Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 02.10.1997, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1997 45 MIMIMIMGAR GUÐMUNDUR R. ÞORKELSSON + Guðmundur R. Þorkelsson var fæddur í Tungu í Sandgerði hinn 25. júlí 1925. Hann andaðist á Land- spítalanum hinn 24. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Svanhvít Sigríður Þórarins- dóttir og Þorkell Þorkelsson. Guð- mundur var yngst- ur í níu barna hópi en eftirlifandi bróðir er Jóhann, búsettur í Sandgerði. Guð- mundur kvæntist hinn 1. nóvember 1952 eftirlifandi eiginkonu sinni, Helgu Ósk Mar- geirsdóttur, og eiga þau eina dóttur, Hildi. Barnabörnin eru tvö, Guðmund- ur Þorkell og Elen- ora Ósk. Hildur er í sambúð með Ing- ólfi Vestmann Ein- arssyni. Útför Guðmund- ar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Elsku pabbi og afi, okkur langar að kveðja þig hér með nokkrum orðum. Við vitum að þú hefðir ekki viljað hafa þessi orð of mörg, en það er af mörgu að taka. Við vorum þér alltaf allt, litla ijölskyldan þín og þó að við byggjum nú ekki alltaf í sama bæjarfélagi þá voruð þið mamma alltaf jafn dugleg að koma til okkar þó það væri nú ekki til annars en að fá að fylgjast með augasteinunum ykkar beggja, barnabörnunum, eða þá að þau komu í „bæinn“ til ykkar í helgar- heimsókn og þá gátuð þið nú óspart dekrað við þau svona í rólegheitum. Ég man hvað þú varst stoltur þegar þú fékkst hann nafna þinn, það tók þig langan tíma að átta þig á því að hann bæri nafnið þitt vegna þess að þú varst alltaf svo lítillát- ur. En þegar árin liðu þá kom nú alltaf hjá þér inn á milli að Guð- mundur væri nú ansi traust og gott nafn sem reyndist líka rétt og þá vissum við líka hug þinn allan. Síðan þegar hann nafni þinn fékk svo loksins systur, þá var ekki ann- að til umræðu hjá honum en að hún yrði skírð í höfuðið á ömmu og langömmu, því hann var skírður í höfuðið á afa og langafa og þá vorum við komin með litla Mumma og litlu Oggu eins og við kölluðum þau svona okkar á milli. Margs er að minnast elsku pabbi, og þá kannski sérstaklega uppvaxt- aráranna minna í Sandgerði. Það var alveg yndislegt að fá að alast upp í faðmi ykkar mömmu í Birki- hlíðinni okkar, sem þið mamma byggðuð sjálf með góðra manna hjálp, hlaupandi fijáls i móanum með frænkum og frændum á stutt- buxunum með nesti eða í fjörunni að safna skeljum og steinum eða bara í fjársjóðsleit, því það var allt- af hægt að finna eitthvað merkilegt í fjörunni. Þá voru nú aðrir tímar og við krakkarnir alveg grunlaus um hve harður heimur var þarna einhvers staðar langt í burtu, því við vorum í okkar verndaða um- hverfi í litla plássinu okkar við sjó- inn. En árin hafa liðið og við flutt- um til Reykjavíkur 1966, en Sand- gerðisárin geymi ég alltaf í hjarta mínu og hef reynt að miðla því til barnanna minna hvað þetta voru yndisleg og áhyggjulaus ár. Elsku pabbi, þú áttir við erfið veikindi að stríða eftir stóra hjartaáfallið þitt í febrúar 1991. Þú varst ekki sami maður eftir það, en við vitum að þú varst áhyggjulaus svo lengi sem þú hafðir mömmu í augsýn, en best þótti þér nú að fá að halda í hönd- ina á henni því þá varstu alveg öruggur um að hún færi nú ekki langt og síðast en ekki