íslenskir tann- læknar hafa átt greiða leið í há- skólann í Birmingham vegna vel- vilja þeirra hjóna í gegnum árin. Sjálfsagt hefur ekki alltaf verið auðvelt að taka upp á arma sína nýja og nýja íslendinga, kynnast þeim og aðstoða, til þess eins að horfa á eftir þeim heim til íslands eftir eitt, tvö, þrjú ár. En Dadda hafði þann eiginleika að geta kynnst fólki og eflt við það vin- áttu án þess að sýta fylgifiskinn: aðskilnað og sífellda kveðjukossa á flugvöllum. Margar gleðistundir koma upp í hugann frá verunni í Birmingham. I sunnudagsbíltúmum rennum við gjaman upp í Vestaviahæðir þar sem Pálmi og Dadda búa. Báðir eldri synimir, Pálmi og Óskar, eru flognir úr hreiðrinu en yngsti sonur- inn, Jóhann, er heima. Rætt er um stjómmál og íslenska heimsmenn og heimskonur. Oft er slegið í brids og spilað lengi. íslenska þeirra hjóna er falleg og hrein og aldrei ræðum við saman á öðru tungu- andi systkini eru Arnbjörn og Dó- rothea. Maður Mál- fríðar: Pálmi Möll- er, tannlæknir, f. 4. nóvember 1922, d. 19. júní 1988. Synir: Pálmi, _ tölvufræð- ingur, Óskar, lækn- ir, Jóhann Georg, lögfræðingur. Tengdadætur bandariskar: Sus- an, Stephany og Amy. Barnabörnin eru fjögur. Útför Málfríðar var gerð frá Dómkirkjunni 24. september. máli. Falleg íslensk málverk prýða veggi, harðfiskur er á borðum, og mikið hlegið eins og íslendingum er tamt á vinafundum. íslendinga- nýlendan í hinu djúpa suðri Banda- ríkjanna er á heimili Döddu og Pálma. Þau horfa hvort á annað og Pálmi sem mátti löngum þola erfiða hjartasjúkdóma segir bros- andi: Krakkar. Er ekki lífíð dásam- legt. „Er ekki lífið dásamlegt." Þetta minnir okkur svo mikið á hlýhug og vináttu þeirra hjóna, að okkur hlýnar um hjartarætur. Það er þakkarvert að hafa kynnst Döddu, þó ekki væri hún fullkomin frekar en við hin mannanna börn. Það reynir óneitanlega mikið á þá frumheija hverrar kynslóðar og hverrar ættkvíslar, sem þora að hleypa heimdraganum og fara út í óvissuna, til ókunnra staða, á vit nýrra ævintýra, en jafnframt tak- ast á við hluti, sem reyna á mann- legt þrek og æðruleysi. Dadda er komin heim eins og hún þráði svo mjög innst inni alla sína ævi. En hún vissi líka að þráin eftir landinu kalda gaf henni styrk og aldrei heyrði ég hana kvarta. Hafðu þökk fyrir allar okkar góðu stundir. Sonum hennar, tengdadætrum og barnabörnum sendum við sam- úðarkveðjur. Siguijón Benediktsson og Snædís Gunnlaugsdóttir, Húsavík. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalang- amma, VALBORG HJÁLMARSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Tunguhálsi, lést á Sjúkrahúsi Skagfirðinga laugardaginn 27. september. Jarðarförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 4. október kl. 13.00. Auður Guðjónsdóttir, Garðar V. Guðjónsson, Guðsteinn V. Guðjónsson, Hjálmar S. Guðjónsson, Stefán S. Guðjónsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Guðbjörg Felixdóttir, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Björk Sigurðardóttir, Þórey Helgadóttir, María Ásbjörnsdóttir, + Okkar kæra, RAGNHILDUR JÓNASDÓTTIR, Stangarholti 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum 25. september sl. Útförin fer fram frá kapellunni í Hafnarfjarðar- kirkjugarði mánudaginn 6. október kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Astma- og ofnæmisfélagið. Ólöf Margrét, Ólöf Einarsdóttir, Jónas M. Lárusson, Rannveig Jónasdóttir, Trygve Fagerás, Lára Jónasdóttir, Birgir Karel Johnson. Manni er ávallt vandi á höndum er skrifa skal um