síst þá þurft- ir þú alltaf að fá vissu þína um að „sú litla“ væri komin heim til mömmu sinnar, þá var allt gott. Þú kynntist Ingó eftir að þú veikt- ist en ég man að þegar ég sagði þér frá honum þá horfðir þú dágóða stund á mig og sagðir svo mjög yfirvegaður: „Já, hann er góður maður,“ og meira þurftir þú ekki að segja, það var eins og þú þekkt- ir allt til hans. Við erum þakklát fyrir að þið mamma fenguð þó þessi ár saman þó þau yrðu um margt öðruvísi en við hefðum kosið, en þú varst samt alltaf hvers manns hugljúfi og varst hrókur alls fagn- aðar þrátt fyrir veikindi þín. Elsku pabbi og afi, nú ertu kom- inn til mömmu þinnar og pabba sem voru nú alltaf með þér eftir að þú veiktist og við vitum að þér líður vel. Hafðu þökk fyrir allt og allt og við biðjum góðan guð um styrk handa mömmu í því tómarúmi sem nú myndast hjá henni. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma 511 bömin þín, svo blundi rótt. (Matth. Jochumsson) Þín Hildur, Guðmundur Þor- kell og Elenora Ósk. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endur- gjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast send- ið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er iögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. FRÉTTIR Vann ferð tilRíó TÓLF ára stúlka, Edith Oddsteins- dóttir hreppti 1. vinninginn í Karne- valleik Banana ehf. og Chiquita. Mikill fjöldi svarseðla barst Bönun- um ehf. og var Edith hlutskörpust. Hlýtur hún í verðlaun ferð til Ríó eða einhvers annars áfangastaðar Samvinnuverða Landsýnar að verð- mæti 230.000 kr. Eftirtaldir vinningshafar hrepptu Sony ferðageislaspilara: Markús Eyþórsson, Björk Högnadóttir, Páll Sigurður Magnússon, Hulda María Halldórsdóttir, Eyþór Sigmunds- son, Jóhann Kristján Halldórsson, Álfur Birkir Bjarnason, Kjartan Ársælsson og Linda Gústafsson. Verkföll og uppsagiiir valda grunnskólum óbætanlegu tjóni Á SAMEIGINLEGUM fundi bæjar- stjórnar Neskaupstaðar og grunn- skólakennara í Neskaupstað sem haldinn var 25. september sl. vegna yfirstandandi kjaradeilu sveitarfé- laga og stéttarfélaga grunnskóla- kennara var gerð eftirfarandi sam- þykkt: „Fundur bæjarstjórnar Neskaup- staðar og gi-unnskólakennara í Nes- kaupstað telur það vera sameiginlegt verkefni sveitarstjórnarmanna og grunnskólakennara að tryggja að góður og öflugur grunnskóli sé í hveiju sveitarféalgi. Það tekst ekki nema að innan hans starfi hæft og vel menntað starfsfólk sem er sátt við kaup, kjör og starfsaðstæður. Kjarasamningar kennara verða einn- ig að taka mið af þeim breytingum sem lög krefjast á hveijum tíma, nú til dæmis breytingum sem verða við einsetningu grunnskólans. BæjarfuIItrúar og grunnskóla- kennarar eru sammála um að verk- föll og uppsagnir kennara valdi grunnskólum óbætanlegu tjóni og því verði að grípa til allra tiltækra ráða til að koma í veg fyrir að til frekari slíkra aðgerða komi. Þá vill sameiginlegur fundur bæjarfulltrúa og grunnskólakennara í Neskaup- stað benda á að færa megi sterk rök fyrir því að alvarleg kjaramálaátök milli sveitarfélaga og kennara hafi mun skaðlegri áhrif á landsbyggð- inni en á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn vill beina þeirri ein- dregnu áskorun til samninganefnda sveitarfélaganna og kennarasam- takanna að nýhafnar viðræður milli< þeirra verði alvörusamningaviðræð- ur um nýjan kjarasamning og verði ekki slitið fyrr en niðurstaða er feng- Morgunblaðið/Golli EIGENDUR verslunarinnar þeir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson ásamt verslunarstjóranum Ragnari Kjart- anssyni fyrir framan verslunina að Skólavörðustíg 15. Flytja á Skólavörðu- stíginn HERRAFATAVERSLUN Kormáks & Skjaldar hefur flutt sig um set af Hverfisgötu 26 að Skólavörðustíg 15. Áfram verður lögð áhersla á hverskonar fatnað sem karl- menn þarfnast daglega sem og fyrir stórhátíðir. Kaffistofan er á sínum stað þar sem gestir og gangandi geta tyllt sér niður. N orðurlandamót Visa í skák ÚRSLITAMÓT í Visa Nordic Grand Prix skákmótaröðinni hefst í Reykjavík miðvikudaginn 8. októ- ber. Keppnin hófst með fyrsta for- mótinu „Reykjavík Open 1996“. í kjölfarið fylgdu 4 hliðstæð mót í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Færeyjum. Þrettán norrænir skákmeistarar tryggðu sér þátttökurétt í lokamót- inu með frammistöðu sinni í keppn- inni þar sem besti árangur í alls þremur mótum af fimm reiknaðist til stiga. Fjórtánda og lokasætið í mótinu er boðsæti sem að þessu sinni gekk til Finnlands svo öll Norðurlönd ættu þar keppanda. Með því telst mótið jafnframt Skákþing Norðurlanda 1997. Mun sigurvegari mótsins því verða tvö- faldur meistari, vinna hinn eftir- sótta NGP-bikarameistaratitil og hljóta sæmdarheitið skákmeistari Norðurlanda. Skáksamband Islands er skipu- leggjandi mótsins sem fram fer á Grand Hótel Reykjavík þann 8.-22. október nk. Aðalstyrktar- aðili mótsins sem og keppninnar í heild er Visa International. Aðrir stuðningsaðilar eru Visa ísland og aðildarbankar/sparisjóðir þess. Verðlaunasjóðurinn nemur 1.562.000 þar af eru fyrstu verð- laun 460.000 kr. Keppendur í mótinu eru eftir- taldir, skákstig í sviga: Curt Han- sen stórmeistari, Danmörku (2600), Jóhann Hjartarson stór- meistari, íslandi (2605), Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari, ís- landi (2545), Tiger Hillarp-Pers- son, alþjóðlegur meistari, Svíþjóð (2445), Rune Djurhuus stórmeist- ari, Noregi (2525), Einar Gausel stórmeistari, Noregi (2540), Jon- atan Tisdall stórmeistari, Noregi (2480), Þröstur Þórhallsson stór- meistari, íslandi, (2510), Ralf Ake- son stórmeistari, Svíþjóð (2520), Helgi Áss Grétarsson stórmeistari, íslandi (2475), Jonny Hector stór- meistari, Svíþjóð (2470), Lars Schandorff stórmeistari, Dan- mörku (2505), John Arni Nilssen skákmeistari, Færeyjum (2310) og Heikki Weterinen stórmeistari, Finnlandi (2410). Margeir Pétursson stórmeistari, sem hefði áunnið sér rétt, (42.50) féll frá þátttöku í mótinu vegna anna á öðrum vettvangi. Mótið telst 10 í styrkleika flokki. Undirbúningsnefnd mótsins skipa: Ágúst Sindri Karlsson, for- seti SÍ, Andri V. Hrólfsson, Askell Kárason, Ásdís Bragadóttir sem jafnframt er framkvæmdastjóri. Aðalskákdómari verður Þráinn Guðmundsson, aðstoðardómari Gunnar Björnsson. Frumkvöðull keppninnar og yfirumsjónarmaður er Einar S. Einarsson, svæðisfor- seti FIDE á Norðurlöndum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.