látinn vin. Af mörgu er að taka. Mig langar þó til að setja á blað nokkur fátækleg orð um elskulega látna frænku mína, Málfríði (Döddu) Óskarsdótt- ur Möller, eða bara Döddu, sem hún var ætíð kölluð. Ætla ég þá fyrst að rekja lífshlaup hennar að nokkru leyti. Dadda fæddist í Reykjavík og var alin þar upp, dvaldi í for- eldrahúsum fram að giftingu. Hún gekk svo í Gagnfræðaskóla Reykja- víkur. Hún gekk í hjónaband með Pálma Möller, tannlækni, 12. júní 1945. Hann var þá á förum til náms í Boston í Bandaríkjunum, nánar til tekið við Tufts Univers- ity, og fylgdi Dadda manni sínum þangað. Dvöldu þau þar um fjög- urra ára bil og þar eignuðust þau fyrsta son sinn, Pálma. Þau fluttu svo til íslands að loknu námi Pálma og starfaði svo Pálmi hér við tannlækningar næstu tíu árin og hér fæddist næsti sonurinn, Óskar. Bauðst Pálma nú prófess- orsstaða í sinni sérgrein við Uni- versity of Birmingham í Alabama og tók hann því boði. Fluttu þau hjón þá til Alabama og bjuggu þar síðan, en Pálmi lést árið 1988. í Alabama eignuðust þau svo yngsta soninn, Jóhann Georg. Allir eru synirnir giftir bandarískum konum og eru barnabömin fjögur. Mig langar til að víkja dálítið að æsku og uppvexti Döddu. Bemsku- heimili hennar var á Fjólugötu 3, en faðir hennar, Óskar Lámsson, byggði það fallega hús á ámnum 1920-21. Þess má geta, að í dag- blaðinu „Dagur-Tíminn“, frá 23. ágúst sl., var sérstök grein, „Húsin í bænum“, og var þá sagt frá og birt mynd af Fjólugötu 3, og rakin saga hússins og ættmenna Döddu. Faðir hennar, Óskar, var sonur Lámsar G. Lúðvígssonar, skósmiðs og skókaupmanns, og allir eldri Reykvíkingar muna eftir glæsiskó- verslun með því nafni í Banka- stræti 5, sem flutt var úr gamla húsinu andspænis Þingholtsstræti 2, en í það húsnæði flutti faðir minn, Helgi Hallgrímsson, hljóð- færaverslun sína, sem hann rak þar í mörg ár. Bernskuheimili Döddu var glæsilegt í alla staði, rekið af elskulegum foreldrum. Anna, móð- ir Döddu, móðursystir undirritaðr- ar, var kona mjög smekkvís og list- ræn og bar heimilið þess glögg merki í hvívetna. Dadda fékk þetta allt í veganesti. Engan þurfti því að undra að sama fágaða smek- kvísi og hlýja ríkti ávallt á heimili þeirra hjóna, Pálma og Döddu, hér heima og í Alabama. Dadda var mjög gefín fyrir hann- yrðir og liggur eftir hana mjög fal- lega unnin handavinna, aðallega útsaumur. Fékk hún margar góðar fyrirmyndir hjá Þjóðminjasafni ís- lands sem hún svo útfærði á sinn hátt. Var handavinna Döddu sýnd á handavinnusýningu vestra og hlaut hún lof fyrir. Það var oft gestkvæmt á heimili þeirra hjóna í Alabama, enda bæði gestrisin og mannblendin. Höfðu yndi af að hafa fólk í kringum sig. Margir voru því þeir landar sem nutu gestrisni og hlýju þeirra, ekki síst á stórhátíðum sem jólum. Dadda var falleg kona, með bjart og sérlega hlýtt yfirbragð, hafði mikla útgeislun. Brosið var aldrei langt undan. Minnisstæð er mér líka rödd hennar, raddblærinn svo fallegur. Rödd einstaklingsins er svo sterkur þáttur í persónu hvers og eins. Jarðarför Döddu var gerð frá Dómkirkjunni, hinn 24. þ.m. í fal- legri minningarræðu sr. Hjalta Guð- mundssonar minntist hann langrar dvalar Döddu í annarri heimsálfu, en hve hugur hennar hefði reyndar alltaf dvalið við ísland meira eða minna, en að nú loksins væri hún komin heim til hinstu hvíldar. Ég sendi svo að lokum mínar dýpstu samúðarkveðjur til sonanna þriggja og fjölskyldna þeirra. Astríður H. Andersen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.